Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Qupperneq 16
16 T ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER 1999 ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER 1999 25 ?- Sport DV Sport Bland í poka íslendingaliöió AGF vann þýðingar- mikinn sigur í dönsku A-deUdinni i knattspyrnu á sunnudaginn þegar liðið lagði AB á útivelli, 2-3. Bo Nil- sen skoraði öll mörk AGF sem er í 10. sæti af 12 liðum með 15 stig en í fall- sætunum eru Esbjerg með 14 stig og Vejle 11. Ólafur H. Kristjánsson lék allan leikinn fyrir AGFen Tómas Ingi Tómasson spilaði ekki. Herfólge er á toppnum með 31 stig, Bröndby 29 og AaB og AB eru með 26 stig. Auóur Kristmannsdóttir sigraði á fyrsta kvennamóti keppnistímabils- ins í snóker um helgina. Auður hafði betur gegn Rós Magnúsdóttur, 2-1, í hörkuspennandi úrslitaleik. Þá var leikið i 2. ílokki karla og þar sigraði Börkur Sigurósson Gary Vinson í úrslitaleik, 4-3. Þetta var þriðja stiga- mótið i 2. flokki og er Börkur á toppnum með 820 stig, Gary Vinson er með 550 stig og Guöjón Ó. Guö- mundsson hefur hlotið 400 stig. Egil „Drillo“ Olsen, þjálfari Wimble- don, var mjög ánægður með frammi- stöðu sinna manna gegn Leeds á laug- ardaginn. „Þetta var án efa besti leik- ur okkar á tímabilinu," sagði Olsen en hans menn héldu marki sínu hreinu i fyrsta sinn í 29 leikjum. Þess má geta að Wimbledon hefúr ekki tapað leik siðan Hermann Hreiðarsson hóf að leika með liðinu en hann átti mjög góðan leik gegn Leeds. Hermann Hreiðarsson er einn fjög- urra leikmanna Wimbledon sem valinn var í lið vikunnar hjá breska blaðinu Daily Mail. Hinir eru Kenny Cunningham, Marcus Gayle og John Hart- son. Egil Olsen var útnefndur þjálfari vik- unnar í sama blaði. Þorsteinn Páll Hœngsson og Sara Jónsdóttir, bæöi úr TBR, sigruðu i karla- og kvennaflokki á einliðamóti TBR sem fram fór um helgina. Þor- steinn Páll lagði Orra Árnason, TBR, i úrslitum, 15-8, 13-15 og 15-10. Sara lagði Vigdisi Ásgeirs- dóttur, TBR, í úrslit- um í kvennaflokki, 11-3 og 11-7. í A-flokki karla sigraði Davíð Thor Guömundsson, TBR, og í A-flokki kvenna sigraði Halldóra Elín Jónsdóttir, TBR. Paul Lambert, hinn öflugi miðju- maður hjá Celtic, verður ekki með Skotum i leikjunum tveimur gegn Englendingum sem skera úr um hvor þjóðin kemst í úrslitakeppni Evrópu- mótsins. Lambert meiddist i leik Glasgowarliðanna Celtic og Rangers á sunnudaginn. Þetta eru vond tíðindi fyrir Skota enda Lambert einn af lykilmönnum skoska landsliðsins. Gunnleifur fer í Fram Gunnleifur Gunnleifsson knattspymumarkvörð- ur er á leið til Fram eftir tveggja ára dvöl í KR. Framarar óskuðu eftir því við KR-inga fyrir nokkru að fá Gunnleif til sín og samkvæmt heimildum DV hafa KR-ing- ar nú orðiö við því, enda ljóst að Kristján Finnbogason verður áfram í þeirra röðunj. Gunnleifur er 24 ára og lék í marki KR ríflega hálft tímabilið 1998 eft- ir að hafa komið þangað frá HK. í ár missti hann stöðuna á ný til Krist- jáns og lék Gunnleifur aðeins einn leik í