Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Blaðsíða 2
20
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
21
Sport
Bland i poka
Stuóningsmenn KR sýndu íslenskri
knattspyrnu mikla lítilsvirðingu á KR-
vellinum í gærkvöld með því að fagna
innilega tapi ÍBV gegn MTK i forkeppni
meistaradeildarinnar. Það er öllum ís-
lenskum liðum i hag, líka KR, að sem
bestur árangur náist í hverjum einstök-
um Evrópuleik.
Leiftursmenn hafa aldrei unnið á KR-
vellinum í sex heimsóknum sinum i
vesturbæinn. KR-ingar hafa unnið fjóra
leiki og þetta var annað jafntefli liðanna
en Leiftur hefur reyndar aðeins unnið
einn af 12 leikjum félaganna I efstu
deild.
Það vakti athygli að Einar Guömunds-
son aðstoðardómari var settur á þennan
leik llkt og í viöureign liðanna í fyrra.
Einar kom sér fyrir á sömu línu og þá. í
fyrra dæmdi hann af löglegt mark Leift-
ursmanna og i gær veifaði hann til
merkis um vítaspyrnu á norðanmenn.
Einari verður því líklega ekki hleypt i
gegnum göngin yflr í Ólafsfjörð næst er
hann hyggur á ferð um Norðurland.
Framhaldssaga fostu leikatriðanna hjá
KR-ingum heldur áfram. Liðið fékk á sig
sitt níunda mark í gær, beint úr auka-
spymu, og það á það sameiginlegt með
hinum átta að koma ekki í gangandi
leik. Fimm mörk hafa komið eftir hom-
spyrnur, þrjú eftir aukaspymur og eitt
úr vitaspymu.
Öll níu mörk Leiftursmanna í fyrstu 11
leikjum sumarsins hafa verið skomð af
útlendingum. Brasilíiumenn hafa gert 5
(Santos 3, Da Silva 2) og Færeyingur-
inn Une Arge fjögur.
Rútur Snorrason frá Vestmannaeyjum
gekk í gær til liðs við Keflavík eins og
sagt var fyrir um í DV i gær. Hann
samdi til hálfs fjórða árs, eða út tímabil-
iö 2002.
Gunnar Oddsson verður áfram leik-
maður með Keflavík, þrátt fyrir þjálfara-
skiptin þar á bæ, en á timabili var í stöð-
unni að hann skipti um félag.
Adolf Sveinsson er hins vegar á fömm
frá Keflavík og hefur átt í viðræðum við
nokkur félög.
Eyþór Sverrisson, sem hefur leikið einn
leik með Breiöabliki í úrvalsdeildinni i
Þorvaldur Guðbjörnsson úr Leiftri og Sigþór Júlíusson úr KR í kapphlaupi um boitann á KR-vellinum í gærkvöld. DV-mynd Hilmar Þór
- of sterk fyrir KR-inga sem töpuðu tveimur dýrmætum stigum á heimavelli
KR-ingar misstu aðeins flugið í
úrvalsdeild karla í knattspyrnu í
gær er þeir náðu aðeins jafntefli
gegn Leiftri í vesturbænum, 1-1.
Leiftursmenn lögöu upp leikinn
mjög skýrt, vörðust mjög aftarlega
og settu vissulega öðrum liöum for-
dæmi hvemig hægt er að stöðva
KR-liðið sem var búið að skora lang-
flest mörk í deildinni, eða 23.
Aukaspyrnur settu mikinn svip á
leikinn, sem var ekki mjög grófur,
en menn voru þó meira að hugsa
um að stöðva andstæðinginn en að
spila boltanum. Það var því eftir
öllu að aukaspyrna Alexandre da
Silva á 29. mínútu, sú 19. í leiknum,
opnaði leikinn. Kristján Finnboga-
son greip þó í tómt og aukspyma da
Silva flaug heila 40 metra, yfir
Kristján, og alla leið í mark KR-
inga. Fyrsta sóknartilraun gestanna
setti KR-inga því i erfiða stöðu.
