Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1999, Blaðsíða 2
20
4-
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999
Sport
I
i
Blancfl í poka
Sigurður Jónsson, knattspyrnu-
maður hjá Dundee United, er
byrjaður að æfa og gæti leikið gegn
St.Johnstone á laugardaginn.
Sigurður hefur verið frá keppni í
nokkrar vikur vegna meiðsla i tá og
á timabili var haldiö að hún væri
brotin. Nú er komið i ljós að svo er
ekki.
Paul Sturrock, knattspyrnustjóri
Dundee United, fagnar endurkomu
Sigurðar og vonast til að geta teflt
Sigurði fram á laugardaginn. „Við
höfum saknað Sigga. Hann getur ekki
bara gegnt mikilvægu hlutverki í
vöminni heldur getur hann spilað á
miðsvæðinu og ég er að hugleiða að
láta hann spila á miðjunni þegar
hann veröur orðinn heill,“ segir
Sturrock.
Herrakvöld Hauka verður haldið í
Álfafelli í íþróttahúsinu við Strand-
götu annað kvöld, fóstudagskvöld.
Veislustjóri er Konráö Jónsson,
söngstjóri, og ræðumaður kvöldsins
er alþingismaðurinn Hjálmar Árna-
son.
Úrvalsdeildarlió Hamars úr
Hveragerði hefur fengið nýjan
leikmann til liös við sig. Sá heitir
Árni Hrafn Ásbjörnsson og kemur
frá Selfossi. Þessi ungi skotbakvörður
lék með liði Selfyssinga síðasta vetur.
Lárus Ingi Friðfinsson, formaður
Hamars, sagðist vera ánægöur með
að fá leikmanninn, segir hann vera
góðan körfuboltamann. Hamar hefur
misst tvo leikmenn í vetur, þá Ægi
Gunnarsson, sem meiddist og verður
frá út tímabiliö, og Rodney Dean
sem var sendur heim síðustu helgi.
Guðný Gunnsteinsdóttir dró fram
skóna þegar hún lék með Stjömunni
gegn Gróttu/KR. Hún kom inn á í
sóknarleikinn í síöari hálfleik en
náði ekki að setja mark sitt á leikinn.
Nú er þess beöið að félagi hennar úr
Stjörnunni Margrét Theódórsdóttir
dragi einnig fram skóna og styrki
félaga sína í baráttunni.
Jóna Björg Pálmadóttir horfði á
enn einn leikinn hjá félögum sínum í
Gróttu/KR, en hún hefur ekki enn
fengið leikheimild þrátt fyrir dóm
HRR um að hún hefði ekki gildan
samning við Fram.
Talsmenn ítalska knattspyrnu-
liðsins Inter segja aö Brasilíu-
maðurinn Ronaldo geti orðiö frá i
allt að 3 mánuði eftir að hafa meiöst
á hné í leik með Inter um síöustu
helgi. Ronaldo hefur átt í talsverðum
meiðslum og á síðustu leiktíð lék
hann aðeins 11 heila leiki með Inter.
Mark Hughes, knattspyrnumaður
hjá Wales, mun skrifa undir fjögurra
og hálfs árs samning við welska
knattspyrnusambandið í næsta
mánuði, þess efnis að hann taki við
þjálfun landsliðsins. Hughes hefur
stýrt landsliði Wales í síðustu
leikjum en hann var ráðinn
tímabundið í starfið.
-GH/KB/ih
1. DEfLD KARLA
Valsmenn misnotuðu tvö víti gegn
Haukum í gær og hafa nú misnotað
víti í níu deildarleikjum í röð. Þá
hafa Valsmenn klikkað á tveimur
vítum í 6 af 10 leikjum vetarins. Alls
hafa Valsmenn misnotað 15 af 32
vítum sínum í deildinni, 13 hafa verið
varin og alls hafa Valsmenn aðeins
nýtt 53% víta sinna.
Haukar höfóu tapað 10 af síðustu 15
heimaleikjum sínum í deild og bikar
fyrir viðureignina gegn Val í gær.
Haukar höföu ekki unniö i sex
leikjum í röð eða síðan þeir unnu
Valsmenn í Strandgötunni 1994.
Haukar nýttu 15 af 21 skoti sinu i
fyrri hálfleik í gær og samtals
misnotuðu Haukar fimmtán skot af
45 i leiknum en í bikarleik liðanna
vikuna áður misnotu Haukar 29 skot
og töpuðu þá aðeins meö einu marki.
