Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Spurningin Á að þyngja refsingu fyrir að hafa barnaklám undir höndum? Snorri Þór Ómarsson stálsmiður: Engin spurning. Ragnar Hauksson stálsmiður: Já, auðvitað, ekki spuming. Hafsteinn Ómar Gestsson nemi: Já, þaö er ekki spuming. Kristján Benediktsson dyravörð- ur: Já, það ætti að vera mjög þung- ur dómur. Guðmundur Pálsson verkamað- ur: Já, það ætti að þyngja hana. Lesendur Flugvallarblús eins manns þægindi martröð íjöldans Kristján Þórisson skrifar: Flugvöllur í hjarta borg- arinnar, flugvélar strjúk- andi húsþökum með tilheyr- andi þotugný. Túristar á Tjamargöngu beygja sig ósjálfrátt niður á meðan Fokker Frendsjipp gefur þeim frían hárblástur með eyrnaskerandi dóms- dagsöskri. Það er gott að vera flugfarþegi, fá útsýnis- flug yfir fallega borg, og ávallt í göngufæri við mið- bæinn þegar labbað er út úr vélinni. En eins manns þæg- indi eru martröð fjöldans sem þarf endilega að þvæl- ast á jörðu niðri af öllum stöðum! Skrifstofur og verslanir miðbæjar Reykjavíkur eru orðnar svo gegnsýrðar af flugvélaiunferð að tilheyr- andi flugvéladrunur eru orðnar ómissandi hluti af stressinu sem einkennir miðbæinn (án hávaðans engin miðbæjarstemning?). En nú er víst að verða breyt- ing á. Það á nefnilega að fara að meina þotum að lenda hér í bæ og öðrum vélum er gert að lækka í „voljúm" tökkum hreyflanna rétt á meðan þær dýfa sér á milli húsanna í Þingholtunum. Svo eiga veslings flugnemamir að hunskast á ein- hverja æfingabraut lengst uppi í Bláfjöllum! Hvaða reynslu fá þeir af húsþakasvigi þar? Og hvers vegna allar þessar breytingar akkúrat núna? Eftir að það uppgötvaðist að flug- völlurinn í Vatnsmýrinni væri orð- inn eins og svissneskur ostur sem þarfnaðist endumýjunar upp á nokkra milljarða varð fjandinn laus. Ekki það að þessir fáeinu aur- ar væru eitthvert vandamál, þeim var auðvitað snarað út án vand- kvæða. Aftur á móti var eins og um- ræðan hefði vakið upp óæskilega drauga sem alls ekki máttu vakna. Draugar þessir eru helst þessir þrír: slysadraugurinn, hávaðadraugur- inn og landnýtingardraugurinn. Og nú þegar þeir hafa vaknað til lífsins er engin leið að kveða þá niður í glatkistuna þar sem þeir eiga heima. Eins og allir vita eru flugsam- göngur með öruggasta fararmáta sem þekkist. Það er í hverfandi fá skipti sem slys verða í þessum geira, bara verst að þegar það gerist þá verða slysin allsubbuleg. Hver kannast ekki við lýsinguna: Flug- vélaskrokkur í nokkrum pörtum; hálfbrunnin lík á víð og dreif, nán- ast óþekkjanleg; húsarústir og sund- urtætt tré; björgunarlið að störfum við erflðar aðstæöur. Sem betur fer er slíkt afar sjaldgæft og gerist bara í útlöndum, í þriðja heiminum, þangað sem engum manni dettur í hug að leggja leið sína. Slíkt gerist náttúrlega ekki í Reykjavík - eða hvað? Sölumöguleikar RÚV veiktir? Eyþór skrifar: Umræður á Alþingi hafa undan- farið staðið yfir um Ríkisútvarpið og flnnst mér þær allar vera á þeim nót- um að skömm sé fyrir alþingismenn þá sem í umræðunum hafa talað. Nú er t.d. menntamálaráðherra sagður hafa veikt möguleikana til að selja RÚV með því að veikja tiltrú fólks á stofnuninni. Hvílikt endemis rugl er þetta? Dettur einhyerjum í hug að hægt sé að selja RÚV eða einstakar deildir þess fyrir eitthvað sem nem- ur, t.d. Sjónvarpið, Rás 2 eða þá gömlu Gufuna? Enginn myndi kaupa þessa miðla að mínu mati. Það er hins vegar auðvelt að leggja niður einhvem eða alla þessa þætti starfsemi RÚV og það er það sem ríkisstjómin á að leggja til. Byrja á Sjónvarpinu eða Rás 2, þess- ar deildir em dýrastar. Halda svo gömlu Gufunni eftir og afnema af- notgagjaldið en láta þá deild standa undir sér með auglýsingum sem myndu verða eftir sem áður góð tekjulind. Jesúbörn í vanþróuðum löndum Ég skora á aila íslendinga sem álíta sig kristna að taka að sér eitt lítið barn í vanþróuðu löndunum tii að gefa Jesúbarninu þessi jól, segir bréfritari. S.R. Haralds skrifar: I október byrjuðu jólaauglýsing- arnar. Þetta fmnst mér alveg hrika- legt vegna þess að aðventan byrjar ekki fyrr en 28. nóvember. Nú á að selja og selja vel. Dæmigerð auglýs- ing: Nýtt eldhús fyrir jól! Ég spyr, hvað kemur þetta jólunum við? Og eru jólin eingöngu orðin hátíð kaup- manna, og hvað verður keypt? Eru einhverjar