KR-ingar héldu þó sínu striki en
vandamálið var þó sem fyrr að opna
mannmarga vöm Ólafsfirðinga. Það
var því með innkomu Einars Guð-
mundssonar aðstoðardómara að
sóknartilraunir heimamanna báru
loks árangur. Einar veifaði hendi á
Pál V. Gíslason eftir gott upphlaup
Sigþórs Júlíussonar. Dómur þessi
var mjög umdeildur og gestimir allt
annað en sáttir.
En hörð mótmæli
uppskáru aðeins
tvö gul spjöld og
Guðmundur Ben-
ediktsson skoraði
að öryggi úr vít-
inu.
Seinni hálfleik-
ur var slakur og
pirraðir KR-ingar misstu einbeiting-
una og létu duglega og vinnusama
Leiftursmenn brjóta niður sóknar-
leik sinn. Úr varð einhver hálofta-
bolti, eitthvaö sem hinir smáu fram-
herjar KR-inga kunnu lítið aö meta.
KR-ingar leiddu 20-4 í skotum á
mark í þessum leik en flest, ef ekki
öll, skot þeirra komu úr hálffærum
og pirringur þeirra þegar lítið gekk
kom mest fram í klaufalegum og oft-
ast óþörfum brotum. Alls brutu KR-
ingar 26 sinnum af sér, þar af 14
sinnum í seinni hálfleik, og það
þrátt fyrir að vera mest allan tím-
ann með boltann sjálfir. Leiktíminn
rann út og tvö töpuð stig KR-inga í
einvíginu við Eyja-
menn gefur ÍBV
tækifæri á að kom-
ast upp að hlið KR.
Steinn V. Gunnars-
son og Hlynur
Birgisson léku vel í
vörn Leifturs í
leiknum og héldu
heitasta sóknar-
pari landsins, þeim Guðmundi
Benediktssyni og Bjarka Gunn-
laugssyni, i skefjum en þeir félagar
hafa búið til 11 mörk hvor í sumar
og verið brennandi heitir saman í
síðustu leikjum.
Guðmundur Benediktsson sá eftir
tveimur stigum í mikilvægum leik á
heimavelli. „Það er sérstaklega sárt
að spila hér á heimavelli og tapa
stigum. Við vorum að spila löngum
boltum í seinni hálfleik í stað þess
að spila boltanum niðri, þar sem við
erum bestir. Þetta verður hörku
barátta alla leiki en eitt stig er betra
en ekki neitt,“ sagði Guðmundur.
Hlynur Birgisson, fyrirliði Leift-
urs, fór fyrir sínum mönnum í vöm-
inni. „Þetta var baráttuleikur, við
spilum aftarlega og verjumst vel og
höfum lagt okkar leik þannig upp í
sumar. Við erum ósáttir við að dóm-
arinn gaf þeim mark en getum ver-
ið sáttir með að ná í stigið í þessum
leik,“ sagði Hlynur.
Páll Guðlaugsson var ekki ánægð-
ur með hlut Leifturs: „Við erum
ekki ánægðir. Ef við hefðum fengið
það sem við áttum skilið hefðum við
unnið þennan leik. Þeir fá víti á silf-
urfati en þessi vafaatriði falla aldrei
þessum litlu liðum í skaut. Það er
þeirra á heimavelli að skapa leikinn
en ekki okkar og það hefði verið
sanngjamt fyrir þá vinnu og bar-
áttu sem mínir strákar lögðu í þenn-
an leik að við hefðum unnið.“
-ÓÓJ
0-Q Alexandre da Silva (29.)
v v skoraði beint úi- aukaspymu
af um 40 metra færi. Boltinn flaug yflr
Kristján sem virtist blindast af sólinni.
0-0 Guómundur Benediktsson
v v (38.) skoraði öruggiega úr vlti
sem dæmt var á Pál V. Gíslason fyrir
að handleika knöttinn innan teigs.
