Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 15 I>V Sport Hesturinn skiptir miklu máli - 70% telja svo vera við kynningu á íslandi erlendis Gallup gerði könnun fyrir Lands- samband hestamannafélaga í október 1999. Markmiðið var tvenns konar, að kanna áhorf á þátt í Sjónvarpinu um Heimsleika íslenska hestsins í Þýska- landi og hversu miklu máli nokkur at- riði skiptu i kynningu á íslandi er- lendis. Þátttakendur í könnuninni voru 1.000 á aldrinum sextán til átta- tíu ára og var svörun um 72%. Þóra Ásgeirsdóttir, hestakona í Gusti í Kópavogi og ráðgjafl hjá Gallup, kynnti niðurstöður könnunar- innar á Landsþingi hestamannafélaga. „Það var ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því ákveðið var að bera íslenska hestinn saman við náttúrufegurð og hreinleika annars vegar og menninguna og söguna hins vegar, þegar spurt var hvað skipti máli 1 kynningum á íslandi erlendis. Niðurstaðan varð í stuttu máli sú að um 97% sögðu að það skipti miklu máli að nota náttúrufegurö og hrein- leika landsins i landkynningu og tæp- lega 90% að það skipti miklu máli að nota menningu og sögu landsins. Rúmlega 70% sögðu á hinn bóginn að þeim fyndist skipta miklu máli að nota íslenska hestinn við kynningu á íslandi eriendis," segir Þóra. Niðurstöður könnunarinnar um áhorf á þátt um Heimsleikana í Reiden voru að 38% höfðu séð þáttinn. Þóra segir að þetta áhorf sé hátt mið- að við rannsóknir á áhorfl almennt á dagskrá sjónvarpsstöðvanna. „Þetta áhorf er með því hærra sem við sjáum á einstökum þáttum í sjónvarpi. Þama eru um álíka áhorf að ræða og á íslenska skemmtiþætti og mjög stóra viðburði í íþróttunum svo sem úrslitakeppni karla í handbolta. Það kemur einnig fram að þeir sem horfðu á þáttinn segja í meira mæli en hinir að það sé mikilvægt að nota íslenska hestinn í landkynningum erlendis. Það er því vonandi að þessi þáttur hafi opnað augu fólks fyrir því hversu stór viðburður svona Heimsleikar eru,“ segir Þóra. -EJ HESTAmolar Islenski hesturinn skiptir miklu máli í kynningu á íslandi. DV-mynd EJ A undanfornum tveimur árum hafa Fáksmenn hóildið veðreiðar í Víðidal. Fyrra árið voru þeir í samstarfl við Ríkissjónvarpið og héldu eigin veð- banka en síðastliðið sumar sá Sýn um sjónvarps- útsendingar og íslenskar getraunir voru komnar með veðbanka á Netinu. Hjörtur Bergstað, varaformaður Fáks, hef ur staðið framarlega í skipulagningu mót- anna en hann hefur einnig brugðið sér á bak vekringum og þekkir því mótin jafnt sem mótshaldari og þátttakandi. „Það hafa orðið gífurlegar framfarir á skömmum tíma í kappreiðum á íslandi," segir Hjörtur. „Hér var algjör ládeyða í kappreiðum fyrir tveimur til þremur árum en nú hafa komið fram margir frábærir skeiðhestar og tímar þeirra eru betri en fyrr. í fyrra fóru sem dæmi þrír hestar undir gildandi íslandsmeti í 150 metra skeiði. Timar hafa batnað yflrhöfuð, ekki einungis hjá okkur á Fákskappreiðunum heldur og víðar. Einnig hafa orðið framfarir í stökkgreinunum, þar er mikil keppni og fram hafa komið margir frambæri- legir hestar þó tímar þeirra séu ekki eins og góðir og í skeiðinu. Menn eru famir að taka kapp- reiðar alvar- lega, því það er mikil vinna hjá knapa að þjálfa hesta sina fyrir mót. Það er ekki bara að stökkva á bak og þeysa af stað þeg- ar ræst er. Það hefur verið áhugi á þvi síðastliðin tíu ár að koma kapp- reiðum í sjónvarp. Það er hefð fyrir því í ná- grannalöndunum og er afar vinsælt sjónvarpsefhi. Við erum komn- af stað með sjónvarpsút- sendingar sem hafa vakið mikla athygli og áhuga og höfum haft gott sam- starf við báðar sjón- varpsstöðvamar RÚV og Sýn. Það er ljóst að