Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Blaðsíða 4
22
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
Sport
i>v
Allt hægt
Asgerður H. Ingibergsdóttir er
önnur eldri leikmanna U-21 árs
landsliðsins ásamt því að vera
fyrirliði þess. Ásgerður er í Val
og hefur leikið geysilega vel í
sumar.
„Mér lýst bara vel á þetta. Við
ætlum að taka hvern leik fyrir í
einu. Við ætlum að reyna að ná
lengra en við höfum náð áður.
Það er allt hægt í þessu, fjórða
sætið er alveg inni í myndinni,
raunhæfur möguleiki. Það er
svolítið síðan ég spilaði í 21 árs
landsliðinu, en
hraðinn var
hjá
hinum
Norður-
löndimum
en ég held
að þetta sé
að þróast
hjá okkur
til hins
betra. Ég
held við séum
að nálgast þessar
þjóðir. Við lítum
ekkert á okkur sem
eitthvað minna en
hinar. Það þýðir
ekkert annað en að
vera óhræddar og
við ætlum bara að
taka á því,“ sagði
vongóð. -ÍBE
Hafa allar
leikið í
úrvalsdeild
- landsliðshópur
íslands á NM
Stúlkumar sem leika á Norð-
urlandamótinu á íslandi hafa
allar leikið í úrvalsdeild með
félögum sínum. Landsliðið er
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Bára Gunnarsdóttir, Breiðabliki
Hildur Sævarsdóttir, Breiðabliki
Hjördís Þorsteinsdóttir, Breiðab.
Sigrún Gunnarsdóttir Breiðab.
Ingibjörg H. Ólafsdóttir, ÍA
Kristín Ósk Halldórsdóttir, ÍA
Hrefna Jóhannesdóttir, ÍBV
Edda Garðarsdóttir, KR
Elín J. Þorsteinsdóttir, KR
Guðrún S. Gunnarsdóttir, KR
Elfa B. Erlingsdóttir, Stjömunni
Lovísa Lind Sigurjónsdóttir, Stj.
Mai'ía B. Ágústsdóttir, Stj.
íris Andrésdóttir, Val
Ragnheiður Á. Ágústsdóttir, Val
Rakel Logadóttir, Val
Eldri leikmenn:
Ásgerður H. Ingibergsdóttir, Val
Heiða Sigurbergsdóttir, Stj.
Þjálfari: Þórður G. Lárusson.
1. DlliP KARUV
Fylkir 11 8 0 3 24-16 24
tR 11 6 2 3 23-19 20
Víðir 11 5 2 4 22-25 17
Stjaman 11 5 1 5 24-21 16
FH 11 4 3 4 22-19 15
Dalvík 11 4 3 4 19-23 15
Þróttur R. 11 4 2 5 18-17 14
KA 11 3 4 4 12-14 13
KVA 11 3 2 6 18-29 11
Skallagr. 11 3 1 7 20-25 10
Markahæstir:
Hjörtur Hjartarson, Skailagrími . 10
Atli Viðar Björnsson, Dalvík......8
Grétar Einarsson, Víði ...........7
Hreinn Hringsson, Þrótti R........7
' Hörður Magnússon, FH................7
Kári Jónsson, Víði ...............7
Sævar Þór Gíslason, ÍR............7
/12. umferdinni, 5.-7. ágúst, mætast
Stjaman-Þröttur R., KA-Skallagrím-
ur, Dalvík-FH, ÍR-Fylkir og KVA-
Víðir.
Kristín Ósk Halldórs-
dóttir, Ingibjörg H.
Ólafsdóttir og Ásgerð-
ur H. Ingibergsdóttir
eru bjartsýnar á góðan
árangur á Norðurlanda-
mótinu í knattspyrnu.
■
Suker til Kiev?
Svo gæti farið að króatíski landsliðs-
maðurinn Davor Suker gangi í raðir
úkraínska liðsins Dynamo Kiev. Miklar
vangaveltur hafa verið um það í nokkurn
tíma hvert þessi leikmaður myndi fara
eftir misheppnaða vem hjá Real Madrid.
Þar sá hann ekki sæng sina útbreidda
og vildi fara og varð spænska liðið við
ósk hans. Eftir að John Toshack tók við
Real Madrid var ljóst að hans dagar hjá
félaginu voru taldir.
