Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1999, Qupperneq 3
20
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
Sport
BIKARKEPPNIN
Átta leikir fóru fram í 32-liða
úrslitum bikarkeppninnar í
handknattleik karla í gærkvöld.
Úrslit í leikjunum urðu þessi.
ÍR B-ÍH......................28-30
Fylkir-Stjarnan..............25-34
Völsungur-FH................ 14-30
Þór-Víkingur.................25-26
Selfoss-ÍR ..................21-31
Breiðablik-Fram..............30-35
ÍBV B-Haukar.................22-36
FH B-HK......................22-28
Þársarar veittu Víkingum harða
keppni fyrir norðan en heimamenn
leiddu með einu marki i hálfleik.
Undir lokin töldu Þórsarar sig eiga
að fá vítakast. Brotið var á Dzimitri,
H-Rússanum í liði Þórs, á sex
metrunum og öllum til mikillar furðu
dæmdu dómararnir ekki neitt og
Víkingar fögnuðu sigri. -GH
Bland i noka
Ebba Brynjólfsdóttir handknatt-
leikskona er aftur komin til KA en
hún gekk i raðir ÍR frá KA fyrir tíma-
bilið og lék fyrstu leikina með Breið-
holtsliðinu á íslandsmótinu.
Óvíst er hvort Guómunda Krist-
jánsdóttir vinstrihandarskytta getur
leikið með Víkingi gegn Val í 1. deild
kvenna í handknattleik á laugardag-
inn. Guðmunda er meidd á ökkla.
Hlynur Birgisson er kominn heim
frá Skotlandi en hann var til reynslu
hjá skoska A-deildarliðinu Dundee. 1
samtali við DV sagði Hlynur að liðið
vantaöi leikmann í toppæfmgu sem
kæmist strax í liðiö og því var hann
ekki inni í myndinni enda búinn að
hvíla frá því íslandsmótinu iauk.
Manchester City sigraði Portsmouth,
4-2, í ensku B-deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld eftir að hafa verið
undir, 0-2, um tíma. City er í efsta
sæti með 35 stig, Charlton er i ööru
sæti með 29 stig og Huddersfield hef-
ur 28 stig í þriðja sæti.
íslendingalióið Stoke City tapaði
fyrir Notts County 0-1, á heimavelli í
gærkvöld. Notts County er í efsta
sæti í C-deildinni með 32 stig en
Stoke er I sjötta sæti með 27 stig.
Preston sigraöi Boumemouth, 3-0, í
C-deildinni, og lék Bjarki Gunn-
laugsson síðustu tiu mínúturnar
með Preston. Preston er í fjórða sæti
með 29 stig.
Framhaldsaöalfundur HK verður
haldinn fimmtudaginn 11. nóvember
kl. 20 í Hákoni digra. Aðalstjóm HK
hvetur alla velunnara HK að mæta á
fundinn.
Eftir aó riðlakeppni meistaradeild-
innar í knattspyrnu lauk i gær em
Manchester United, Barcelona og
Lazio efst hjá breskum veðbönkum
sem líklegustu liðin til að vinna
keppnina i ár.
Alberto Zaccheroni, þjálfari AC Mil-
an, var niðurbrotinn í viðtali við
ítalska sjónvarpið eftir leikinn gegn
Galatasaray. „Við vorum með sæti i
16-liða úrslitunum innan seilingar en
á ótrúlegan hátt rann það okkur úr
greipum," sagði Zaccheroni.
