Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Fréttir Ámi Johnsen i Morgunblaöinu um fótboltaferð alþingismanna til Færeyja: Greiddum ferða- kostnað sjálfir - þótt þá hefði legið fyrir að þingið greiddi - málið ekki til að gera veður út af, segir fyrrum forseti Alþingis Haft var eftir Ama Johnsen alþing- ismanni í Morgunblaðinu 29. júli sl. að kostnaður vegna Færeyjaferðar sem hann fór ásamt félögum sín- um í íþróttafélagi Alþingis hafi verið greiddur af þeim sjálfum. Þá lá hins vegar fyrir að forsætis- nefnd Alþingis hafði tekið já- kvætt í að greiða kostnaðinn af fluginu til Færeyja og gefið þingmönnum heimild til að fá dvaiarkostnaðinn borgaðan af starfskostnaðargreiðslum sín- um. Alþingi greiddi 350 þús- und krónur fyrir leiguflug til Færeyja. Ámi Johnsen vildi í sam- tali við DV ekkert láta hafa eftir sér um umrædda frétt Morgunblaðsins. „Það var fullur stuðningur frá mér og fyrri for- sætisnefnd við aö þessi ferð væri far- in með styrk frá Alþingi," segir Ólafúr G. Einars- son, fyrrverandi forseti Alþingis. Ólaf- ur segist hins vegar ekki muna hvort þáverandi neöid hafl formlega afgreitt styrkumsóknina en að nýr forseti þingsins hefði öragglega ekki hróflað við þeim vilja sem lá fyrir. Halldór Blöndal tók við embætti forseta Al- þingis í júni. man ekki eftir öðra sem einhveijir væra kannski tilbúnir að kalla að menn væra að leika sér á kostnað ,l. ... skattgreiðenda." Úrklippan úr Morgunblaðinu 29. júlí. Arni Johnsen: Segir ekkert. Að sögn Ólafs var þingmönmm- um gefið til kynna að þeir gætu, kysu þeir svo, notað starfskostnaðar- greiðslur sínar til að greiða ann- an kostnað en fargjöldin. „Það er út af fyrir sig alveg heimilt þeg- ar þeir sækja slíka fundi og mér skilst að það hafi þeir Halldór Blöndal: „Undirstrikar þann hug sem við berum til Færeyinga. gert í sambandi við gistinguna," Ólafur. segir Táknrænt fyrir vináttu „Færeyingar era mesta vinaþjóð okkar íslendinga og það hefur oft kom- ið fram. Þess vegna hef ég bæði sem samgönguráðherra, áður sem almenn- ur þingmaður og nú sem forseti viljað efla vináttutengsl við Færeyinga og nú milli færeyska þingsins og ís- lenska þingsins. Með sama hætti og Þórshöfn er vina- bær Reykjavíkur vil ég gjarnan að færeyska þingið sé vinaþing okkar ís- lendinga og þess vegna þótti mér rétt að styrkja al- þingismenn til þess að þeir gætu heimsótt Færeyinga á þjóðhátíð með 350 þúsund krónum. Þetta er bæði táknrænt fyrir okkar vináttu og undir- strikar um leið þann hug sem við ber- um til Færeyinga. Þetta er þess vegna sérstakt mál og ber að líta á það sem slíkt,“ er það eina sem Halldór Blön- dal, forseti Alþingis, er tilbúinn að láta hafa eftir sér um málið. -GAR Olafur G. Ein- arsson: „Þeir voru búnir að koma að máli við mig, þessir íþróttagarpar." Hið besta mál „Þeir vora búnir að koma að máli við mig þessir íþróttagarpar og ég kynnti málið í forsætisnefndinni á sín- um tíma. Það var einfaldlega tekið já- kvætt í það og rætt um að borga bein fargjöld og jafhvel leiguflug. Ég tók heilshugar undir erindið og þá fyrst og fremst með það sjónarmið að baki að þetta væri einn liðurinn í að styrkja tengslin milli þinganna. Við töldum þetta hið besta mál og mér