þetta efni er komið til að vera. Það er mín skoðun að þetta sé eina leið hesta- mennskunnar til að ná til fólks og breiða út hestamennsku. Fólk vill sjá upphaf og endi eins og í kappreiðum en það þarf þekkingu og skilning til að geta fylgst með hringvallargreinunum. Síðastliðið sumar bættist þriðji aðilinn í hóp- ■- inn. íslenskar getraunir komu með leikinn Sigur- inn og keyrðu á Netinu. Það gekk mjög vel og það vora engir hnökrar á kerfinu. Við þurfum þó að fá meira fjármagn til að kynna þetta betur. Að fenginni reynslu lítur þetta þannig út að við sérnn á réttri leið. Þetta er dýrt og mannfrekt en Fákur er stórt félag og á marga góða að. Ég sé fyr- ir mér að veðreiðamar geti orðið ein stærsta tekjulind Fáks á næstu árum. Við þurfum þvi að huga að nokkrum atriðum sem snerta kappreiö- cimar til að gera þær öraggari og ábyggilegri fyr- ir knapa og áhorfendur svo sem það að allir dóm- arar og hlaupagæslumenn séu með dómarapróf eins og í öðrum keppnisgreinum í hestamennsk- unni. Það þarf að hætta að líta á kappreiðar sem annars flokks grein. Það em töluverðir peningar að koma inn í kappreiðamar. Fyrirtæki styrkja útsendingamar og greitt er verðlaunafé og því þarf að standa vel að þeim. Hefð fyrir kappreiðum hefur ekki verið um langa tíð á íslandi og það mun taka tíma að búa til hefð og áhuga, en ég hef þá trú að það megi takast,“ segir Hjörtur Bergstað. -EJ HK KVNBÓTAHVT I \DAyuomutoHHA PÓR \UI\\ lf,»A»n ALDARREIÐ Suirfdætskir hcstur Ofi hcstamena á 20. 6!d , m ■ ■ I Hjörtur Bergstað, / * .SÉ& t varafor- JÉHI lmaður *. \ Fáks, hefur j \ gaman af fj I keppnis- J skeiði og staðið framarlega í skipu- lagningu móta. DV-mynd E.J Nýlega kom út fyrsta hefti Hrossarœktarinnar 1999. Bændasamtök íslands gefa rit- ið út og er Ágúst Sigurðs- son ritstjóri. Aðalefni ritsins er kynbótamat undaneldis- hrossa að lokn- um dómum sumarsins í ágústlok. Kyn- bótamatið er reiknað út sam- kvæmt BLUB aðferðinni miðað við fjölbreytu- einstaklingslíkan þar sem dómar á hrossunum allt frá árinu 1961 og allar þekktar ættemistengingar era lagðar til grundvallar. Sem dæmi má nefna að stóðhesturinn Orri frá Þúfu er með langhæsta aðalein- kunn stóðhesta með 50 eða fleiri dæmd afkvæmi eða 137 stig. Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út Aldarreið - svarf- dœlskir hestar og hestamenn á 20. öld og er Þórarinn Hjartar- son ritstjóri. í bókinni er fjallaö um sögu hestamannafélagsins Hrings í Svarfaðardal en einnig er seilst til baka og litið á þætti hrossa í atvinnu- og mann- lífi byggðarlagsins. Helstu heim- ildir era fundargerðir Hrings, sögumenn og langminnugt fólk. í bókinni era marg- ar sögur af eftir- minnileg- um hest- um, vísur og mynd- ir. Einnig era birt úrslit úr mörgum mótum Hrings. Eiðfaxi hefur opnað fréttarás fyrir hestamenn á slóðinni Eid- faxi.is Munið að ýta á íslenska fán- ann ef þið ætlið að kikja á frétta- vefinn á íslensku. Að sögn Jens Einarssonar, ritstjóra Eiðfaxa, verður reynt að halda úti fréttaskrifúm með að minnsta kosti einni nýrri frétt daglega. 1 fréttarásina skrifar Jens sjálfur, Solveig Ólafsdóttir, Hulda Geirsdóttir o.fl. Þar er sem stendur get- raunaleikur í gangi og eru verðlaunin skólavist í Reiðskól- anum á Ingólfshvoli. Heyrst hefur af samtökum kvenna sem eru kölluð Secret Society. Þetta era allt konur sem tengjast hesta- mennskunni á ein- hvern hátt en hrossa- rækt er að- al- áhuga- málið. Kon- emn tugur og hitt- ast og ræða málin frjálslega. Ekki fæst uppgeflð hverjar era í hópn- um, að sögn Huldu Geirsdóttur, fram- kvæmdastjóra Fé- lags hrossabænda. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.