Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1999, Blaðsíða 3
20 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 r^T-Tl'T-ll''1 oka Sigurður jafnaði met Jónasar Mark Sigurðar Grétarssonar, þjálfara Breiðabliks, gegn Skagamönnum í gær var hans fyrsta fyrir Blika í efstu deild í 16 ár og jafnframt fyrsta mark Blika í leik gegn ÍA í Kópavogi í 15 ár og 551 leikmínútu. Þá jafnaði Sigurður met Jónasar Róberts- sonar Þórsara ffá 1984-87 er hann skoraði úr sinni 12. víta- spyrnu í röð í efstu deild. Sigurður hefur nýtt allar 12 vítaspym- ur sínar í efstu deild, sú síðasta á undan þeirri í gær var þó fyr- ir tæpum 16 árum er hann skoraöi gegn Þorsteini Ólafssyni, markverði Þórsara, í leik á Akureyri. -ÓÓJ Sport Risasigur stúlknanna: Ellefu - mörk gegn Eistlandi Unglingalandslið kvenna í knattspymu, skipað leik- mönnum yngri en 18 ára, vann stórsigur í gær, 11-0, á Eistlendingum í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Ungverja- landi. Þetta er stærsti sigur íslensks kvennalandsliðs frá upphafi. Staðan var 2-0 í hálfleik en eftir leikhléið opnuðust allar flóðgáttir, íslensku stúlkurnar röðuðu inn mörk- um í öllum regnbogans lit- um, skoraðu 9 mörk og hreinlega völtuðu yfir eist- neska liðið. Rakel Logadóttir skoraði 4 mörk, Bryndís Jóhannesdótt- ir 3 og þær Ema Erlendsdótt- ir, Elfa B. Erlingsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir skor- uðu sitt markið hver. Bryn- dís gerði þrennuna á síðustu 7 mínútum leiksins. Segir ekkert um styrkleikann „Við áttum færi á að skora mikið fleiri mörk í fymi hálf- leiknum en í seinni hálf- leiknum nýttum viö okkur veikleika í eistneska liðinu og nýttum færin okkar mjög vel. Eistland er meö slak- asta liðið í keppninni en í dag sigruðu írar Ungverja, 4-0, þannig að leikur okkar gegn írum á föstudag á eftir að verða mikilvægur. Þessi riðill hér segir ekkert til um styrkleika okkar í alþjóð- legri keppni, viö þurfum að fara í gegnum þessa und- ankeppni vegna þess að viö tókum ekki þátt í keppni U- 18 ára liða síðast og við ætl- um okkur að tryggja okkur sæti meðal þeirra bestu,“ sagði Klara Bjartmarz, farar- stjóri íslenska liðsins, í sam- tali við DV. Besti leikur til að byrja „Þetta var góð byrjun hjá okkur, þrátt fyrir að við hefðum bara skorað tvö mörk í fyrri hálfleik. Ég færði Guðrúnu Gunnarsdótt- ur úr vöminni og framar á völlinn undir lok fymi hálf- leiks og það skilaði auknum sóknarþunga í þeim síðari og 9 mörkum. Stelpumar léku þetta mjög vel og vom vem- lega gráðugar i sóknarleikn- um. Við vitum að þetta er slakasta liðið í keppninni, ég sá íra vinna Ungverja, 4-0, i dag og bæði lið voru betri en þetta eistneska lið. Ég er mjög ánægður með leik stelpnanna og það hversu vel okkur gekk að skora en á það hefur oft skort, sérstak- lega vegna þess að við viss- um ekkert um andstæðinga okkar. Þetta var besti leikur- inn til að byrja keppnina á,“ sagði Ólafur Guðbjömsson, þjálfari U-18 ára landsliðs kvenna. íslenska liðið leikur gegn írum á föstudag og gegn Ung- verjum á sunnudag. -ih - Birkir varöi víti og kom í veg fyrir að tíu Færeyingar jöfnuöu metin Sport [4't) EtfRÓPUKEPPNIN 2. riðill: Slóvenía - Albanla............2-0 1-0 Zahovic (49.), 2-0 Osterc (80.) Noregur Slóvenía Lettland Grikkland Georgía Albanía 14-8 16 10-6 14 7- 5 11 8- 7 9 4-12 4 3-8 3 8. riðill: Júgóslavía - Króatía .......0-0 Júgóslavía 4 3 1 0 8-1 10 írland 4 3 0 1 8-1 9 Króatía 5 2 2 1 8-6 8 Makedónía 5 2 1 2 9-6 7 Malta 6 0 0 6 3-22 0 Vináttuleikir: Belgia - Finnland...........3-4 0-1 Wiss (31.), 1-1 Martens (41.), 1-2 Johansson (45.), 1-3 Johansson (53.), 2- 3 Wilmots (58.), 2^4 Lehkosuo (62.), 3- 4 Mpenza (70.) Norður-írland - Frakkland . . O-l 0-1 Laslandes (67.) Danmörk - Holland............0-0 Svíþjóð - Austurríki ........0-0 Tékkland - Sviss ............3-0 1-0 Koller (48.), 2-0 sjáifsmark (57.), 3-0 Baranek (89.) Pólland - Spánn..............1-2 1-0 Hajto (7.), 1-1 Morientes (54.), 1-2 Munitis (66.) Kýpur - Rúmenía..............2-2 1- 0 Malekkos (14.), 1-1 Lupescu (45.), 2- 1 Gogic (65.), 2-2 Filipescu (75.) Hvíta-Rússland - Rússland . . . 0-2 0-1 Beschastnykh (38.), 0-2 Panov (47.) Úkraina - Búlgaría ..........1-1 1-0 Rebrov (83.), l-l I. Petkov (90.) Portúgal - Andoma ...........4-0 1-0 Rui Costa (17.), 2-0 Joao Pinto (35.), 3-0 Figo (45.), 4-0 Pauleta (67.) Eistland - Armenía ..........2-0 1-0 Kristal (79.), 2-0 Anniste (90.) Grikkland - E1 Salvador .... 3-1 1-0 Lymberopoulos (20.), 1-1 Garcia (52.), 2-1 Lymberopoulos (86.), 3-1 Froussos (90.) Slóvakia - ísrael ...........1-0 1-0 Fabus (80.) Ungverjaland - Moldavia .... 1-1 1-0 Sebok (39.), 1-1 Clescenko (65.) Noregur - Litháen............1-0 1-0 Lund (87.) Frakkar voru ekki sannfærandi þeg- ar þeir unnu Norður-íra i Belfast með marki frá Lilian Laslandes. Heima- menn voru sterkari á löngum köflum og Jon McCarthy átti skot i stöngina á marki Frakka eftir að Fabian Barthe, markverði mistókst að koma boltanum frá marki sínu. Búlgarinn Milen Petkov var rekinn af velli í Úkrainu fyrir að fagna jöfn- unarmarki nafna sins, Ivans Pet- kovs, á lokamínútunni of vel og lengi. Dómarinn sýndi Petkov sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að tefja og þar með fór rauða spjaldiö á loft. Danir voru óhressir með grófan leik Hollendinga í 0-0 jafntefli liðanna í Kaupmannahöfn. Þrír Danir fóru meiddir af velli eftir ljótar tæklingar hollensku leikmannanna. Andorramenn, næstu mótherjar Is- lendinga í EM, hituðu upp með leik í Portúgal og áttu enga möguleika þar i 4-0 ósigri. Belgar urðu enn fyrir niðurlægingu á heimavelli þar sem þeir töpuðu sín- um fjórða leik í röð. Nú komu Finnar í heimsókn og skoraði Jonathan Jo- hansson tvívegis í óvæntum 4-3 sigri þeirra. -VS Vonsvikinn Fréttastofa Reuters fiallaði nokkuð um landsleik Færeyja og íslands í Þórshöfn í gærkvöld. Sagt var að íslenska liðið, sem ætti möguleika á að komast áfram í Evrópukeppninni, þyrfti að spila mun betur í næsta leik sínum, gegn Andorra. Haft var eftir Guðjóni Þórðarsyni lands- liðsþjálfara að hann væri mjög vonsvikinn með frammistöðu sinna manna og þeir hefðu ekki mætt með réttu hugarfari til leiks. -VS Skagamaðurinn Gunnlaugur Jónsson í kapphlaupi við Blikann ívar Sigurjónsson í leik liðanna í Kópavogi í gærkvöld. DV-mynd Hilmar Þór % An/ ST2 mgm V ■ - Allan Simonsen, þjálfari