Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1999, Blaðsíða 2
20
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
37
Sport
Sport1
Valsstúlkurnar Eygló Jónsdóttir (11) og Ama
Grímsdóttir reyna hér áð stöðva Nínu Björnsdóttir,
sem var markahæst Stjörnustúlkna í gær með 9
mörk. DV-mynd E. Ól.
Grótta/KR vann sinn fjórða leik í röð
og tryggði sér tveggja stiga forustu á
toppi 1. deildar kvenna í gær. Grótta
byrjaði leikinn betur en góður kafli
getsanna um miðjan seinni hálfleik
og frábær markvarsla Vigdísar Sig-
urðardóttur komu ÍBV í 16-19. Þá
var sem heimastúlkur tækju við sér
og eftir að þær komust yfir í 21-20
var sem vörnin hjá Gróttu/KR
þéttist, Eyjastúkur misstu trúna og
Grótta/KR landaði fjórða sigrinum í
röð.
Ágústa Edda Björnsdóttir lék mjög
vel í seinni hálfleik er hún gerði
fjögur mörk og hún var sátt við úr-
slitin. „Við sögðum við okkur sjálfar
í hálfleik að við gætum ekki spilað
verr og við náðum að rífa okkur upp
í seinni hálfleik og vinna mikilvæg-
an sigur.“
Mörk Gróttu/KR: Alla Gokorian 12/5,
Ágústa Edda Bjömsdóttir 5, Kristín Þórð-
ardóttir 3, Edda Kristinsdóttir 2, Brynja
Jónsdóttir 1, Óiöf Indriðadóttir 1. Fanney
Rúnarsdóttir varði 18 skot.
Mörk ÍBV: Amela Hegic 9/1, Aníta Rós
Hailgrímsdóttir 7, Ingibjörg Jónsdóttir 4,
Eyrún Sigurðardóttir 1. Vigdís Sigurðar-
dóttir varði 16 skot.
Valssigur í Garðabæ
Valur vann góðan sigur á Stjörn-
unni í Ásgarði, 23-26, í gær. Leikur-
inn var í jámum lengst af en Valur
náöi forystu um miðjan fyrri hálfleik
og hafði tveggja marka forskot í leik-
hléi, 10-12. Valur bætti við forskotið
í upphafi seinni hálfleiks, náði mest
fimm marka forskoti, 10-15, en
Stjarnan kom sterk til baka og jafii-
aði, 20-20. En lengra komust Stjömu-
stúlkur ekki, Valur bætti leik sinn og
sigraði sannfærandi.
„Ég var búin að undirbúa mig vel
fyrir þennan leik og taka út leik-
menn Stjömunnar. Við vorum stað-
ráðnar í að bæta fyrir leik okkar
gegn Gróttu/KR í síðustu umferð og
það gekk eftir,“ sagði Berglind Hans-
dóttir, markvörður Vals, sem varði
oft mjög vel.
Leikurinn einkenndist helst af
miklum mistökum beggja liða, sér-
staklega í sóknarleiknum þar sem
mistökin voru oft líkt og um algjöra
byrjendur væri að ræða. Nína K.
Bjömsdóttir var best í liði Stjömunn-
ar en hjá Val voru þær Berglind
markvörður og Helga S. Ormsdóttir
bestar.
Mörk Stjömunnar: Nína Bjömsdóttir
9/2, Ragnheiöur Stephensen 5/1, Sigrún
Másdóttir 4, Inga S. Björgvinsdóttir 1, Rut
Steinsen 1, Margrét Vilhjálmsdóttir 1,
Anna B. Blöndal 1 og Svava Jónsdóttir 1.
Sóley Halldórsdóttir varði 11/1 skot.
Mörk Vals: Helga S. Ormsdóttir 9/3, Sig-
urlaug R. Rúnarsdóttir 6/1, Ama Gríms-
dóttir 3, Gerður Beta Jóhannsdóttir 2,
Hafrún Kristjánsdóttir 2, Brynja Steinsen
1/1, Elísa Sigurðardóttir 1, Kolbrún Frank-
lín 1 og Sonja Jónsdóttir 1. Berglind Hans-
dóttir varði 15 skot.
