Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 28
36 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 DV - L gags onn Ummæli Dálítið jólatré „Júliusi Vífli Ingvarssyni hef- , ur tekist að afsanna 1 kenninguna um að 1 enginn maður sé [ eyland. Ég á ákaf- , lega erfitt með að , átta mig á því , hvar í þessu lit- rófi hann stend- ur. Hann er kannski eins og maður segir í pólitikmni: dálitið jólatré." Helgi Hjörvar, forseti borgar- stjórnar, í Degi. E-265,3 „Allt er þetta í lagi af því aö maðurinn er haldinn E-265,3, sem er Evrópustaðall yfir gægju- fikn.“ Álfheiður Ingadóttir, hjá Kvenna- athvarfinu, um sýknum hæsta- réttar yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun á dóttur sinni, ÍDV. Hagkerfið hefur ofhitnað „Hagkerfiö hefur einfaldlega oíhitnað og fyrir vikið er stöðugleikinn í hættu.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, í Degi. Bjartsýni og svartsýni „Dagleg umræða einkennist annarsvegar af mikilli bjartsýni, þar sem allir eru sagðir búa við aukinn kaupmátt, en að hinu leyt- inu búum við daglega við svarta-J gallsraus svokallaðrar stjómar- andstöðu, sem segir að allt þjóðlíf sé sokkið á fertugt dýpi.“ Indriði G. Þorsteinsson rithöf- undur, í Morgunblaðinu. Borgarstjóri fómar höndum „Ingibjörg Sólrún er ekki trú- verðug þegar hún , fómar höndum í beinni útsend- ingu Ríkissjón- varpsins og segir himinháan launakostnað leikskólanna ekki mega hækka öllu meira.“ Helga Guðrún Jónasdóttir vara- þingmaður, í Morgunblaðinu. Kaupmönnum er ekki treystandi „Ýmsir kaupmenn hafa verið margreyndir að því að selja bömum og unglingum tóbak. Við afgreiðslu í matvörubúðum em gjaman unglingar undir lög- aldri. Hvers vegna ætti að treysta þessum kaupmönnum til að selja áfengi." Þorgerður Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Áfengis- og tó- baksvarnaráðs. Kjartan Guðbrandsson, sigurvergari í Fitness 99: Aðalatriðið að vera sterkur, frískur og fagur „Þetta var hin skemmtilegasta keppi. Við kepptum í fjórum grein- um þar sem reynir á styrk og lið- leika. Við byrjuðum á nokkuð hefð- bundnum æfingum. ---------------------------- Síðan kom hraða MaOUr dagSÍHS þraut sem byggð er __________________________ á erlendri fyrir- mynd og minnir kannski einna helst á æfingar hjá verðandi her- mönnum sem oft má má sjá í bió- myndum og sjónvarpi. Þriðja þraut- in var meira til gamans gerð en um var að ræða gladiator-þraut þar sem þú ert upp á þar til gerðum planka og átt að berja andstæðinginn niður og vorum við með stór svampbar- efli. Svo er endað á því að allir kepp- endur koma fram og þá er líkami þeirra metinn, hvemig skurðurinn er, samræmið á milli vöðva. sem sagt aö vera frískur og fagur,“ segir Kjartan Guðbrandsson sem sigraði í keppni karla á Fitness 99 keppninni sem haldin var i Laugardalshöll á laugardaginn. Kjartan segist hafa æft vel fyrir þessa keppni. „Ég hef nánast verið í íþróttum alla mina ævi og mikið í líkamsrækt og undirbúningurinn fyrir þessa keppni fólst aðallega i því að létta sig, þvi styrkinn hef ég frá lyftingum, og gera sig hreyfanlegan, ná vöðvamagninu niður og líta vel út.“ Að sögn Kjartans var þetta eitt skemmtilegasta mót sem hann hefur tekið þátt í: „Þama var mikil stemning, fullt af áhorfendum sem tóku vel þátt í því sem var að gerast og mótkeppendur mínir voru hver öðrum betri svo þetta var mikil og skemmtileg keppni. Ég keppti í móti á Akureyri í vor sem var í líkingu við þetta en þetta er fyrsta alvörumótið með þessu sniði sem haldið er hér á landi.