Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Spurningin
Á að þyngja refsingu fyrir
að hafa barnaklám
undir höndum?
Snorri Þór Ómarsson stálsmiður:
Engin spurning.
Ragnar Hauksson stálsmiður: Já,
auðvitað, ekki spuming.
Hafsteinn Ómar Gestsson nemi:
Já, þaö er ekki spuming.
Kristján Benediktsson dyravörð-
ur: Já, það ætti að vera mjög þung-
ur dómur.
Guðmundur Pálsson verkamað-
ur: Já, það ætti að þyngja hana.
Lesendur
Flugvallarblús
eins manns þægindi martröð íjöldans
Kristján Þórisson skrifar:
Flugvöllur í hjarta borg-
arinnar, flugvélar strjúk-
andi húsþökum með tilheyr-
andi þotugný. Túristar á
Tjamargöngu beygja sig
ósjálfrátt niður á meðan
Fokker Frendsjipp gefur
þeim frían hárblástur með
eyrnaskerandi dóms-
dagsöskri. Það er gott að
vera flugfarþegi, fá útsýnis-
flug yfir fallega borg, og
ávallt í göngufæri við mið-
bæinn þegar labbað er út úr
vélinni. En eins manns þæg-
indi eru martröð fjöldans
sem þarf endilega að þvæl-
ast á jörðu niðri af öllum
stöðum!
Skrifstofur og verslanir
miðbæjar Reykjavíkur eru
orðnar svo gegnsýrðar af
flugvélaiunferð að tilheyr-
andi flugvéladrunur eru
orðnar ómissandi hluti af
stressinu sem einkennir
miðbæinn (án hávaðans
engin miðbæjarstemning?).
En nú er víst að verða breyt-
ing á. Það á nefnilega að fara að
meina þotum að lenda hér í bæ og
öðrum vélum er gert að lækka í
„voljúm" tökkum hreyflanna rétt á
meðan þær dýfa sér á milli húsanna
í Þingholtunum. Svo eiga veslings
flugnemamir að hunskast á ein-
hverja æfingabraut lengst uppi í
Bláfjöllum! Hvaða reynslu fá þeir af
húsþakasvigi þar? Og hvers vegna
allar þessar breytingar akkúrat
núna?
Eftir að það uppgötvaðist að flug-
völlurinn í Vatnsmýrinni væri orð-
inn eins og svissneskur ostur sem
þarfnaðist endumýjunar upp á
nokkra milljarða varð fjandinn
laus. Ekki það að þessir fáeinu aur-
ar væru eitthvert vandamál, þeim
var auðvitað snarað út án vand-
kvæða. Aftur á móti var eins og um-
ræðan hefði vakið upp óæskilega
drauga sem alls ekki máttu vakna.
Draugar þessir eru helst þessir þrír:
slysadraugurinn, hávaðadraugur-
inn og landnýtingardraugurinn. Og
nú þegar þeir hafa vaknað til lífsins
er engin leið að kveða þá niður í
glatkistuna þar sem þeir eiga
heima.
Eins og allir vita eru flugsam-
göngur með öruggasta fararmáta
sem þekkist. Það er í hverfandi fá
skipti sem slys verða í þessum
geira, bara verst að þegar það gerist
þá verða slysin allsubbuleg. Hver
kannast ekki við lýsinguna: Flug-
vélaskrokkur í nokkrum pörtum;
hálfbrunnin lík á víð og dreif, nán-
ast óþekkjanleg; húsarústir og sund-
urtætt tré; björgunarlið að störfum
við erflðar aðstæöur. Sem betur fer
er slíkt afar sjaldgæft og gerist bara
í útlöndum, í þriðja heiminum,
þangað sem engum manni dettur í
hug að leggja leið sína. Slíkt gerist
náttúrlega ekki í Reykjavík - eða
hvað?
Sölumöguleikar RÚV veiktir?