Geir Sveinsson skoraði sitt fyrsta
mark í vetur þegar 6 minútur voru
eftir af fyrri hálfleik eftir góða
línusendingu frá Daníel
Ragnarssyni og 2 mínútum siðar
fiskaði Geir vítakast en hann spilaði
lítið sem ekkert meö í sóknarleiknum
í gær.
Ncestu leikir í Nissandeildinni fara
fram annað kvöld kl. 20. Þá leika KA
og FH, ÍBV og Fram og þriðji
leikurinn er viöureign lR og HK.
-ÓÓJ/-SK
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999
Einn í viðbót til Stoke
íslendingar halda áfram að sitja svip sinn á enska C-deildarliðið Stoke
City. Eins og allir vita eiga íslenskir ijárfestar meirihluta í félaginu, Guð-
jón Þórðarson er knattspymustjóri og Einar Þór Daníelsson og Sigur-
steinn Gislason em leikmenn með félaginu.
Nú hefur enn einn Islendingurinn bæst í þennan hóp og það er sjúkra-
þjálfarinn Stefán Stefánsson. Stefán hefur verið sjúkraþjálfari íslenska
landsliðsins á meðan Guðjón Þórðarson stýrði því og hefur í vetur verið
sjúkraþjálfari HK-liðsins í handknattleik.
Stefán er farinn utan og er þegar byrjaður að starfa hjá Stoke. Nú
spyrja menn hvort Guömundur Jónsson (Gassi) verði ekki næsti maður-
inn sem Guðjón nær í til Stoke en Guðmundur var búningastjóri lands-
liðsins undir stjórn Guðjóns og einnig unnu þeir saman þegar Guðjón
þjálfaði KR-liöið. -GH
íslenska liöiö
Fjórða jafntefli Víkingsstúlkna
Víkingar eru enn eina taplausa liðið í
1. deild kvenna en 9. umferð var leikin í
gærkvöld og þar voru landsliðsmark-
verðimir í aðalhlutverkum. Vikingar,
sem mættu Haukum í Hafnarfirði, gerðu
fjórða jafntefli sitt, 18-18, og eru á góðri
leið með að verða jafnteflisdrottningar
vetrarins.
Víkingar ætluðu að koma Haukum úr
jafnvægi í upphafi leiks með því að
leika mjög framliggjandi vöm en Hauk-
arnir létu það ekki slá sig út af laginu og
náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri
hálfleik. Víkingar minnkuðu þann mun
fyrir leikhlé í eitt mark, 12-11.
Víkingar, með Helgu Torfadóttur
markmann í broddi fylkingar, komu bar-
áttuglaðar til síðari hálfleiks, breyttu
stöðunni í 14-17 á fyrstu 20 mínútum
leiksins en Haukastúlkur komu sterkar
til baka, jöfnuðu 18-18 og hefðu með smá
heppni geta krækt í sigurinn í lokin.
„Það vantaði cdveg hausinn í okkur,
vantaði alla baráttu og það er eins og við
getum bara spilað annan hvem leik,“
sagði Inga Fríða Tryggvadóttir, leikmað-
ur Hauka, eftir leikinn og var allt annað
en kát.
Helga Torfadóttir var langbesti leik-
maður vallarins, varði 27/2 skot í marki
Víkings. Hanna G. Stefánsdóttir var best
í liði Hauka.
Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir 7/3,
Harpa Melsted 3, Tinna Halldórsdóttir 2, Inga
Fríða Tryggvadóttir 2, Auður Hermannsdóttir
2, Thelma Árnadóttir 1, Sandra Anulyte 1.
Varin skot: Hjördís Guðmundsdóttir 9.
Mörk Víkings: Guðmunda Kristjánsdóttir 6,
Kristín Guðmundsdóttir 4/2, Eva Halldórsdótt-
ir 3, Heiðrún Guðmundsdóttir 3, Helga Brynj-
ólfsdóttir 2. Varin skot: Helga Torfadóttir 27/2.
Sveiflur á Nesinu
„Þetta var bara samvinna út í gegn.
Vömin var glæsileg og ég er mjög ánægð
með minn leik,“ sagði Fanney Rúnars-
dóttir sem var frábær í marki
Gróttu/KR þegar liðið mætti gömlu fé-
lögum hennar úr Stjömunni. Stjaman
hafði yfir í hálfleik 9-10 en Fanney
hreinlega lokaði markinu í seinni hálf-
leik, aðeins fjögur skot sluppu í gegn á
meðan félagar hennar í Gróttu KR skor-
uðu 11 mörk og Grótta/KR vann sex
marka sigur, 20-14.
