Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Síða 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Sviðsljós
Vinkonan í
vændishúsi
Mamma vinkonu Bmce Willis
hefur rekiö vændishús og Maria
Bravo hefur sjálf aðstoðað í hús-
inu við að afla starfsstúlkna og
við störf á bamum. Það er fyrr-
verandi kærasti Mariu, Andrew
Mark Deamer, sem segir frá
þessu. Andrew hitti Mariu á
Spáni þegar þau vora bæði 17 ára
og bjó með henni í fjögur ár.
Syrgir ekki leng-
ur Claudiu
David Copperfield er búinn að
jafna sig á skilnaðinum við ofur-
fyrirsætuna Claudiu Schiffer.
Hann er nefhilega búinn að finna
sér nýja leggjalanga fyrirsætu.
Terri Holladay heitir sú útvalda.
Hún er víetnömsk-bandarísk og
er 31 árs. Samkvæmt bandarísk-
um blöðum hittust þau fyrst fyrir
ári í Hong Kong á meðan ástin
blómstraði enn milli Davids og
Claudiu.
Jólahlaðborð • Jólafrésskemmtanir • Brúðkaup
Við bjóðum hrífandi salarkynni og lystilegar veitingar
- . . ^
Fjölbreytt úrval matseÖla. *
Stórir og litlir veislusalir. *
Borðbúnaöar- og dúkaleiga. *
Veitum persónulega *
róðgjöf vio undirbúning. *
Hafið samband við Guðrúnu eða Jönu.
RADISSON SAS, HOTEL ISIANDI
Sími 533 1100 • Fax 533 1110 r
Skoðaðu vefinn okkar, m.a.veisluþjónustuna,
Veffang: www.broadway.is • E-mail: broadway@simnet.is
í vandræðum
með silíkonið
Courtney Love var í vandræð-
um með nýju brjóstin á sér og lét
því lappa upp á þau á ný. í fyrstu
var söngkonan ánægð með sil-
íkonfylltu brjóstin en skyndilega
tók hún eftir því að allt var ekki
eins og það átti að vera. Brjóstin
vora ójöfh og klunnaleg. Læknis-
rannsókn sýndi að silíkonið hafði
lekið út og því fór Courtney í að-
gerð á ný.
Geri sigraði
Emmu Bunton
Fyrrverandi Kryddpían Geri
Halliwell komst í efsta sæti enska
smáskífulistans og sigraði þar
með Emmu Bunton. Bamakrydd-
ið varð að láta sér nægja annað
sætið eftir vikulanga baráttu við
Geri um toppsætið. Smáskífur
þeirra komu á markaðinn sama
dag í síðustu viku. Smáskífa Geri
seldist 1140 þúsundum eintaka en
skífa Emmu I 106 þúsundum ein-
taka. „Ég er hamingjusamasta
konan á öllu Englandi. Ég er eitt
bros. Mig langar að þakka öllum
sem studdu mig,“ sagði Geri í út-
varpsviðtali og sendi Emmu
kveðju.
McCartney ást-
fanginn á ný
Monica búin að
missa 15 kíló
Jenny Craig vill ekki greina frá
því hvað líkamsræktarstöð hennar
greiðir fyrir þau forréttindi að fá
að gera Monicu Lewinsky granna
en eins og stúlkan leit út mátti
gera ráð fyrir talsverðum hagnaði.
Þegar Monica kom á framsýningu
í Hollywood á dögunum var hún
orðin svo grönn að hún var varla
þekkjanleg. Þótti sýnilegt að hún
hefði að minnsta kosti lést um 15
kíló frá því að hún byrjaöi í megr-
un síðastliðið sumar. Og frægi blái
Gap-kjóllinn verður líklega bráð-
um alltof of stór.
Leikkonan Carmen Eiectra og eiginmaður hennar, fyrrverandi körfuboltastjarnan Dennis Rodman, voru leidd burt í
handjárnum eftir hörkuslagsmál á lúxushóteli í Miami á föstudagsmorgun. Electra var með sprungna vör og skadd-
aða tá eftir slagsmálin. Rodham var klóraður og í rifinni skyrtu. Dómari skipaði hjónunum að halda sig i að minnsta
500 metra fjarlægð hvort frá öðru. Símamynd Reuter
Bítillinn Paul McCartney hefur
fundið ástina á ný. Átján mánuðum
eftir lát eiginkonu sinnar, Lindu, er
McCartney kominn í ástarsamband
við fyrirsætuna Heather Mills sem
er 27 áram yngri en hann.
Paul McCartney var lengi yfir-
bugaður af sorg eftir að Linda lést af
völdum brjóstakrabbameins. En ný-
lega sagði hann í viðtali að vel
kæmi til greina að stofna til ástar-
sambands á ný. „ Ég held að Linda
myndi hafa viljað það,“ sagði Bítill-
inn.
Og nú hefur breska slúðurblaðið
News of the World greint frá því að
það sé ný kona í lífi Pauls McCart-
neys sem er orðinn 58 ára. Hún heit-
ir Heather Mills og var þekkt fyrir-
sæta. Hún sýndi einkum strand- og
undirfatnað.
En fyrir sex áram varð Heather
Paul McCartney. Símamynd Reuter
að hætta fyrirsætustörfunum. Hún
varð fyrir lögreglumótorhjóli og
taka varð af henni vinstri fótinn.
Síðan hefur Heather Mills varið
miklum tíma í góðgerðarstarfsemi
til styrktar fómarlömbum jarð-
sprengna og öðrum sem misst hafa
líkamshluta.
Það var einmitt við þess konar
störf sem Heather og Paul kynntust.
Hann hefur þegar gefið um 20 millj-
ónir íslenskra króna til hjálpar-
starfsins.
„Þau líta virkilega út eins og ást-
fangið par,“ segir vinur Bítilsins í
viðtali viö News of the World.
Heather Mills er sögð gista reglu-
lega á býli Pauls McCartneys í East
Sussex. Þau hafa snætt saman í
leyni á ýmsum veitingastöðum í
London. Hvorugt þeirra hefur viljað
tjá sig um sambandið.