Forseti Kiev, Hrigory Surkis, sagði að
Suker hefði sett sig í samband við félagið
og boðið fram krafta sina. Von er á kapp-
anum, sem skoraði 6 mörk í síðustu úr-
slitakeppni HM, til Kiev í næstu viku þar
sem málin verða rædd nánar. -JKS
Rushfeldt heim
Norski landsliðsmaðurinn Sigurd
Rushfeldt, sem gekk i raðir portúgalska
liðsins Benfica fyrr í sumar, er kominn
heim aftur til Þrándheims. Ástæðan er sú
að Benfica hefur ekki lagt fram fullnægj-
andi bankatryggingar. Þegar hafa verið
greiddar um 60 milljónir króna en
langstærsti hlutinn er ógreiddur.
Rosenborgarliðið sá þann kost vænstan
í stöðunni að kalla Sigurd heim aftur.
Rosenborg hefur gefið Benfica Irest til
laugardagsins til að leggja fram áreiðan-
legar bankatryggingar. Sigurd Rushfeldt
er ekki ánægður með gang mála, enda bú-
inn að æfa með Benfica í tvær vikur.
Hann sagðist í gær vonast eftir því að
málin kæmust á hreint fyrir laugardag-
inn.
-JKS
- stúlkur í U-21 árs landsliðinu í knattspyrnu, sem keppa hér á landi í ágúst
íslenska landsliðið í knattspyrnu,
skipað leikmönnum 21 árs og yngri,
eru vongóðar á góðan árangur á
Opna Norðurlandamótinu sem hald-
ið verður hér á landi 2.-8. ágúst.
Besti árangur 21 árs landsliðs ís-
lands til þessa er fimmta sæti á
Norðurlandamóti en sá árangur
náðist árið 1995 í Finnlandi. Síðast-
liðin tvö ár hefur árangurinn ekki
verið eins góður en í fyrra hafnaði
liðið í sjöunda sæti. Heimavöllurinn
mun að sjálfsögðu hjálpa stúlkunum
mikið en forsvarsmenn KSÍ vonast
eftir þónokkrum áhorfendum.
Fyrsta verkefnið hjá Þórði
Lárussyni þjálfara
Mótið hefur aldrei verið sterkara.
Að þessu sinni keppa Norðurlöndin
fimm, fyrir utan Færeyjar, og að
auki þrjú gestaliö, Bandaríkin, Ástr-
alía og Þýskaland. Sex af þessum
átta liðum áttu landslið á HM, sem
haldiö var í Bandaríkjunum fyrir
stuttu, og þar náði Noregur fjórða
sætinu og Bandaríkin sigruðu.
Þórður Lárusson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins, mun stjórna
liði sínu í fyrsta skipti á mótinu.
Verður
örugglega mjög
skemmtilegt
„Mótið leggst bara
mjög vel í mig, þetta
verður örugglega
mjög skemmtilegt.
Hópurinn er ekki
búinn að setja sér
markmið. Ég er per-
sónulega búinn að
setja mér mitt fyrsta
markmið og það er
að spila ekki á
KR velli um sæti,
það er 7.-8. sæti. Ég
hæft sé að stefna á 3.-6. sætið,“
sagði Þórður sem er fullur til-
hlökkunnar að stjóma aftur liði en
hann hefur ekki verið við stjómvöl-
inn frá því hann þjálfaði karlalið
Stjömunnar árið 1997.
Landsliðið að þessu sinni er
skemmtileg blanda af ungum og
óreyndum stúlkum og stúlkum sem
leikið hafa marga A-landsleiki, eins
og Edda Garð-
arsdóttir KR og
Ingibjörg H.
Ólafsdóttir ÍA.
Landsliðinu er
að auki heimilt
að senda til
leiks tvo eldri
leikmenn og að
þessu sinni
voru Ásgerður
H. Ingibergs-
dóttir Val og
Heiða Sigur-
bergsdóttir
Stjömunni vald-
„Bæði Heiða og Ásgerður hafa
náttúrulega spilað mjög vel í sumar
og era mjög öflugar og það hjálpar.
Mér finnst hugarfarið í liðinu vera
gott, það er metnaður til staðar, eng-
in spuming, þær ætla sér stóra
hluti. Við náttúrulega spilum héma
heima og það á að hjálpa okkur,"
sagði Þórður.
