Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 12
30 MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999 'Sport Fyrsta umferðin í þýska handboltanum: Duranona 10 - byrjaði best íslendinganna um helgina Róbert Julian Duranona byrjaöi best af íslensku handknattleiks- mönnunum í þýsku A-deildinni sem hófst um helgina. Duranona skoraði 10 mörk fyrir Eisenach, sem þó mátti sætta sig við tap á heimavelli gegn Grosswallstadt, 27-30. Nýiiðar Dormagen, undir stjóm Guðmundar Guðmundssonar, töp- uðu, 21-24, í íslendingaslagnum gegn Wuppertal. Valdimar Gríms- son kom inn á hjá Wuppertal, þrátt fyrir meiðslin, og skoraði úr einu vítakasti. Heiðmar Felixson lék sinn fyrsta deildaleik með liðinu en skoraði ekki og Dagur Sigurðs- son er frá vegna meiðsla. Fyrir Dormagen skomðu Héðinn Gilsson og Róbert Sighvatsson sitt markið hvor en Daði Hafþórsson komst ekki á blaö. Sigurður Bjamason skoraði eitt mark fyrir sitt nýja lið, Wetzlar (áður Dutenhofen), sem tapaði í Minden, 31-26. Aleksandr Tútsjkin skoraði 8 mörk fyrir Minden og Dimitri Kusilev 6. Guðmundur Hrafnkelsson og félagar hjá nýliðum Nordhorn unnu mjög ömggan sigur á Schutt- erwald, 29-24. Gamla brýnið Joch- en Fraatz skoraði 8 mörk fyrir Nordhom. Prófsteinn gegn Flensburg Magdeburg, sem spáð er góðu gengi í vetur undir stjóm Alfreðs Gíslasonar, burstaði nýliða Will- statt, 29-19, eftir 15-5 í hálfleik frammi fyrir 5.500 áhorfendum í Magdeburg. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Magdeburg en Magnús Sigurðsson gerði 3 mörk fyrir Willstatt og Gústaf Bjamason eitt. „Þetta var bara fyrsti leikur, gegn reynslulausum nýliðum. Próf- steinninn á getu okkar verður þeg- ar við mætum Flensburg á mið- vikudag," sagði Alfreð Gíslason við Berliner Zeitung. Tveir Norðurlandabúar skoruðu mest í 1. umferðinni. Norðmaður- inn Stig Rasch skoraði 11 mörk fyr- ir Wuppertal og Daninn Lars Christiansen skoraði 11 fyrir Flensburg sem vann Bad Schwart- au úti, 27-31. Magnus gamii Wislander skor- aði 8 mörk í gær þegar Kiel burst- aði Nettelstedt, 33-20. Frankfurt tapaði fyrir Lemgo, 20-22, en leik Essen og Gummers- bach var frestað. -VS Bland í poka Alls tólf heimsmet voru sett á átta dögum á Kyrrahafsmeistaramótinu i sundi sem lauk um helgina í Sydney i Ástralíu. Keppt var í Ólympíusundhöllinni þar í borg sem mun hýsa sundkeppni Ólympíuleikanna á næsta ári. Einstakur árangur náöist þegar sett var að minnsta kosti eitt heimsmet á mótinu sjö daga i röð frá 22. til 28. ágúst og þykir það gefa góð fyrirheit fyrir komandi Ólympíuleika á næsta ári. Menn höföu haft áhyggjur af því að sundhöllin væri hæg þar sem ekkert met hafði verið sett þar fyrstu úögur árin en annað kom í ljós á þessu móti. Hinn 16 ára Ástrali Ian Thorpe setti fjögur heimsmet á mótinu og var kosinn sundmaður mótsins en Penny Heyns frá Suður-Afríku var valin sundkona mótsins eftir að hafa bætt fjögur af sínum eigin heimsmetum. -ÓÓJ HM í frjálsum lauk í Sevilla í gær: Níunda gullið - enginn unnið fleiri heimsmeistaragull en Bandaríkjamaðurinn Michael Johnson Michael Johnson komst enn og aftur í sögubækur frjálsra íþrótta í gær er hann var í sigursveit Bandaríkjanna í 4 x 400 metra boðhlaupi, sem var