Víkingsstúlkur ryðgaðar
Víkingsstúlkur lentu í erfiðleikum
með ÍR í gær en unnu að lokum 17-15
eftir að ÍR hafði leitt 9-10 í hálfleik.
Mestu munaði að Víkingsvörnin og
Helga Torfadóttir lokuðu marki sínu
i upphafi seinni hálfleiks og ÍR-ingar
skoraðu ekki fyrstu 16 mínútur hálf-
leiksins og á meðan breytti Víkingur
stöðunni í 15-10. Helga markvörður
var best Víkinga en Katrín Guð-
mundsdóttir lék mjög vel fyrir gest-
ina úr Breiðholtinu. Víkingsstúlkur
voru ryðgaðar enda léku þær síðast
5. október eða fyrir 22 dögum.
Mörk Vfkinga: Heiðrún Guðmundsdóttir 6,
Kristin Guðmundsdóttir 4/2, Helga Bima
Brynjólfsdóttir 3, Guðmunda Ósk Kristjáns-
dóttir 2, Margrét Egilsdóttir 1, Anna Kristín
Ámadóttir 1. Helga Torfadóttir varði 15
skot.
Mörk ÍR: Katrín Guðmundsdóttir 8/2, Ingi-
björg Jóhannsdóttir 3/1, Þorbjörg Eysteins-
dóttir 1, Ebba Brynjólfsdóttir 1, Hrund Sig-
urðardóttir 1, Anna Sigurðardóttir 1. Jenný
Ásmundsdóttir varöi 10 skot.
Stórsigur FH-stúlkna
Eftir tvö töp í röð og þrjá leiki án
sigurs náði FH að rétta úr kútnum
með stórsigri á Aftureldingu, 40-18,
eftir að hafa haft 22-3 yfir í leikhléi.
Mörk FH: Hrafnhildur Skúladóttir 7,
Guðrún Hólmgeirsdóttir 6, Dagný
Skúladóttir 5, Gunnur Sveinsdóttir 5, Drífa
Skúladóttir 4, Hafdis Hinriksdóttir 4,
Þórdís Brynjólfsdóttir 4, Jolanta Slapikiene
1, Hildur Pálsdóttir 1, Hildur Einarsdóttir 1,
Björk Ægisdóttir 1, Harpa Vífilsdóttir 1.
Mörk Aftureldingar: Edda Eggertsdóttir
4, Ingibjörg Magnúsdóttir 4, Jolanta
Limboite 3, Anfta Pálsdóttir 3, Ásthildur
Haraldsdóttir 1 og Hugrún Ólafsdóttir 1.
-ih/BB/ÓÓJ/GH
ísland á toppnum
íslenska stúlknalanaslioið, skipað
leikmönnum 18 ára og yngri, lék ann-
an leik sinn í undankeppni Evrópu-
mótsins gegn heimamönnum í Sviss og
endaði leikurinn 0-0.
„Við vorum betri í fyrri hálfleik og
áttum þá nokkur ágætismarktækifæri.
í seinni hálfleik lá hins vegar dálítið á
okkur en stelpurnar stóðu sig vel í
vöminni og héldu hreinu," sagði Klara
Bjartmarz, fararstjóri íslenska liðsins,
skömmu eftir að leiknum lauk. „Þrátt
fyrir að það hafi legið á okkur í seinni
hálfleik þá reyndi ekki að neinu marki
á markverðina, þær Maríu B. Ágústs-
dóttur og Þóm B. Helgadóttur sem
skiptu með sér hálfleikjunum, María
byrjaði inni á en Þóra tók stöðu henn-
ar í hálfleik."
íslenska liðið á góða möguleika á að
komast áfram í keppninni en Spánveij-
ar leika gegn Slóvökum á eftir. ís-
lemdingar em komnir með 4 stig eftir
tvo leiki og em í efsta sæti riðilsins
ásamt Svisslendingum sem einnig hafa
4 stig en lakara markahlutfall.