DV DV
Sport
sumar, er genginn til liðs við nágrann-
ana í Kópavoginum, HK.
Helgi Kolviósson og félagar í þýska
knattspymuliðinu Mainz skelltu hinu
fræga portúgalska liði Benfica, 1-0, á
heimavelli sinum í gærkvöld.
Róbert Haraldsson, fyrirliði KVA,
hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja
bann eftir annan brottrekstur sinn á
sumrinu. Hann lék ekki með KVA gegn
ÍR í gærkvöld og verður heldur ekki með
gegn Víði 1 næstu umferð.
-ÓÓJ/VS
4 LANDSSÍMA
DEILDIN y oc
Úrvalsdeild karla
KR 11 7 3 1 24-9 24
ÍBV 10 6 3 1 17-6 21
Fram 10 3 5 2 13-11 14
Leiftur 11 3 5 3 9-14 14
Grindavik 10 3 2 5 11-12 11
Valur 10 2 5 3 13-18 11
Breiðablik 9 2 4 3 9-9 10
ÍA 9 2 4 3 5-8 10
Keflavlk 10 3 1 6 13-18 10
Víkingur R. 10 1 4 5 10-19 7
Þrír leikir fara fram í kvöld
kl. 20. Keflavík fær Fram í heim-
sókn, Breiðablik tekur á móti
Grindavík og Víkingur mætir ÍA
á Laugardalsvellinum. Leik ÍBV
og Vals var frestað til 25. ágúst
vegna Evrópuleiks Eyjamanna í
gærkvöld.
IBV0 - MTK1 (2)
Birkir Kristinsson - Ivar Bjarklind, Hlynur Stefáns-
_____ son, Zoran Miljkovic, Hjalti Jóhannesson - Goran
Aleksic, ívar Ingimarsson, Baldur Bragason - Allan Mörköre, Stein-
grímur Jóhannesson (Guðni Rúnar Helgason 60.), Ingi Sigurðsson.
Gul spjöld: Hlynur og Baldur.
Gábor Babos - Csaba Fehér, Attilla Kuttor, Ádám
Komlósi, Tamás Szamósi - Krisztián ■ Kenesei
(Buzsáki 75.), Gábor Halmai, Károly Erös (Iván Balasko 46.), Csaba
Madar - Nicolae Ilea, Bela Illés (Sándor Preisinger 65.)
Gul spjöld: Erös, Halmai, Kenesei.
Forkeppni meistaradeildarinnar, 2. umferð:
Lánlausir
IBV-MTK
Markskot: 10
Hom: 4
Áhorfendur: 830
ÍBV - MTK
Völlur: Mjög góður.
Dómari: Terje Hauge, bar
mikla virðingu fyrir MTK.
Maður leiksins: Goran Aleksic IBV.
Átti stórleik á miðjunni og sýndi mjög skemmtileg tilþrif.
„Attum aö geta
skorað tvö mörk“
„Þetta féll ekki alveg fyrir
okkur og lánið var ekki okk-
ar megin. Ég var mjög óhress
með fyrra markið. Það var
greinilega brotið á ívari og
menn stoppuðu. Hann fékk
því að skjóta á markið óá-
reiddur og ég sjálfúr var ekki
tilbúinn enda reiknaði ég
með flauti eins og allir aðr-
ir,“ sagði Birkir Kristinsson,
markvörður ÍBV, við DV eft-
ir leikinn við MTK í gær-
kvöld.
„Þetta mark sló okkur svo-
lítið út af laginu en við náð-
um að koma til baka og átt-
um ágæta kafla.
Seinna markið var hreinn
klaufaskapur af okkar hálfu.
Við áttum samt alveg að geta
skorað 2 mörk eins og þeir.
Þetta er sterkt lið og óneitan-
lega eru þeir komnir meö
vænlega stöðu en við verðum
bara að gera okkar besta í
seinni leiknum og sjá hverju
það skilar," sagði Birkir
Kristinsson.
