Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Fréttir íslenskur lögreglumaður yflrmaður aðgerðastjórnar SÞ 1 Bosníu: Gegnir fýrstur svo miKilvægri stöðu - hitti Kofi Annan, sem átti ekki von á að hitta íslending Snorri Magnússon lögreglumaður í íslenskum ein- kennisfatnaði með merkjum Sameinuðu þjóðanna. Blái liturinn á húfunni og hálsklútnum er einkennislitur SÞ. íslenskur lögreglumaður, Snorri Magnússon, starfar nú á vegum Sam- einuðu þjóðanna í Bosníu sem yfir- maður aðgerðastjórnar þar. Er það í fyrsta sinn, sem íslendingur, sem fer þangað á vegum íslenska rikisins til starfa hjá SÞ, gegnir svo mikilvægri stöðu, að því er best er vitað. „Starííð felst einkum í daglegri stjórnun og samhæfmgu á verkefnum sem International Police Task Force hefúr með höndum hér í Bosníu, og samantekt á upplýsingum, sem koma frá þeim sjö svæðum sem eru hér, fyr- ir lögreglustjóra, varalögreglustjóra IPTF og fulltrúa aðalritara Sameinuðu þjóðanna," sagði Snorri þegar DV hafði samband við hann þar sem hann dvelur nú við störf í aðalstöðvum Sam- einuðu þjóðanna í Sarajevó í Bosníu. Hann hélt utan fyrir nlu mánuðum. Fastastarf hans er við rannsóknarlög- regluna í Reykjavík. Þar vann hann áður en hann hélt til Bosníu og tekur til við þar sem frá var horfið þegar hann kemur heim i febrúar. íslenskir einkennisbúningar Starf íslenskra lögreglumanna í Bosníu er þannig til komið að árið 1997 ákvað ríkisstjómin að senda þrjá lög- reglumenn til starfa á vegum Samein- uðu þjóðanna í Bosníu í International Police Task Force. Fyrsta sveitin fór það ár. íslenska sveitin hefur verið eins konar hluti af dönsku lögreglu- „Það sem alþjóðalögreglan er að gera í Bosníu er að reyna að breyta fyrri starfsháttum lögreglunnar yfir í það að vera lýðræðisleg lögregla sem ekki hefúr einhverja pólitíska hags- muni að leiðarljósi heldur vinnur eftir lögum, reglum og viðurkenndum starfsháttum. Eitthvað hefur áunnist en það gengur hægt,“ sagði Björn Hall- dórsson hjá embætti ríkislögreglu- stjóra sem er eins konar tengiliður við lögreglumennina erlendis fyrir hönd embættisins sem sér um framkvæmd- sveitinni og klæðst dönskum einkenn- isbúningum. Nú eru fjórir íslenskir lögreglumenn við störf í Bosníu og tveir í Kosovo. „Við erum ís- lenskir lögreglu- menn á vegum Sameinuðu þjóð- anna,“ sagði Snorri og bætti því við að íslenska sveitin sem starfaði í Bosn- íu nú væri sú fyrsta sem bæri íslenskan einkennisbúning. „Mér líkar vistin afar vel,“ sagði Snorri, sem kvaðst ekki mega tjá sig um starfið sem slíkt þar sem hann væri að vinna fyrir SÞ og hefði ekki leyfi til að ræða það í fjöl- miðlum. „En þetta er mjög áhugavert starf og mjög gef- andi einnig. Það koma góð og slæm tímabil en þau góðu eru yfirgnæfandi." Einn þáttur í starfi Snorra er að hann leysir varalögreglustjóra IPTF af ina fyrir utanríkisráðuneytið. Að sögn Björns tók ríkisstjórnin ákvörðun um það 1997 að taka þátt í friðarferlinu á Balkanskaga með því að senda m.a. lögreglumenn til 9 mánaða starfs í senn. Nú hafa samtals 12 lög- reglumenn farið til Bosníu til slíkra starfa, auk tveggja sem eru nú í Kosovo. Umboð lögreglusveitanna byggist á viðbót við Daton-samkomulagið sem gert var þegar stríðinu lauk í Bosniu- Hersegóvínu 1995. Fyrsta verkefni var þegar hann fer í frí. Fyrir tæpum mánuði kom Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu að stofna staðarlögreglu. Fyrstu árin var aðalstarf alþjóða lögreglumann- anna í því fólgið að fylgjast með störf- um staðarlögreglumannanna, bæði á starfsstöðvum, i vinnu úti á götu og í rannsóknum. Einnig þurfti að setja á laggirnar lögregluskóla til að þjálfa upp staðarlögregluna. „Þama er verið að byggja upp nýtt þjóðfélag á rústum," sagði Björn.. Nú vinna lögreglumenn frá rúmlega 40 þjóðum að uppbyggingarstarfinu í Bosníu. -JSS þjóðanna, í heimsókn aðalstöðvanna i Bosníu. Snorri hitti hann við það tæki- færi. „Mér var boðið til móttöku sem var haldin á vegum fulltrúa hans hér. Þar hitti ég hann og hann gaf sér tíma til að spjalla við mig og aðra í nokkrar mínútur um starfið hér.