Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
13
Leggjum niður
leikskólana
„Borgin sóar peningum með því að reka leikskóla fyrir fólk sem mun
aldrei verða þakklátt fyrir að færa uppeldi barna yfir á stofnanir," segir
Mikael m.a. í grein sinni.
Það þarf ekki mikið
gáfumenni til að sjá að
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir hefur rangt fyrir
sér þegar hún heldur
þvi fram að hún hafi
ekki brugðist foreldr-
um bama á leikskóla-
aldri í Reykjavík. Það
stendur skýrum stöfum
í lögum þessa lands að
þeir sem biðja um dag-
vist fyrir bam eiga rétt
á henni. En í þessum
rituðum orðum er verið
að ofsækja þessa rétt-
háu foreldra og mann-
eklu kennt um.
Auðvitað þarf ekki
gáfumenni til að finna
það út að sú tilhögun að láta
misilla gefna borgarfulltrúa stýra
dagvistarmálum misfrábærra for-
eldra virkar ekki. Borgin sóar pen-
ingum með því að reka leikskóla
fyrir fólk sem mun aldrei verða
þakklátt fyrir að færa uppeldi
bama yfir á stofnanir.
225 þúsund á mánuði fyrir
leikskólakennara
Tökum mig og mína fjölskyldu
sem dæmi. Ég á tvö böm á leik-
skólaaldri og borga tæpar 35 þús-
und krónur á mánuði í leikskóla-
gjöld. Þau fá systkinaafslátt, en ef
þau væru ekki bæði undan okkur
hjónunum væri upphæðin nær 40
þúsundum. Samkvæmt opinber-
um tölum er það
gjald sem ég greiði
einungis einn
þriðji af því sem
það kostar að vista
bömin á leikskóla.
Reykj a víkurborg
borgar því 70 þús-
undkall með börn-
unum mínum. Séu
upphæðirnar lagð-
ar saman er kostn-
aður vegna dag-
vistunar grisling-
anna 105 þúsund
krónur.
Ef borgin legði
niður leikskólana
og sendi mér 70
þúsund krónur í
pósti um hver mánaðamót gæti ég
haft samband við systkini mín
sem eiga sitt bamið hvort á leik-
skólaaldri og ættu því að fá 40
þúsund króna ávísun á haus í
þessu dæmi mínu. Við gætum síð-
an lagt alla pen-
ingana í púkk -
það sem við
fáum greitt, og
ættum að greiða
fyrir dagvistun.
Það yrðu sam-
tals um 225 þús-
und krónur, sem
er talsvert meira
en leikskóla-
kennari fær á
mánuði. Með
þessa upphæð í vasanum gætum
við auglýst eftir fagmenntuðum
leikskólakennara eða einhverri
góðri ömmu og beðið hana að
vista börnin okkar á heimili ein-
hvers okkar.
Borgin á ekki að ala
upp börn
Niðurstaðan er augljóslega hag-
kvæm fyrir alla aðila. Borgin
reiknar með því að hver starfs-
maður megi vista átta böm (í
mínu dæmi myndi það merkja 450
þúsund á mánuði fyrir leikskóla-
kennara), og tekst ekki að láta
enda ná saman hvaö starfsfólk
varðar. En með þessu dæmi er
búið að sanna að hægt er að yfir-
borga leikskólakennara með að-
eins fjórum börnum á kennara.
Og þá erum við ekki farin að
taka inn í dæmið að við svona
ástand vildum við systkinin og
makar okkar kannski borga meira
vegna þess að við byggjum við
öruggt ástand fyrir bömin okkar,
en ekki misnotkun af hálfu van-
hæfra borgaryflrvalda.
Það er alla vega nokkuð ljóst að
hver heilvita maður sem tekur sér
tölvu í hönd og reiknar dæmið til
enda sér að rekstur leikskóla og
sambærilegra uppeldisstofnana á
ekki að vera í höndum borgaryfir-
valda. Þau hafa aldrei staðið sig og
ekkert bendir til þess að þau muni
standa sig í náinni framtíð. - Fær-
um uppeldið aftur til foreldranna
og höldum þvi frá pólitikusum.
Mikael Torfason
Kjallarínn
Mikael Torfason
rithöfundur
„Það stendur skýrum stöfum í
lögum þessa lands að þeir sem
biðja um dagvist fyrir barn eiga
rétt á henni. En í þessum rituðum
orðum er verið að ofsækja þessa
réttháu foreldra og manneklu
kennt um.“
ísland - einokun og einangrun
Sú sérkennilega staða er upp
komin að nokkrir menn, aðallega
kenndir við svonefndan Kol-
krabba, hafa tekiö að sér að ein-
angra fsland frá umheiminum og
nýta landið sem eigið skattland,
svo sem furstar fyrri tíma höfðu í
skjóli konungsvalds og/eða versl-
unareinokunar. Nú er svo komið
að svo til allir flutningar í land-
inu, hvort heldur er á sjó, landi
eða í lofti, eru í höndum þessara
aðila sem nýta sér þessa einokun-
araðstöðu til fullnustu.
