Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 17
16
T
ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER 1999
25 ?-
Sport
DV
Sport
Bland í poka
íslendingaliöió AGF vann þýðingar-
mikinn sigur í dönsku A-deUdinni i
knattspyrnu á sunnudaginn þegar
liðið lagði AB á útivelli, 2-3. Bo Nil-
sen skoraði öll mörk AGF sem er í 10.
sæti af 12 liðum með 15 stig en í fall-
sætunum eru Esbjerg með 14 stig og
Vejle 11. Ólafur H. Kristjánsson lék
allan leikinn fyrir AGFen Tómas
Ingi Tómasson spilaði ekki. Herfólge
er á toppnum með 31 stig, Bröndby 29
og AaB og AB eru með 26 stig.
Auóur Kristmannsdóttir sigraði á
fyrsta kvennamóti keppnistímabils-
ins í snóker um helgina. Auður hafði
betur gegn Rós Magnúsdóttur, 2-1, í
hörkuspennandi úrslitaleik. Þá var
leikið i 2. ílokki karla og þar sigraði
Börkur Sigurósson Gary Vinson í
úrslitaleik, 4-3. Þetta var þriðja stiga-
mótið i 2. flokki og er Börkur á
toppnum með 820 stig, Gary Vinson
er með 550 stig og Guöjón Ó. Guö-
mundsson hefur hlotið 400 stig.
Egil „Drillo“ Olsen, þjálfari Wimble-
don, var mjög ánægður með frammi-
stöðu sinna manna gegn Leeds á laug-
ardaginn. „Þetta var án efa besti leik-
ur okkar á tímabilinu," sagði Olsen en
hans menn héldu marki sínu hreinu i
fyrsta sinn í 29 leikjum. Þess má geta
að Wimbledon hefúr ekki tapað leik
siðan Hermann Hreiðarsson hóf að
leika með liðinu en hann átti mjög
góðan leik gegn Leeds.
Hermann Hreiðarsson er einn fjög-
urra leikmanna
Wimbledon sem valinn
var í lið vikunnar hjá
breska blaðinu Daily
Mail. Hinir eru Kenny
Cunningham, Marcus
Gayle og John Hart-
son. Egil Olsen var
útnefndur þjálfari vik-
unnar í sama blaði.
Þorsteinn Páll Hœngsson og Sara
Jónsdóttir, bæöi úr TBR, sigruðu i
karla- og kvennaflokki á einliðamóti
TBR sem fram fór um helgina. Þor-
steinn Páll lagði Orra Árnason,
TBR, i úrslitum, 15-8,
13-15 og 15-10. Sara
lagði Vigdisi Ásgeirs-
dóttur, TBR, í úrslit-
um í kvennaflokki,
11-3 og 11-7. í A-flokki
karla sigraði Davíð
Thor Guömundsson,
TBR, og í A-flokki kvenna
sigraði Halldóra Elín
Jónsdóttir, TBR.
Paul Lambert, hinn öflugi miðju-
maður hjá Celtic, verður ekki með
Skotum i leikjunum tveimur gegn
Englendingum sem skera úr um hvor
þjóðin kemst í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins. Lambert meiddist i leik
Glasgowarliðanna Celtic og Rangers
á sunnudaginn. Þetta eru vond
tíðindi fyrir Skota enda Lambert einn
af lykilmönnum skoska landsliðsins.
Gunnleifur
fer í Fram
Gunnleifur Gunnleifsson knattspymumarkvörð-
ur er á leið til Fram eftir tveggja ára dvöl í KR.
Framarar óskuðu eftir því við KR-inga fyrir
nokkru að fá Gunnleif til sín og samkvæmt heimildum DV hafa KR-ing-
ar nú orðiö við því, enda ljóst að Kristján Finnbogason verður áfram í
þeirra röðunj.