-JKS/GH
NBA-DEILDIN
Úrslit leikja í NBA-deildinni í
nótt uröu sem hér segir:
Boston-Washington..... 112-101
Potapenko 20, Anderson 19
Richmond 20, Whitney 15
Orlando-Detroit......... 103-94
Garrity 20, Armstrong 17
Hill 30, Laettner 18
Cleveland-New Jersey . . . 97-90
Kemp 27, Knight 16
Manbury 27, Van Horn 20
Chicago-New York....... 84-94
Brand 14, Arlert 14
Houston 23, Sprewell 19
Portland-LA Clippers .... 121-98
Stoudamire 23, Smith 22
Odom 23, Taylor 22
LA Lakers-Vancouver .... 103-88
O'Neal 28, Rice 17
Abdim-Rahim 19, Dickerson 19
1. deild karla í handbolta eftir 6. umferðir:
Haukar skemmta
- mest samkvæmt mati blaðamanna DV
DV tók í notkun nýtt matskerfi í
handboltanum í vetur það sem
metin eru gæði leiks og
frammistaða dómara. Bæði
leikurinn og dómarar hans fá
einkunn á bilinu 1 til 10 og nú þegar
sex umferöir eru búnar er gaman að
skoða hvaða liða og dómarar standa
efstir í einkunargjöf blaðsins.
Haukar úr Hafnarfirði eru
skemmtilegasta liðið, það er leikir
liðsins hafa innihaldið mestu gæðin
aö meöaltali það sem af er mótinu.
Leikir Hauka fá að meðaltali 7 í
einkunn en mest spenanndi er að
fara á leiki nýliða Fylkis en þeirra
leikir eru aðeins með
meðaleinkunnina 4,33.
Meðalgæði leikja einstakra
liöa eru þessi:
1. Haukar ................7,00
2. Stjarnan ..............6,83
3. Afturelding............6,50
4. Valur.........................6,33
5. -6. ÍR .......................6,00
5.-6. Vlkingur...................6,00
7.-8. KA ........................5,67
7.-8. FH.........................5,67
9. Fram..........................5,50
10. ÍBV .........................5,33
11. HK...........................5,17
12. Fylkir ......................4,33
Gunnar og Stefán hæstir
Gunnar Viðarsson og Stefán
Amaldsson hafa fengið bestu
einkunn að meðaltali af dómurum
deildarinnar. Þeir hafa dæmt sjö
leiki og fengið meðaleinkunina 7,00
en næstir koma Valgeir Ómarsson
og Bjami Viggósson með 6,71 og
þriðju eru Guðjón L. Sigurðsson og
Ólafur Haraldsson með 6,50.
Dómarar fá að meðaltali 5,9 í
einkunn fyrir leiki sína.
-ÓÓJ
Ólafur Stefánsson - 6 mörk. Patrekur Jóhannesson - 2
Þýski handboltinn:
Meistarar Kiel
lágu fýrir Essen
Essen, lið Patreks Jóhannesson-
ar og Páls Þórólfssonar, gerði sér
lítið fyrir og lagði Þýskalands-
meistara Kiel, 24-20, í þýsku A-
deildinni í handknattleik í gær.
Þetta var fyrsti tapleikur Kiel á
þessu tímabili en liðið vann tvö-
falt á síðustu leiktíð. Patrekur
skoraði 2 mörk fyrir Essen en Páll
var ekki meðal markaskorara.
Markahæstur hjá Essen var Wol-
ker Michel meö 8 mörk. Hinn fer-
tugi Stefan Hácker, markvörður
Essen, sýndi enn og aftur snilli
sína en hann varði 18 skot.
Markahæstir í liði Kiel voru
Magnus Wislander og Nicolaj Jac-
obseon með 5 mörk hvor.
Alfreð Gíslason og lærisveinar
hans í Magdeburg lögðu Gum-
mersbach á heimavelli, 23-20.
Ólafur Stefánsson var atkvæða-
mestur í liði Magdeburg meö 6
mörk, þar af voru tvö af vítalín-
unni.
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur og þá einkum í fyrri hálf-
leik en við höíðum 6 mörk yfir í
leikhléinu. Við gáfum aðeins eftir
í seinni hálfleik en þetta hafðist.
Liöið er góðu róli, Alfreð er að
gera fina hluti og stefnan hjá okk-
ur er að halda liðinu við toppinn,"
sagði Ólafur Stefánsson í samtali
viö DV í gærkvöldi.
Tveir aðrir leikir voru á dag-
skrá. Schutterwald tapaði á
heimavelli fyrir
18-20, og Minden
Frankfurt, 29-26.