Staðan á Evrópumótinu
ísland 2 110 4-14
Sviss 2 110 1-04
Spánn 2 10 12-13
Slóvakía 2 0 0 2 1-6 0 -ih
1. DEILD KARLA
Afturelding 5 4 1 0 137-115 9
KA 5 4 0 1 146-105 8
Fram 5 4 0 1 125-126 8
ÍR 5 3 1 1 122-113 7
FH 5 3 1 1 111-108 7
Valur 6 3 0 3 137-134 6
Haukar 5 2 1 2 129-119 5
HK 5 2 0 3 120-124 4
Víkingur, R. 6 1 1 4 146-164 3
ÍBV 5 1 1 3 108-132 3
Stjarnan 5 1 0 4 119-126 2
Fylkir 5 0 0 5 103-137 0
1. DEILD KVENNA
Grótta/KR 5 4 1 0 112-87 9
Haukar 4 3 1 0 109-76 7
Víkingur, R. 4 3 1 0 79-71 7
Valur 5 3 0 2 120-97 6
Stjaman 5 3 0 2 130-111 6
FH 5 2 1 2 124-96 5
ÍBV 4 2 1 1 102-81 5
Fram 4 1 0 3 83-84 2
ÍR 5 1 0 4 84-116 2
KA 5 0 1 4 86-127 1
Afturelding 4 0 0 4 60-143 0
ENGLAND
nað að sigra þar
síðan árið 1963.
Manchester City styrkti
stöðu sína á toppnum með
1- 0 sigri gegn Ipswich og
QPR og Birmingham gerðu
2- 2 jafntefli í Lundúnum.
Titi Camara tryggði
Liverpool sigur á West
Ham í ensku A-deildinni í
knattspymu í gærkvöldi.
Camara, sem fyrr um
daginn missti fóöur sinn,
skoraði eina mark leiksins
á 43. mínútu.
Eiöur Smari Guðjohnsen
skoraði fyrir Bolton í gær
gegn Nottingham Forest
þegar liðin skildu jöfn, 1-1,
á City Cround í
Nottingham. Eiður Smári
og Guöni Bergsson
byrjuðu báðir inni á,
Guðni lék allan leikinn en
Eiður fór út af á 75.
mínútu.
Celtic tapaöi a heimavelli
fyrir Motherwell í skosku
úrvalsdeildinni þrátt fyrir
að leika manni fleiri í 60
mínútur. Hearts og
Kilmamock gerðu 2-2
jafntefli og St. Johnstone
tapaði á heimavelli fyrir
Dundee United, 0-1. -GH
West Ham hefur ekki sott
gull í greipar Liverpool á
Anfield Road og hefur ekki
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu:
- hjá Arsenal en Evrópumeistarar Manchester United eru komnir áfram
Leikmenn Barcelona sjást hér fagna einu af
fimm mörkum sínum gegn sænska liðinu AIK
en á innfeildu myndinni fagnar Gabriel
Batistuta sigurmarki sínu fyrir Fiorentina gegn
Arsenal sem gerði út um vonir Arsenal.
'0 MEISTARADEILDIN
A-riðiU:
Maribor-Dynamo Kiev.........1-2
0-1 Rebrov (37.), 1-1 Balajic (50.), 1-2
Rebrov (84.)
Lazio-Leverkusen ............1-1
1-0 Nedved (20.), 1-1 Kirsten (43.)
Lazio 5 3 2 0 12-3 11
D. Kiev 5 2 1 2 8-7 7
Leverkusen 51317-7 6
Maribor 5 1 0 4 2-12 3
B-riðiU:
Enn eina ferðina sýndu Víkingar að
þeir eru sýnd veiði en ekki gefin í 1.
deildinni í handknattleik í vetur. Eftir
hræðilegan fyrri hálfleik börðust þeir
af krafti í þeim seinni og vom nálægt
því að vinna upp forskot Valsmanna.
Þröstur Helgason náði
að minnka muninn í
eitt mark þegar 40
sekúndur voru eftir
en Valsmenn létu
sigurinn ekki af
hendi og Theodór
Valsson tryggði hann
endanlega með marki
af línunni 10
sekúndum fyrir
leikslok.
Valsmenn settu strax
á fulla ferð og með
öguðum varnarleik
og öflugum
sóknarleik virtist
liðið hreinlega vera
að stinga slaka
Vikinga af. Til marks
um kraft Valsmanna
nýttu þeir 18 af 23
sóknum sínum í
hálfleiknum eða 78% sóknanna.
Slakur sóknarleikur Víkinganna gerði
Valsmönnum reyndar auðveldara fyrir
og oft urðu slæmar sendingar til þess að
Valur gerði auðveld mörk úr hraða-
upphlaupum.