Nýtt í þessu máli er að nú hefur
Kolkrabbinn ráðist til
atlögu á nýjum vett-
vangi með uppkaup-
um á útgerðarfyrir-
tækjum, en mætir þar
fyrir sjálfum Smokk-
fiskinpm sem
ráðskast hefur með
þau mál um alllangan
tíma, ýmist í nafni
VÍS eða Oliufélagsins
hf. Stjómmálamenn
landsins, bæði til hægri og til
vinstri, láta þetta afskiptalaust. -
Hvert stefnir? Getur almenningur
á íslandi sætt sig við þessa einok-
un atvinnuveganna? Og hvað gera
kjósendur næst?
Sala eða samruni
Viö höfum vanist því um langan
tíma og okkur sagt að útgerð á ís-
landi sé rekin með bullandi tapi.
Og í gegnum tíðina höfum við
hlustað á „grátkórinn" heimta nýj-
ar gengisfellingar mörgum sinn-
um á ári. Stundum urðu þær
þrisvar sinnum. Eftir að fyrri rík-
isstjóm Davíðs tók fyrir þessar
gengisfellingar, með góðu sam-
komulagi við verkalýðshreyfmg-
una, hefir ástand útvegsins batnað
svo mikið að sægreifamir selja nú
hluti sína í útgerðunum fyrir tugi
milljarða árlega, ýmist með sölu
hlutafjár eða með samruna útgerð-
arfélaganna.
Söluverðinu er síðan stungið í
vasann, ýmist skattfrjálst eða með
10% fjármagnsskatti þegar verst
gegnir. Menn sakna þess að for-
ingjar grátkórsins sjást varla í
sjónvarpinu lengur, en þar voru
fremstir í flokki þeir félagarnir
Amar Sigurmundsson fyrir land-
vinnsluna og Kristján Ragnarsson
fyrir LÍÚ og sjóvinnsluna. Skyldi
gráturinn vera úr tísku?
Þáttur Fiskistofu
Keyrt heflr um þverbak i út-
gerðarmálunum eftir
að framsóknarmönn-
um tókst 1990 að telja
Alþingi á að gera
veiðikvóta „frjálsa"
með þvi að binda þá
ekki lengur við skip
og gera þá að al-
mennri verslunar-
vöru sem allir spek-
úlantar gátu verslað
með. Gæðingamir fá
nú úthlutað
fiskikvótum af „sam-
eign þjóðarinnar" án
greiðslu en mega
selja þá hæst-
bjóðanda sem oft
eru krókakarlar
sem eiga á hættu
að verða teknir í
bakaríið af Fiski-
stofu ef þeir geta ekki sýnt
fram á að þeir eigi næga
kvóta fyrir veiddum afla.
Fiskistofa sviptir þá veiðileyf-
um og hundeltir þá þar til
þeir hafa sýnt fram á að þeir h£ifi
keypt sér leyfi af gæðingunum.
Þetta er líkt og þegar lögregl-
an er að elta dópsala eða aðra stór-
glæpamenn. Þannig er gæðingun-
um tryggð ömgg sala á veiðleyfun-
um á góðu verði, leigukvótar kosta
nú a.m.k. 100 kr/kg en eignarkvót-
ar a.m.k. 800 kr/kg. Stórútgerðir
„eiga“ nú allt að 25.000 tonna
veiðikvóta af „sameign þjóðarinn-
ar“ að verðmæti um 20 milljarðar
króna, á meðan veiði-
byggðimar um allt
land eru að gefast
upp, því að þau mega
ekki bjarga sér með
fiskveiðum og hafa
enga aðra möguleika.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefir verið í eins kon-
ar herleiðingu síðan í
tið Bjama Benedikts-
sonar. Þar þekkjast
ekki lengur slagorðin
„stétt með stétt“ eða
„flokkur allra lands-
manna“. Hann hefur
svikið landsbyggðina
í tryggðum í fisk-
veiðistefnunni með
ömurlegum afleiðing-
um. Kjósendur
flokksins voru svikn-
ir í hendur framsóknarmönnum
eftir síðustu kosningar þegar
flokkurinn fékk Framsókn enn
einu sinni öll völd.
Skoðanakannanir sýna að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur oftast um
eða yfir 50% atkvæða. Hvers
vegna er hann að framkvæma
stefnumál annarra flokka þegar
hann getur stjómað einn? „We
want Winnie," hrópuðu Bretar og
fengu sinn Winston Churchill.