Eyþór skrifar:
Umræður á Alþingi hafa undan-
farið staðið yfir um Ríkisútvarpið og
flnnst mér þær allar vera á þeim nót-
um að skömm sé fyrir alþingismenn
þá sem í umræðunum hafa talað. Nú
er t.d. menntamálaráðherra sagður
hafa veikt möguleikana til að selja
RÚV með því að veikja tiltrú fólks á
stofnuninni. Hvílikt endemis rugl er
þetta? Dettur einhyerjum í hug að
hægt sé að selja RÚV eða einstakar
deildir þess fyrir eitthvað sem nem-
ur, t.d. Sjónvarpið, Rás 2 eða þá
gömlu Gufuna? Enginn myndi kaupa
þessa miðla að mínu mati.
Það er hins vegar auðvelt að
leggja niður einhvem eða alla þessa
þætti starfsemi RÚV og það er það
sem ríkisstjómin á að leggja til.
Byrja á Sjónvarpinu eða Rás 2, þess-
ar deildir em dýrastar. Halda svo
gömlu Gufunni eftir og afnema af-
notgagjaldið en láta þá deild standa
undir sér með auglýsingum sem
myndu verða eftir sem áður góð
tekjulind.
Jesúbörn í vanþróuðum löndum
Ég skora á aila íslendinga sem álíta sig kristna að taka
að sér eitt lítið barn í vanþróuðu löndunum tii að gefa
Jesúbarninu þessi jól, segir bréfritari.
S.R. Haralds skrifar:
I október byrjuðu jólaauglýsing-
arnar. Þetta fmnst mér alveg hrika-
legt vegna þess að aðventan byrjar
ekki fyrr en 28. nóvember. Nú á að
selja og selja vel. Dæmigerð auglýs-
ing: Nýtt eldhús fyrir jól! Ég spyr,
hvað kemur þetta jólunum við? Og
eru jólin eingöngu orðin hátíð kaup-
manna, og hvað verður keypt? Eru
einhverjar jólagjafir þama á meðal
handa afmælisbarninu sjálfu, Jesú
Kristi, frelsara okkar?
Hugsum við í þessu „kristna" vel-
ferðarríki til þeirra sem um sárt
eiga að binda, bæði hér og erlendis?
í þessu góðæri hér á íslandi lifa
margir við hungurmörkin dagsdag-
lega, það veit ég af eigin reynslu.
Svo segja sjónvarpsfréttir, að upp-
selt sé á hóteli einu á gamlárskvöld
og á verði sem er 64.000 fyrir hjón-
in!
Þegar menn háma í sig hér heima
og áhyggjulausir eina meðastóra
pitsu ættu þeir að hugsa til þeirrá
bama í vanþróuðu löndunum þar
sem þau verða að lifa á þessu i heil-
an mánuð. - Látið nú, íslendingar,
andvirði einnar pitsu af hendi
rakna handa þess-
um bömum. Hér
á landi starfa
bæði SOS-barna-
þorpin og Börne-
fonden (Christian
Children’s Fund)
og koma þau pen-
ingmn og gjöfum
á leiðarenda, Þeir
sem vilja geta,
með bréfaskrift-
um, fengið mynd-
ir af bömum og
skólaskýrslur ár-
lega. Ég hef sjálf
verið með yndis-
leg börn siðan
árið 1978 í Afriku,
Mexíkó, Indlandi,
Tailandi og meðal
indíána í Banda-
ríkjunum.
Ég skora á alla
íslendinga sem
álíta sig kristna
að taka að sér eitt
lítið bam í vanþró-
uðu löndunum fyrir
aðeins 1.400 kr. á
mánuði til að gefa Jesúbarninu
þessi jól. Hinir sem minna hafa
ættu að hjálpa einstæðum mæðrum
og öryrkjum hér í eigin landi. Það
er ekki verjandi að svo margir búi
við sára fátækt í bullandi góðæri
sem hér á íslandi.
