Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
9
Utlönd
Þessi maöur krafðist þess að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði indónesíska héraðsins Aceh í mikl-
um mótmælaaðgerðum í gær. Á aðra milljón manna fór út á götur héraðshöfuðborgarinnar til að krefjast sjálfstæð-
is frá Indónesíu. Allt var með kyrrum kjörum í borginni f morgun.
íbúar Aceh efndu til mikilla mótmælaaðgerða:
Vilja verða eigin herrar
Gífurlegur þrýstingur er nú á
nýrri stjóm Indónesíu um að róa
sjálfstæðissinna í Aceh-héraði eftir
mestu mótmælaaðgerðir sem þar
hafa sést gegn stjórnvöldum í
Jakarta. Héraðið er eitt hið auðug-
asta í allri Indónesíu. Allt var með
kyrrum kjörum í Aceh í morgun en í
gær flykktist hálf önnur milljón
manna út á götur héraðshöfuðborgar-
innar Banda til að krefjast réttarinst
til að greiða atkvæði um hvort slíta
eigi tengslin við stjómina í Jakarta.
Götur Banda voru yfirfullar af
bílum í morgun, verslanir voru opn-
ar og lífið virtist ganga sinn vana-
gang.
íbúarnir vöruðu stjómvöld þó við
því að tíminn til að gera eitthvað
væri að renna þeim úr greipum.
„Þetta er ekki vonlaust en það er
orðið mjög seint og sérhvert augna-
blik er mjög dýrmætt.
Ekki vanrækja það lengur,“ sagði
Yusni Saby, guðfræðikennari og fé-
lagi í samtökum islamstrúarkenn-
ara héraðsins, við fréttamann
Reuters.
Indónesíska hernum hefúr verið
kennt um vaxandi ólgu í Aceh þar
sem. íbúamir eru íslamstrúar.
Mannréttindafrömuðir saka herinn
um að stunda nauðganir, pyntingar
og aftökur til að bæla niður alla
andstöðu.
Wahid Indónesíuforseti hefur
boðið íbúum Aceh að skoða hvort
efna beri til þjóðaratkvæðagreiðslu
um sjálfstæði héraðsins.
Svindlið hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins:
Vantar kvittanir fýrir
um 400 milljörðum
Endurskoðendm hafa á ný uppgötv-
að víðtækt svindl og svik hjá fyrrver-
andi framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins. Ejjárlög Evrópusambandsins
eru alls um 8 þúsund milljarðar ís-
lenskra króna. Ekki hefm verið gerð
grein fyrir útgjöldum upp á um 400
milljarða króna. Þetta kemur fram í
skýrslu sem lögð verðm fram i dag,
að því er kemm fram í netútgáfu
sænska blaðsins Aftonbladet.
„Innra eftirlitið í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins er svo
slappt að það bauð næstum því upp
á svindl,“ segir endurskoðandi í við-
tali við breska blaðið Sunday Times.
í skýrslu endmskoðendanna kem-
m meðal annms fram að helmingm
þeirra 540 milljarða króna sem áttu
að fara til svokallaðra inmi útgjalda,
það er til dæmis rannsókna, sam-
göngumála og æskulýðsmála, er
horfínn. Það finnast hvorki gögn um
ákvarðanir um útgjöld né kvittanir.
Verst er ástandið í fjárlögunum til
rannsókna sem Edith Cresson, fyrr-
verandi forsætisráðherra Frakk-
lands, bar ábyrgð á.
Um 130 milljarðar króna, sem
veita átti til hjálparstarfs erlendis,
eru horfnir. Embættismenn Evrópu-
sambandsins hafa til dæmis ólöglega
greitt 30 milljarða króna til þróunar-
landa gegn þvi að fá samninga um
fiskveiðar.
Rangar greiðslm innan landbún-
aðarins kostuðu yfir 70 milljarða.
Auk þess voru greiddir 40 milljarðar
fyrir ávexti sem keyrðir voru beint á
haugana.
Bradley ræðst á
Al Gore fyrir
heilbrigðismálin
Bill Bradley, sem keppir að út-
nefningu Demókrataflokksins fyr-
ir forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum að ári, réðst í gær af
meiri hörku en áður á A1 Gore
varaforseta, helsta keppinaut sinn.
Sakaði hann varaforsetann um að
hafa varpað fyrir róða þeirri
grundvallarstefnu að allir Banda-
ríkjamenn ættu rétt á heilsugæslu.
Bradley sagði að allir demókrat-
ar ættu að geta verið sammála um
þennan grundvallarrétt. A1 Gore
hefði hins vegar gefist upp á mál-
inu þegar þingið felldi tiOögur
Clintons forseta um úrbætur í
heilbrigðiskerfmu 1994.
„Hvað heilsugæsluna áhrærir
tók A1 Gore þá ákvörðun að ekki
væri þess virði að berjast fyrir
henni. Hann varpaði fyrir róða
þeirri grundvallarstefnu demó-
krata aö veita öllum Bandaríkja-
mönnum lágmarksheilsugæslu,"
sagði Bradley á ráðstefnu heil-
brigðisstétta.
Ný framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, undir stjórn Romanos Prodis,
viðurkennir að enn eigi eftir að gera mikið til að stjórn peningamála verði
viðunandi. Símamynd Reuter
(^QO/q ajm
witsa/g