Færeyja: „Við réðum ferðinni" „Við réðum ferðinni í leiknum, meira að segja eftir að við misstum mann af velli, og ég er mjög ánægður með það. Við sýndum að við getum spilaö, líka gegn sterku liði á borö viö það íslenska. Ég tel að við heföum hæglega getað unnið þennan leik,“ sagði Allan Simonsen, landsliðsþjálf- ari Færeyja og fyrram knattspymumaður ársins í Evrópu, eftir landsleikinn í Þórshöfn í gærkvöld. Birkir líklega farinn að þekkja mig „Við æföum vítaspymur vel fyrir Evrópuleiki ÍBV og sennilega er Birkir farinn að þekkja mig. Við spiluðum mjög vel að mínu mati og hefðum að minnsta kosti verð- skuldað jafntefli," sagði Allan Mörköre, leikmaður ÍBV og færeyska landsliðsins. -EK Fœreyjar 0 - ísland 1 (1) Jens Martin Knudsen - Allan Morkore, Hans Fróði Hansen, Óli Johannessen, Jens Kristian Hansen, Pól Thorsteinsson - Julian Johnsson (Rógvi Jacobsen, 85.), Sámal Joensen (Fróði Benjaminssen, 81.), John Petersen - Uni Arge (Jákup á Borg, 85.), Todi Jónsson. Gult spjald: Pól Thorsteinsson. Rautt spjald: John Petersen (44.) Birkir Kristinsson (Ámi Gautur Arason 66.) - Stein- ar Adolfsson, Pétur Marteinsson (Tryggvi Guð- mundsson 40.), Lárus Orri Sigurðsson - Auðun Helgason (Sigursteinn Gíslason 38.), Helgi Kolviðsson, Þórður Guðjónsson, Rúnar Kristinsson, Hermann Hreiðarsson - Heiðar Helguson (Helgi Sigurðsson 72.), Rikharður Daðason. Gul spjöld: Rúnar, Sigursteinn, Helgi K. Faereyjar: Markalaust í Belgrad Spennan var mikil í Belgrad í gærkvöld þegar Júgóslavar og Króatar gerðu jafntefli, 0-0, í knattspymuleik þar sem pólitíkin og stirt samband þjóðanna haföi jafnmikið að segja og mikilvægi leiksins í Evrópukeppninni. Litlu munaði að fresta þyrfti leiknum því ljósin brugðust í seinni hálfleik en imnt reyndist að koma þeim í lag í tæka tíð. Bæði lið áttu stangarskot og markverðimir, Drazen Ladic hjá Króatíu og Aleksandar Kocic hjá Júgó- slavíu sýndu nokkrum sinnum' snilldartilþrif. Júgóslavar töpuðu þama sín- um fyrstu stigum í riðlinum en em áfram efstir og með besta stöðu. -VS Matareitrun hjá Bunce? Nýsjálendingurinn Che Bunce lék ekki með Blikum gegn Skagamönnum í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær vegna veikinda og hans var sárt saknað í meiðslahrjáðu liði Blika. Bunce missti úr fimm deildarleiki og tvo bikarleiki þegar hann fór til Mexíkós að keppa með þjóð sinni í álfukeppninni. Ekki er nóg með að Blikar misstu hann í allan þann tíma heldur er talið hugsanlegt að hann hafi náð sér þar í matareitrun þó að það sé ekki enn ljóst. Bunce er enn einn leikmaður Blika sem getur ekki spilað vegna meiðsla og veikinda -ÓÓJ Tvær hliðar - Skagamanna í 1-3 sigri gegn Blikum í gær Skagamenn skutust upp í þriðja sætið í úrvalsdeildinni í knattspymu með 1-3 sigri á Breiðabliki í Kópavogi í gær. Skagamenn hafa sýnt á sér tvær hliðar í sumar, í byrjun móts gekk liðinu ekkert þegar hvorki stig né mörk komu í hús en þegar leið á mótið fundu Skagamenn taktinn á ný. Til að leggja áherslu á þessar tvær hliðar sýndu þeir þær báð- ar í Kópavogi í gær. Fyrri hálf- leikur og þá einkum fyrsti hálf- tíminn var einkasýning hjá þeim gulu sem léku heimamenn grátt. Blikar komust