úrvalsdeildinni. -VS Helgi Sigurðsson, knattspyrnumaður í Grikklandi: Einn frídagur á tíu vikum - Panathinaikos vann í gærkvöld og er í efsta sæti Panathinaikos, lið Helga Sigurðs- sonar, sigraði í gærkvöld Panili- akos, 0-1, á útivelli í grísku knatt- spymunni. Með sigrinum er liðið i efsta sæti með 19 stig en Olympi- akos er í öðm sæti með 18 stig. Þessi félög mætast í innbyrðis viðureign í næstu umferð. „Ég spilaði ekki með í þessum leik en var á varamannabekknum. Það var mjög gott að vinna leikinn enda er Paniliakos mjög erfitt heim að sækja. Þjálfarinn vildi hvíla mig en hafa mig samt á bekknum ef eitthvað skyldi koma upp á. Ég þarf svo sannarlega á hvíldinni að halda enda hef ég að- eins fengið einn frídag á síðustu vikum síðan ég kom hingað. Hér er aldrei frí enda æft alla daga. Ég kom beint frá tímabilinu í Noregi þannig að maður er orðinn svolitið þreytt- ur. Það er gaman þegar liðinu geng- ur vel, þetta er stórklúbbur og menn þurfa að hafa fyrir því að eiga fast sæti í liðinu,“ sagði Helgi Sigurðsson sem hefur skorað 4 mörk í 9 leikjum. -JKS Paul Kitson hefur óskað eftir því að verða seldur frá West Ham. Hann seg- ist vera ósáttur meö stööu sína hjá fé- laginu en hann hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn að undanfómu. Kitson, sem hefúr skor- að 16 mörk i 45 leikjum „Hammers", er metinn á um 170 milljónir króna. Arnar Grétarsson lék ekki með AEK sem gerði 1-1 jafntefli gegn Ion- ikos í grísku A-deildinni i knatt- spymu á sunnudaginn. Víkingar voru sigursælir á Pepsi- mótinu i borðtennis sem fram fór í TBR-húsinu um helgina. í meistara- flokki karla sigraði Adam Haröar- son. í meistaraflokki kvenna sigraöi Ingibjörg Árnadóttir, í 1. flokki kvenna varð Kristín Bjarnadóttir hluskörpust og i 2. flokki karla sigr- aði Einar Gunnarsson. Allt þetta borðtennisfólk er í Víkingi. Út er komin bókin Rauðu djöflamir ________ en þetta er saga enska knattsþymuliðsins Manchester United sem þeir Agnar Freyr Helgason og Guójón Ingi Eiriksson hafa skráð. Bókin fjallar um þetta merka félag frá stoftium þess árið 1878 til ársins í dag. Margt hefur á daga Manchest- er United drifið á þessum tíma og saga þess hvort tveggja í senn, sveip- uð sorg og sigram hlaöin. Fjallað er um hið hörmulega flugslys í Múnchen þegar 8 leikmenn félagsins biðu bana og sagt er frá glæstum sigr- um félagsins i máli og myndum. Helgi Frímannsson, 19 ára gamall knattspymumaður úr Fram, heldur til Skotlands um miðjan mánuðinn og mun dvelja við æfingar hjá B-deild- arliðinu Invemess Caledonian Thistle í tvær vikur. -GH Herdís Slgurbergsdóttir kom heim frá Þýskalandi um helgina þar sem sérfræðingur í íþróttalækningum skoöaði hana. Gleymi aldrei Ryderbikarnum Sergio Garcia frá Spáni nýliöi ársins í golfi í Evrópu Spænski táningurinn Sergio Garcia hefur verið valinn nýliði árs- ins á Evrópumótaröð- inni í golfi. Kemur val þetta fáum á óvart þar sem hinn 19 ára Spán- verji hefur sýnt snilld- artilþrif á golfvöllum álfunnar á því ári sem