Gunnleifur er 24 ára og lék í marki KR ríflega hálft tímabilið 1998 eft-
ir að hafa komið þangað frá HK. í ár missti hann stöðuna á ný til Krist-
jáns og lék Gunnleifur aðeins einn leik í úrvalsdeildinni. -VS
Helgi Sigurðsson, knattspyrnumaður í Grikklandi:
Einn frídagur
á tíu vikum
- Panathinaikos vann í gærkvöld og er í efsta sæti
Panathinaikos, lið Helga Sigurðs-
sonar, sigraði í gærkvöld Panili-
akos, 0-1, á útivelli í grísku knatt-
spymunni. Með sigrinum er liðið i
efsta sæti með 19 stig en Olympi-
akos er í öðm sæti með 18 stig.
Þessi félög mætast í innbyrðis
viðureign í næstu umferð.
„Ég spilaði ekki með í þessum
leik en var á varamannabekknum.
Það var mjög gott að vinna leikinn
enda er Paniliakos mjög erfitt heim
að sækja. Þjálfarinn vildi hvíla mig
en hafa mig samt
á bekknum ef eitthvað skyldi koma
upp á. Ég þarf svo sannarlega á
hvíldinni að halda enda hef ég að-
eins fengið einn frídag á síðustu
vikum síðan ég kom hingað. Hér er
aldrei frí enda æft alla daga. Ég kom
beint frá tímabilinu í Noregi þannig
að maður er orðinn svolitið þreytt-
ur. Það er gaman þegar liðinu geng-
ur vel, þetta er stórklúbbur og menn
þurfa að hafa fyrir því að eiga fast
sæti í liðinu,“ sagði Helgi
Sigurðsson sem hefur skorað 4
mörk í 9 leikjum. -JKS
Paul Kitson hefur óskað eftir því að
verða seldur frá West Ham. Hann seg-
ist vera ósáttur meö stööu sína hjá fé-
laginu en hann hefur mátt sætta sig
við að verma varamannabekkinn að
undanfómu. Kitson, sem hefúr skor-
að 16 mörk i 45 leikjum „Hammers",
er metinn á um 170 milljónir króna.
Arnar Grétarsson lék ekki með
AEK sem gerði 1-1 jafntefli gegn Ion-
ikos í grísku A-deildinni i knatt-
spymu á sunnudaginn.
Víkingar voru sigursælir á Pepsi-
mótinu i borðtennis sem fram fór í
TBR-húsinu um helgina. í meistara-
flokki karla sigraði Adam Haröar-
son. í meistaraflokki kvenna sigraöi
Ingibjörg Árnadóttir, í 1. flokki
kvenna varð Kristín Bjarnadóttir
hluskörpust og i 2. flokki karla sigr-
aði Einar Gunnarsson. Allt þetta
borðtennisfólk er í Víkingi.
Út er komin bókin Rauðu djöflamir
________ en þetta er saga enska
knattsþymuliðsins
Manchester United sem
þeir Agnar Freyr
Helgason og Guójón
Ingi Eiriksson hafa
skráð. Bókin fjallar um
þetta merka félag frá
stoftium þess árið 1878
til ársins í dag. Margt
hefur á daga Manchest-
er United drifið á þessum tíma og
saga þess hvort tveggja í senn, sveip-
uð sorg og sigram hlaöin. Fjallað er
um hið hörmulega flugslys í
Múnchen þegar 8 leikmenn félagsins
biðu bana og sagt er frá glæstum sigr-
um félagsins i máli og myndum.
Helgi Frímannsson, 19 ára gamall
knattspymumaður úr Fram, heldur
til Skotlands um miðjan mánuðinn og
mun dvelja við æfingar hjá B-deild-
arliðinu Invemess Caledonian
Thistle í tvær vikur. -GH
Herdís Slgurbergsdóttir kom heim frá Þýskalandi um helgina þar sem sérfræðingur í íþróttalækningum skoöaði hana.
Gleymi aldrei
Ryderbikarnum
Sergio Garcia frá Spáni nýliöi
ársins í golfi í Evrópu
Spænski táningurinn
Sergio Garcia hefur
verið valinn nýliði árs-
ins á Evrópumótaröð-
inni í golfi. Kemur val
þetta fáum á óvart þar
sem hinn 19 ára Spán-
verji hefur sýnt snilld-
artilþrif á golfvöllum
álfunnar á því ári sem
senn er liðið.
