Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 15. MAI1999
Aðdáendur sportbíla fá mikið fyrir
sinn snúð þessa dagana á Avital-sport-
bílalsýningunni í Laugardalshöllinni.
Ein af skærustu stjörnunum á þessari
sýningu er Audi TT, sportbíllinn glæsi-
legi sem Hekla frumsýndi á dögunum.
Þessi djarflega hannaði sportbíll sást
fyrst á alþjóðlegu bílasýningunni í
Frankfurt haustið 1995. Þá var tekið til
þess hve bíllinn var djarflega hannaður,
mikið byggt á bogaformum og lagt upp
úr því að sameina grófleika og finleika,
með notkun á burstuðu áli.
Venjan er sú að þegar frumgerð bíls
sést í öllu sínu veldi á bílasýningu og
þegar kemur síðan að Qöldaframleiðslu
vill margt fara forgörðum í hönnun og
frumleika og þvi biðu margir spenntir
eftir bílnum eftir að Audi hafði tilkynnt
að hann myndi fara í framleiðslu. Það
fór kiiður um salinn á bílsýningunni í
París á liðnu hausti þegar hulunni var
svipt af þessum nýja sportbíl, glæsileik-
inn var greinilega enn í fyrirrúmi og
fátt eitt hafði tapast frá frumgerð að
fullgerðum bílnum.
Bogmyndað form
Það er greinilegt að hönnuðir TT eru
að leika sér með þau bogmynduðu form
sem einkenna bila frá VW-samsteyp-
unni þessa dagana. Þessi form hafa sést
vel í „álbílnum", A8, frá Audi, einnig í
nýju bjöllunni, Passat og fleiri bílum.
Þessi leikur að formi sést vel þegar
horft er á TT frá hlið. Stór hjólin, lágir
hliðargluggar, breiðir póstar og sér-
stætt formið grípur augað.
Þegar sest er inn takmarkar hátt
byggingarlag á framenda nokkuð yfir-
sýn fram á veginn og sömuleiðis breið-
ir hliðarpóstamir.
Hliðarhurðir eru stórar og þykkar og
það heyrist vel þegar þeim er lokað. TT
hefur góðan kost við lokun hurða sem
birtist í því að um leið og hurð er opn-
uð eða lokuð sígur hliöarrúðan niður
um nokkra millímetra þannig að miklu
léttra er að loka en ella. Um leið og búið
er aö loka lyftist rúðan aftur sjálfkrafa
og bíllinn er harðlokaður.
AudiTT
rými í góðu lagi. Það eina sem má finna
að er að þegar sest er inn fmnst manni
að ökumaður og farþegi í framsæti sitji
óþarflega neðarlega en þetta venst
strax.
TT er svokailaður 2+2 bíll því hann
er með tvö aftursæti, en þar er minna
pláss og hann raunar svo þröngur að
vart er hægt að ætlast til þess að full-
orðnir setjist í þessi sæti, en það er
kannski líka bara aukaatriði þegar TT á
íhlut.
Farangursrýmið kemur hins vegar
nokkuð á óvart. Stór afturhlerinn opn-
ast hátt upp og gefúr ágætt aðgengi.
Hægt er að leggja bak aftursætanna
fram og fá þannig aukna flutningsgetu.
Reynsluakstur Audi TT:
Vélin í TT er „bara“ 1,8 lítra en gefur
180 hestöfl við 5.500 snúninga. Þetta er
fyllilega nægilegt afl og þegar við bætist
einn sá besti gírkassi sem hægt er að
finna í bíl af þessu tagi, léttleikandi en
um leið ákveðinn í skiptingum, þá er
gaman að aka.
Það var vel blautt á þá tvo daga sem
við vomm með Audi TT í akstri, dag-
ana fyrir opnun Avital-sportbílasýning-
arinnar, þannig að þá reyndi töluvert á
rásfestu og veggrip hjólanna. Það var
Þegar horft er á bílinn frá hlið sjást bogalfnurnar enn frekar, há miðlína og lágir hliðargluggar. Lítil hliðarrúða aftan
við hurðirnar undirstrikar vel góða hönnun útiits. DV-myndir Teitur
Audi TT er fallega hannaður bíll. Bogmynduð formin setja sinn svip á bílinn
hvar sem á hann er litið.