flnnst nú satt að segja frekar lágt lagst að vera að gera veður út af þessu,“ segir Ólaf- ur og bendir á að miðað við önnur þjóðþing hafi Alþingi nánast ekkert haft sig I frammi í slíkum ferðalögum. „Ég held að það hafl farið skákhópur til Hollands fyrir mörgum árum og Fulltrúar utanrikisráðuneytisins hlustuðu í gær á upptöku á viðtali sem Óttar Sveinsson, höfundur Útkalls á jólanótt, tók við yfirforingjann John Hodgkins í breska varnarmálaráðuneytinu varðandi staðsetningu bresks kafbáts á þeim stað þar sem flutningaskipið Suðurlandið sökk í Atlantshafi árið 1986. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og skrif- stofustjóri aiþjóðadeildar utanríkisráðuneytisins, hitti breska sendiherrann i Reykjavík á föstudag þar sem hann krafðist skýringa á þessum fréttum. Ekki er talið útilokaö að svar berist frá breskum yfirvöldum í vikunni. Á mynd- inni hlusta þeir Árni Magnússon, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, og Hjálmar sendiherra á viðtal Óttars við varn- armálaráðuneytið. DV-mynd ÞÖK Formaöur Neytendasamtakanna um kaupin á Ágæti hf.: Staðfestir fákeppni á grænmetismarkaði „Þessi kaup era staðfesting á því aö fákeppni ríkir á grænmetismarkaðn- um. Fákeppnin er mikil i dreifmgu og er alltaf að aukast í framleiðslunni. Neytendum er hins vegar haldið í hlekkjum ofúrtolla stjómvalda. Það er óþolandi að á ákveðnum markaði hafi þróast mikil fákeppni og að ofurtolla- stefna stjómvalda skuli ýta undir þá þróun,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, 1 kjöl- far kaupa Þórhalls Bjamasonar gúrku- bónda á 95% hlut i Ágæti hf. Þórhallur hefúr setið I stjóm Sölufé- lags garðyrkjumanna sem ásamt Banönum hf. er með um 50% markaðs- hlutdeild í dreifmgu á afurðum fram- leiðenda og innfluttum vörum. Hann segist hafa tilkynnt úr- sögn úr stjóminni og muni ekki sitja fleiri stjómarfúndi I SFG. Þórhallur sagði DV í gær að þrátt fyrir þessi kaup sín yrði áfram bullandi sam- keppni á grænmetismarkaði. Jóhannes Gunnarsson er á öðra máli. „Menn tala auðvitað saman og ég reikna ekki með að Þór- hallur hafi farið í neinni fylu út úr stjóm Sölufélagsins. Það er eng- in samkeppni á þessum markaði og ég minni á að Ágæti og SFG eiga í mikilli samvinnu, era með nánast alla dreif- ingu á grænmeti. Enda sáu samkeppnisyfirvöld ástæðu til mjög róttækra aðgerða gegn þessum íyrirtækjum,“ segir Jóhannes. Hann vísar þar í aðgerðir Samkeppnsistofhunar í sept- emberlok þar sem hald var lagt á gögn þriggja grænmet- isfyrirtækja, Ágætis, Sölufé- Jóhannes lags garðyrkjumanna og Ban- Gunnarsson. ana, dótturfélags þess, vegna gruns um ólögmætt samráð. Gerð var húsleit og úrskurður Héraðs- dóms Reykjavíkur fenginn til þess á grundvelli 40. greinar samkeppnislaga. Niðurstöður athugunar Samkeppnis- stofhunar munu væntanlega liggja fyr- ir eftir áramót. Segist Jóhannes bíða þeirra spenntur. Jóhannes ítrekar að hann hafi ekk- ert á móti Þórhalli sem slíkum en gremst mjög lokaður grænmetismark- aður sem þrífst í skjóli ofurtolla. „Ef rétt er á spilum haldið varðandi innflutning grænmetis á fjarlægðar- vemd ein og sér að duga, þ.e. kostnað- urinn við að flytja grænmetið hingað til lands. Þá yrðu t.d. gulrætur ekki verðsettar með þeim hætti að notkun- in er helmingi minni en ef þær fengjust á sama verði og neytendur í nágrannalöndum okkar búa við.