varla yfir miðju og 3 mörk komu fyrstu 24 mínúturnar. Blikar réðu ekki við Stefán Þór Þórðarson og gátu aðeins þakkað fyrir að hleypa ekki fleiri en 3 mörkum í mark sitt. í seinni hálfleik var sem Skagaliðið væri sátt við stöð- una og allur taktur og hrynj- andi datt úr leik liðsins. Hugur leikmanna var eflaust kominn í næsta leik sem er mikill slagur við Leiftur um þriðja sætið í deildinni og hugsanlegt sæti í Evrópukeppninni. Blikar komust þá inn í leik- inn en þeir ógnuðu aldrei að ráði gegn sterkri vöm Skaga- manna og sigur Skagamanna var sanngjarn og ömggur. Blikamir fengu þó víti og björg- uðu andlitinu en miklar breyt- ingar á leikstöðum og leik- Stefán Þór Þóróarson (8.) ™ potaði inn úr markteignum eftir sendingu Gunnlaugs Jónssonar og hom Jóhannesar Harðarsonar. Kennetli Matijani (20.) lék á ~K3 Atli markvörð og skoraði örugglega eftir sendingu Stefáns og undirbúnings Reynis Leóssonar. O-ö Sttfán Þór Þórðarson (24.) ™ skoraði örugglega úr víti sem Pálmi Haraldsson fékk er Hákon Sverrisson braut á honum. 0.0 Siguróur Grétarsson (77.) v w skoraði af öryggi úr víti sem Hreiöar Bjamason fékk er Reynir Leósson braut á honum. mönnum á örugglega þátt í að liðið hefur fengið á sig 6 af síð- ustu 7 mörkum í deildinni á fyrstu 24 mínútum leikjanna. Staða Blika hefur breyst mik- ið á undanfömum mánuði, 1 stig í síðustu 3 leikjum og að- eins 1 sigur í síðustu niu leikj- um þýðir að við liðinu blasir nú hörð botnbarátta. Hópurinn er þunnur og svo grimm forföll vegna meiðsla í sumar eru lík- leg til að draga tennumar úr hvaða liöi sem er í deildinni. „Skagamennimir vom bara miklu betri og unnu þetta sann- gjamt. Þaö er ekki nóg að spila vel í 45 mínútur og liðsheildin var ekki í lagi í byrjun,“ sagði Sigurður Grétarsson, spilandi þjálfari Breiðabliks. „Við spiluðum vel i fyrri hálfleik en slökuðum á í þeim seinni enda erfitt prógramm fram undan. Þetta var góður sigur og öruggur allan tím- ann,“ sagði Heimir Guðjóns- son Skagamaður sem lék vel í gær. -ÓÓJ * LANDSSÍHA ^ ^^DEILDIN y Urvalsdeild karla KR 13 9 3 1 28-11 30 ÍBV 12 8 3 1 21-8 27 IA 13 5 5 3 13-12 20 Leiftur 13 4 6 3 12-16 18 Fram 13 3 6 4 16-16 15 Keflavík 13 4 3 6 19-23 15 Breiðablik 13 3 5 5 17-17 14 Grindavik 13 3 2 8 14-20 11 Valur 12 2 5 5 18-25 11 Víkingur R. 13 2 4 7 16-26 10 Fjórtánda umferó veröur leikin um næstu helgi og þá mætast þessi liö: Laugardagur: Grindavík - Víkingur ......14.00 Breiðablik - KR............14.00 Leiftur - ÍA...............14.00 Sunnudagur: Valur - Keflavík ..........18.00 Fram-ÍBV...................20.00 ÍBV og Valur mætast síðan í áður frestuðum leik miðvikudaginn 25. ágúst og þar með veröa loksins öll lið deildarinnar komin með jafnmarga leiki. Bíðum sem gammar „Þetta var sérstaklega góður fyrri hálfleikur af okkar hálfú og það sem var jákvæðast við þennan leik var spila- mennskan og mörkin í fyrri hálfleik. Það er svona með blessaðan íþróttamanninn aö hann leggur ekki meira á sig en hann þarf og við hleyptum þeim alltof mikið inn í seinni hálfleikinn. Það er stutt í næsta leik, gegn Leiftri, og í undirmeðvitundinni hugsuðu menn um að hvíla sig fyrir þann slag. Ef svo færi að KR og ÍBV