Flensburg 9 8
Lemgo 9 7
Kiel 9 7
Minden 10 7
Nordhorn 9 6
Magdeburg 9 6
Essen 10 7
Grosswallst. 9 5
Frankfurt 10 4
Nettelstedt 9 4
Wetzlar 9 4
B.Schwartau 9 4
Gummersb. 10 3
Wuppertal 9 2
Eisenach 9 2
Dormagen 9 1
Schutterw. 9 0
Willstatt 9 0
Bad Schwartau,
hafði betur gegn
0 1 256-214 16
1 1 238-193 15
1 1 253-209 15
1 2 268-242 15
2 1 241-197 14
2 1 217-177 14
0 3 265-247 14
0 4 222-217 10
1 5 231-223 9
1 4 233-236 9
0 5 214-228 8
0 5 185-213 8
0 7 228-244 6
1 6 206-235 5
0 7 206-233 4
1 7 188-217 3
1 8 190-241 1
0 9 186-261 0
-GH
Norski handboltamaðurinn Stig Rasch:
Kýldur á diskóteki
Norski landsliðsmaðurinn Stig
Rasch, sem leikur meö Wuppertal í
þýsku úrvalsdeildinni í handbolta,
slasaðist um helgina og leikur ekki
með félögum sínum næstu vikurn-
ar. Þetta er mikið áfall fyrir liðið en
bæði Valdimar Grímsson og Dagur
Sigurðsson eru á sjúkralista liðsins.
Rasch slasaðist ekki í leik heldur
höfðu nokkrir leikmenn liðsins
brugðið undir sig betri fætinum og
farið á diskótek.
Ekki voru allir gestir staðarins
sáttir við dansspor þeirra félaga á
dansgólfmu. Málin voru ekki rædd,
heldur voru hnefamir látnir tala,
Rasch var rifinn niður og vissi ekki
fyrr en hann fékk þungt högg i höf-
uðið, félagar hans komu honum til
hjálpar og tókst viö illan leik að
koma sér út.
Við skoðun kom í ljós að blætt
hafði inn á innra eyra Rasch og
jafnvel talið að hann myndi missa
heym á eyranu nema fara í aðgerð.
íslendingarnir ekki á
staönum
Stjóm Wuppertal lítur þetta mál
mjög alvarlegum augum og er búist
við að leikmennirnir fái háar fjár-
sektir eða verði jafnvel reknir.
Það skal tekið fram að hinir ís-
lensku leikmenn Wuppertal, þeir
Valdimar Grímsson, Dagur Sig-
urðsson og Heiðmar Felixson, voru
ekki meðal diskógesta.
Hinn ungi og stórefnilegi Örlygur Sturluson átti mjög góöan leik gegn Lugano í gær og hér er hann aö skora 2 af 15 stigum
síunum í leiknum án þess aö varnarmaöur svissneska liösins komi nokkrum vörum viö. DV-mynd E.ÓI.
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gærkvöld:
Galatasaray bjargaði
Eyjólfi og félögum
- Hertha Berlín áfram eftir ævintýralegan sigur Galatasaray á AC Milan
Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í
Hertha Berlín getað þakkað tyrkneska
liðinu Galatasaray fyrir að vera komn-
ir í 16-liða úrslit í Meistaradeild Evr-
ópu í knattspyrnu. Hertha tapaði fyrir
Chelsea á Stamford Bridge í Lundún-
Dick Advokaat, þjálfari Glasgow Rangers, djúp hugsi I
leiknum gegn Bayern Múnchen í gærkvöld. Reuter
um, 2-0, og staðan allt annað en glæsi-
leg því AC Milan var yflr, 1-2, gegn
Galatasaray þegar þrjár mínútur voru
eftir. Með sigri hefði ítalska liðið kom-
ist áfram en endirinn í leiknum var
ævintýri líkastur. Tyrkimir skoruðu
tvö mörk á þessum
lokaminútum en
þriðja markið var
skorað úr vítaspymu á
90. mínútu. Áfallíð var
geysilegt fyrir AC Mil-
an og draumurinn um
áframhald í keppninni
var þar með úti og
hafhaði liðið í neðsta
sætinu í H-riðli.
