Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
9
Útlönd
Rannsókn svissneska ríkissaksóknarans á meintri mútuþægni Borísar Jeltsíns:
Rússi sendur til Sviss
Háttsettur rússneskur rannsókn-
armaður kom til Sviss í gær til að
kanna meinta spillingu háttsettra
rússneskra embættismanna, auk
dætra Jeltsíns Rússlandsforseta.
Átti Carla del Ponte, ríkissaksókn-
ari Sviss, viðræður við rússneska
sendimanninn, Nikolaí Volkov, í
gærkvöld.
í janúar í fyrra fyrirskipaði sviss-
neski ríkissaksóknarinn húsleit í
fyrirtækinu Mabetex í Lugano. Af
þeim gögnum sem fundust mátti sjá
notkun þriggja krítarkorta á nöfn-
um Borísar Jeltsins Rússlandsfor-
seta, Elenu Borissovnu Diatsjenko
og Tatjönu Borissovnu Okulova.
Nöfn annarra háttsettra Rússa voru
einnig í gögnunum.
Eigandi Mabetexfyrirtæksisins,
Baghjet Pacolli, er Albani frá
Kosovo, sem hefur tekið að sér end-
urbætur á byggingum í Kreml.
Carla del Ponte greindi Jurí
Skuratov, ríkissaksóknara Rúss-
lands,. frá málinu. Hann var rekinn
skömmu siðar. Samvinna tveggja
eftirmanna hans við svissneska rík-
issaksóknarann kostaði þá einnig
starfið.
Samtímis rannsókninni í Sviss
fer fram rannsókn í Bandaríkjunum
og Bretlandi á því hvort Rússar hafi
flutt út hjálparfé frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og sett á reikninga í
New York.
Bensín lækkar
í Danmörku
Bensínverð í Danmörku lækkar
um sem svarar einni íslenskri
krónu í dag. Að sögn dönsku
fréttastofunnar Ritzau er ástæðan
minnkandi eftirspurn í sumarlok,
bæði í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Þá hefur hensínverð verið
heldur á niðurleið á uppboðs-
markaðinum í Rotterdam.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ- Á KR. 10.000,00
1985-2.A.B 10.09.99 - 10.03.00 kr. 30.306,70
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
* Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 31. ágúst 1999
SEÐLABANKIÍSLANDS
Ríkissaksóknari Sviss, Carla del Ponte, rannsakar nú meinta mútuþægni
Jeltsíns Rússlandsforseta og hvítþvott á rússneskum peningum í Sviss.
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, getur ekki verið annað en
ánægður með afstöðu Dana til sjálf-
stæðis frænda vorra.
Danir tilbúnir að
sleppa hendinni
af Færeyingum
Yfírgnæfandi meirihluti dönsku
þjóðarinnar, eða 68 prósent, er fylgj-
andi því að Færeyingar öðlist fullt
sjálfstæði frá Danmörku. Aðeins
átján prósent telja að Færeyingar
eigi að vera áfram hluti af danska
ríkjasambandinu.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun sem danska blaðið
Jyllands-Posten birti í morgun.
Könnunin var gerð um miðjan
ágúst.
Þetta eru mikil umskipti frá því
sem áður var því fyrir fjórum árum
voru aðeins 53 prósent Dana fylgj-
andi sjálfstæði Færeyinga.
Niðurstaða könnunarinnar nú er
í takt við það sem er að gerast á
stjómmálasviðinu. í nýrri hvítbók
sem færeyska landstjómin lét gera
um sjálfstæði eyjanna kemur fram
að Færeyingar geta á fimmtán ára
tímabili slitið tengslunum við Dan-
mörku og stofnað sjálfstætt ríki. I
fyrsta skipti hefur verið úrskurðað
að efnahagur eyjanna geti staðið
undir sjálfstæðu ríki.
Hvítbókinni hefur verið vel tekið,
bæði í Færeyjum og Danmörku.
Chevrolet Silverado 1500,4x4, '96, grænn, ssk., 6,5 dísilvél,
ek. 56 þús. km, sölu. Verð 2.600 þús.
Cherokee Laredo '95, vínrauður, ek. 75 þús. km.
Verð 2.200 þús., stgr.
NOTAÐIR
Dodge Grand Caravan SE ‘97, 4 cyl., 5 d., ek. 65 þús. km,
vel útbúinn. Verð 2.250 þús.
Dodge Ram 1500 4x4 ‘97,8 cyl., ssk., 5-6 manna, rauður,
ek. 58 þús. km. Verð 2.200 þús.
49^.150
9þu*-k
e/r.
Egill Vilhjálmsson ehf,
Smiöjuvegi 1 • Kópavogi.