Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1999, Blaðsíða 1
19
Fimmtudagur 18. nóv. 1999
spenntur"
- segir Rúnar Kristinsson
Stoke og Lilleström hafa hafið við-
ræður um kaup enska liðsins á Rún-
ari Kristinssyni en Guðjón Þórðarson
I hefur gefið til kynna að hann hafi
mikinn áhuga á að fá Rúnar til liðs
við sig. Það virðist hins vegar ólík-
legt að af því verði.
„Félögin hafa rætt sín á milli,
ásamt mínum umboðsmanni en ég
hef ekkert komið inn í þær viðræð-
ur og hef ekki heyrt sjálfur i Guð-
jóni. Það verður að segjast eins og
er að ég er ekki alltof spenntur fyr-
ir því að fara niður í 2. deild í
Englandi. Okkur líður vel hér í
Noregi og Lilleström leikur í Evrópukeppni næsta haust. Ég
þarf að íhuga vel hvernig ég vil verja næstu árum hjá mér í
knattspymunni en það er ljóst að ég fer ekki að breyta til
breytinganna vegna,“ sagði Rúnar við DV í gærkvöld.
Rúnar á eitt ár eftir af samningi sínum við Lilleström og því
verður félagið að selja hann í vetur ef það á að fá greiðslur fyr-
ir hann. „Ég fer hins vegar ekkert nema ég vilji það sjálfur og
get hafnað öllum boðum og spilað út samningstímann. Vissu-
lega gæti þá Lilleström gert mér lífið leitt og látið mig spila lít-
ið sem ekkert en ég á alls ekki von á slíku af hálfu félagsins,“
sagði Rúnar Kristinsson.
Guðjón Þórðarson sagði í viðtölum við enska íjölmiðla í gær að
hann væri að reyna að fá sterkan miðjumann frá norsku liði en
vildi ekki gefa upp nafn hans.
„Þetta er reyndur leikmaður sem ég þekki mjög vel. Hann kostar
okkur peninga og það þarf að ná samkomulagi við félag hans en ég er
vongóður um að okkur takist að krækja i hann,“ sagði Guðjón. -VS
Tveir komnir til Stoke:
Ákveöið með Einar
Guðjón Þórðarson hefur fengið annan íslending til sín til Stoke þvi í gær
var gengið frá því að Einar Þór Daníelsson úr KR færi til enska félagins á leigu
til 1. apríl. Gengið var frá sams konar samningi um Sig-
urstein Gíslason í fyrradag.
Það er hins vegar óljóst hvort af því verði að Sigurður
Öm Jónsson fari til Stoke en það hefur komið til tals eins
og DV sagði frá í gær.
Einar Þór og Sigursteinn fara til Englands í dag og að
sögn Magnúsar Orra Schram, framkvæmdastjóra rekstr-
arfélags KR, er ekki reiknað með því að þeir fari beint í
aðalliðið hjá Stoke heldur byrji með varaliðinu á næstu
dögum. -VS
Sigurbjörn samdi
- gerði tveggja ára samning við Trelleborg
Sigurbjöm Hreiðarsson, knatt-
spymumaður úr Val, hefur gengið
frá tveggja ára samningi við
sænska A-deildar liðið Trelleborg.
Að sögn Sigurbjöms hafa Sviamir
náð samkomulagi við Val en þeir
þurfa að greiða fyrir hann þar sem
ár var eftir af samningi hans við
Hlíðarendaliðið.
„Ég var hjá þeim í viku í október
og leist mjög vel á mig. Þetta er
afskaplega vinalegt félag og bærinn
ekki mjög stór en vel staðsettur á
suðurodda Sviþjóðar. Ég er tilbú-
inn í þennan slag og lít á þetta sem
gott skref fyrir mig,“ sagði Sigur-
bjöm við DV i gær.
Sigurbjöm er 24 ára Dalvíkingur
sem kom imgur til Valsmanna og
hefur leikið með þeim 105 leiki í
efstu deild. Hann hefur gert 18
mörk í efstu deild og kom helming-
ur þeirra í sumar þegar Sigurbjöm
skoraði úr 8 vítaspymum. Hann
hefur leikið 38 leiki með yngri
landsliðum íslands, þar af fjóra
með 21-árs landsliðinu. -VS
Einar Þór Daníels-
son fer til Stoke
ásamt Sigursteini
í dag.
Tveir hjá
Utrecht
Tveir ungir íslenskir knatt-
spymumenn eru þessa dagana við
æfmgar hjá hollenska A-deildar lið-
inu Utrecht. Þetta eru drengjalands-
liðsmennimir Viktor B. Amarson
úr Vikingi og FH-ingurinn Davíð
Þór Viðarsson.
Þeir em báðir 15 ára gamlir. Á
síðustu missemm hafa erlend félög,
bæði á Bretlandseyjum og á megin-
landinu, spurst fyrir um þá og Vikt-
or hefur dvalið hjá Bordeaux, Liver-
pool og Leeds og Davíð h.iá Celtic.
Þeir léku með varaliði Utrecht í
fyrrakvöld og skomðu sitt markið
hvor í 3-0 sigri liðsins en áætlað er
að þeir verði hjá hollenska liðinu út
vikuna. -GH
Geir í Valsvörninni
Stoke og Lilleström í viðræðum:
Fagnað eftir
tapleik
„Er ekki
England komst í gærkvöld í úrslita-
keppni Evrópumóts landsliða í
knattspyrnu þrátt fyrir 0-1 tap
gegn Skotum á Wembley.
David Seaman bjargaði
Englendingum seint í
leiknum með góðri
markvörslu og var í
þeirri óvenjulegu
stöðu að fagna eftir
tapleik.
Reuter