færa að tapa stig- um þá bíðum við fyrir neðan eins og hrægammar," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna. -ÓÓJ Breiðablik 1(0) - IA 3 (3) Breiðablik: Atli Knútsson - Hreiðar Bjamason @, Ásgeir Bald- urs @@, Sigurður Grétarsson @, Hjalti Kristjáns- son - Guðmundur Karl Guðmundsson (Ámi Kristinn Gunnarsson 57.), Hákon Sverrisson, Kjartan Einarsson, Guðmundur Páll Gíslason (Pét- ur Jónsson 71.) - Bjarki Pétursson, ívar Sigurjónsson. Gul spjöld: Kjartan, Ásgeir, Atli. Ólafur Þór Gunnarsson - Sturlaugur Haraldsson, Al- exander Högnason @, Gunnlaugur Jónsson @, Reynir Leósson - Pálmi Haraldsson, Jóhannes Harðarson, Heimir Guð- jónsson @ (Unnar Valgeirsson 71.), Kári Steinn Reynisson (Ragnar Ámason 79.) - Stefán Þór Þórðarson @@, Kenneth Matijani @ (Ragn- ar Hauksson 84.). Gul spjöld: Engin. Breiðabiik - lA Breiðablik - ÍA Markskot: 10 19 Horn: 3 14 Áhorfendur: Um 500. Völlur: Mjög góður. Dómari: Egiil Már Markússon, dapur og vantaði aila aðstoð. Maður leiksins:Stefán Þór Þórðarson, IA Mjög ógnandi, skoraói tvö mörk og lagðl upp eitt. Dy Færeyjum: Mark Þórðar Guðjónssonar á 3. mínútu skildi að landslið Færeyja og íslands í vígslu- leik þjóðanna á nýja Tórsvellinum í Þórshöfn í gærkvöld. Færeyingar vora hársbreidd frá því að ná sínu öðra jafntefli gegn íslandi frá upphafi því Birkir Kristinsson varði víta- spymu frá félaga sínum úr ÍBV, Allan Mör- köre, á 58. mínútu leiksins. Færeyingar vora manni fæmi frá 43. mín- útu þegar John Petersen var rekinn af velli. Færeyingar fengu þá aukaspymu á miðjum vellinum en Rúnar Kristinsson sparkaði bolt- anum í burtu. Rúnari og Petersen lenti sam- an með þeim afleiðingum að Petersen fékk rauða spjaldið en Rúnar aðeins það gula. í færeyska sjónvarpinu í gærkvöld sást greini- lega að Rúnar hefði átt að fylgja með af leik- velli því dómarinn sá ekki þegar hann sló til Petersens. Vel skipulögð vörn íslands Færeyingar réðu ferðinni i leiknum, vom mun meira með boltann, en íslenska liðið byggði á sterkum vamarleik og skyndisóknum. Meira að segja í seinni hálfleiknum, þegar Færeyingar voru að- eins 10, voru þeir meira með boltann en fengu ekki mörg tækifæri fyr- ir utan vítaspymuna því íslenska vömin var mjög sterk og vel skipulögð. íslendingar voru hins vegar hvað eftir annað veiddir í rang- stöðugildru, sem Óli Johannessen stjórnaði af klókindum í skyndisóknum sínum. Vitaspyman var dæmd þegar Sigursteinn Gíslason felldi Toda Jónsson, sóknarmann FC Köbenhavn. Það var ekkert að spymunni hjá Allan Mörköre en Birkir sýndi glæsileg tilþrif og varði. Baulað á Rúnar Marktækifæri í leiknum vom mjög fá og hann fór að mestu fram milli vítateig- anna. íslenska liðið virtist þó alltaf líklegra til að skora þó færeyska liðið væri mun meira með bolt- ann. Rúnar Kristinsson lék mjög vel í fyrri hálfleik og réð ferðinni á miðjunni hjá ís- lenska liðinu. En eftir atvikið með Petersen og gula spjaldið var baulað á hann það sem eftir var leiksins og það hafði greinilega áhrif á hanní seinni hálfleiknum. Pétur sterkur í tyrri hálfleik Pétur Marteinsson lék mjög vel í fyrri hálf- leik þar sem hann hélt hættulegasta leik- manni Færeyja, Toda Jónssyni, niðri. Pétur