Þótt ótrúlegt megi virðast
varð Sergio Garcia at-
vinnumaður í apríl á þessu
ári. Hann er af mörgum tal-
inn mesta efni sem fram
hefur komið i golfinu á síö-
ari árum.
„Þegar ég gerðist atvinnu-
maður í apríl átti ég mér
vissulega drauma hvað
varðar ffamtíöina. Helsta
markmiðið var hins vegar
að öðlast réttindi til að
keppa líka á bandarísku
mótaröðinni og það tókst.
Þessi útnefning er mikil við-
urkenning og gaman að ná
þessum áfanga sem maður
fær aðeins tækifæri tU einu
• sinni á ævinni,“ sagði Garcia
í gær.
Hann tók þátt í 12 mótum á
mótaröð Evrópu á þessu ári.
Honum tókst að sigra á
tveimur þeirra, Irish Open og
German Masters. Samtals
halaði hann inn rúmar 100
mUljónir króna í verðlaunafé.
Yngstur í Ryder-
bikarnum
Sergio Garcia varð í þriðja
sæti í keppninni um besta
kylfing Evrópu 1999. Colin
Montgomerie sigraði sjöunda
árið í röð og Lee Westwood
varð í ööru sæti. Þá varð
Garcia yngsti kylfmgur sög-
unnar tU að leika með Ryder-
bikarliði er Evrópa lék gegn
Bandarikjunum sl. sumar.
„Ég mun aldrei gleyma
Ryderbikarnum. Vonandi á
ég eftir að leika oft í liði Evr-
ópu í framtíðinni og að sjálf-
sögðu stefni ég að því að kom-
ast í lið Evrópu 2001 og hjálpa
liöinu tU að vinna aftur
Ryderbikarinn.“
Auk þess að vinna mótin
tvö á írlandi og Þýskalandi
varð Garcia í öðru sæti á
PGA-meistararamótinu í
Bandaríkjunum.
Garcia er annar Spánverj-
inn sem nær þeim árangri að
verða kosinn nýliði ársins í
Evrópu. Jose Maria Olazabal
vann þessa nafnbót árið 1986.
-SK
Sámal Joensen, til vinstri, handsalar samninginn við fulltrúa Leifturs,
Steingrím Erlingsson, í Færeyjum um helgina. Til hægri er Jens Martin
Knudsen, þjálfari Leifturs. DV-mynd Sveinur Tróndarsson
Allan Simonsen um Leiftursmanninn:
„Lykilmaður"
Sámal Joensen, hinn nýi leik-
maður knattspymuliðs Leifturs,
fær mikið hrós frá landsliðsþjálf-
ara Færeyja, AUan Simonsen, í
grein sem birtist í færeyska dag-
blaðinu Sosialurin fyrir helgina.
AUan Simonsen, sem var knatt-
spymumaður ársins í Evrópu á
sínum tíma, segir að Joensen leiki
svipað hlutverk í færeyska lands-
liðinu og Jens Jöm Bertelsen gerði
í þvi danska á sínum tíma.
„Bertelsen var einn þeirra sem
ekki bar mikið á og margir gagn-
rýndu að hann væri í liðinu, því '
hann var ekki eins áberandi og við
sem voram í sókninni og skor-
uðum mörkin. En þjálfarinn, Sepp
Piontek, sagði þá itrekað að Bertel-
sen væri í lykilhlutverki, og það
sama segi ég um Sámal. Hann
vinnur mikið af boltum, brýtur
niður fyrir mótherjunum og skUar
vamarhlutverki svo félagar hans
geti farið framar á vöUinn. Sámal
er minn maður, það hef ég sagt
honum, sama hvað skrifað er um
frammistöðu hans í blöðunum,"
segir Simonsen við Sosialurin.
-VS
Byggi engar
skýjaborgir
Það vom bæði góðar fréttir og
slæmar sem handknattleikskonan
Herdís Sigurbergsdóttir kom með
heim frá Þýskalandi, þar sem hún
hitti þarlendan sérfræðing í íþrótta-
lækningum.
Herdís hefur átt í miklum erfið-
leikum vegna slits á hásin sem hún
varð fyrir í landsleik í janúar sl.