senn er liðið. Þótt ótrúlegt megi virðast varð Sergio Garcia at- vinnumaður í apríl á þessu ári. Hann er af mörgum tal- inn mesta efni sem fram hefur komið i golfinu á síö- ari árum. „Þegar ég gerðist atvinnu- maður í apríl átti ég mér vissulega drauma hvað varðar ffamtíöina. Helsta markmiðið var hins vegar að öðlast réttindi til að keppa líka á bandarísku mótaröðinni og það tókst. Þessi útnefning er mikil við- urkenning og gaman að ná þessum áfanga sem maður fær aðeins tækifæri tU einu • sinni á ævinni,“ sagði Garcia í gær. Hann tók þátt í 12 mótum á mótaröð Evrópu á þessu ári. Honum tókst að sigra á tveimur þeirra, Irish Open og German Masters. Samtals halaði hann inn rúmar 100 mUljónir króna í verðlaunafé. Yngstur í Ryder- bikarnum Sergio Garcia varð í þriðja sæti í keppninni um besta kylfing Evrópu 1999. Colin Montgomerie sigraði sjöunda árið í röð og Lee Westwood varð í ööru sæti. Þá varð Garcia yngsti kylfmgur sög- unnar tU að leika með Ryder- bikarliði er Evrópa lék gegn Bandarikjunum sl. sumar. „Ég mun aldrei gleyma Ryderbikarnum. Vonandi á ég eftir að leika oft í liði Evr- ópu í framtíðinni og að sjálf- sögðu stefni ég að því að kom- ast í lið Evrópu 2001 og hjálpa liöinu tU að vinna aftur Ryderbikarinn.“ Auk þess að vinna mótin tvö á írlandi og Þýskalandi varð Garcia í öðru sæti á PGA-meistararamótinu í Bandaríkjunum. Garcia er annar Spánverj- inn sem nær þeim árangri að verða kosinn nýliði ársins í Evrópu. Jose Maria Olazabal vann þessa nafnbót árið 1986. -SK Sámal Joensen, til vinstri, handsalar samninginn við fulltrúa Leifturs, Steingrím Erlingsson, í Færeyjum um helgina. Til hægri er Jens Martin Knudsen, þjálfari Leifturs. DV-mynd Sveinur Tróndarsson Allan Simonsen um Leiftursmanninn: „Lykilmaður" Sámal Joensen, hinn nýi leik- maður knattspymuliðs Leifturs, fær mikið hrós frá landsliðsþjálf- ara Færeyja, AUan Simonsen, í grein sem birtist í færeyska dag- blaðinu Sosialurin fyrir helgina. AUan Simonsen, sem var knatt- spymumaður ársins í Evrópu á sínum tíma, segir að Joensen leiki svipað hlutverk í færeyska lands- liðinu og Jens Jöm Bertelsen gerði í þvi danska á sínum tíma. „Bertelsen var einn þeirra sem ekki bar mikið á og margir gagn- rýndu að hann væri í liðinu, því ' hann var ekki eins áberandi og við sem voram í sókninni og skor- uðum mörkin. En þjálfarinn, Sepp Piontek, sagði þá itrekað að Bertel- sen væri í lykilhlutverki, og það sama segi ég um Sámal. Hann vinnur mikið af boltum, brýtur niður fyrir mótherjunum og skUar vamarhlutverki svo félagar hans geti farið framar á vöUinn. Sámal er minn maður, það hef ég sagt honum, sama hvað skrifað er um frammistöðu hans í blöðunum," segir Simonsen við Sosialurin. -VS Byggi engar skýjaborgir Það vom bæði góðar fréttir og slæmar sem handknattleikskonan Herdís Sigurbergsdóttir kom með heim frá Þýskalandi, þar sem hún hitti þarlendan sérfræðing í íþrótta- lækningum. Herdís hefur átt í miklum erfið- leikum vegna slits á hásin sem hún varð fyrir í landsleik