jólagjafir þama á meðal handa afmælisbarninu sjálfu, Jesú Kristi, frelsara okkar? Hugsum við í þessu „kristna" vel- ferðarríki til þeirra sem um sárt eiga að binda, bæði hér og erlendis? í þessu góðæri hér á íslandi lifa margir við hungurmörkin dagsdag- lega, það veit ég af eigin reynslu. Svo segja sjónvarpsfréttir, að upp- selt sé á hóteli einu á gamlárskvöld og á verði sem er 64.000 fyrir hjón- in! Þegar menn háma í sig hér heima og áhyggjulausir eina meðastóra pitsu ættu þeir að hugsa til þeirrá bama í vanþróuðu löndunum þar sem þau verða að lifa á þessu i heil- an mánuð. - Látið nú, íslendingar, andvirði einnar pitsu af hendi rakna handa þess- um bömum. Hér á landi starfa bæði SOS-barna- þorpin og Börne- fonden (Christian Children’s Fund) og koma þau pen- ingmn og gjöfum á leiðarenda, Þeir sem vilja geta, með bréfaskrift- um, fengið mynd- ir af bömum og skólaskýrslur ár- lega. Ég hef sjálf verið með yndis- leg börn siðan árið 1978 í Afriku, Mexíkó, Indlandi, Tailandi og meðal indíána í Banda- ríkjunum. Ég skora á alla íslendinga sem álíta sig kristna að taka að sér eitt lítið bam í vanþró- uðu löndunum fyrir aðeins 1.400 kr. á mánuði til að gefa Jesúbarninu þessi jól. Hinir sem minna hafa ættu að hjálpa einstæðum mæðrum og öryrkjum hér í eigin landi. Það er ekki verjandi að svo margir búi við sára fátækt í bullandi góðæri sem hér á íslandi. Myndbirtingar afbrotamanna Sigurður Einarsson skrifar: Mér tlnnst ótækt að ekki skuli ein og sama reglan vera hjá ís- lenskum fjölmiðlum þegar kemur að birtingu mynda af afbrotamönn- um. Stundum birtast myndir í fjöl- miðlum af afbrotamönnum sem eru á leið í yfirheyrslu áður en þeir eru dæmdir. Stundum birtast myndir af dæmdum mönnum og stundum ekki. Ég skírskota til ít- rekaðra myndbirtinga af dæmdum eiganda Gállerí Borgar fyrir að hafa selt fólsuð málaverk. Ég hef ekkert við þann dóm að athuga, tO né trá. Mér finnst hins vegar vega þyngra að birta myndir af óbóta- mönnum hvers konar sem gengið hafa í skrokk á fólki, lamið það og limlest, jafnvel drepið. Slíkir menn eiga það skOið að af þeim birtist mynd ásamt nafni. Bara sem hluti af refsingunni. Og þá án tOlits tO einhverra ættingja eða afkomenda. Þessi GaOerí Borgar maður á víst ættingja líka? Hafísinn i veð- urfréttirnar GuUi hringdi: Ég er ekki sáttur við að fá ekki nákvæmar fréttir um stöðu hafiss- ins í norðri og norðvestri i sjálfum veðurfréttunum, t.d. í sjónvarpsveð- urfréttum. Ég er þess fuOviss að margir eru mér sammála um þetta. Hafisinn nálgast nú óvenju snemma í ár, er um 60 mOur norðveshir af Baröa, milli nessins á mOli Önund- arfjarðar og Dýrafjarðar. AOir vita að hafísinn hefur einna mest áhrif á hvernig veður viö hreppum hér á landinu. Það er því ekki nema sjálf- sagt að birta tákn eða fjarlægða- skýringar um stöðu íssins á hverj- um tíma frá því í nóvember og fram eftir vetri. Ég skora á Veðurstofuna að kanna málið. Hasar út af fín- um kvöldverði K.L.H. skrifar: Það er stundum skondið að lesa um hvemig íslendingar geta lamið hver á öðrum af ýmsu tOefni. Nú eru Samtök verslunarinnar komin í feitt vegna þess að utanrikisráðu- neytið hefrn- boðið viðskiptavinum rnarrns eins sem hefur viðskipti í Nígeríu í „fínan dinner“ eins og það er orðað í athugasemdunum. Það stendur nefnOega yfir kaup- stefna í Nigeríu, þessu góssenlandi peningaþvættis og mútna, á vegum Fiskmiðlunar Norðurlands. Mér fmnst að Samtök verslunarinnar ættu að vera þakklát að koma hvergi nærri þessari kaupstefnu og leyfa utnarikisráðuneytinu að ráða hvernig það „kemur að“ þess- um skrípaleik í Nígeríu. Viðskipta- sambönd í þessu ömurlega ríki Afriku. Ráðuneytið hefur aðeins skömm af öOu saman. Pétur og Össur oftar Guðrún P. hringdi: Óskaplega var gaman að horfa á þá Pétur Blöndal og Össur Skarp- héðinsson i morgunsjónvarpinu á fostudaginn var. Þeir voru kurteis- ir hvor við annan, en þó rökfastir og gáfu hvorugur eftir. Flugmælsk- ir og fáir stjómmálamenn sem tala jath faOegt mál og össur. Svo var sagan sem hann sagði af Guðna Ágústssyni alveg frábær. Við vor- um að tala um það, hérna í blokk- inni okkar, að Stöð 2 verði að hafa þá að minnsta kosti einu sinni i viku. En talað var um að þeir ættu bara að vera aðra hverja viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.