lokagrein á sjöunda heimsmeistaramótinu í frjálsum sem lauk í Seviila á Spáni í gær eftir níu daga keppni. Johnson hljóp síðasta hringinn og vann sitt níunda gull á HM en Carl Lewis átti áður metið, átta heimsmeistaramótsgull. Met frá Lewis var síðan jafhað er Maurice Greene vann sitt þriðja gull í Sevilla en Lewis var sá eini fyrir þetta mót sem hafði náð að vinna þrjú gull sem hann gerði bæöi 1983 og 1987. Þetta voru 10. og 11. gull Bandaríkjamanna sem unnu þau flest á mótinu þrátt fyrir að ná fæstum verðlaunum í sögu þjóðarinnar á HM í frjálsum. Rússar unnu næstflest gull eða sex_og alls þrettán verðlaun. » Svetlana Masterkova frá Rússlandi vann í gær 1500 metra hlaupið á 3 mínútum, 59 sekúndum og 53 brotum og bætti því gulli við brons sitt i 800 metra hlaupi. Boðhlaupssveit Bahamaeyja kom mjög á óvart og vann 4 x 100 metra boðhlaup kvenna og rússnesku stelpumar unnu 4 x 400 metra boðhlaupið. _ í hástökki kvenna vann hin úkraínska Inga Babakova með stökki yfir 1,99 metra og Finninn Aki Parviainen hélt finnskri hefði í spjótkasti karla með því að kasta 89,52 metra. Norður-Kórea eignaðist sinn fyrsta heimsmeistara í frjálsum og jafn- framt sinn fyrsta verðlaunahafa í sex keppnum sögunnar er hin 25 ára gamla Jong Song-ok vann sigur í maraþonhlaupi kvenna í gær. Devers sigur- Michael Johnson vann sitt 9. HM-gull í gaer. sælust Gail Devers er sigursælasta kona heims- meistaramótssögunnar eftir að hún vann sitt fimmta gull í 100 metra grindarhlaupi kvenna á laugardag og spillti fyrir kraftaverka- konunni Ludmilu Engquist. Devers hefúr þar með unnið einu gulli fleira en Jackie Joyner-Kersee. Devers hljóp á nýju banda- rísku met, 12,37 sekúndum, og varð á undan Glory Alozie frá Nígeríu og heims- meistara síðasta móts, Engquist frá Svíþjóð. Kúberverjinn Ivan Pedros vann sinn þriðja heims- meistaratitil i röð i lang- stökki er hann stökk 8,56 metra eftir hörkukeppni við heimamanninn Yago Lamela. Það heyrðist vart manns- ins mál á vellinum er 60 þúsund áhorfendur fógnuðu heimsmeistaranum í maraþonhlaupi, Abel Anton frá Spáni, með því að syngja „ole, ole“ hástöfum og Marokkó-maðurinn Salah Hissou vann 5000 metranna á nýju heimsmeistarmóts- meti, 12 mínútum, 58 sekúndum og 13 sekúndubrotum. Gríska stúlkan Mirela Manjani-Tzelili, sem rejmdar er fædd í Albaníu, vann að lokum spjótkast kvenna með kasti upp á 67,09 metra. Einstakt hjá Greene Æfingafélagamir bandarísku, þau Maurice Greene og Inge Miller, fógnuðu saman heims- meistaratitlum sínum í 200 metra hlaupi karla og kvenna á fostudagskvöldið en Greene varð fyrsti maðurinn í sögunni til að vinna bæði spretthlaupin, 100 og 200 metra hlaup, á sama heimsmeistaramótinu. ítalinn Fabrizio Mori nýtti sér það vel að hann var dæmdur aftur inn í úrslitahlaup 400 metra grindarhlaupsins og vann sigur með frábærum endaspretti. Mori hafði verið dæmd- ur úr leik út á það að hann hafði stigið inn á aðra braut en sína eigin en komst inn aftur. Þá varði rúmenska langhlaupadrottningin Gabriela Szabo heimsmeistaratilinn í 5000 metra hlaupi og Kínverjar unnu tvöfalt í 20 kílómetra göngu er þær Liu Hongyu og Wang Yan gengu hraðast allra. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.