í seinni hálfleik komust Víkingar
smátt og smátt inn í leikinn. Ingimundur
Helgason kom inn í leikstjórnanda-
hlutverkið og sóknarleikur Víkinga varð
betri við það. Þá kom Hlynur Morthens í
markið og varði oft glæsilega og þetta
virtist vera sú vítamínsprauta sem
Víkingamir þurftu. Þeir söxuðu með
mikilli baráttu jafnt og þétt á forskotið
og þegar 8 og hálf mínúta var eftir varð
munurinn fyrst tvö mörk, 24-26.
Valsmenn komust síðan í 25-29 þegar
fjórar mínútur vom eftir en Víkingar
seigluðust áfram og minnkuðu síðan
muninn í eitt mark eins og áður sagði.
En þetta dugði ekki til og Valsmenn
fógnuðu sigri.
„Þetta hefði ekki þurft að enda í svona
spennu. Ég var ánægður með fyrri
hálfleikinn en í siðari hálfleik duttum
við hins vegar á það plan sem við höfum
of oft verið á í vetur. Við fórum að spila
óagað og ómarkvisst, sérstaklega í
sókninni," sagði Geir Sveinsson, þjálfari
Vals. Bjarki Sigurðsson, homamaðurinn
ungi, var þeirra bestur og nýtti öll sín
færi. Daníel átti einnig prýðilegan leik.
„Við sváfum værum svefni í fymi
hálfleik, sérstaklega í sókninni þar sem
við réttum þeim boltann hvað eftir
annað. Við verðum að hafa fyrir
hlutunum en með góðri einbeitingu
getum við lagt hvaða lið sem er. Ég var
hins vegar mjög óhress með dómarana i
leiknum, mér fannst þeir óömggir og
lítið samræmi í dómum þeirra," sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
Víkinga, en hann fékk rautt spjald þegar
ein og hálf mínúta var eftir. Valgarð
Thoroddsen var þeirra besti maður og
sá eini sem lét eitthvað að sér kveða í
fyrri hálfleik. Hlynur og Ingimundur
áttu siðan góða innkomu í síðari
hálfleik.
-HI
Víkingur 28 (10) - Valur30(18)
1-0, 1-0, 2-3, 3-5, 4-9, 5-10, 6-16, 8-17, (10-18), 13-19, 15-20, 16-22,
19-25, 24-26, 25-29, 23-29, 28-30.
Sigurbjöm Narfason 7, Valgarð Thoroddsen 6,
Ingimundur Helgason 6/2, Þröstur Helgason 5, Hjalti Gylfason 2, Leó
Öm Þorleifsson 1, Karl Grönvold 1.
Varin skot: Sigurður Sigurðsson 3/1, Hlynur Morthens 8.
Brottvisanir: 6 mínútur. Rauö spjöld: Þorbergur Aðalsteinsson.
Vítanýting: Skorað úr 2 af 3.
Áhorfendur: 400.
Gceöi leiks (1-10): 8.
Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson
og Jónas Eliasson (4).
Bjarki Sigurðsson 11/1, Daníel Ragnarsson 7, Freyr
Brynjarsson 3, Júlíus Jónasson 3, Theodór Valsson 3, Davið Ólafsson 2,
Ingimar Jónsson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 8.
Brottvísanir: 8 mínútur. Rauö spjöld: Engin.
Vitanýting: Skorað úr 1 af 2.
Maður leiksins: Bjarki Sigurðsson, Val
11 lið eru komin i 16-liða úrslitin í
meistaradeildinni í knattspymu. Þetta
em: Manchester United, Lazio, Fiorent-
ina, Barcelona, Rosenborg, Marseille,
Bordeaux, Porto, Real Madrid, Valencia
og Sparta Prag.
Stærstu tiðindi gærkvöldsins vora
þau að Arsenal er úr leik í meistara-
deildinni eftir 0-1 ósigur gegn Fiorent-
ina á Wembley.
Gabriel Batisuta tryggði Fiorentina
sæti í 16-liða úrslitunum og sendi um
leið Arsenal út í kuldann þegar hann
skoraði sigurmarkið á 75. mínútu með
þrumuskoti úr þröngu færi. Arsenal
réð lengst af ferðinni en náði ekki að
nýta góð marktækifæri.