Hertha Berlín tapaði
tveimur síöustu leikj-
um sínum í riðlinum
en skreið í 16-liða úr-
slitin ef svo má segja.
Bayem Múnchen sigr-
aði Glasgow Rangers á
Ólympíuleikvanginum
í Múnchen. Thomas
Strunz gerði eina
mark Bæjara úr víta-
spymu í fyrri hálfleik. Bæði liðin áttu
sín færi og átti Rangers tvívegis skot í
stöng. Skoska liðið fær svolitla sárabót
en liðið fer núna inn í 3. umferð UEFA-
keppninnar en dregið verður á fostu-
dag í keppninni.
Real Madrid vann Molde í Noregi
með marki frá Frakkanum Kerembeu
undir lok fyrri hálíleiks.
Dregiö í Sviss á morgun
Þau lið sem komust áfram í 16-liða
úrslit eru Lazio, Rosenborg, Barcelona,
Manchester United, Real Madrid, Val-
encia, Sparta Prag og Chelsea sem sig-
urvegarar i sinum riðlinum og Dyna-
mo Kiev, Feyenoord, Fiorentina,
Marseille, Porto, Bayern Múnchen,
Bordeaux og Hertha Berlín sem lið í
öðru sæti síns riðils. Dregið veröur í
Sóra riðla í Sviss á morgun.
Liðin í þriðja sæti í sínum riðlum
Leverkusen, Dortmund, Sturm Graz,
Olympiakos, Rangers, Spartak Moskva
og Galatasaray fá sæti í 3. umferð
UEFA-keppninnar.
-JKS
21
Sport
Korac-keppnin í körfuknattleik:
Slæmir kaflar
kostuðu sitt
- þegar Reykjanesbær beiö lægri hlut fyrir Lugano
Hið sameinaða lið Njarðvíkur og
Keflavíkur, ÍRB, spilaði sinn fjórða
leik í Evrópukeppni félagsliða í
gærkvöld, í íþróttahúsi Keflavíkur,
og voru gestirnir Lugano frá Sviss.
Lugano fór meö sigur af hólmi,
72-78, og voru tveir slæmir kaflar
ÍRB, sinn í hvorum hálfleiknum,
það sem varð þeim að falli í þessum
leik.
„Mér fannst við spila betur
núna en í fyrri leiknum á móti þeim
ytra, þrátt fyrir slæma hittni hjá
okkur í kvöld. Það sem hrjáir okk-
ur núna er lítil ógnun inni í teig og
því erfiðara fyrir skyttumar að fá
góð skot fyrir utan, þar sem þær eru
dekkaðar stíft,“sagði Sigurður Ingi-
mundarson, annar þjálfari ÍRB, eft-
ir leikinn.
ÍRB byrjaði betur og komst í 8-2
og voru gestimir frekar stirðir í
upphafi. Um miðjan síðari hálfleik-
inn kom mjög slæmur kafli heima-
manna þar sem Lugano skoraði 16
stig í röð og breyttist staðan úr
19-18119-34. Á þessum kafla tapað-
ist boltinn ansi oft eða skot geiguðu
og voru leikmenn Lugano ekki lengi
að refsa með vel útfærðum hraða-
upphlaupum. Staöan í hálfleik var
28-40, gestunum í vil.
Jafnvægi var á með liðunum í
byrjun seinni hálfleiks en svo kom
góð rispa hjá leikmönnum ÍRB, þar
sem 3ja stiga skotin fóru að detta,
og náðu þeir að minnka muninn í
aðeins 1 stig, 50-51. Þá kom annar
mjög slæmur kafli heimamanna og
Lugano liðiö skoraöi næstu 13 stig-
in og staðan því orðin 50-64 og útlit-
ið ekki gott. Leikmenn ÍRB gáfust
ekki upp og héldu áfram að berjast
og náðu aðeins aö ógna Lugano í
lokin, en of naumur tima var eftir
og gestimir hittu úr vítunum þegar
ÍRB freistaðist að brjóta og vona að
þeir myndu klikka á vítalínunni.