Okkur vantar líka heiðarlega for-
ystu. Getum við sameiginlega beð-
ið Bjöm Bjamason að taka við
flokknum?
Ömrndur Ásgeirsson
„Skoðanakannanir sýna að Sjálf■
stæðisflokkurinn hefur oftast um
eða yfir 50% atkvæða. Hvers
vegna er hann að framkvæma
stefnumál annarra flokka þegar
hann getur stjórnað einn?u
Kjallarinn
,Önundur
Ásgeirsson
fyrrv. forstjóri Olís
Með og
á móti
GSM-væðing hjá börnum
og unglingum
Grunnskólar Reykjavíkur eru óöum aö
fyllast af GSM-símum og eru dæmi þess
aö meirihluti nemenda í 8. bekk só
kominn meö síma. Þegar ofar dregur
veröa símarnir algengari og i 10. bekk
er GSM-síminn af mörgum talinn jafn-
sjálfsagöur og skólataskan. Menn eru
ekki á eitt sáttir um hvort þetta er
æskileg þróun.
Mikið
„Við lifum á
samskipta- og
tækniöld þar
sem allt gengur
mjög hratt fyrir
sig. Ef við ætl-
um að fylgjast
með verðum
við því að lifa í
takt við það.
Þess vegna
verðum við að
geta verið í
góðu sambandi
við allt og alla. Tilkoma GSM-sím-
ans er ein af þessum dásamlegu
nýjungum sem riðið hafa yfir.
GSM-væðingin gaf okkur mikið ör-
yggi, að geta verið i sambandi við
unglinginn okkar hvar og hvenær
sem er. Og á sama hátt getur ung-
lingurinn verið í sambandi við
okkur. Það er ein helsta ástæða
þess að fjölskyldan hefur GSM-
væðst. En GSM-símar geta náttúr-
lega veitt falskt öryggi ef ekki rík-
ir gagnkvæmt traust milli ung-
linga og foreldra. En hvað lýtur að
notkun GSM-sima í skólunum þá
eru þeir svo skemmtilega tækni-
væddir að það er hægt að slökkva
á þeim og láta þá þegja. Það er síð-
an skólanna að setja þær reglur
sem þeir vilja. Ef þeir vilja banna
notkun GSM-síma innan veggja
skólans þá er það hið besta mál. Ég
get samt sem áður komið skilaboð-
um til unglingsins án þess að
nokkur verði var við það. Hann
getur síðan tekið við skilaboðun-
um þegar skólatíma lýkur. Þetta er
einn stærsti kosturinn við notkun
GSM-símans, að geta verið í sam-
bandi alltaf og alls staðar."
Neysluæði
„GSM-væð-
ingin er eitt
tákn fyrir það
neyslusamfélag
sem við búum í.
En þetta
neysluæði teyg-
ir sig einnig
inn í raðir
barna og ung-
linga. Hjá þeim
myndast ákveð-
inn hópþrýstingur og samkeppni
um að eiga GSM-síma. Þeir verða
eitthvað spennandi sem allir verða
að eignast Eins og leikfang. Það
myndast þrýstingur á fjölskyldur
þar sem viðkvæðiö er gjaman, eins
og oftar, að allir eigi síma. GSM-
símar eru dýrir og bjóða upp á
ýmsa möguleika sem gera þá aö
eins konar leikfangi. Það þýðir að
notkunin getur orðið mjög mikil og
útgjöldin eftir því. Því spyr ég mig
hvort böm og unglingar hafi yfir-
leitt efni á að eiga og reka GSM-
síma eða hvort það gangi upp fjár-
hagslega að t.d. þrjú böm í fjöl-
skyldu séu öll með svona síma.
Foreldrar verða þá að standa
straum af kostnaðinum ef bömin
vinna hreinlega ekki með skólan-
um. Burtséð frá kostnaðinum getur
stöðug notkun GSM-síma verið
tmflandi fyrir nám og almenn sam-
skipti. Virðingarleysi gagnvart ná-
unganum getur falist í stöðugri
notkun þeirra. í einstökum tilvik-
um getur vissulega verið gott að
komast fljótt í samband við foreldri
eða ungling en ég get ekki séð að sú
þörf sé alltaf jafnbrýn. Það var
nefnilega ekki erfitt fyrir fólk að ná
sambandi hvort við annað áður en
GSM-væðingin hófst og það em
ennþá símtæki um allt sem ódýr-
ara er að nota en GSM-sima.“ -hlh
Guöflnna Eydal sál-
fræöingur.
öryggi
Gisll Blóndal, mark-
aðs- og þjónustu-
ráðgjafi.