“ Aðspurður hvort framkvæmdastjóranum hefði þótt sérkennilegt að hitta íslending við störf á þessum slóðum sagði Snorri að svo hefði verið. „Hann er mjög vel að sér og vissi að íslendingar eru hér að störfum. Hann átti hins vegar ekki von á því að hitta íslending hér. Við íslend- ingar förum víða en emm þó ekki á hverju strái.“ Gríðarleg uppbygging „Daglegt líf fólks er í stórum drátt- um orðið eins eðlilegt og það getur orð- ið eftir styrjöld, að því er maður getur ímyndað sér,“ sagði Snorri, aðspurður um uppbyggingu og félagslega aðstöðu íbúanna i Bosníu. „Uppbyggingin í borginni hefur verið grlðarleg þennan tíma sem ég hef dvalið hér. Hér virðist hvorki skortur á alþjóðlegum stofnun- um né samtökum til uppbyggingar- starfa. Mér skilst að stærstur hlutinn af því fé sem er notað til uppbyggingar- innar sé frá Evrópusambandinu. En það er enn töluvert langt i land. í raun- inni skortir hvorki nauðþurftir, mat- vöru né annað slíkt. Hins vegar er skortur á atvinnu og peningum. Svo spila stjórnmál, eins og verið hefur í Júgóslavíu fyrr sem nú, stóran þátt í öllu sem gerist. Spilling er hér tals- verð, bæði í stjórnkerfinu, auk þess sem hér er mikið undirheimastarf. Venjulegir glæpir eru þó ekki mjög al- gengir. En það er enn töluvert starf óunnið, þótt dags daglega gangi lífið eðlilega fyrir sig. Venjulegt fólk lifir að mestu í sátt og samlyndi en pólitíkin skipar þó stóran sess í þessu öllu sam- an.“ Snorri sagði að íslensku lögreglu- mennimir byggju við öll þau þægindi sem þeir ættu að venjast. Hann sagði að vinnutíminn væri 12-16 stundir á dag. „Það er nóg að gera. Maður fer ekki heim til konu og bama hér á kvöldin, þannig að maður notar tím- ann til að hreinsa skrifborðið sitt fram eftir kvöldi." -JSS Björn Halldórsson: Lýðræðisleg lögregla Alltaf í boltanum Seint mun fólk læra að láta alþingis- menn í friði. Þetta eru mennirnir sem stýra þjóðarskútunni farsælllega fram hjá brotsjóum og hafa tryggt þá góðærisblíðu sem nú hefúr staðið í nokkur ár. Eðli málsins samkvæmt þurfa alþingismenn að slappa af frá skipstjórninni og til að tryggja þeim frið er eðlilegast að þeir bregði sér úr landi. Nú hefur komist í há- mæli að þverskurður Alþingis hafi brugð- ið sér til Færeyja í sumar til að keppa i fótbolta við kollega sína. Það sem veldur hneykslan við þá för er að skrifstofa Al- þingis leigði undir þá flugvél, auk þess sem útlagður kostnaður, svo sem skerpu- kjöt og öl, er undanþeginn skatti. Þing- menn eru láglaunamenn og hafa ekki nema um 500 þúsund krónur á mánuði þegar nefndastörf eru talin með. Sumir þeirra hafa að auki þurft að vera í fullu starfi ann- ars staðar til að komast af. Þannig hefur framherj- inn Vilhjálmur Egilsson, sem ku hafa velgt Færey- ingum vel undir uggum í boltaleiknum í sumar, neyðst til að vinna hjá Verslunarráði íslands til að drýgja tekjur sínar. Annar framherji, Kristinn H. Gunnarsson, knattspymumaður úr Bolungarvík, neyddist til að drýgja tekjur sínar með því að skipta um flokk og komast þannig í formannssæti i laun- uðum nefndum. Fyrirliðinn og vinstri jafnaðarmað- urinn Steingrimur J. Sigfússon hefur þurft að lifa á strípuðum þingmannslaunum sem bjóða ekki upp á ferðlög til útlanda. Bakvörðurinn Árni Johnsen, sem tæklaði færeyska þingmenn, er forviða á rövl- inu um ferðina til Færeyja. „Hvem varðar um það?