Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Qupperneq 6
22 umhverfi
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
Myglu-
hreinsun
Oft er erfitt aö hreinsa burt
'>1 myglu en ágætt ráö er aö
blanda saman hálfum bolla af
ediki og hálfum bolla af boraxi
og blanda meö volgu vatni.
Þessi blanda gagnast vel viö aö
þrífa mygluna í burtu.
Sítrónu- og
ólífubón
Góö uppskrift aö bóni á gólf-
in er aö nota
hálfan bolla
sítrónusafa og
einn bolla af
ólífuolíu eöa
matarolíu og
blanda saman.
Lögurinn er síö-
an notaður eins og hvert annað
bón.
I\lýr
uppþvottalögur
Umhverfisvænn uppþvotta-
lögur er þess viröi aö prófa
hann. Blandið saman einum
hluta boraxi og einum hiuta
r þvottasóda og vaskiö upp eins
og venjulega.
Langlífir filterar
Reykingafólk skilur eftir sig
mikiö af stubbum. Manneskja
sem reykir einn
pakka á dag
skilur eftir sig
7300 stubba á
ári. Hvern þess-
ara stubba tek-
ur fimm áratugi
aö eyöast, en
þaö er svipaöur tími og meðal-
aldur fólks er í Rússlandi.
Ódýrara
mýkingarefni
Margir nota dýr mýkingarefni
í þvottinn en þau efni eru oft
ekki mjög umhverfisvæn þó
framleiðendur gefi sig út fyrir
aö þau séu þaö. Hægt er aö
slá tvær flugur í einu höggi,
vera umhverfisvænn og spara,
meö því aö setja I staðinn einn
bolla af hvítu ediki eöa 1/4
bolla af matarsóda í vélina.
Tóbak gegn
blaðlús
Margir eitra fyrir blaðlús sem
étur blööin af trjám.
Henni má verjast meö
því aö nota tóþakslög í
staöinn. Notaður er
einn pakki af píputóbaki
sem soöinn er í 15 mín-
útur í 3 lítrum af vatni.
Þá er tóbakiö sigtaö frá
og allur vökvi kreistur
vel úr því. Lögurinn er
svo þlandaður meö
vatni I hlutföllunum 1 á
móti 9. Þetta hefur
reynst mjög vel í barátt-
unni viö lúsina.
Heitt vatn
gegn lirfum
og eggjum
Vökvun meö sjóöandi
heitu vatni drepur lirfur
og snigla og eyöileggur
egg þeirra sem kunna aö leyn-
ast í moldinni í garöinum. Þó
verður aö gætf fyllstu varúöar
aö brenna ékki nærliggjandi
plöntur.
Landssíminn:
500 tonn
af sírma-
skrárri fá nýtt hlutvenk
- við uppgraeðslu landsins, segin Olafun Stephensen
Landssíminn á sér langa
sögu og djúpar rætur I
vitund þjóðarinnar.
Frá árinu 1906 hefur
fyrirtækið veitt lands-
mönnum nýjustu fjarskiptaþjónustu
á hverjum tíma og verið mikilvæg
tenging þeirra við umheiminn.
Landssími íslands leggur áherslu á
að rekstur fyrirtækisins sé í góðri
sátt við umhverfíð. Þátttaka í verk-
efninu Skil 21 er liður í þessari við-
leitni fyrirtækisins og vonast Sím-
inn til að geta þannig virkjað bæði
starfsfólk sitt og viðskiptavini í
þágu umhverfisvemdar og góðrar
umgengni við landið. Við báðum
Ólaf Stephensen, forstöðumann upp-
lýsinga- og kynningarmála, að segja
frá umhverfisvemdunarmálum fyr-
irtækisins.
í sátt við umhverfið
„í fjarskiptarekstri fellur eðli
málsins samkvæmt lítið til af
hættulegum efnum eða úrgangi.
Miklar framkvæmdir em hins veg-
ar á vegum Símans um allt land og
fylgir þeim stundum nokkurt rask.
Við allar slíkar framkvæmdir höf-
um við kappkostað að valda sem
minnstu ónæði og ganga til dæmis
vel frá jarðsímalögnum þannig að
þeirra sjáist helst engin merki í
gróðurþekjunni að ári liðnu. Við
uppsetningu fjarskiptamannvirkja
er þess gætt í hvívetna að þau falli
sem best að umhverfinu og sé kom-
ið fyrir í sem mestri sátt við skipu-
lagsyfirvöld, sveitarstjómir og al-
menning. Segja má að Síminn hafi
unnið stórátak í umhverfismálum á
síðustu áratugum, þegar símalagnir
um allt land vom grafnar í jörð og
loftlínur rifnar þannig að sjónmeng-
un af þeirra völdum er úr sögunni,"
segir Ólafur.
