Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Visir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.ís. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Þráhyggja um þétta byggð Stjómendur skipulags höfuðborgarsvæðisins ganga enn með þá meinloku, að þétta þurfi byggð. Samt eru þéttingarslys fyrir allra augum. Nýleg hús hefta þróun Reykjanesbrautar. Mislæg gatnamót við Höfðabakka- og Skeiðarvogsbrýr varð að hanna í keng af sömu ástæðu. Byggð höfuðborgarsvæðisins er of þétt, en ekki of strjál. Hún liggur til dæmis of þétt að brautunum, sem vom orðnar yfirlýstar meginæðar höfuðborgarsvæðisins löngu áður en byggt var ofan í þeim. Skipuleggjendur skortir svigrúm til að leiðrétta fýrri mistök sín. Af svipuðum toga er krafa Sjálfstæðisflokksins um, að Geldinganes verði ekki tekið frá til hafnargerðar, þar sem ekki verði þörf á viðbótum við höfnina næstu tvo til þrjá áratugina. Samt er vitað, að saman em Eiðsvík og Geldinganesið eina náttúrulega höfhin á svæðinu. Auðvitað ber borginni að gera ráð fyrir Eiðsvík sem eðlilegu framhaldi hafnarinnar í Kleppsvík og taka Geld- inganes frá fýrir hafnarstarfsemi. Ef það verður ekki gert, þarf að gera það annars staðar með miklu meiri til- kostnaði og alls ekki minni strandlengjuspjöllum. Raunar er sérkennilegt, að það skuli vera framlag stjórnarandstöðunnar í Reykjavík til skipulagsmála borgarinnar að frekar skuli byggja höfn við Álfsnes, þar sem eru fágætar leirur, sem ber að varðveita, en alls ekki moka upp með ærnum og óþörfum tilkostnaði. Með Kleppsvík og Eiðsvík er vel séð fýrir hafnarþörf Reykjavíkm- alla næstu öld. Stutt er í stórskipahafnir í Straumsvík og á Grundartanga. Höfuðborgarsvæðið verður hvort sem er búið að tengja anga sína norður og suður fýrir þær hafnir á fýrstu áratugum aldarinnar. Svo langt gengur þráhyggjan um þéttingu byggðar, að myndað hefur verið sérstakt hugsjónafélag um að byggja turnhýsi í Vatnsmýri og úti í sjó fyrir Örfirisey. Þessar hugmyndir eru ávísun á umferðaröngþveiti á Miklu- braut og aukna þörf fyrir nýjar brautir úti í sjó. Ágætt er að hafa þétta byggðarpunkta á nokkrum stöð- um, einkum í fyrirhuguðum byggðakjömum höfuðborg- arsvæðisins. Sambyggð verzlunar- og þjónustusvæði undir íbúðaturnum gera mörgum kleift að fara flestra sinna ferða í góðu skjóli fyrir veðri og vindum. Höfuðborgarsvæðið þarf að geta boðið íbúum sínum þennan búsetukost, sem hentar mörgum, um leið og það býður líka upp á strjálli byggð, sem hentar öðrum. Og það er ódýrara að þétta strjála byggð en að rífa þétta byggð, ef þarfir svæðisins breytast á löngum tíma. Höfuðborgarsvæðið hefur gott svigrúm til vaxtar og þarf ekki að þétta byggðina umfram eðlilegar þarfir fyr- ir þétta byggð. Reykjavík hefur aðgang að miklu bygging- arlandi á Álfsnesi og Kjalarnesi og HafnarQörður ekki síðri aðgang að landi allt suður fyrir Straumsvík. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu, að byggðin á suð- vesturhominu verði um síðir eins og perlur á festi, allt frá Reykjanesbæ í Borgames, svo framarlega sem fjar- lægðin frá Kvosinni í Reykjavík til endimarkanna verði ekki meiri en klukkutími á góðri hraðbraut. Náttúrulegar aðstæður kalla á perlufestarbyggð á þessu svæði. Ekki er hægt að byggja inn í land vegna vatnsbúskapar og veðurfars. Þess vegna ber að fara var- lega í ráðagerðir um að byggja inn á Hólmsheiði. Betra er að nýta fegurð og andrými strandlengjunnar. Þráhyggja um þéttingu byggðar hefur þegar takmark- að skipulagskosti og valdið miklum framkvæmdakostn- aði. Þessari þráhyggju má gjarna fara að linna. Jónas Kristjánsson Á tímum tölvu- og upplýsingabyltingar væri auðvelt fyrir verslanir að verðmyndun vöru kæmi fram í verðmerk- ingu hennar, segir ísólfur Gylfi m.a. í greininni. Fákeppni og frelsi hygli á þessari stöðu, en þora ekki að koma fram opinberlega af ótta við að framleiðslu- vara þeirra verði úti- lokuð úr viðkomandi verslunarkeðjum. Sam- tök iðnaðarins hafa vakið athygli á þessu máli, ásamt fleiri sam- tökum framleiðenda. í Danmörku og á íslandi Það hafa orðið örar breytingar í verslunar- málum og eignatil- færslu á síðustu miss- erum. Það eru ákveðin tregðulögmál í gangi á íslandi um aö fyrirtæki verði of stór - en þegar þau hafa náð því er :—---------------- „Ég hvet jafn framsækiö og vel rekiö fyrirtæki sem Baug að ríöa á vaöiö í þessum efnum - þvi stundum er sagt aö eftir höföinu dansi limirnir. Ljóst er aö aörir samkeppnisaöilar