“ spurði þingmaðurinn réttilega. Það að einhverjar öfundarsálir skulu gera at- hugasemdir við að þjóðin beri kostnað af landkynn- ingunni er auðvitað fáránlegt. Allt eins er hægt að krefjast þess að landsliðsmenn i knattspyrnu borgi sjálfir fargjöld sín þegar um er að ræða landsleiki fjarri heimalandinu. Eðli máls- ins samkvæmt mega þingmenn eyða tug- þúsundum á mánuði án þess að skatturinn komi við sögu. Fótboltaferðir og skreppit- úrar í kjördæmin kosta sitt og auðvitaðr fylgja skattafríðindi. Þetta er sambærilegt við sjómennina sem fá sinn skattaafslátt fyrir það eitt að vera á hafi úti fjarri heim- ilum sínum. Þingmenn sem kynna land sitt með því að spila fallega knattspyrnu njóta sömu réttinda. Fram kom hjá Steingrími J. Sigfússyni, fyrirliða íslenska knattspyrnu- þingmannalandsliðsins, að liðið væri nú við stífar æfingar til að undirbúa næstu keppnisferð til útlanda. Að vísu tapaði lið- ið fyrir Færeyingum, 6-5, en það var að sögn fyrirliðans ekki vegna annars en þess að íslenska liðið skoraði nokknun sinnum í eigið mark. Þannig sigraði islenska liðið í raun þó fleiri mörk væru skráð á hið færeyska fyrir mis- skilning. Nú er komið að því að keppa við alvörulið. Skrifstofu Alþingis verður falið á næstunni að panta einkavél til Brasilíu þar sem þingmannalandsliðið mun taka þarlenda í gegn. Örlítið þarf að slípa leikstílinn og kenna mönnum að skora bara í annað markið en að ööru leyti er allt klárt. Alltaf í boltan- um, og auðvitað borgar almenningur. Dagfari Qð| Á förum Svo sem Sandkorn greindu frá á dögunum er Þröstur Emilsson, fréttamaður Sjónvarpsins, á fórum frá stofiiuninni eftir 16 ára starf. Óvíst er hvað hann hyggst taka sér fyrir hendur en hann mun hætta vegna óánægju. Fleiri munu áforma að taka hatt sinn og staf á næstunni. Þannig hefur ÁrniÞórð- ur Jónsson sagt upp og hyggst hætta á næst- unni. Hann var lengi vel vaktstjóri innlendra frétta en hefur að und- anfornu verið óbreyttur... Klókur borgarfulltrúi Innan Reykjavíkurlistans hefur það síst orðið Helga Hjörvari til framdráttar að sýna sjálfstæði gagnvart Ingibjörgu S. Gísla- dóttur borgarstjóra. Félagi hans Hrannar B. Arn- arsson ætlar ber- sýnilega að láta ör- lög Helga verða sér víti til vamaðar þegar hann er snúinn úr útlegð- inni. Fyrir skömmu skrifaði hann grein í Morgunblaðið þar sem hann túlkaði orð forystu leikskólakennara sem árás á borg- arstjóra til að geta síðan varið hana af hörku. í Ráðhúsinu er full- yrt að Hrannari gangi bara vel að stytta leið sína til fyrri áhrifa með því að vera borgarstjóra handgeng- inn... Hvatning Landssíminn rekur upplýsinga- torg fyrir starfsfólk sitt. Þar mátti lesa þessa hvetjandi auglýsingu ný- lega: „Einhleypar konur og aðrir áhugamenn um efnilega karlmenn! Kynnið ykkur hinn einhleypa Rory Simpson og Josep Valor Sabatler sem tala á málþingi Stjórnunarskóla Landssímans 18. nóv. nk.“ Þama leggja sjálfsagt margir gjörva hönd að verki, enda auglýsingin óneitan- lega sérstök. T.d. er formaður Stjómunarskólans Hansína nokk- ur B. Einarsdóttir, eigandi út- tektarstofunnar Skref fyrir skref, sem fræg varð af endemum fyrir úttekt á Mýrarhúsaskóla í vor. Þá er yfirmaður upplýsingadeildar Landssimans Ólafur Þ. Stephen- sen. í framhjáhlaupi má geta þess að hann er formaöur jafnréttis- nefndar karla ... Þar sem róninn... Auglýsingaherferð Nýkaups fyr- ir því að leyfi verði veitt fyrir sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslun- um hefur fengið misjafhar undir- tektir þrátt fyrir að málstaðurinn sé góður. Mörg- um þykir óheppilegt að blanda „rónun- um“ Boga og Örvari inn í umræðuna. Gárungar segja að slagorð- in „Þar sem ferskleikinn býr“ eða „Þar sem iðnaðarmaðurinn býr“ eigi ekki lengur við heldur henti best að auglýsa „Þar sem róninn býr“. Burtséð frá því leggja Ný- kaupsmenn sitt af mörkum til að leiða rónana af villu síns vegar því við kassann má kaupa kort til styrktar SÁÁ og viðbyggingu við meðferðarstofnunina að Vogi. Þar með yrði allt á sama stað og fólk gæti dottið í það og leitað meðferð- ar. Enn eitt slagorðið gæti því orð- ið „Frá vöggu til meðferðar" ... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.