Hásinin greri ekki og síðan kom í
ljós sýking ofarlega 1 sininni sem
leiddi tU þess að nær útUokað var
talið að sinin kæmist nokkm sinni
að neinu gagni og varanleg fötlun
blasti við þessari afrekskonu.
En eins og DV hefur greint frá þá
hafði Herdís spurnir af þýskum sér-
fræðingi sem hefur annast marga
þekkta íþróttamenn, m.a.
tugþrautarkappana Erki Nool og
Thomas Dvorak, og er aufúsugestur
á stórmótum eins og Ólympíuleik-
um og heimsmeistaramótum. Hann
vUdi fá Herdísi tU skoðunar og hélt
hún utan á miðvikudag.
„Þegar ég kom á stofuna tU hans
gerði hann sér strax grein fyrir al-
vöru málsins og því hversu Ula
hásinin er farin. En alvarlegast
taldi hann þó að það hefúr verið og
er drep í hælbeininu sem gerði
möguleika á aðgerð núna að engu,“
sagði Herdís í samtali við DV.
Þriggja mánuða lyfjakúr
„Það vora vissulega vonbrigði að
fá þær fréttir að aðgerð á þessu stigi
væri ekki möguleg. Það kom mér þó
ekki mjög mikiö á óvart þar sem ég
hafði verið með og kvartað um
stanslausa verki í hælnum án þess
að um það heföi verið hirt.
Þýski sérfræðingurinn setti mig
strax á lyfjakúr tU að byggja beinið
upp að nýju. Þetta er sterkur kúr
þar sem ég þarf að sprauta mig á
hverjum degi tU að stöðva drepið og
byggja upp hælbeinið. Þá fékk hann
mér rafbylgjutæki tU að byggja upp
kálfavöðvann svo hann verði tUbú-
inn að taka við nýrri hásin. Við höf-
um mælt okkur mót að nýju eftir
þrjár mánuði en þá á kálfínn að
vera orðinn virkur og hælbeinið
orðið það þétt að það verði hægt að
græða í mig nýja sin.
Þýski sérfræðingurinn ráðfærði
sig við svissneskan starfsfélaga sinn
og í sameiningu tóku þeir þá
ákvörðun að besti kosturinn væri
að græða í mig sin úr látnum ein-
staklingi," sagði Herdís.
En verdur kostnaóurinn af
þessari aögerð ekki gríöarlegur?
„Jú, það er alveg ljóst en það er
góður hópur fólks að vinna í þeim
málum með okkur. Góðu fréttirnar
em þær að ég finn að ég er í góðum
höndum og hef fengið nýja von um
meiri bata.“
Eitt skref í einu
Hvað með framtíðarhorfurnar?
„í raun og veru er ekkert hægt að
segja tU um það fyrr en aUt er um
garð gengið. í dag tek ég eitt skref i
einu. Það þurfa svo margir þættir
að ganga upp, hælbeinið þarf að
þéttast, kálfinn þarf að taka við sér
og likaminn að samþykkja nýju
sinina. Það er ekki fyrr en þessu
öUu er lokið sem það kemur í ljós
hversu mikiU batinn verður. Ég
ætla ekki að byggja mér neinar
skýjaborgir þar um, tU þess hef ég
faUið of oft.“
-ih
Bland i poka
Körfuknattleiksmaðurinn Falur
Haröarson skoraði 15 stig fyrir ToPo
Helsinki þegar liðið tapaði, 100-82,
fyrir Sakaiaui frá Litháen i riðla-
keppni Saporta-Evrópukeppninnar í
körfuknattleik i siðustu viku.
ívar Ingimarsson lék ailan leikinn
með Torquay sem sigraði Rochdale,
1-0, i ensku D-deildinni í knattspymu
á laugardag. ívar leikur einn leik til
viðbótar áður en hann fer til síns
nýja félags, Brentford.
Stefán Þ. Þórðarson skoraöi mark
Uerdingen sem gerði jafntefli, 1-1, við
Verl í þýsku C-deildinni í knatt-
spymu um helgina. Hann og Sigurö-
ur Örn Jónsson léku aUan leikinn
með Uerdingen.