-GH
- Eyjamenn töpuðu 0-2 fyrir MTK frá Ungverjalandi
Vonir Eyjamanna um að
komast áfram í 3. umferð meist-
aradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu verða að teljast hverf-
andi eftir tap gegn ungversku
meisturunum í MTK Búdapest
á Hásteinsvelli í gærkvöld.
Úrslitin, 0-2, gefa þó kannski
ekki alveg rétta mynd af leikn-
um. Eyjamenn sköpuðu sér
nokkur ágæt marktækifæri
sem þer nýttu ekki og það besta
kom á 77. mínútu þegar víta-
spyrna var dæmd eftir að ívar
Bjarklind var felldur en góður
markvörður Ungverja varði frá
Guðna Rúnari. Eyjamenn voru
lánlausir en leiknum er lýst
best þannig að munurinn á
áhuga- og atvinnumennsku hafi
berlega komið í ljós. Á meðan
heimamenn nýttu ekki sín færi
refsuðu atvinnumennimir mót-
herjum sínum grimmilega og
nýttu sín færi nánast í botn.
Fyrstu 20 mínútumar var á
brattann að sækja fyrir ÍBV.
Ungvejramir pressuðu leik-
menn ÍBV hátt uppi á vellinum
og Eyjamönnum gekk erfiðlega
að spila sig út úr pressunni. Á
18. mínútu urðu svo Eyjamenn
fyrir miklu áfalli þegar ung-
verska liðið skoraði mark og
því marki mótmæltu leikmenn
ÍBV mjög hressilega. Brotið var
greinilega á ívari Ingimarssyni
rétt áður en boltinn barst til
Halmai, sem
skoraöi með
góðu skoti,
en dómarinn
gerði enga
athugasemd
við markið.
Markið kom
eins og köld
vatnsgusa
framan í Eyjamenn, enda ekki
óskastaða að lenda í á heima-
velli og það snemma leiks. En
Eyjamenn eru ýmsu vanir og
mótlætið virtist efla þá. Þeir
náðu smám saman betri tökum
á leik sínum og í ein fimm
skipti sem eftir lifði af fyrri
hálfleik gerðu þeir sig líklega
til að jafna. Besta færi fyrri
hálfleiks féll Steingrími Jó-
hannessyni í skaut. Eftir frá-
bæra sókn átti Ingi glæsilega
sendingu á Steingrím en í stað
þess að skjóta yfir úthlaupandi
markvörðinn reyndi hann að
leika á markvörðinn, sem sá
við honum.
Eyjamenn hófu
síðari hálfleikinn
eins og þeir luku
þeim fyrri og á 53.
mínútu skaut
Hlynur í stöng.
Tíu minútum síð-
ar var Guðni Rún-
ar, nýkominn inn
á sem varamaður,
nálægt því að skora. Rothöggið
kom svo þegar 20 mínútur voru
eftir en þá skoraði MTK annað
markið, mjög gegn gangi leiks-
ins. Eftir það hugsuðu Ung-
verjamir fyrst og fremst um að
halda fengnum hlut, sem þeim
tókst, þrátt fyrir nokkra pressu
og misnotaða vítaspyrnu ÍBV.
Ef undan eru skildar fyrstu
20 mínútur leiksins þá lék ÍBV
á köflum mjög vel og átti skilið
meira. Goran Aleksic átti mjög
góðan leik á miðjunni og sýndi
oft snilldartilþrif. Hlynur og
Zoran léku vel í vöminni svo
og Baldur Bragason og ívar
Bjarklind átti marga góða
spretti. Ingi var sprækur í fyrri
hálfleik og var einn fárra sem
bar ekki virðingu fyrir mót-
herjum sínum. Þetta var 5. leik-
ur ÍBV á skömmum tíma og
eðlilega voru nokkur þreytu-
merki á liðinu þegar á leið. Lið
MTK er geysisterkt, leikmenn
fljótir og flinkir og nánast
hvergi veikan blett að finna.