Ljósin falla þétt að yfirbyggingunni. Hér eru þrjú afturljósker falin undir
sléttu gleri.
Lengd: 4.041 mm.
Breidd: 1.856 mm.
Hæð: 1.345 mm.
Hjólahaf: 2.422 mm.
Sporvídd, f/a. 1528/1513 mm.
Eigin þyngd: 1.240 kg.
Vél: 4ra strokka, 1.781 cc, 180
hö. (132 kW) v/5.500 sn.
Snúningsvægi 235 Nm
við 1.950-5000 snúninga.
Fjöðrun: MacPherson-gorma-
fjöðrun að framan, vindufjöör-
un aftan, jafnvægisstöng.
Stýri: Tannstangarstýri með
hjálparafli.
Snúningshringur bíls: 10,5 m.
Hjól: 205/55R16.
Verð: Frá kr. 3.650.000.
Það er þægileg tilfinning að setjast
inn í Audi TT. Leðurklædd framsætin
taka vel á móti manni og umhverfið er
eitt listaverk hvað varðar hönnun og
frágang. Mælaborðið er með því sér-
stæðasta sem gerist í dag. Umhverfis
mæla og stjórntæki eru hringir úr
burstuðu áli. Kantað en um leið matt yf-
irborð álsins hefur á sér yfirbragð
ákveðins grófleiká en er um leið ákaf-
lega finlegt. Hringformið birtist hér í
ýmsum myndum: hringir um lofttúður
og einnig í kringum gólffestingu á
hulsu um gírstöngina.
Meira að segja fellur mött hlíf úr áli
yfir útvarp og hljómtæki, en hún renn-
ur léttlega frá sé stutt á hana með ein-
um fingri.
TT er ákaflega rúmgóður bíll ef ein-
ungis er horft til framsætanna. Breidd
innanrýmisins er góð, höfuð- og fóta-
NANKANG
^..2..................'
Mæla - og barkaviögerðir
Hjólbaröaverkstæði
Sudurlandsbraut 16
sími 588 9747, fax 588 9722
':ic:
(VDO)
BORGARDEKK
Hringlaga mælar í anda alvörusportbíla, læsilegir jafnt
að degi sem nóttu.
Aftursætið er svolrtill brandari, fullvaxið leðursæti en allt
of þröngt til að nýtast fullorðnum.
Glæsilegt umhverfi ökumanns, mikið af burstuðu áli, leðri og fallegri hönn
un.
líka auðvelt að fá bílinn til að spóla í
upptaktinum en um leið og hann var
kominn af stað var engum blöðum um
það að fletta að hér er aksturshæfni
Audi-bílanna hvaö best og var þó nógu
góð fyrir.
Snúningsvægið er líka harla gott, eða
290 Nm, sem nýtist vel á löngu sviði,
eða frá rétt undir 2000 snúningum upp í
5000 snúninga. Af þessu leiðir að það er
auðvelt að „gleyma sér“ við aksturinn,
hægja ferðina í til þess að gera of háum
gír og rífa hann síðan á fulla siglingu
aftur.
Eigulegur bíll
Venjulega eru sportbílar á borð við
Audi TT of miklir sportarar til að duga
vel í daglegum bæjarakstri. TT er and-
stæða alls þessa. Þetta er bíll sem er veru-
lega eigulegur og myndi nýtast vel ef ekki
væri þörf á að nýta aftursætið daglega.
Hurðir eru stórar og þungar en lokast léttilega vegna
þess að hliðarrúðan sígur niður nokkra millímetra þegar
lokað er.
Vélin er vel innpökkuð í vélarhúsinu og 180 hestöflin
duga vel, einkum vegna skemmtilegs gírkassa.