Helgi Kolviösson fékk hæstu ein-
kunn leikmanna Mainz í blaðinu
Kicker, 2,5, eftir að lið hans gerði 0-0
jafntefli á útivelli við Oberhausen í
þýsku B-deildinni í knattspyrnu á
sunnudaginn. Mainz er í 9. sæti með
15 stig en efst eru Köln og Cottbus
með 24 stig og TB Berlín með 19 stig.
Peter Coates og Keith Humphreys,
fyrrum aðaleigendur Stoke City,
munu sitja áfram i stjórn félagsins
eftir yfirtöku íslensku fjárfestanna,
Stoke Holding, samkvæmt fréttum á
heimasíöu Stoke og fréttavefnum
Teamtalk í gær. Sagt er að íslending-
amir ætli að nýta sér reynslu tví-
menningana en það falli ekki I góðan
jarðveg hjá stuðningsmönnum Stoke
sem hefur lengi verið illa við þá
Coates og Hmnphreys.
-VS
Dregið í bikarkeppninni í handbolta:
Stórleikir
Það verða nokkrir hörkuleikir í
16-iða úrslitum bikarkeppni karla í
handknatteik en dráttur fóra fram
í gær. Leikirnir fara fram dagana
16.-18. nóvember.
Bikarmeistarar Aftureldingar
fara vestur á ísafjörð og mæta þar
heimamönnum í Herði. Leiðin fyr-
ir Mosfellinga í næstu umferð ætti
því að vera greið. KA-menn taka á
móti Fram á Akureyri og er þar
sérstaklega áhugaverður leikur á
ferð. FH-ingar drógust gegn Stjörn-
unni og eiga heimaleik í Krikanum
og Haukarnir fengu heimaleik
gegn Valsmönnum. Aðrir leikir í
16-liða úrslitunum era viðureignir
á milli ÍH og HK, B-liðs Vals leik-
ur gegn ÍR, Hraðlestin gegn Vík-
ingi og Grótta/KR leikur gegn ÍBV
í kvennaflokki drógust Eyja-
stúlkur á móti Haukum, FH fékk
Víking, B-lið Stjörnunnar leikur
gegn ÍR og Breiðablik leikur heima
gegn toppliði deildarinnar,
Gróttu/KR.
Valur, Fram og Stjaman sitja
hjá.
-JKS
Körfuknattleikur:
Herbert með 19
Herbert Arnarson var i aðalhlut-
verki hjá Donar Groningen og skor-
aði 19 stig þegar liðið vann góðan
útisigur á Gunco Rotterdam, 54-62, í
hollensku A-deildinni í körfuknatt-
leik um helgina.
Donar komst þar með upp fyrir
Gunco og er í 7. sæti deildarinnar
með 10 stig eftir 11 leiki.
-VS
Meistaradeildin í handknattleik:
Börsungar sterkir
Önnur umferð riðlakeppni meist- Lasko og Hapoel eru með 4 stig en
aradeildar Evrópu í handknattleik Iskra og H.C. Alpi ekkert.
var leikin um helgina og urðu úr- c-riðill:
slitin þessi: Suhr-Skjem..............28-26
A-riðill: Badel Zagreh-Zaporozhe..28-25
Kiel-Sandefjörd .........34-21 Badel Zagreb er með 4 stig, Za-
Ademar Leon-Montpellier . 37-20 porzhe 2, Suhr 2, Skjem 0.
Kiel er með 4 stig, Ademar Leon D-riðill:
2, Sandeíjörd 2, Montpellier 0. Fotex Vesprém-Volgograd .26-22
Magnus Wislander var marka- Barcelona-Partizan......32-19
hæstur í liði Kiel með 6 mörk. Barcelona er með 4 stig, Partizan
2, Vesprém 2, Volograd 0.
B-riöill: Prinsinn Urdangarin var atkvæða-
Hapoel Rishon-Iskra........... 37-30 mestur í liði Börsunga með 6 mörk.