Vonast eftir að áhorfendur
komi og hvetji liðið
Lið frá þremur heimsálfum munu
keppa á þessu móti og telst það
nokkuð sérstakt þar sem um
Norðurlandamót er að ræða. Liðin
eru öll fimasterk og von er á
skemmtilegum og spennandi leikj-
um.
„Ég hvet alla til að koma. Ég hef
ekki hingað til fyglst mikið með
kvennabolta en ég hef fylgst mikið
með í sumar. Stelpurnar era miklu
betri en ég átti von á. Ég hef séð
skemmtilegri leiki í kvennaboltan-
um en karlaboltanum í sumar. Við
náttúrulega munum reyna að spila
skipulega og verjast vel og með
mörgum þegar við verjumst en
sækja líka með mörgum þegar við
sækjum og spila agaðan leik,“ bætti
Þórður við.
-ÍBE
Leikir íslenska
liðsins á NM
Mánudagur 2. ágúst, kl. 14.30:
ísland - Noregur, Hlíðarenda
Miðvikudagur 4. ágúst, kl. 16.30:
ísland - Ástralía, Akranesvelli
Föstudagur 6. ágúst, kl. 16.30:
ísland - Sviþjóð, Kópavogsvelli
Sunnudagur 8. ágúst:
Leikið um sæti á KR-velli,
Kaplakrika og Laugardalsvelli.
held að raun- ar.
Hótunin hrífur
1- 0 Rastislav Lazorik (20.)
2- 0 Gísli Guðmundsson (36.)
3- 0 Rastislav Lazorik (67.)
Einar Einarsson er áfram þjálf-
ari KA því hans menn unnu
Stjömuna sannfærandi, 3-0, í
bongóblíðu i 1. deildinni á Akur-
eyrarvellinum í gær.
KA menn áttu leikinn frá upp-
hafi. Rastislav Lazorik kom mjög
sterkur inn og annað markið hans
var sérstaklega flott. Skaut Lazo-
rik þá beint úr aukaspymu í stöng-
ina íjær og inn. Lazorik sýndi
miklu meira en áður í sumar og
era það góöar fréttir fyrir KA.
„Ég er mjög ánægður með leik-
inn og þá sérstaklega Lazorik. Við
erum búnir að vinna núna tvo í
röð og við ætlum að taka þann
þriðja, þannig að þjálfarinn haldi
starfinu," sagði Eggert Sigmunds-
son, markmaður KA-manna, eftir
leikinn.
Það má þvl spyrja hvort þjálfar-
inn þurfi aö standa í hótunum það
sem eftir er sumars til aö KA nái
ásættanlegum árangri.
Maður leiksins: Rastislav
Lazorik, KA.
-JJ
KVA í erfiðum málum
0-1 Bjarki Haiþórsson (45.)
KVA mætti til leiks gegn ÍR í 1.
deildinni á Eskifirði í gærkvöld,
án tveggja lykilmanna sinna, sem
tóku út bann. Þrátt fyrir baráttu og
nokkur góð færi urðu þeir að lúta
í lægra haldi fyrir lítt sannfærandi
liði ÍR, 0-1.
Fyrri hálfleikur var bragðdaufúr,
þrátt fyrir nokkur hálffæri sem
skiptust milli liðanna. Vegna mis-
taka í vamarleik KVA-manna
fengu ÍR-ingar aukaspyrnu og
skoruðu upp úr henni. Þar nýttu
ÍR-ingar eina hættulega færið sitt i
öllum leiknum - vel gert hjá þeim!
KVA-menn gerðu allt sitt til að
jafna í seinni hálfleik en heilladís-
imar vora þeim ekki hliðhollar
þegar nálgaðist mark andstæðing-
anna. iR-ingar verða að gera betur
en sást i þessum leik, ef þeir ætla
að ná hátt í 1. deildinni í ár. Þeirra
bestu menn vora Kristján Hall-
dórsson og Amór Gunnarsson en
hjá KVA vora það Kristján Svav-
arsson og Miroslav Nikolic.
Eftir þessi úrslit er augljóst að
KVA-menn verða að grípa til ein-
hverra þeirra ráða sem fá
heilladísimar til að líta þá hýrum
augum í næstu leikjum.
Maður leiksins: Kristján
Svavarsson KVA. -FÞ