Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Utlönd
Krenz verður
að afplána fang-
elsisdóm
Rúmlega sex ára fangelsisdóm-
ur yfir Egon Krenz, fyrrverandi
leiötoga A-Þýskalands, var stað-
festur í gær. Krenz var dæmdur
fyrir manndráp við Berlínarmúr-
inn. Krenz hefur haldið því fram
að ekki væri hægt að dæma hann
þar sem hann hefði farið eftir
þeim lögum sem giltu í A-Þýska-
landi. „Það var ekki ég sem fann
upp kalda stríðið. Og ég skil ekki
hvers vegna svona mikið hatur er
í minn garð 10 árum seinna,“
sagöi Krenz fyrir nokkrum vikum
á fundi méð erlendum frétta-
mönnum í Berlín.
Þriggja ára fangelsisdómar yfir
a-þýsku leiðtogunum Gúnter
Schabowski og Gúnther Kleiber
voru einnig staðfestir í gær.
Egon Krenz tók þann 17. októ-
ber 1989 við af Erich Honecker
sem leiðtogi A-Þýskalands. Rúm-
um sex vikum síðar vék hann úr
öllum embættum sínum.
Fjarvera ESB
vekur athygli á
fundi Norður-
landsráðs
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, segir ekki ástæðu
til að hafa áhyggjur á fundi Norð-
urlandaráðs vegna fjarveru full-
trúa Evrópusambandsins, ESB, á
fyrirhuguðum leiðtogafundi Evr-
ópska efhahagssvæðisins. Það þyk-
ir hins vegar segja ýmislegt um
áhugaleysi Evrópusambandsins að
leiðtogum Evrópska efnahagssvæð-
isins er vísað til fundarhalds í bak-
herbergi á ráðstefnu Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu í Ist-
anbul sem haldin verður í lok
næstu viku.
Tíu ár frá falli Berlínarmúrsins:
Dansað um allt
Berínarbúar bregða undir sig
betri fætinum í dag og dansa um
alla borg til að minnast þess að tíu
ár eru nú liðin frá falli Berlínar-
múrsins og borgin og heimurinn
breyttu um ásýnd.
Mitt í öllum gleðskapnum munu
Berlínarbúar þó einnig minnast
þess að sameining þýsku rikjanna
tveggja hefur ekki alltaf verið dans
á rósum. Þá minnast Þjóðverjar
þess einnig í dag að 61 ár er liðið frá
hinni svokölluðu Kristalnótt þegar
nasistar drápu tugi gyðinga og
lögðu bænahús þeirra í rúst. Var
það eins konar forsmekkur að því
sem átti eftir að fylgja i kjölfarið.
Athyglin mun þó einkum beinast
að opinberum hátíðahöldum vegna
falls múrsins þegar hundruð þús-
unda íbúa Austur-Berlinar æddu yf-
ir til vesturhlutans og kváðu um
leið upp dauðadóm yfir kommún-
ismanum í landinu.
Rússneski sellóleikarinn Mstislav
Rostropovítsj, sem var gerður út-
lægur úr heimalandi sínu á tímum
kalda stríðsins, mun leika með gam-
algróinni þýskri rokkhljómsveit,
Sporðdrekunum, við Brandenborg-
arhliðið, frægasta kennileiti Berlín-
ar.
Við Checkpoint Charlie varðstöð-
ina og á öðrum merkum stöðum þar
sem múrinn stóð einu sinni munu
hljómsveitir leika, í þeirri von að
hægt verði að endurskapa þá miklu
gleði sem ríkti fyrir tíu árum þegar
íbúar austur- og vesturhluta Berlín-
ar féllust í faðma eftir 28 ára að-
skilnað og hlógu og grétu í senn.
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sov-
étleiðtogi, er kominn til Berlínar
ásamt George Bush, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, og Helmut Kohl, fyrr-
um Þýskalandskanslara, til að taka
þátt í hátíðahöldunum. Gorbatsjov
mun meðal annars halda ræðu í
endurbyggðu þinghúsi Berlínar sem
nasistar kveiktu í á sinum tíma.
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sovétleiðtogi, og Gerhard Schröder Þýskalandskanslari hlusta á spurningar fréttamanna
vegna fyrirhugaðra hátíðarhalda í dag til að minnast falls Berlínarmúrsins fyrir tíu árum.
JólagjaFahandbók
1999
Miðvikudaginn 1. desember mun hin árlega
jólagjaFahandbók DV koma út í 19. sinn.