Celje Piovama-H.C. Alpi . 37-22 -GH
Enn eitt
mark Erlu
Erla Hendriksdóttir skor-
aði eitt mark í 5-0 sigri
Fredriksberg á Rodovre í
dönsku A-deildinni í knatt-
spymu á laugardag. Leikur-
inn var næstsíðasti leikur
Fredriksberg í deildinni fyr-
ir vetrarhlé og er liðiö i
fimmta sæti deildarinnar
með 18 stig eftir 14 leiki.
Erla lék ekki allan leikinn
þar sem hún á enn í meiðsl-
um í læri, sem hún vonast
til að nái að jafna sig í vetr-
arfríinu. -ih
Bikarinn í körfuknattleik:
Meistararnir
mæta Snæfelli
Á sunnudagin var dregið til 16 liða úrslitanna í bik-
arkeppni KKÍ. Bikarmeistarar Njarðvíkinga ættu að
eiga góða möguleika á að komast í 8-liða úrslitin en
þeir mæta Snæfelli á heimavelli.
Aðrir leikir í keppninni eru þeir að Örninn mætir
úrvalsdeildarliði Hauka, Hamar og Skallagrímur leika
í Hvergerði, Selfyssingar taka á móti Akumesingum,
bæjarliðin Grindavik og GG etja kappi saman, KFÍ
leikur gegn ÍR á ísafirði, TindastóU dróst gegn
Stafholtstungum og Reynir gegn KR í Sandgerði.
Leikimir fara fram 11. og 12. desember.
-GH
Körfuknattleikur:
Grikki til KFI
Úrvalsdeildarlið KFÍ í körfu-
knattleik á von á liðsstyrk á næst-
unni en Grikkinn Babis Patelis er
á leiö til félagsins. Að sögn Guðjóns
Þorsteinssonar, körfúboltafrömuð-
ar á ísafirði, er stefnt að því að
Grikkinn komi til landsins á
fimmtudaginn og hann mun leika
sinn fyrsta leik með KFÍ gegn Þór á
ísafirði þann 5. desember.
Patelis, sem hefur verið að spila
á Spáni, er 25 ára gamall fram-
herji, 2,05 metrar á hæð.
„Okkur hefur skort hæð inni í
teignum og ég er viss um að
Grikkinn mun bæta verulega úr
því og styrkja okkar lið til muna.
Okkur hefur kannski ekki gengið
sem skyldi nú i upphafi mótsins
en við ætlum að nota fríið sem er
fram undan vel og ég lofa því að
við mætum sterkir til leiks eftir
það,“ sagði Guðjón í samtali við
DV í gær.
-GH
Júdó:
Snævar Jótlandsmeistari
Snævar Már Jónsson, júdómaður úr Júdófélagi Reykjavík-
ur, er að gera það gott í Danaveldi. Um helgina varð hann Jót-
landsmeistari í -66 kg flokki og voru þetta hans þriðju verð-
laun á mótum erlendis í haust. Á dögunum sigraði hann á
móti í Kolding í Danmörku. Þar keppti hann reyndar upp fyr-
ir sig í þyngdarflokki eða í -73 kg flokki. Þá vann Snævar til
bronsverðlauna með sínu félagi í sveitakeppni félaga sem
fram fór í Þýskalandi en hann vann þar alla sína andstæð-
inga.
Á Jótlandsmótinu voru keppendur 300 talsins í öllum ald-
ursflokkum. Snævar keppti í flokki 15-19 ára og þar vann
hann allar sínar viðureignir á ippon sem er fullnaðarsigur.
Snævar fór til Vejen í Danmörku í ágústmánuði og er þar
í sérstökum júdóskóla auk þess sem hann stundar heföbund-
ið nám. Hann hefur hingað til keppt í -60 kg flokki hér á landi
en er nú að færast um flokk og verður spennandi að sjá hann
á íslandsmótinu sem haldið verður eftir áramótin. -GH
Nestor Fabbri, argentlnskur vamar-
maður sem leikur með frönsku bikar-
meisturunum í Nantes, verður að
gangast undir uppskurð vegna
meiðsla á hné. Þetta er mikið áfall
fyrir Nantes sem á í harðri fallbar-
áttu í frönsku knattspymunni.