fór meiddur af velli fyrir hlé og Todi náði sér betur á strik eftir það og náði meðal annars í vítaspymuna. Strax eftir markið hugsaði íslenska liðið fyrst og fremst um aö veija forskot sitt og tókst það. En liðið spilaði ekki vel, tók enga áhættu, og segja má að markið í byrjun hafi drepið leikinn niður. Allavega reyndi ís- lenska liðið lítið að sækja eins og það hlýtur að ætla að gera í næsta leik sinum, gegn An- dorra. -EK 0.A Þóróur Guðjónsson (3.) " skoraði beint úr aukaspymu af 20 metra færi. Hann skaut á mitt markið en Jens Martin misreiknaði skotið og fór í hægra homið. Bjarnólfur Lárusson hjá enska B- deildarliðinu Walsall er allur að ná sér af nárameiðslum sem hann hlaut um síðustu helgi og forráðamenn enska liðsins vonast eftir að Bjami eins og hann er kallaöur verði með gegn Crewe um næstu helgi. Dundee United, án Sigurðar Jóns- sonar sem er meiddur, þurfti fram- lengingu til að slá út C-deildarliöið Ross County í skoska deildabikarn- um í knattspymu í gærkvöld. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Dundee United vann að lokum, 3-1. Guöni Bergsson er að ná sér af meiðslunum sem hafa hrjáð hann í sumar og hann var með í leik með varaliði Bolton i gær. Guðni á samt nokkuð í að komast i góða leikæf- ingu. Mitch Richmond samdi í gær við Washington Wizards i NBA-deildinni til fjögurra ára en hann verður með þessum samningi hæstlaunaði skot- bakvörður í NBA. Richmondfœr um 730 milljónir á ári og meira en kappar eins og Latrell Sprewell hjá New York, Allen Iver- son hjá Philadelphia 76ers, Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers og Reggie Miller hjá Indiana Pacers. Peter Schmeichel var í gær útnefnd- ur knattspymumaður ársins i Dan- mörku i þriðja sinn á ferlinum en hann hlaut áður þessa útnefningu 1990 og 1993. Schmeichel, sem er 35 ára, gekk í sumar til liðs við portú- galska liðið Sporting Lisabon eftir átta ára vera hjá Manchester United. ísland er í 48. sæti á nýjum styrk- leikalista Alþjóða knattspymusam- bandsins sem gefinn var út í gær og hefur þvi fallið um tvö sæti siðan í síðasta mánuði. Rúnar Kristinsson jafnaði lands- leikjamet Guðna Bergssonar í Færeyj- um í gærkvöld þegar hann lék sinn 77. A- landsleik. Rúnar setur væntanlega nýtt met þegar ísland mætir Andorra í bytjun sept- ember. Birkir Kristinsson hefur variö allar þær þrjár vítaspymur sem hann hef- ur fengið á sig í sumar. Tvær gegn ÍA á Akranesi, bæði í bikarleik og deild- arleik liðanna, og þá þriðju gegn Færeyingum í Þórshöfn í gærkvöld. Þórður Guöjónsson skoraði í gær- kvöld sitt 8. mark fyrir A-landslið Is- lands og þar með er hann kominn í 7.-11. sætið yfir markahæstu leik- menn landsiiðsins frá upphafi. Hann á þó enn langt í land með að ógna Ríkharði Jónssyni sem skoraði 17 mörk fyrir ísland. íslenska landsliðið missti tvo leik- menn meidda af velli í fyrri hálf- leiknum í Færeyjum, þá Auóun Helgason og Pétur Marteinsson. -ÓÓJ/VS Lárus Orri Sigurðsson og Sigursteinn Gíslason reyna að halda aftur af Una Arge, færeyska miðherjanum úr Leiftri, í landsleiknum í Þórshöfn í gærkvöld. DV-mynd Álvur Haraldsson ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.