Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 9 Utlönd Þessi maöur krafðist þess að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði indónesíska héraðsins Aceh í mikl- um mótmælaaðgerðum í gær. Á aðra milljón manna fór út á götur héraðshöfuðborgarinnar til að krefjast sjálfstæð- is frá Indónesíu. Allt var með kyrrum kjörum í borginni f morgun. íbúar Aceh efndu til mikilla mótmælaaðgerða: Vilja verða eigin herrar Gífurlegur þrýstingur er nú á nýrri stjóm Indónesíu um að róa sjálfstæðissinna í Aceh-héraði eftir mestu mótmælaaðgerðir sem þar hafa sést gegn stjórnvöldum í Jakarta. Héraðið er eitt hið auðug- asta í allri Indónesíu. Allt var með kyrrum kjörum í Aceh í morgun en í gær flykktist hálf önnur milljón manna út á götur héraðshöfuðborgar- innar Banda til að krefjast réttarinst til að greiða atkvæði um hvort slíta eigi tengslin við stjómina í Jakarta. Götur Banda voru yfirfullar af bílum í morgun, verslanir voru opn- ar og lífið virtist ganga sinn vana- gang. íbúarnir vöruðu stjómvöld þó við því að tíminn til að gera eitthvað væri að renna þeim úr greipum. „Þetta er ekki vonlaust en það er orðið mjög seint og sérhvert augna- blik er mjög dýrmætt. Ekki vanrækja það lengur,“ sagði Yusni Saby, guðfræðikennari og fé- lagi í samtökum islamstrúarkenn- ara héraðsins, við fréttamann Reuters. Indónesíska hernum hefúr verið kennt um vaxandi ólgu í Aceh þar sem. íbúamir eru íslamstrúar. Mannréttindafrömuðir saka herinn um að stunda nauðganir, pyntingar og aftökur til að bæla niður alla andstöðu. Wahid Indónesíuforseti hefur boðið íbúum Aceh að skoða hvort efna beri til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði héraðsins. Svindlið hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins: Vantar kvittanir fýrir um 400 milljörðum Endurskoðendm hafa á ný uppgötv- að víðtækt svindl og svik hjá fyrrver- andi framkvæmdastjóm Evrópusam- bandsins. Ejjárlög Evrópusambandsins eru alls um 8 þúsund milljarðar ís- lenskra króna. Ekki hefm verið gerð grein fyrir útgjöldum upp á um 400 milljarða króna. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögð verðm fram i dag, að því er kemm fram í netútgáfu sænska blaðsins Aftonbladet. „Innra eftirlitið í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins er svo slappt að það bauð næstum því upp á svindl,“ segir endurskoðandi í við- tali við breska blaðið Sunday Times. í skýrslu endmskoðendanna kem- m meðal annms fram að helmingm þeirra 540 milljarða króna sem áttu að fara til svokallaðra inmi útgjalda, það er til dæmis rannsókna, sam- göngumála og æskulýðsmála, er horfínn. Það finnast hvorki gögn um ákvarðanir um útgjöld né kvittanir. Verst er ástandið í fjárlögunum til rannsókna sem Edith Cresson, fyrr- verandi forsætisráðherra Frakk- lands, bar ábyrgð á. Um 130 milljarðar króna, sem veita átti til hjálparstarfs erlendis, eru horfnir. Embættismenn Evrópu- sambandsins hafa til dæmis ólöglega greitt 30 milljarða króna til þróunar- landa gegn þvi að fá samninga um fiskveiðar. Rangar greiðslm innan landbún- aðarins kostuðu yfir 70 milljarða. Auk þess voru greiddir 40 milljarðar fyrir ávexti sem keyrðir voru beint á haugana. Bradley ræðst á Al Gore fyrir heilbrigðismálin Bill Bradley, sem keppir að út- nefningu Demókrataflokksins fyr- ir forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum að ári, réðst í gær af meiri hörku en áður á A1 Gore varaforseta, helsta keppinaut sinn. Sakaði hann varaforsetann um að hafa varpað fyrir róða þeirri grundvallarstefnu að allir Banda- ríkjamenn ættu rétt á heilsugæslu. Bradley sagði að allir demókrat- ar ættu að geta verið sammála um þennan grundvallarrétt. A1 Gore hefði hins vegar gefist upp á mál- inu þegar þingið felldi tiOögur Clintons forseta um úrbætur í heilbrigðiskerfmu 1994. „Hvað heilsugæsluna áhrærir tók A1 Gore þá ákvörðun að ekki væri þess virði að berjast fyrir henni. Hann varpaði fyrir róða þeirri grundvallarstefnu demó- krata aö veita öllum Bandaríkja- mönnum lágmarksheilsugæslu," sagði Bradley á ráðstefnu heil- brigðisstétta. Ný framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, undir stjórn Romanos Prodis, viðurkennir að enn eigi eftir að gera mikið til að stjórn peningamála verði viðunandi. Símamynd Reuter (^QO/q ajm witsa/g

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.