Eins og áður sagði voru það
tveir slæmir kaflar sem uröu ÍRB að
falli en baráttan var þó til staðar.
Oft lentu heimamenn í vandræðum
með vöm Lugano og áttu á köflum í
hinum mestu erfiðleikum með að fá
góð skot. ÍRB var án Friðriks
Ragnarssonar og Hjartar Harðar-
sonar en í þeirra stað komu Örlyg-
ur Sturluson og Elentínus Margeirs-
son inn og stóðu sig með prýði.
Bestu leikmenn ÍRB voru Gunnar
Einarsson, sem hitti manna best, og
Chianti Roberts sem gerir allt mjög
vel nema að skora. Luganoliðið er
mjög sterkt og hefur marga há-
vaxna leikmenn innanborðs. Þeir
spiluðu stífan vamarleik sem oft
skilaði körfu eftir stolinn bolta.
Þeir voru fljótir fram þegar þeir sáu
færi á hraðaupphlaupi en vörnin
var aðal liðsins.
8-2, 11-8, 17-15, 19-18, 19-34, (28-40),
37-47, 45-51, 50-51, 50-64, 61-70, 66-73,
69-76, 72-78.
Stig iRB: Gunnar Einarsson 24, Örlyg-
m- Sturluson 15, Guðjón Skúlason 10, Chi-
anti Roberts 8, Friðrik Stefánsson 6,
Fannar Ólafsson 6, Teitur Örlygsson 3.
Stig Lugano: Dusan Stevic 20, Mich-
ael Polite 19, Harold Mrazek 16, Patrick
Koller 13, Norbert Valis 7, Rodney Blake
6.
-BG
Ekki hættir
„Við erum ekki hættir þrátt fyrir
að okkar möguleiki sé úr sögunni að
komast áfram í keppninni. Við ætl-
um að nýta þessa leiki og bæta þeim
í reynslubankann sem á eftir að
skila sér seinna. Við stefnum á sig-
ur í næstu tveimur leikjum sem við
eigum eftir úti og enda þetta með
stæl,“sagði Sigurður Ingimundarson
þjálfari, spurður um framhaldið í
keppninni.
Bland i poka
Brian Kidd fékk að taka poka sinn í
gær sem knattspymustjóri hjá enska
B-deildarliðinu Blackburn. Kidd tók
við liðinu seint á síöasta tímabili en
tókst ekki að forða því frá falli í B-
deildina. Ekkert hefur gengið hjá lið-
inu á þessari leiktíð. Það hefur aðeins
unnið þrjá leiki og er í 19. sæti. Tony
Parkes, aðstoðarmaður Kidds, mun
stýra liðinu uns nýr stjóri verður ráð-
inn.
Stuöningsmenn Real Madrid vilja
fá Hollendinginn Johan Cruyff til að
taka við liðinu af Walesverjanum
John Toshack. í skoðanakönnum
sem Madrídarblaðiö Marca fram-
kvæmdi kom í ljós að Cruyff fékk
flest atkvæði eða 52,4%. í öðru sæti
var Jorge Valdano, fyrrum þjálfari
Real Madrid, með 25,1% og í þriðja
sæti varð annar fyrrum þjálfari
Madridarliðsins, Radomir Antic,
með 14,4%.
Gary Neville, varnarmaður Man-
chester United, er aftur kominn á
sjúkralistann og nú er ljóst að hann
verður ekki með enska landsliðinu í
leikjunum tveimur gegn Skotum.
Neville lék með United í fyrrakvöld
og þá tóku meiðslin í nára sig upp aft-
ur.
Tveir kunnir tennis-
kappar urðu að hætta
keppni á opna franska
meistaramótinu i tennis
í gær. Þetta vom Banda-
ríkjamaðurinn Pete
Sampras og Bretinn
Greg Rudeski en þeir
urðu báðir fyrir meiðsl-
um í gær.
