Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999 29 I>V Sporf Formúla eitt í Belgíu í gær: -OSG WARWEVr&^ KS* Coulithard Jacques Villeneuve náði í gær þeim áfanga að klára sitt fyrsta mót fyrir British AmeriMn Racing-liðið i sinni tqlftu tilraun. Villepátve, \em kláraði næsksiðastur, ipátti þakka fyr.if að hafa gétað keppt eft'ir rosalegt 'tíys i ‘V'íimatökum á laugaráag. Ffiir aó hafa œtlaó sér að 1 aka í gegnum Eau Rouge í þess að lyfta betisingjöfinni j. missti hann stjórn á bílnumv^P \ og flaug útaf á 275 km hraðal og á öryggisvegg. Richardn 1 Zonta félagi Villeneuve lenti i nærri eins slysi flmmtán/ nínútum síðar. Báðir bílamir víqm gerónýtir og flytja þurífi nýjk bíla á keppnissvæðið qvo félgarnir gætu keppt. -ÓG Davíd Coulthard fer fram úr félaga sínum hjá McLaren, Mlka Hákkinen í fyrstu beygju, Coulthard náði hér forustu sem hann lét ekki af hendi ( kappakstrinum í gær. Reuters Bensín- dropar' Árekstur Mika Hakkinen og David Coulthard var klárlega mistök heimsmeistarans, sem neitaði að taka i höndina á félaga sínum á verðlaunapallinum á Spa í gær. Ron Dennis keppnisstjóri McLaren sagði eftir stuttan fund þeirra þriggja og Norbert Haug að eftir að hafa horft á upptöku frá ræsingunni væri greinilegt að Hákkinen ætti sök á árekstrinum. Mika gerði mistök, og hann var mjög heppinn að fá ekki á sig tiu sekúnda refsingu fyf'ir að ræsa of snemma. Þaö lrefði getað kostað hann annað sæáð og jat/nvel meira, Coulthard átfi fljótari fæsingu og átti skiliAá'ð vinna. \ Coulthárd er vongóöur um \ að hanniigi möguleika á að berjastiim heinÁmeistaratitilinn, sérstaklega eftin að hafa séð viðbrögð Hakkinens viö feigri sínum. „Það var frábært að\ sigrn Hákkinen í beinni keppni, þó hann hafi ekki tekiö í höndina á mérl á v\ölaunapallinum, er það ekkt mitt vandamál. Ég sigraði á SPA ojg er ánægqur meö það. Ég á möguleika á titlinum>þvi ég kann vel viðmæstu braut sem erMonza^og-ætu þvi að vera sterkur þar líka.“ 1 Jacques Villeneuve kláraði í fyrsta sinn í ár en það fór ekki vel fyrir honum í tímatökunni á laugardag þar sem hann missti stjórn á bflnum og keyrði út af. Mikil óheppni hefur fyigt Villeneuve í ár sem endaði fimmtándi. Það var dagur McLaren á Spa Francorchamps-braut- inni í Belgiu í gær. David Coulthard tók forystu strax í fyrstu beygju og hélt henni til loka keppninnar og fagn- aði sínum öðrum sigri á ár- inu á meðan félagi hans, Mika Hákkinen, kom annar í mark og fagnaði því að vera kominn aftur í forystu í stigakeppni ökumanna. Daufkeppni McLaren Mercedes náði loks forystunni í stigakeppn- inni af Ferrari eftir yfirburð- ar tvöfaldan sigur sinna manna. í keppninini í gær, sem var í daufara lagi, átti Heinz H. Frentzen enn einn góðan dag og komst á verð- launapall eftir tíðindalausan Úrslitin í Belgíu: 1. David Coulthard, McLaren. 2. Mika Hákkinen, McLaren. 3. Heinz-Harald Frentzen, Jordan. 4. Eddie Irvine, Ferrari. 5. Ralf Schumacher, Williams. Staða ökumanna: 1. Mika Hákkinen, McLaren ... 60 2. Eddie Irvine, Ferrari......59 3. David Coulthard, McLaren . . 