myndu fylgja í kjölfariö.u Kjallarínn ísólfur Gylfi Pálmason alþingismaður Fram- sóknarflokks í Suður- landskjördæmi ísland er frjáls þjóð í frjálsu landi. Við höfðum mikið fyrir því að öðlast frelsi á nýjan leik, með sjálfstæði þjóð- arinnar og sjálf- stæði í verslun og viðskiptum. Hin frjálsa verslun þjóð- arinnar var undan- fari annarrar sjálf- stæðisbaráttu. í hringiðu verslunar og viðskipta er svo komið að dagvöru- verslun í Reykjavík er komin á mjög fáar hendur. Stærsti vasinn Þaö er í raun sama hvar neytend- ur versla, arður verslunarinnar rennur nánast allur í sama vasann. Stærsti vasinn heit- ir Baugur og birtist neytendum með mörgum andlitum, með m.a. nöfnum og framsetningu vöru. Ég dáist um margt að dugnaði manna og útsjónarsemi við uppbyggingu þess fyrirtækis, en fákeppni er af hinu illa og getur verið hættuleg. Þegar fyrirtæki ná þessari stærð og markaðshlutdeild er alltaf hætta á að menn misbeiti markaðsráðandi stöðu. Framleiðendur hafa vakið at- afar lítið eftirlit með þeim. Þessu er öðruvisi farið t.d. í Danmörku. Þar eru samkeppnislög á þann veg að engar verulegar takmarkanir eru á því hversu stór fyrirtæki verða. Hins vegar eru lögin með þeim hætti að vel er fylgst með misbeitingu markaðsráðandi stöðu. En hvað er til ráða á íslandi? Það er þess virði að velta fyrir sér verðmyndun vöru. Hver er hlutur framleiðandcms? Hver er hlutur ríkisins? Hver er hlutur afurða- stöðva, heildsala eða milliliða og hver er í lokin hlutur verslunar- innar? Virkt aðhald Á tímum tölvu- og upplýsinga- byltingar væri auðvelt fyrir versl- anir að láta verðmyndun vöru koma fram í verðmerkingu henn- ar. Með þeim hætti er hægt að sjá hverjir eru svokallaðir „sannir vinir“ neytenda. Með verðmerk- ingu af þessu tagi má koma í veg fyrir tortryggni milli neytenda, framleiðenda, afurðastöðva, heOd- sala eða annarra milliliða og versl- unarinnar. Með þessum hætti skapast virkt aðhald allra þess- ara aðila og okkur verður í raun kunnugt um hvemig verðmynd- un vörunnar verður til. Ég hvet jafn framsækið og vel rekið fyrirtæki sem Baug að ríða á vaðið i þessum efnum - því stundum er sagt að eftir höfðinu dansi limirnir. Ljóst er að aðrir samkeppnisaðilar myndu fylgja í kjölfarið. Fyrirtæki Baugs: Hag- kaup, Nýkaup, 10-11, Bónus og Hraðkaup hafa beitt sér fyrir fjöl- mörgum nýjungum í verslunar- málum og með verðmerkingu sem þessari skynjar neytandinn hið mikilvæga verslunarfrelsi á Is- landi. ísólfur Gylfi Pálmason Skoðanir annarra Viðhorfið til vínsölu „Ein af röksemdum þeirra sem andsnúnir eru af- námi ríkiseinokunar á áfengissölu er sú að fjölgun útsölustaða og auðveldara aögengi leiði til aukinnar heildameyslu á áfengi ... í þessu sambandi er lær- dómsríkt að líta til þess sem gerst hefur eftir að sala á áfengum bjór var leyfð árið 1989. Síðan þá hefur sala á sterku áfengi dregist saman en neysla á létt- víni og bjór aukist. Þessi tilhneiging myndi senni- lega enn styrkjast ef léttar veigar yrðu til sölu í sér- stökum vínbúðum í matvöruverslunum." Finnur Árnason í Mbl. 6. nóv. Hver á Kerið, hver á landið? Eignarhald á landi og nýting gæða þess heldur áfram að vera álitamál, að minnsta kosti á meðan eitthvað er á henni að græða. Hvort Kerið í Grims- nesi er í eign einhverrar familíu fyrir austan fjall eða olíugreifa í Stavangri kemur fæstum við. Jarðir og lendur eru til sölu ef nóg er borgað ... Hver á land- ið? hrópaöi Jón Baldvin út í tómið hér um árið og var engu nær eftir hringferð sína um spurningar- merkið. Enn er enginn neinu nær um þennan eigna- rétt, en hitt er víst þegar þetta er skrifað að Norð- menn eiga kost á því að eignast Kerið ef þeir tíma að borga sómasamlega fyrir það.“ Oddur Ólafsson í Degi 6. nóv. Netið er varhugavert „Börn og unglingar eru ákaflega berskjölduð gegn því fjölmiölafári sem er í nútíma þjóðfélagi meö öll- um þeim vafasama boðskap sem þar er fluttur. Þess vegna skorum við á forráðamenn að læsa öllu sem hægt er að læsa og takmarka aðgang að Netinu. Við viljum benda á aö hægt er að kaupa forrit í tölvur sem lokar fyrir aðgang að klámsíðum. Við viljum einnig benda foreldrum á að kenna bömum sínum gagnrýna hugsun og gleypa ekki við öllum miður heppilegum tískusveiflum. Okkur kennurum 5. bekkinga þykir nóg komið af framandi og skaðlegum áhrifum, sem læðst hafa inn í menningu bama okk- ar.“ Fjórir kennarar í 5. bekk Foldaskóla í Mbl. 7. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.