Eftir þessi úrslit er ljóst að róð-
ur ÍBV verður mjög þur.gur í
Búdapest. Þar hafa Eyjamenn
allt að vinna og með vel skipu-
lögðum leik og áræðni er aldrei
að vita nema að þeir geti velgt
Ungverjum undir uggum.
-GH
0.0 Gábor Halmai (18) tók
v ” knöttinn á lofti og þrum-
aði honum efst I markhomið af
um 25 metra færi.
0.0 Sándor Preisinger (72.)
” ” eftir aukaspymu frá
hægri fékk Preisinger boltann
einn og óvaldaður á markteig og
skoraði auðveldlega framhiá Birki.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari IBV:
Virðing ffyr-
ir Ungverjum
- fyrra markið eftir klárlegt brot
Forkeppni - 2. umferð
Fyrri leikir:
ÍBV - MTK Hungaria.............0-2
Dnepr Mogilev - AIK............0-1
Dynamo Kiev - Zalgiris.........2-0
Din. Tbilisi - Zimbru Chisinau . 2-1
Rapid Búkarest - Skonto Riga .. 3-3
CSKA Moskva - Molde............2-0
Liteks - Widzew Lodz ..........4-1
Anorthosis - Slovan Bratislava . 2-1
Besiktas - Hapoel Haifa........1-1
Haka - Glasgow Rangers.........1-4
Slogo Jugomagnat - Bröndby ... 0-1
Maribor - Genk.................5-1
Partizan Belgrad - Rijeka .....3-1
Rapid Wien - Valletta .........3-0
Genk fékk hrikalegan skell í Slóv-
eníu og á erfltt verkefni fyrir hönd-
um i heimaleiknum. Branko Strup-
ar skoraði markið.
Fillippo Inzaghi skoraði tvö marka
Juventus í Rússlandi og þeir Darko
Kovacevic og Gian Luca Zambrotta
eitt hvor.
Intertoto-keppnin
Undanúrslit - fyrri leikir:
Metz - Polonia Varsjá .........5-1
Rostselmash Rostov - Juventus . 0-4
Duisburg - Montpellier ........1-1
Rennes - Austria Wien .........2-0
Trabzonspor - Hamburger SV . . 2-2
West Ham - Heerenveen'.........1-0
Frank Lampard skoraði sigurmark
West Ham með skoti af 20 m færi á 7.
mínútu. Enska liðið fer þvi með
naumt forskot til Hollands.
„Lánleysið var okkar megin í þess-
um leik og ég vil meina að fyrra
markið hafl verið eftir klárlegt brot.
Dómarinn bai-
mikla virð-
ingu fyrir
Ungverjunum
og það er frek-
ar dapurt að
horfa upp á
svona í Evr-
ópukeppni,"
sagði Bjami
Jóhannsson,
þjálfari ÍBV, við DV eftir leikinn í
Eyjum í gærkvöld.
„Ég ætla samt ekki að kenna dóm-
aranum um hvemig fór. Það vantaði
smá neista í okkur og við nýttum
ekki það sem við vorum að gera vel.
Viö fengum góð færi og vítaspyrnu
að auki og á stórum kafla var liðið
að leika vel. Það dró svolítið úr okk-
ur í síðari hálfleik, enda ekki nema
kannski von því þetta var 5. leikur
liðsins á 14 dögum og það er auðvit-
að umhugsunarefni fyrir knatt-
spymuforystu þessa lands að leggja
þetta á okkur. Ef menn ætla að ná ár-
angri í Evrópukeppni þá verður að
haga niðurröðuninni á íslandsmót-
inu meö allt öðrum hætti. Draumur-
inn um að komast áfram minnkaði
vemlega við þessi úrslit og það verð-
ur mjög erfitt að sækja gull í greipar
Ungverjalands,“ sagði Bjarni Jó-
hannsson.
Við erum komnir í þægilega
stöðu
„Þetta var mjög erfiður leikur og
við þurftum að hafa fyrir sigrinum.