“ -hlh Stuttar fréttir dv Stórhækkun auglýsinga Samtök verslunar og þjónustu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er hækkunum á verði aug- lýsinga fram til áramóta um aflt að 25% hjá íslenska útvarpsfélaginu og Ríkisútvarpinu, 15% hjá Morgun- blaðinu og 9% hjá Fróða. Vísir.is sagði frá. Hækkun veiðikorta í umhverfis- ráðuneytinu er verið að undir- búa frumvarp til breytinga á lög- um um skotveiði og samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er hækkun á verði veiðikorta, umfram visitöluhækkun, meðal þeirra breyt- inga sem lagðar verða til. Tillaga um hækkun á verði kortanna tengist auknum framlögum til rannsókna á rjúpum en ekki er ákveðið hversu mikil hækkunin verði. Mbl. sagði frá. Kaupir Landgræöslulóö Stjóm Landgræðslusjóös hefur samþykkt tflboð verktaka í eignir sjóðsins í Fossvogi í Reykjavík. Landgræðslusjóður setti 60 mUljónir kr. á fasteignir og lóð en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fæst mun hærra verð fyrir eignimar. Landgræðslusjóður hefur verið með starfsemi í fasteignum við Suðurhlíð 38 i Fossvogi, rétt neðan við kirkju- garðinn, og þar hefúr sjóðurinn ver- ið með jólatré tU sölu á hveiju ári. Mbl. sagði fiá. Biskup taki ákvörðun Úrskurðar- nefnd þjóðkirkj- unnar, undir forsæti Daggar Pálsdóttur, vís- aði kæra sókn- amefiida Holts-, Flateyrar- og Kirkjubólssókna í Önundarfirði á hendur sóknar- prestinum, sr. Gunnari Bjömssyni, aftur tU biskups íslands, herra Karls Sigurbjömssonar, án þess í raun að hafa úrskurðað í málinu þar sem talið er að sönnunarbyrði skorti. Þó er í skýrslunni tekið undir flest sjón- armið sóknarbamanna. Dagur sagði frá. Ekki erindi á Hraunið „Sonur minn er að mínu mati hvorki þunglyndur né geðveikur, en á í erfiðum andlegum vandamálum, sem mér fmnst að hefði verið hægt að taka á áður en allt fór á versta veg. Það er á hreinu í mínum huga að bamið á ekkert erindi inn á Litla- Hraun,“ segir móðir hins 16 ára svo- kaUaða hnífstungupUts. Dagur sagði frá. Kjúklingasala eykst Sala á kjúklingum virðist vera að aukast eftir mikinn samdrátt í sum- ar. Salan í september varð 255 tonn en hún var 228 tonn í ágúst. Þegar salan var mest í sumar, þ.e. í júlí, seldust 287 tonn af kjúklingum. Sal- an í september er 15% mhrni en hún var í september í fyrra. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Fi'am- leiðsluráði landbúnaðarins. Mbl. sagði frá Steinar Waage selur Fyrirtækið Háess ehf., sem rekur herrafata- verslanir á Laugavegi og í Kringlunni, hef- ur keypt skó- verslanir Stein- ars Waage hf. í Kringlunni og Domus Medica, versl- unina Toppskóinn í Veltusundi og tískuverslunina Cöra í Kringlunni. Með kaupunum er stefht að hagræð- ingu f rekstri. Dagur sagði frá. Illa við hækkun Elísabet Gísladóttir, formaöur Reykjavíkurdeildar Landssamtaka foreldrafélaga leikskóla, tekur ekki vel í þá tillögu, sem viðrað hefúr verið í borgarráði og borgarstjóm Reykjavíkurborgar, að auka hlut- deild foreldra í rekstrarkostnaði leikskólanna á næsta ári. Mbl. sagði frá. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.