Umhverfisvænn
bifreiðarekstur
„Landssíminn á um 200 bifreiðar
og kappkostar að rekstur þeirra sé
sem hagkvæmastur og umhverfis-
vænstur. Keyptur hefur verið bún-
aður til að gera reglubundnar mæl-
ingar á útblæstri frá bifreiðunum í
því skyni aö draga úr loftmengun.
Þá höfum við sett okkur það mark-
mið að í haust verði allar bifreiðar
fyrirtækisins sem eingöngu eru í
innanbæjarakstri á harðkorna-
dekkjum. Talið er að á hverjum
eknum kílómetra rífi venjuleg fólks-
bifreið á nagladekkjum upp 27
grömm af malbiki. Bílar Landssím-
ans aka um 3,3 milljónir kílómetra á
ári og er ljóst að verulega má draga
úr mengun með notkun harðkorna-
dekkjanna. Jafnframt hefur í til-
raunaskyni verið keyptur rafbíll til
Fyrirtækið Gámaþjón-
ustan var stofnað árið
1983 og hóf starfsemi
sina árið eftir. Starfs-
svið fyrirtækisins er
víðfemt og má þar nefna almenna
sorphirðu, leigu á sorpgámum,
vinnuskúrum, færanlegum salem-
um og færanlegum girðingum, söfn-
un spilliefna og úrgangs. Einnig
stendur Gámaþjónustan fyrir flutn-
notkunar á höfuðborgarsvæðinu.
Við fylgjumst vel með þróuninni í
framleiðslu rafbíla og gasbila með
það fyrir augum að gera bílaflotann
enn umhverfisvænni.“
ingi á vinnuvélum, endurvinnslu og
ráðgjöf. Fyrirtækið hefur á að skipa
rúmlega 2000 gámum og 20 sérhæfð-
um flutningabílum af öllum stærð-
um og gerðum. Starfsmenn eru um
50.
Tvær flugur
í einu höggi
Gámaþjónustan hefur unnið að
Gamla símaskráin
nýtt
„Fyrirtækið hefur um nokkurra
ára skeið flokkað pappa, timbur og
málma frá öðrum úrgangi og komið
til endurvinnslu. Með þátttöku í
átakinu Skil 21 sem nýverið var
hrundið af stað verður enn frekari
flokkun úrgangs tekin upp og líf-
rænn úrgangur notaður í verkefn-
inu. Mestu munar að fyrirtækiö hef-
ur frá því í vor þegar ný skrá kom
út boðið viðskiptavinum sínum upp
á að skila gömlu Símaskránni aftur
til fyrirtækisins. Pappírinn úr
gömlu skránni er notaður til jarð-
gerðar á vegum verkefnisins Skil 21
og þannig fá allt að 500 tonn af síma-
skrám nýtt hlutverk við upp-
græðslu landsins, verða verðmæti í
stað sorps.“
Farsímarafhlöðum
skilað inn
Er von á einhverjum nýjungum
frá Landssimanum í umhverfisvernd
á nœstunni?
„Það sem helst ber að nefna er að
á næstunni stendur til að bjóða far-
símanotendum upp á að skÚa göml-
um rafhlöðum úr farsímum til okk-
ar. Með þessari þjónustu má koma í
veg fyrir mikla mengun. Þá má ekki
gleyma öflugri þátttöku Símans í
Græna hemum sem fer um landið í
sumar og tekur til hendinni í um-
hverflsmálum. Annars hefur verið
svo mikil uppsveifla í umhverfis-
vernd á íslandi að sífellt má eiga
von á nýjungum sem koma öllum til
góða,“ segir Ólafur.
því að finna leiðir til að endurvinna
lífrænan úrgang til þess að minnka
þann úrgang sem fer til förgunar.
Framleiddur er lífrænn áburður
sem nota má til hvers kyns ræktun-
ar. Þannig em tvær flugur slegnar í
einu höggi, sorp til urðunar er
minnkað um leið og stuðlað er að
uppgræðslu í þéttbýli og dreifbýli.
Gámaþjónustan hefur staðið fyrir
útgáfu á ýmiss konar bæklingum til
að auðvelda fólki flokkun og stuðla
að aukinni endurvinnslu. Fyrirtæk-
ið sér um alla söfnun og flutninga á
einn stað í útjaðri þéttbýlisins. Þar
er t.d. matarleifum blandað saman
við aðra efnaflokka svo sem pappír
og trékurl. Með blöndun fæst hent-
ug samsetning og jarðgerðin gengur
fljótt og örugglega. -hdm
-hdm
Gámaþjónustan:
□regið úr úrgangi
til förgunan
■ttl tyfbwMYiAait
fr