Við ætluðum okkur að spila til sig-
urs en ekki að spila upp á jafntefli
eins og oft vill verða í útileikjum í
Evrópukeppninni. Ég lagði leikinn
þannig upp að pressa þá stíft í byrj-
un og ná helst marki fljótlega í leikn-
um og það gekk eftir. Ég veit að lið
ÍBV er skipað áhugamönnum en það
var ekki að sjá í þessum leik. Þeir
léku oft vel og voru kannski óheppn-
ir að skora ekki. Við erum komnir í
þægilega stöðu en það er ekkert ör-
uggt í knattspyrnunni. Mér fannst
fyrirliðinn nr. 7 (Hlynur Stefánsson)
og nr. 10 (Baldur Bragason) bestir,“
sagði Gábor Pölöskei, þjálfari MTK,
við DV eftir leikinn.
-GH
var Bjarklind í baráttu við leikmann ungverska liðsins í Vestmannaeyjum í gær-
kvöld. DV-mynd ÓG
KR 1 (1) - Leiftur 1 (1)
■ Kristján Finnbogason - Sigurður Öm Jónsson ©
Þormóður Egilsson @, Bjami Þorsteinsson @, Ind-
riði Sigurðsson - Sigþór Júlíusson (Jóhann Þórhallsson 79.), Þórhallur
Hinriksson @, Sigursteinn Gíslason @, Einar Þór Danílesson (Arnar
Jón Sigurgeirsson 77.) - Bjarki Gunnlaugsson, Guðmundur Benedikts-
son @. Gul spjöld: engin.
Jens Martin Knudsen @ - Sergio de Macedo @,
BB**® Steinn V. Gunnarsson @@, Hlynur Birgisson
@@, Páll V. Gíslason, Þorvaldur Guðbjömsson @ - Örlygur Helgason
(Alexandre Santos 77.), Ingi H. Heimisson @, Gordon Fortest, Alex-
andre Da Silva - Une Arge. Gul spjöld: Forrest, Da Silva, Hlynur,
Steinn, Knudsen.
KR - Leiftur KR - Leiftur
Markskot: 20 4 Völlur: Ágætur
Horn: 12 3 Dómari: Egill Már Markús-
Áhorfendur: Rúmlega 1.500. son, ákveðinn og góður.
Maður leiksins: Steínn V. Gunnarsson Leiftri
Vinnusamur og gætti Gumma Ben sem sjáaldur auga síns.
Evrópumeistaramótið í sundi í Tyrklandi:
Þær fyrstu í undanúrslit
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Lára
Hrund Bjargardóttir urðu fyrstu íslensku
sundmennirnir sem komust áfram í milli-
riðla á Evrópumeistaramótinu í sundi sem
fer fram þessa dagana í Istanbúl í
Tyrklandi. Lára Hrund lenti í 13. sæti á
nýju íslandsmeti, 2:22,42 mínútum, eins og
fram kom hér á síðunni á undan, og Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttir synti á 2:25.03 mín-
útum, bætti sig líka frá því fyrr um morg-
uninn og endaði í 16. sæti. Jakob Jóhann
Sveinsson synti einnig í gær í 200 metra
bringusundi og endaði í 20. sæti, synti á
2:20,64, sem er 1,4 sekúndu lakara en þegar
hann setti íslandsmetið á Evrópumeistara-
móti unglinga í Moskvu á dögunum.
Sex íslendingar keppa í dag, Jakob og
■ Hjcdti Guðmundsson í 50 metra bringu-
sundi, Örn Arnarson í 200 metra skrið-
sundi, Kolbrún Ýr í 100 metra baksundi og
þær Eydís Konráðsdóttir og Elin Sigurðar-
dóttir í 100 metra flugsundi.
Fyrsta tapið hjá Popov í 8 ár
Það helsta frá mótinu í gær er að ung-
verski táningurinn Agnes Kovacs varði
Evrópumeistaratitill sinn í 100 metra
bringusundi og sá til þess að Svitlana
Boindarenko varð á láta sér silfrið nægja,
fimmta mótið i röð. Kovasc synti á 1:08,75
mínútum en hin úkraínska á 1:09,33.