„Við fengum svo sannarlega okkar
tækifæri en nýttum þau ekki og fyrir
vikið var okkur refsað. Knattspyman
gengur út á að skora og þó svo að við
höfum verið óheppnir í þessum leik þá
var þetta bara ekki okkar dagur,“ sagði
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, en hans
menn verða nú að sætta sig við að fara
í UEFA-keppnina.
Börsungar tóku leikmenn AIK í
kennslustimd á Camp Nou leikvangin-
um í Barcelona. Þrátt fyrir að Luis van
Gaal, þjálfari Börsunga, hvíldi sex af
fastamönnum liðsins vora yfirburðir
heimamanna mjög miklir. Patrick Klui-
vert skoraði fyrstu 2 mörkin með lag-
legum hætti á fyrsta hálftímanum og
eftir það var aðeins spuming hversu
stór sigurinn yrði. Börsungar hafa far-
ið mikinn í keppninni og eru líklegir til
afreka eins og þeir era að spila þessa
dagana.
„Ég hef trú á að Barcelona vinni
keppnina í ár. Börsungar era með frá-
bært lið og hafa í sínum röðum 18-19
heimsklassaleikmenn," sagði Stuart
Baxter, þjálfari AIK.
„Við lékum mjög vel. Það var mikil
hreyfing í liðinu og við náðum að búa
okkur til pláss alls staðar á vellinum,“
sagði Luis Van Gaal, þjálfari Börsunga.
Evrópumeistarar Manchester United
tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitunum
með góðum útisigri í Zagreb. United
sýndi þó litla meistaratakta. Liðið skap-
aði sér fá marktækifæri en glæsimark
Davids Beckhams beint úr aukaspymu
létti pressunni af liðinu og enn meira
þegar Roy Keane skoraði í upphafi síð-
ari hálfleiks með þramuskoti sem hafði
viðkomu í vamarmanni Croatia.
„Þetta var ekki léttur leikur en ég
held að við höfum verið sterkari aðil-
inn þó svo að viö höfum ekki verið að
spila neitt sérsklega vel. Það er erfitt að
leika gegn Croatia Zagreb svo við get-
um ekki verið annað en sáttir við úr-
slitin,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri
United.
Norsku meistararnir í Rosenborg
eru komnir áfram í keppninni eftir
2-0 sigur á Boavista. Það var kalt í
veðri í Þrándheimi og það virtist eitt-
hvað hafa áhrif á gestina frá Portúgal.
Þeir sköpuðu sér fullt af færum en
tókst ekki að skora fram hjá Jöm
Jamtfall, markverði Rosenborgar, sem
er eitt þriggja liða sem ekki hefur tap-
að leik. -GH
Barclona-AIK ..................5-0
1-0 Kluivert (14.), 2-0 Kluivert (32.),
3-0 Zenden (42.), 4-0 Garcia (53.), 5-0
Dehu (55.)
Arsenal-Fiorentina ............0-1
0-1 Batistuta (75.)
Barcelona 5 4 10 16-6 13
Fiorentina 5 2 2 1 6-4 8
Arsenal 5 1 2 2 6-7 5
AIK 5 0 1 4 4-2 1
C-riðill:
Rosenborg-Boavista.............2-0
1-0 Berg (62.), 2-0 Dahlum (66.)
Dortmund-Feyenoord ............1-1
1-0 Addo (45.), 1-1 van Vossen (73.)
Rosenborg 5320 12-4 11
Dortmund 5 13 17-8 6
Feyenoord 50506-6 5
Boavista 5 0 2 3 3-10 2
D-riðill:
Sturm Graz-Marseille ........3-2
1- 0 Maehlich, 1-1 (17.) Dugarry (51.),
2- 1 Kocijan (62.), 2-2 Dugarry (78.),
3- 2 Kocijan (85.)
Croatia Zagreb-Man.Utd .... 1-2
0-1 Beckham (32.), 0-2 Keane (49.), 1-2
Prosinecki (90.)
Man. Utd 5 3 117-3 10
Marseille 5 3 1 1 8-5 10
Croatia 5 113 5-5 4
Sturm Graz 5 113 3-10 4