í janúar sl. Hásinin greri ekki og síðan kom í ljós sýking ofarlega 1 sininni sem leiddi tU þess að nær útUokað var talið að sinin kæmist nokkm sinni að neinu gagni og varanleg fötlun blasti við þessari afrekskonu. En eins og DV hefur greint frá þá hafði Herdís spurnir af þýskum sér- fræðingi sem hefur annast marga þekkta íþróttamenn, m.a. tugþrautarkappana Erki Nool og Thomas Dvorak, og er aufúsugestur á stórmótum eins og Ólympíuleik- um og heimsmeistaramótum. Hann vUdi fá Herdísi tU skoðunar og hélt hún utan á miðvikudag. „Þegar ég kom á stofuna tU hans gerði hann sér strax grein fyrir al- vöru málsins og því hversu Ula hásinin er farin. En alvarlegast taldi hann þó að það hefúr verið og er drep í hælbeininu sem gerði möguleika á aðgerð núna að engu,“ sagði Herdís í samtali við DV. Þriggja mánuða lyfjakúr „Það vora vissulega vonbrigði að fá þær fréttir að aðgerð á þessu stigi væri ekki möguleg. Það kom mér þó ekki mjög mikiö á óvart þar sem ég hafði verið með og kvartað um stanslausa verki í hælnum án þess að um það heföi verið hirt. Þýski sérfræðingurinn setti mig strax á lyfjakúr tU að byggja beinið upp að nýju. Þetta er sterkur kúr þar sem ég þarf að sprauta mig á hverjum degi tU að stöðva drepið og byggja upp hælbeinið. Þá fékk hann mér rafbylgjutæki tU að byggja upp kálfavöðvann svo hann verði tUbú- inn að taka við nýrri hásin. Við höf- um mælt okkur mót að nýju eftir þrjár mánuði en þá á kálfínn að vera orðinn virkur og hælbeinið orðið það þétt að það verði hægt að græða í mig nýja sin. Þýski sérfræðingurinn ráðfærði sig við svissneskan starfsfélaga sinn og í sameiningu tóku þeir þá ákvörðun að besti kosturinn væri að græða í mig sin úr látnum ein- staklingi," sagði Herdís. En verdur kostnaóurinn af þessari aögerð ekki gríöarlegur? „Jú, það er alveg ljóst en það er góður hópur fólks að vinna í þeim málum með okkur. Góðu fréttirnar em þær að ég finn að ég er í góðum höndum og hef fengið nýja von um meiri bata.“ Eitt skref í einu Hvað með framtíðarhorfurnar? „í raun og veru er ekkert hægt að segja tU um það fyrr en aUt er um garð gengið. í dag tek ég eitt skref i einu. Það þurfa svo margir þættir að ganga upp, hælbeinið þarf að þéttast, kálfinn þarf að taka við sér og likaminn að samþykkja nýju sinina. Það er ekki fyrr en þessu öUu er lokið sem það kemur í ljós hversu mikiU batinn verður. Ég ætla ekki að byggja mér neinar skýjaborgir þar um, tU þess hef ég faUið of oft.“ -ih Bland i poka Körfuknattleiksmaðurinn Falur Haröarson skoraði 15 stig fyrir ToPo Helsinki þegar liðið tapaði, 100-82, fyrir Sakaiaui frá Litháen i riðla- keppni Saporta-Evrópukeppninnar í körfuknattleik i siðustu viku. ívar Ingimarsson lék ailan leikinn með Torquay sem sigraði Rochdale, 1-0, i ensku D-deildinni í knattspymu á laugardag. ívar leikur einn leik til viðbótar áður en hann fer til síns nýja félags, Brentford. Stefán Þ. Þórðarson skoraöi mark Uerdingen sem gerði jafntefli, 1-1, við Verl í þýsku C-deildinni í knatt- spymu