Myndbirtingar
afbrotamanna
Sigurður Einarsson skrifar:
Mér tlnnst ótækt að ekki skuli
ein og sama reglan vera hjá ís-
lenskum fjölmiðlum þegar kemur
að birtingu mynda af afbrotamönn-
um. Stundum birtast myndir í fjöl-
miðlum af afbrotamönnum sem
eru á leið í yfirheyrslu áður en
þeir eru dæmdir. Stundum birtast
myndir af dæmdum mönnum og
stundum ekki. Ég skírskota til ít-
rekaðra myndbirtinga af dæmdum
eiganda Gállerí Borgar fyrir að
hafa selt fólsuð málaverk. Ég hef
ekkert við þann dóm að athuga, tO
né trá. Mér finnst hins vegar vega
þyngra að birta myndir af óbóta-
mönnum hvers konar sem gengið
hafa í skrokk á fólki, lamið það og
limlest, jafnvel drepið. Slíkir menn
eiga það skOið að af þeim birtist
mynd ásamt nafni. Bara sem hluti
af refsingunni. Og þá án tOlits tO
einhverra ættingja eða afkomenda.
Þessi GaOerí Borgar maður á víst
ættingja líka?
Hafísinn i veð-
urfréttirnar
GuUi hringdi:
Ég er ekki sáttur við að fá ekki
nákvæmar fréttir um stöðu hafiss-
ins í norðri og norðvestri i sjálfum
veðurfréttunum, t.d. í sjónvarpsveð-
urfréttum. Ég er þess fuOviss að
margir eru mér sammála um þetta.
Hafisinn nálgast nú óvenju snemma
í ár, er um 60 mOur norðveshir af
Baröa, milli nessins á mOli Önund-
arfjarðar og Dýrafjarðar. AOir vita
að hafísinn hefur einna mest áhrif á
hvernig veður viö hreppum hér á
landinu. Það er því ekki nema sjálf-
sagt að birta tákn eða fjarlægða-
skýringar um stöðu íssins á hverj-
um tíma frá því í nóvember og fram
eftir vetri. Ég skora á Veðurstofuna
að kanna málið.
Hasar út af fín-
um kvöldverði
K.L.H. skrifar:
Það er stundum skondið að lesa
um hvemig íslendingar geta lamið
hver á öðrum af ýmsu tOefni. Nú
eru Samtök verslunarinnar komin
í feitt vegna þess að utanrikisráðu-
neytið hefrn- boðið viðskiptavinum
rnarrns eins sem hefur viðskipti í
Nígeríu í „fínan dinner“ eins og
það er orðað í athugasemdunum.
Það stendur nefnOega yfir kaup-
stefna í Nigeríu, þessu góssenlandi
peningaþvættis og mútna, á vegum
Fiskmiðlunar Norðurlands. Mér
fmnst að Samtök verslunarinnar
ættu að vera þakklát að koma
hvergi nærri þessari kaupstefnu
og leyfa utnarikisráðuneytinu að
ráða hvernig það „kemur að“ þess-
um skrípaleik í Nígeríu. Viðskipta-
sambönd í þessu ömurlega ríki
Afriku. Ráðuneytið hefur aðeins
skömm af öOu saman.
Pétur og
Össur oftar
Guðrún P. hringdi:
Óskaplega var gaman að horfa á
þá Pétur Blöndal og Össur Skarp-
héðinsson i morgunsjónvarpinu á
fostudaginn var. Þeir voru kurteis-
ir hvor við annan, en þó rökfastir
og gáfu hvorugur eftir. Flugmælsk-
ir og fáir stjómmálamenn sem tala
jath faOegt mál og össur. Svo var
sagan sem hann sagði af Guðna
Ágústssyni alveg frábær. Við vor-
um að tala um það, hérna í blokk-
inni okkar, að Stöð 2 verði að hafa
þá að minnsta kosti einu sinni i
viku. En talað var um að þeir ættu
bara að vera aðra hverja viku.