46 4. Heinz-Harald Frentzen, Jordan 40 5. Michael Schumacher, Ferrari 32 Staða ökuliðanna: 1. McLaren ..................106 2. Ferrari ...................97 3. Jordan.....................47 4. Williams ..................24 5. Benetton akstur á undan Eddie Irvine. Irvine rétt marði það að vinna Ralf Schumacher sem varð fimmti á undan Damon Hiil, sem krækti í siðasta stigið með því að klára sjötti. Það hefði getað farið verr, eftir áhættusaman framúr- akstur David Coulthards á fé- laga sínum Mika Hakkinen í La Source beygjunni eftir ræsinguna í gær. McLaren- félagarnir ræstu fremstir af rásmarkinu og var Coulthard fljótari af stað. Og eftir að hann hafði komist utan við Finnann rákust þeir saman og var mesta mildi að báðir skyldu komast óskaddaðir áfram. Var þetta nærri því endurtekning á svipuðu at- viki í Austurríki þegar Hákkinen snerist út úr braut- inni eftir framúrakstur Skotans sem hafði betur í gær og náði foryst- unni sem hann lét ekki af hendi alla keppnina. Hákkinen var að vonum ekki ánægður og virtist frekar óhress með fé- laga sinn og fannst hann taka óþarfa áhættu. Ekki staðurinn „Ég vil ekki tjá mig um atvikið í fyrstu beygj- unni. Þetta er ekki stað- ur þar sem þú átt von á framúrakstri, en sem betur fer skemmdist ekki hjá mér bíllinn." Hakkinen, sem nú hef- ur eins stigs forystu í stigakeppninni, veitti Coulthard ekki mikla keppni og svaraði því þannig: „Það er engin ástæða fyrir liðsfélaga að keppast því annar okkar hefði getað fall- ið úr keppni." Frábær úrslit Ron Dennis var ánægður með daginn því allt hafði fallið þeim i skaut. „Úrslit- in í dag eru frábær fyrir McLaren en ör- ugglega leiðinleg fyrir alla aðra,“ sagði Ron og gaf í skyn að keppnin hefði verið í daprara lagi þrátt fyr- ir góð úrslit i hjá sínu liði sem nú hefur 9 stig í forskot á Ferrari í liða- keppninni. Ferrari átti ekki eins góðan dag og var liðið alls ekki í því formi sem það hefur verið í undanfórn- um keppnum. Salo og Ir- vine ræstu af sjötta og níunda rásstað og náðu aldrei að sýna mátt Ferrari-vélanna sem eru þær næst afl- mestu í dag. Flestir voru á tveggja stoppa áætlun og s uðu því við- gerðar- hléin ekki mikið inn í akstur manna, nema Ralf Schumacher var á einu við- gerðarhléi en það dugði ekki til að bæta stöðu hans. Keppnin enn opin Sigurvegari belgíska kappakstursins þetta árið, David Coulthard, kom 10,4 sek. á undan Hákkinen yfír marklínuna eftir 306 km akstur og 44 hringi. Frentzen kom 20 sek. síðar. En Eddie Irvine hafði tapað nærri sek- úndu á hring og var 44 sek. lengur að aka vegalengdina en Coulthard. Þó Irvine hafl aðeins komið 4. í mark tapaði hann aðeins 3 stigum á Hakkinen og keppnin er enn opin í báða enda þegar að- eins mun- 14 stig- um á milli 1. og 3. í stiga- Eddie /Irvine, að neðan, var ánægðþr með sigur Coulthard i gær sem þýðir að munurinn á milli hans og Hákkinen er ekki nema eitt stig- þegar þeir mæta til næstu keppni í Mþ eftir ,—Ualfan „Miöaö / viö aóstœður Atknr í dag er ég ánægður með að vera aðeins einu /stigi undir í stigakeppninni,“ sagði Irv/ne að lokinni keþpni í gær. „Við höfum ekki verið nfegilega fljótir um helgina. Við vqrðum að halda áfram að sækja í stiginn og gefast ekki upp fyrr en tímabmhu\ er lokið." hjá McLaren í Belgíu Tvöfaldi sigur MtTaren í gær er þriðji tvöfaldi sigurfuiteis í ár og sá fyrsti síðan Ayrtön Seúpa sigraði 1991. Einnig em Coultimrd fyrsti ökumaðurinn tjrað btjóta uppÁO ára hefð. á SPA þár sem aðeins Sehna, Schumache/og Hill hafa unniö. \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.