um helgina. Hann og Sigurö- ur Örn Jónsson léku aUan leikinn með Uerdingen. Helgi Kolviösson fékk hæstu ein- kunn leikmanna Mainz í blaðinu Kicker, 2,5, eftir að lið hans gerði 0-0 jafntefli á útivelli við Oberhausen í þýsku B-deildinni í knattspyrnu á sunnudaginn. Mainz er í 9. sæti með 15 stig en efst eru Köln og Cottbus með 24 stig og TB Berlín með 19 stig. Peter Coates og Keith Humphreys, fyrrum aðaleigendur Stoke City, munu sitja áfram i stjórn félagsins eftir yfirtöku íslensku fjárfestanna, Stoke Holding, samkvæmt fréttum á heimasíöu Stoke og fréttavefnum Teamtalk í gær. Sagt er að íslending- amir ætli að nýta sér reynslu tví- menningana en það falli ekki I góðan jarðveg hjá stuðningsmönnum Stoke sem hefur lengi verið illa við þá Coates og Hmnphreys. -VS Dregið í bikarkeppninni í handbolta: Stórleikir Það verða nokkrir hörkuleikir í 16-iða úrslitum bikarkeppni karla í handknatteik en dráttur fóra fram í gær. Leikirnir fara fram dagana 16.-18. nóvember. Bikarmeistarar Aftureldingar fara vestur á ísafjörð og mæta þar heimamönnum í Herði. Leiðin fyr- ir Mosfellinga í næstu umferð ætti því að vera greið. KA-menn taka á móti Fram á Akureyri og er þar sérstaklega áhugaverður leikur á ferð. FH-ingar drógust gegn Stjörn- unni og eiga heimaleik í Krikanum og Haukarnir fengu heimaleik gegn Valsmönnum. Aðrir leikir í 16-liða úrslitunum era viðureignir á milli ÍH og HK, B-liðs Vals leik- ur gegn ÍR, Hraðlestin gegn Vík- ingi og Grótta/KR leikur gegn ÍBV í kvennaflokki drógust Eyja- stúlkur á móti Haukum, FH fékk Víking, B-lið Stjörnunnar leikur gegn ÍR og Breiðablik leikur heima gegn toppliði deildarinnar, Gróttu/KR. Valur, Fram og Stjaman sitja hjá. -JKS Körfuknattleikur: Herbert með 19 Herbert Arnarson var i aðalhlut- verki hjá Donar Groningen og skor- aði 19 stig þegar liðið vann góðan útisigur á Gunco Rotterdam, 54-62, í hollensku A-deildinni í körfuknatt- leik um helgina. Donar komst þar með upp fyrir Gunco og er í 7. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 11 leiki. -VS Meistaradeildin í handknattleik: Börsungar sterkir Önnur umferð riðlakeppni meist- Lasko og Hapoel eru með 4 stig en aradeildar Evrópu í handknattleik Iskra og H.C. Alpi ekkert. var leikin um helgina og urðu úr- c-riðill: slitin þessi: Suhr-Skjem..............28-26 A-riðill: Badel Zagreh-Zaporozhe..28-25 Kiel-Sandefjörd .........34-21 Badel Zagreb er með 4 stig, Za- Ademar Leon-Montpellier . 37-20 porzhe 2, Suhr 2, Skjem 0. Kiel er með 4 stig, Ademar Leon D-riðill: 2, Sandeíjörd 2, Montpellier 0. Fotex Vesprém-Volgograd .26-22 Magnus Wislander var marka- Barcelona-Partizan......32-19 hæstur í liði Kiel með 6 mörk. Barcelona er með 4 stig, Partizan 2, Vesprém 2, Volograd 0. B-riöill: Prinsinn Urdangarin var atkvæða- Hapoel Rishon-Iskra........... 37-30 mestur í liði Börsunga með 6 mörk. Celje Piovama-H.C. Alpi . 