Pieter van den Hoogenband varð sá fyrsti
til að vinna Rússann Alexander Popov í 100
metra skriðsundi á stórmóti í 8 ár en Popov
var frjórfaldur Evrópumeistari í greininni.
Hoogenband synti á 48,47 sekúndum en
Popov á 48,82. Heimsmet Rússans er 48,21
sekúnda.
Breska sundkonan Sue Rolph varð sú
fyrsta frá Bretlandi til að vinna gull á Evr-
ópumótinu í 37 ár, er hún vann 100 metra
skriðsund á 55,03 sekúndum. -ÓÓJ
Bland í poka
í liöi MTK eru fjórir leikmenn sem
eiga fast sæti í ungverska landslió-
inu. Það kemur ekki á óvart enda er
MTK með yfirburðarliöi í heimalandi
sínu og vann deildakeppnina á sið-
asta tímabili með 18 stiga mun.
Deildakeppnin í Ungverjalandi hefst
7. ágúst og sparkspekingar spá því að
MTK veiji titil sinn.
Goran Aleksic var óvænt 1 byrjunar-
liði ÍBV. Hann fór sem kunnugt er úr
axlarliö í leik ÍBV gegn Tirana í Al-
baníu i síðustu viku og var reiknaö
með aö hann yrði frá í 2-3 vikur.
Aleksic virtist alveg heill ef marka
má frammistöðu hans í leiknum en
hann var besti maður ÍBV.
Markakóngurinn Steingrimur Jó-
hannesson fór meiddur af velli á 60.
mínútu. Hann fékk þungt högg á síð-
una og lá óvígur eftir. Steingrímur
verður þó væntanlega klár í slaginn
fyrir síðari leikinn sem verður í
Búdapest á miðvikúdaginn.
Reynir Björnsson, vamarmaðurinn
reyndi úr Stjömunni, lék i gærkvöld
síðasta leik sinn með Garðabæjarlið-
inu þegar það beið lægri hlut fyrir
KA í 1. deildinni. Reynir, sem er
læknir, er á fórum til Noregs í fram-
haldsnám og vinnu. Reynir sagði viö
DV að hann hefði jafnframt hug á að
reyna eitthvað fyrir sér í knattspym-
unni þar í landi.
Njarðvik sigraði nágranna sína í
Þrótti úr Vogum, 2-0, í A-riðli 3.
deildarinnar í knattspyrnu í gær-
kvöld. Hörkukeppni er um tvö sæti í
úrslitunum milli KFS, sem er með 22
stig eftir 10 leiki, Njarðvíkur, sem er
með 21 stig eftir 9 leiki og Reynis S.,
sem er með 18 stig eftir 8 leiki. Bruni
kemur næst með 16 stig eftir 9 leiki.
Siguröur Ragnar Eyjólfsson skor-
aði tvö marka Walsall sem sigraði
Grisley, 5-1, í æfingaleik í gærkvöld.
Þá skoraði Hermann Hreiöarsson
eitt mark og lagði annað upp fyrir
Brentford sem vann Hampton, 4-0.
Eiöur Smári Guójohnsen á ekki víst
sæti í byrjunarliöi Bolton, ef marka
má númerin sem leikmönnum hefur
verið úthlutað fyrir tímabilið. Eiður
verður i treyju númer 12 en hinir
helstu sóknarmennirnir, Bob Taylor
og Dean Holdsuiorth, verða númer 9
og 10.
Ingimundur Helgason, handknatt-
leiksmaður, er genginn til liös við sitt
gamla félag, Viking. Hann lék með
HK síðasta vetur og áður með Aftur-
eldingu.
Örebro tapaði 1-2 fyrir Gautaborg i
sænsku A-deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. Einar Brekkan lék ekki
með Örebro.
-GH/ÓÓJ/VS