Leon Stukelj frá Slóveníu lést sl. nótt
en hann var elsti ólympíumeistarinn
sem var á fifi. Stukelj hefði orðið 101.
árs ef hann hefði lifað fjóram dögum
lengur. Hann vann á ferli sinum til
sex gullverðlauna í fimleikum á ÓL
en fyrsta gullið vann hann á ÓL árið
1924 eða fyrir 75 árum.
Fernando Hierro, einn sterkasti
leikmaður Real Ma-
drid i knattspyrnu,
verður frá æfmgum
og keppni næstu
þtjár vikurnar vegna
meiðsla. Ekki eru
þessar fréttir til að
létta lundina hjá að-
standendum félagsins
en Hierro hefur þegar misst af fimm
leikjum á leiktíðinni.
Leikmönnum Arsenal gengur iila að
klára leiki liðsins og varla líður sá
leikur að einum eða fleiri leikmönn-
um sé ekki vikið af leikvelli. Svían-
um Fredrick Ljungberg var vísað af
leikvelli í leik Arsenal og Tottenham
um liðna helgi og siðan fylgdi Mart-
in Keown í kjölfarið. Patrick Vieira
kvaddi svo auðvitað sína menn i bili
með gulu spjaldi áður en hann fer i
sex leikja bann vegna villimannslegr-
ar framkomu á dögunum er hann
hrækti framan i andstæðing sinn.
David Ginola hjá Tottenham sagði í
gær að hann gæti staðfest við enska
knattspyrnusambandið ef eftir þvi
yrði leitað að Ljungberg hefði ekki
brotið á sér er hann var rekinn af
leikvefii sl. sunnudag.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virð-
ist ekki geta haft hem-
il á sínum mönnum.
Frá því hann tók við
liðinu fyrir þremur
árum hefur hann mátt
horfa á eftir lærisvein-
um sínum í sturtu 26
sinnum fyrir lok leik-
tima.
Paolo Maldini og Christian Vieri
leika ekki með ítölum vináttulands-
leikinn gegn Belgum sem verður háð-
ur í Lecce á laugardaginn kemur.
Þeir eiga báðir við meiðsli að stríöa.
Arsenal sigraöi Real Madrid, 3-1, í
gærkvöld í ágóðaleik sem haldinn var
til heiðurs Lee Dixon sem leikið hef-
ur í 12 ár fyrir félagið. Bergkamp,
Viera og Malz skoruðu fyrir Arsenal
en Karembeu mark Real Madrid. 22
þúsund áhorfendur mættu á High-
bury.
Sam Cassell, leikmaður Milwaukee
Bucks, var í gærkvöld kjörinn
leikmaður vikunnar í NBA. Hann
skoraði í þremur leikjum að
meðaltali 29 stig, var með 9
stoðsendingar og skotnýting hans var
69%- -SK/JKS
i
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Philadelphia - Seattle....117-98
Iverson 37, Huges 27 -
Payton 28, Patterson 22.
New York - Milwaukee ... 111-101
Houston 30, Camby 23 -
Robinson 23, Allen 18.
Houston - Orlando.........97-102
Mobley 25, Barkley 18 -
Gatling 22, Amaechi 18.
Denver - Atlanta.........115-110
LaFrentz 24, Van Exel 23 -
Rider 28, Jackson 16.
LA Clippers - Utah Jazz ... 79-94
Taylor 23, Anderson 11 -
Malone 24, Homacek 16.
Úrslitin í fyrrinótt:
Toronto - Charlotte ......109-99
Carter 25, Mcgrady 14, Curry 14 -
Jones 26, Wesley 23, Phills 18.
New Jersey - Washington . 112-87
Newman 25, Van Horn 23, Gill 19 -
Hamilton 14, Howard 10, Strickland 10.
Phoenix - SA Spurs ........77-74
Kidd 23, Rogers 18, Gugliotta 12 -
Duncan 15, Robinson 12, Jackson 12.
LA Lakers - Dallas........105-97
Shaq 30, Rice 20, Fox 12 -
Finely 29, Nowitski 20, Nash 11.
+