37-22 -GH Enn eitt mark Erlu Erla Hendriksdóttir skor- aði eitt mark í 5-0 sigri Fredriksberg á Rodovre í dönsku A-deildinni í knatt- spymu á laugardag. Leikur- inn var næstsíðasti leikur Fredriksberg í deildinni fyr- ir vetrarhlé og er liðiö i fimmta sæti deildarinnar með 18 stig eftir 14 leiki. Erla lék ekki allan leikinn þar sem hún á enn í meiðsl- um í læri, sem hún vonast til að nái að jafna sig í vetr- arfríinu. -ih Bikarinn í körfuknattleik: Meistararnir mæta Snæfelli Á sunnudagin var dregið til 16 liða úrslitanna í bik- arkeppni KKÍ. Bikarmeistarar Njarðvíkinga ættu að eiga góða möguleika á að komast í 8-liða úrslitin en þeir mæta Snæfelli á heimavelli. Aðrir leikir í keppninni eru þeir að Örninn mætir úrvalsdeildarliði Hauka, Hamar og Skallagrímur leika í Hvergerði, Selfyssingar taka á móti Akumesingum, bæjarliðin Grindavik og GG etja kappi saman, KFÍ leikur gegn ÍR á ísafirði, TindastóU dróst gegn Stafholtstungum og Reynir gegn KR í Sandgerði. Leikimir fara fram 11. og 12. desember. -GH Körfuknattleikur: Grikki til KFI Úrvalsdeildarlið KFÍ í körfu- knattleik á von á liðsstyrk á næst- unni en Grikkinn Babis Patelis er á leiö til félagsins. Að sögn Guðjóns Þorsteinssonar, körfúboltafrömuð- ar á ísafirði, er stefnt að því að Grikkinn komi til landsins á fimmtudaginn og hann mun leika sinn fyrsta leik með KFÍ gegn Þór á ísafirði þann 5. desember. Patelis, sem hefur verið að spila á Spáni, er 25 ára gamall fram- herji, 2,05 metrar á hæð. „Okkur hefur skort hæð inni í teignum og ég er viss um að Grikkinn mun bæta verulega úr því og styrkja okkar lið til muna. Okkur hefur kannski ekki gengið sem skyldi nú i upphafi mótsins en við ætlum að nota fríið sem er fram undan vel og ég lofa því að við mætum sterkir til leiks eftir það,“ sagði Guðjón í samtali við DV í gær. -GH Júdó: Snævar Jótlandsmeistari Snævar Már Jónsson, júdómaður úr Júdófélagi Reykjavík- ur, er að gera það gott í Danaveldi. Um helgina varð hann Jót- landsmeistari í -66 kg flokki og voru þetta hans þriðju verð- laun á mótum erlendis í haust. Á dögunum sigraði hann á móti í Kolding í Danmörku. Þar keppti hann reyndar upp fyr- ir sig í þyngdarflokki eða í -73 kg flokki. Þá vann Snævar til bronsverðlauna með sínu félagi í sveitakeppni félaga sem fram fór í Þýskalandi en hann vann þar alla sína andstæð- inga. Á Jótlandsmótinu voru keppendur 300 talsins í öllum ald- ursflokkum. Snævar keppti í flokki 15-19 ára og þar vann hann allar sínar viðureignir á ippon sem er fullnaðarsigur. Snævar fór til Vejen í Danmörku í ágústmánuði og er þar í sérstökum júdóskóla auk þess sem hann stundar heföbund- ið nám. Hann hefur hingað til keppt í -60 kg flokki hér á landi en er nú að færast um flokk og verður spennandi að sjá hann á íslandsmótinu sem haldið verður eftir áramótin. -GH Nestor Fabbri, argentlnskur vamar- maður sem leikur með frönsku bikar- meisturunum í Nantes, verður að gangast undir uppskurð vegna meiðsla á hné. Þetta er mikið áfall fyrir Nantes sem á í harðri fallbar- áttu í frönsku knattspymunni. Leon Stukelj frá Slóveníu lést sl. nótt en hann var elsti ólympíumeistarinn