Af helstu úrslitum á mótinu í gær
má nefna að Michael Chang sigraði
Marcelo Rios frá Chile, Bretinn Tim
Henman lagði Juan Carlos Ferrero,
Jim Courier frá Bandaríkjunum
hafði betur gegn Carlos Moya frá
Spáni, Marc Rosset frá Sviss sigraði
Alex Corretja frá Spáni og óvænt-
ustu úrslitin urðu þau að Astralinn
ungi Lleyton Hewitt hafði betur gegn
Jevgeny Kafelnkov.
Sænski kylfingurinn Jesper
Parnevik hefur dregið þátttöku sína
til baka á heimsmeistarmótinu í golfi
sem hefst á Spáni í dag. Parnevik er
veill fyrir hjarta og meinuðu læknar
honum að taka þátt í mótinu.
Parnevik þarf aö taka sér nokkurra
vikna hvíld og svo getur farið að
hann taki ekki þátt á fleiri mótum á
þessu ári.
-GH
ÍmEISTARADEILDIN
E-riðill:
Olympiakos-Porto 1-0
1-0 Giannakopoulos (56.) Molde-Real Madrid .... 0-1 Kerembeu (43.) 0-1
Real Madrid 6 4 11 15-7 13
Porto 6 4 0 2 9-6 12
Olympiakos 6 2 13 9-12 7
Molde 6 10 5 6-14 3
F-riðill:
Bayem Múnhen-Rangers 1-0 Strunz (33. vitasp.) 1-0
Valencia-PSV Eindhoven 1-0 Lopez (70.) 1-0
Valencia 6 3 3 0 8-4 12
Bayem 6 2 3 1 7-6 9
Rangers 6 2 13 7-7 7
PSV 6 114 5-10 4
G-riðill:
Sparta Prag-Spartak Moskva 5-2
1-0 Locvenc (1.), 2-0 Rosicky (10.), 2-1
Bulatov (34.), 2-2 Bezrodnyi (45.), 3-2
Fukal (49.), 4-2 Labant (63.), 5-2
Locvenc (66.)
Willem II-Bordeaux .........0-0
Sparta 6 3 3 0 14-6 12
Bordeaux 6 3 3 0 7-4 12
Spartak 6 1 2 3 9-12 5
Willem II 6 0 2 4 7-15 2
H-riöill:
Chelsea-Hertha Berlin ......2-0
1-0 Deschamps (11.), 2-0 Ferrer (44.)
Galatasaray-AC Milan .......3-2
O-l Weah (20.), 1-1 Capone (27.), 1-2
Gianti (51.), 2-2 Sukur (87.), 3-2 Umit
(90. vítasp.)
Chelsea 6 3 2 1 10-3 11
Hertha 6 2 2 2 7-10 8
Galatasaray 6 2 13 10-13 7
AC Milan 6 1 3 2 6-7 6
Latir a koflum
„Mér fannst mínir menn vera latir á köflum þegar viö vorum
komnir með forskot. Fyrir leikinn var mikill spenningur í okkar her-
búðum því sigur hefði þýtt áframhald í keppninni og þess vegna er
ég mjög ánægður með að hafa unnið í kvöld. Við vissum að leikmenn
ÍRB eru frnar 3ja stiga skyttur og þess vegna þorðum við ekki að
spila svæðisvöm eins við erum vanir að gera á móti öðrum liðum.
Þeir eru ekki með neinn afgerandi leikmann inni í teig og því fórum
við vel út í skyttumar og reyndum að gera þeim lífið leitt. Dómar-
arnir fannst mér vera skelfilega slakir og er ekki sáttur við að fá
dómara sem eru að dæma sína fyrstu leiki í Evrópukeppninni," sagði
hinn ítalski þjálfari Lugano við DV eftir leikinn. -BG
-BG
Craig Moore og Jörg Albertz stilla upp í varnarvegg gegn Bayern Múnchen. Lengst til hægri á myndinni er Thomas
Strunz sem skoraöi eina mark leiksins úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Símamynd Reuter