JólagjaFahandbók DV er Fyrir löngu búin
að Festa sér sess í jólaundirbúningi
landsmanna enda er þar að Finna
hundruð hugmynda að gjöFum
Fyrir jólin.
prentuð á hvítari og vandaðri pappír
JólagjaFahandbókin verður '' ’g’ y nú prentuð
á hvítari og vandaðri pappír en^aður sem
verður til þess að allar auglýsingar og myndir skila
sér mun betur. Lögð verður áhersla á skemmtilega
umFjöllun um jólaundirbúning, hugmyndir að
Föndri,uppskriFtir og margt Fleira.
Auglýsendur, athugið að skilaFrestur auglýsinga er
til 19. nóvember en með tilliti til reynslu undanFarinna
ára er auglýsendum bent á að haFa samband við
Dagnýju Jóhannesdóttur, auglýsingadeild DV, sem
allra Fyrst í síma 550 5729 svo unnt reynist að
veita öllum sem besta þjónustu.
NetFang: dagny FF.is. NetFang:
auglysingar FF.is. Ath. BréFasími
auglýsingadeildar er 550 5727.
Stuttar fréttir x>v
Lögreglan gagnrýnd
Danska lögreglan sætir nú gagn-
rýni fyrir aö hafa ekki látið til
skarar skríða gegn óeirðaseggjum
í Kaupmannahöfn á sunnudags-
kvöld fyrr en klukkustund eftir til-
kynningu um ólætin.
Létust í aurskriðu
Óttast er að yfir 40 manns hafi
orðið undir aurskriðu I norður-
hluta Perú á sunnudaginn.
Mafía á bak við árásir
Yassir Arafat,
leiðtogi Palestínu,
fullyrti í gær að
stríðandi mafiu-
samtök í ísrael
stæðu á bak við
þrjár sprengju-
árásir í ísraelska
strandbænum Neh
ina. Vísaði Arafat, sem í dag hitt-
ir Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, því á bug að palestínskir
öfgamenn bæru ábyrgð á árásun-
um. Arafat og Barak munu ræða
saman í París um frið í Miöaust-
urlöndum.
Snjókoma hindrar sókn
Snjókoma hefur hægt á árásum
Rússa á Tsjetsjeníu. Flóttamenn
þurfa enn aö biða klukkustundum
saman við landamærin.
Ráðherra heimtaði mútur
Rússneskur ráðherra krafðist
milljóna dollara í mútugreiðslu af
bresku fyrirtæki sem hugðist fjár-
festa í Rússlandi. Fyrirtækið neit-
aði að greiða mútur og fram-
kvæmdir voru stöðvaðar.
800 í fjöldagröfum
800 lík hafa á þessu ári fundist í
40 íjöldagröfum í Bosniu. Fórnar-
lömbin, sem flest voru óbreyttir
múslímskir borgarar, eru talin
hafa verið myrt 1992.
Páfi í Georgíu
Jóhannes Páli
páfi hóf í gær
tveggja daga heim-
sókn til Georgíu.
Er heimsóknin lið-
ur í tilraun til að
byggja brú milli
kaþólsku kirkj-
unnar og rétttrúnaðarkirkjunnar.
Edvard Schevardnadze, forseti Ge-
orgíu, sagði boðskap páfa um um-
burðarlyndi stuðla að friði á svæð-
inu. Landamæri Georgíu liggja að
Tsjetsjeníu.
Vísar ásökunum á bug
11 ára svissneskur drengur
kvaöst fyrir rétti í Bandaríkjunum
í gær vera saklaus af ásökunum
um siíjaspell gegn 5 ára systur
sinni.
Leit hafin á ný
Bandariski sjóherinn er aftur
byrjaður að leita að flugritum eg-
ypsku farþegaþotunnar sem fórst
undan austurströnd Bandarikj-
anna í síðasta mánuði.
Efnaárás afstýrt
Leyniþjónustur ísraels og Palest-
ínumanna gátu afstýrt því að
skæruliðasamtökin Hamas gerðu
mannskæða efnavopnaárás daginn
fyrir kosningamar í ísrael í vor.
Ekkert fé tíl skipa
Færeyska landstjómin hefur
ákveöiö aö engu opinberu fé veröi
variö til endurnýjunar á flski-
skipaflota Færeyja. Á móti var
einnig ákveðið að veiðiheimUdir
verði framseljanlegar, að sögn
blaðsms Dimmalætting.
Blair tekur áhættu
Bresku dagblöð-
in sögðu í morgun
að Tony Blair for-
sætisráðherra
hefði tekið mikla
áhættu með því að
gera þá Gordon
Brown og Peter
Mandelson að kosningastjórum
Verkamannaflokksins fyrir næstu
þingkosningar. Eitt blaðið benti á
að Brown og Mandelson væru hat-
rammir keppinautar.