sem var á fifi. Stukelj hefði orðið 101. árs ef hann hefði lifað fjóram dögum lengur. Hann vann á ferli sinum til sex gullverðlauna í fimleikum á ÓL en fyrsta gullið vann hann á ÓL árið 1924 eða fyrir 75 árum. Fernando Hierro, einn sterkasti leikmaður Real Ma- drid i knattspyrnu, verður frá æfmgum og keppni næstu þtjár vikurnar vegna meiðsla. Ekki eru þessar fréttir til að létta lundina hjá að- standendum félagsins en Hierro hefur þegar misst af fimm leikjum á leiktíðinni. Leikmönnum Arsenal gengur iila að klára leiki liðsins og varla líður sá leikur að einum eða fleiri leikmönn- um sé ekki vikið af leikvelli. Svían- um Fredrick Ljungberg var vísað af leikvelli í leik Arsenal og Tottenham um liðna helgi og siðan fylgdi Mart- in Keown í kjölfarið. Patrick Vieira kvaddi svo auðvitað sína menn i bili með gulu spjaldi áður en hann fer i sex leikja bann vegna villimannslegr- ar framkomu á dögunum er hann hrækti framan i andstæðing sinn. David Ginola hjá Tottenham sagði í gær að hann gæti staðfest við enska knattspyrnusambandið ef eftir þvi yrði leitað að Ljungberg hefði ekki brotið á sér er hann var rekinn af leikvefii sl. sunnudag. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virð- ist ekki geta haft hem- il á sínum mönnum. Frá því hann tók við liðinu fyrir þremur árum hefur hann mátt horfa á eftir lærisvein- um sínum í sturtu 26 sinnum fyrir lok leik- tima. Paolo Maldini og Christian Vieri leika ekki með ítölum vináttulands- leikinn gegn Belgum sem verður háð- ur í Lecce á laugardaginn kemur. Þeir eiga báðir við meiðsli að stríöa. Arsenal sigraöi Real Madrid, 3-1, í gærkvöld í ágóðaleik sem haldinn var til heiðurs Lee Dixon sem leikið hef- ur í 12 ár fyrir félagið. Bergkamp, Viera og Malz skoruðu fyrir Arsenal en Karembeu mark Real Madrid. 22 þúsund áhorfendur mættu á High- bury. Sam Cassell, leikmaður Milwaukee Bucks, var í gærkvöld kjörinn leikmaður vikunnar í NBA. Hann skoraði í þremur leikjum að meðaltali 29 stig, var með 9 stoðsendingar og skotnýting hans var 69%- -SK/JKS i NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt: Philadelphia - Seattle....117-98 Iverson 37, Huges 27 - Payton 28, Patterson 22. New York - Milwaukee ... 111-101 Houston 30, Camby 23 - Robinson 23, Allen 18. Houston - Orlando.........97-102 Mobley 25, Barkley 18 - Gatling 22, Amaechi 18. Denver - Atlanta.........115-110 LaFrentz 24, Van Exel 23 - Rider 28, Jackson 16. LA Clippers - Utah Jazz ... 79-94 Taylor 23, Anderson 11 - Malone 24, Homacek 16. Úrslitin í fyrrinótt: Toronto - Charlotte ......109-99 Carter 25, Mcgrady 14, Curry 14 - Jones 26, Wesley 23, Phills 18. New Jersey - Washington . 112-87 Newman 25, Van Horn 23, Gill 19 - Hamilton 14, Howard 10, Strickland 10. Phoenix - SA Spurs ........77-74 Kidd 23, Rogers 18, Gugliotta 12 - Duncan 15, Robinson 12, Jackson 12. LA Lakers - Dallas........105-97 Shaq 30, Rice 20, Fox 12 - Finely 29, Nowitski 20, Nash 11. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.