“ Kjartan hefur mik- ið verið í iþróttum: „Ég byrjaði eins og allir strákar í boltaí- þróttum, fór síðan í sundið, fimleikar og júdó og fleiri íþróttir. Ég náði yfirleitt alltaf góðum árangri í þeim greinum sem ég var að keppa í en þegar ég var að komast á toppinn, eins sagt er, fékk ég alltaf áhuga á næstu íþrótt. Upp úr 17 ára aldri fór ég að fikta við lóðalyftingar og fékk strax mikinn áhuga á lyftingum og var ís- landsmeistari í vaxtarrækt og síðar íslandsmeistari i kraftlyftingum. Síðan hef ég stundað mikið líkams- rækt og þjálfað aðra, er búinn að starfa við þjálfun í ein fimmtán ár. í dag skipti ég í tvennt starfi mínu, er að hluta til að þjálfa og er einnig verslunarstjóri í GÁP sem er fjallahjól- og fitnessverslun og er fitness- deildin ný og segja má að ég sé að koma henni á lagg- imar um þessar mundir." Kjartan segir mesta allan tíma sinn fara í sportið. „Það er ekki mikill tími til annars en að vinna og þjálfa og vera með fjölskyld- unni en ég hef einnig mjög gaman af allri útivist, veiði og fer í fjallgöngur þegar tími vinnst til. Eiginkona Kjart- ans heitir Anna Sól- mundsdótt- ir og á hún f einn son, Atla, Sýningum á hinu vinsæla leik- riti Rommí, sem hefur gengið sleitulaust í Iðnó í rúmt ár, fer að ljúka. I Rommí eru gaman og al- vara fléttuð saman á listilegan hátt og undir meinleysislegu yfirborð- inu felst ævisaga tveggja ólíkra einstaklinga. í leikritinu mætast tvær rosknar persónur með ámóta bakgrunn og hefur margvísleg reynsla sett mark sitt á líf þeirra beggja. Aldrei “ hefur verið sýnt LCIKnÚS fram á að heppni----------------- í spilum hafi áhrif á ástarmálin, en samband þessara einstaklinga sem taka slag saman er bæði átakan- legt og hugljúft. Gagnrýnendur og áhorfendur eru sammála um að leikaramir Er- lingur Gíslason og Guðrún Ás- mundsdóttir túlki persónurnar á stórkostlegan og einlægan hátt. „Guðrún Ásmundsdóttir náði svo fullkomnu valdi á persónunni að hún sendi hroll niður bakið á manni." [S.A. DV]. „Stjama sýn- ingarinnar er Erlingur Gíslason sem átti sannkallaðan stórleik í hlutverki Wellers." [G.S Dagur] Rommí er eftir D.L. Cobum. Leikarar em Guðrún Ásmundsdótt- ir og Erlingur Gíslason. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson. Næsta sýning er annað kvöld kl. 20.30. Bridge Góðir spilarar gera ráð fyrir verstu legu í samningum sem virð- ast vera einfaldir til vinnings. Þegar þetta spil kom fyrir í tvímennings- keppni Reykjavíkurmóts á dögun- um spiluðu flestir 4 spaða á hendur NS (áttmn snúið). Ótrúlega mörgum sagnhöfum tókst að fara niður á þeim samningi vegna þess að þeir gáfu tvo slagi á tromp, auk gjafaslaga í rauðu litunum. En Reykjavikurmeistararnir Aðal- steinn Jörgensen og Sverrir Ár- mannsson voru ekki í vandræðum með að vinna þennan samning. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og NSá hættu: 4 87 V K862 ■f KD82 * D87 4 5 «4 DG74 4 7643 * 10932 N 4 DG42 44 Á1053 ♦ Á109 * G6 4 AK10963 44 9 4 G5 4 ÁK54 Norður Austur Suður pass 14 14 1 grand pass 3 4 . 4 4 p/h Vestur pass pass Eitt verka Marilyn Herdisar unni. € Grafíkverkí Listfléttunni Listamaður nóvember- mánaðar í Listfléttunni á Akureyri er Marilyn Herdis Mellk. Marilyn er fædd í New Jersey, Bandaríkjun- um, og er af íslensku bergi \ brotin. Hún ólst upp vestan- hafs en dvaldi á ís- landi á sumr- in en flutti til landsins 1981. Hún stundaði nám við MHÍ og Califomia College of Art and Crafts. Fyrstu einka- _______________sýningu sína Mellk í Listflétt- hélt„h?n 199,7 en hefur auk þess tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og í útlöndum. Var hún meðal grafíklista- manna sem sýndu á Afmæl- Sýningart issýningu íslenskrar grafik- ur í Gerðarsafni fyrir stuttu. Myndgátan "-X J(Vh, \.) II N~; /FM i 2.550 Stökkáll Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn Grandsögn Aðalsteins í norður lofaði 8-10 punktum og á þeim for- sendum gaf Sverrir áskorun í game með 3 spöðum. Útspil vesturs var hjartadrottning og hún fékk að eiga .fyrsta slaginn. Hjartagosann tromp- aði Sverrir heima ög spilaði næst tígulgosa. Austur drap strax á ásinn (betri vörn er að gefa þann slag) og spilaði laufgosa til baka. Sverrir drap á drottningima í blindum, spilaði spaðaáttunni og hleypti henni þeg- ar austur setti lítið spil. Vestur var þegar búinn að sýna 3 punkta í - Svemr hjarta og því var Armannsson. nánast ömggt að austur ætti að minnsta kosti annað háspilanna í spaða. Það ætti ekki að vera flókið mál að fá 10 slagi í þessum samn- ingi en ótrúlega margir sagnhaf- anna leyfðu sér þann banvæna munað að taka tvo hæstu í spaða- litnum i stað þess að öryggisspila litnum. ísak öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.