Mörk Gróttu/KR: Ágústa E. Björnsdóttir 6,
Alla Gorgorian 6/1, Ólöf Indriöadóttir 2, Edda
Kristinsdóttir 2, Eva Þórðardóttir 1, Ragna K.
Sigurðardóttir 1, Sæunn Stefánsdóttir 1, Val-
dis Fjölnisdóttir 1. Varin skot: Fanney Rúnars-
dóttir 22/1.
Mörk Stjömunnar: Nína K. Björnsdóttir 7/3,
Margrét Vilhjálmsdóttir 2, Ragnheiður Steph-
ensen 2, Þóra B. Helgadóttir 2, Anna B. Blön-
dal 1. Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 11,
Agata Greehuile 1.
Auðvelt hjá FH
FH átti ekki í vandræðum með Fram
á heimavelli sínum og sigraði, 31-23, eft-
ir að hafa leitt í hálfleik, 17-9. Dagný
Skúladóttir átti stórleik í liði FHsem
virðist vera að rétta úr kútnum eftir ró-
lega byrjun í haust.
Mörk FH: Dagný Skúladóttir 11, Björk Æg-
isdóttir 6, Drífa Skúladóttir 6, Þórdis Brynj-
ólfsdóttir 3, Guðrún Hólmgeirsdóttir 3, Gunn-
ur Sveinsdóttir 1, Harpa Vífilsdóttir 1.
Mörk Fram: Marina Zoueva 7, Katrín Tóm-
asdóttir 4, Hafdís Guðjónsdóttir 4, Björk Tóm-
asdóttir 4, Dlana Guðjónsdóttir 2, Svanhildur
Þengilsdóttir 1, Ásta Malmkvist 1.
Stórsigur ÍR
í Mosfellsbæ steinlá Afturelding fyrir
ÍR, 14-28, en staðan í hálfleik var 9-17.
Mörk Aftureldingar: Jolanta Limboite 6,
Inga María Ottósdóttir 4, Edda Eggertsdóttir 2,
Ingibjörg Magnúsdóttir 1, Sigurbjörg Krist-
jánsdóttir 1.
Mörk ÍR: Katrín Guðmundsdóttir 10, Inga
Ingimundardóttir 5, Anna Sigurðardóttir 4,
Hrund Sigurðardóttir 4, Ingibjörg Jóhanns-
dóttir 3, Heiða Sigurðardóttir 2. -GH/-Íh
Grótta/KR 9
Víkingur R. 9
208-161
191-159
212-154
210-177
215-179
199-170
254-228
207-206
IR 9 3 0 6 154-194
KA 8 0 1 7 133-186
Afturelding 9 0 0 9 148-317
Valur 10 4 0 6 225-232 8
IBV 9 3 1 5 201-224 7
Víkingur R. 9 1 2 6 218-249 4
Fylkir 9 0 0 9 179-246 0
FH-stúlkur léku mjög vel gegn
Fram í gærkvöld og unnu öruggan
og stóran sigur. Hér er Drífa
Skúladóttir að skora eitt af sex
mörkum sínum en vörn Fram
kemur ekki við vörnum frekar en
oftar í leiknum. DV-mynd E.ÓI.
1. DEILD KARLA
Afturelding 9 8 1 0 237-206 17
Fram 9 6 1 2 231-221 13
KA 9 6 0 3 254-207 12
FH 9 5 2 2 197-191 12
Haukar 10 5 1 4 262-243 11
HK 9 4 1 4 215-211 9
ÍR 9 4 1 4 214-213 9
Stjarnan 9 4 0 5 221-211 8
sprakk í lokin
- og lá gegn Úkraínu, 44-66
Naumt hjá Magdeburg
- Óli með 2 mörk en Wuppertal og Nordhorn töpuðu
Fimm leikir voru í þýsku A-deildinni í
handknattleik í gær.
Wuppertal tapaði á heimavelli fyrir
hinu sterka liði Flensburgar, 22-29.
Dmitri Fillipow skoraði 8 mörk fyrir
Wuppertal og Dagur Sigurðsson 5 en
Valdimar Grímsson var ekki meðal
markaskorara. Dönsku landsliðsmenn-
imir Lars Christiansen og Christian
Hjermind voru atkvæðamestir hjá Flen-
burg með 6 og 5 mörk.
Ólafur Stefánsson og samherjar hans
mörðu sigur á Bad Schwartau á útivelli,
20-21. Ólafur skoraði 2 mörk í leiknum en
Uwe Máuer var markahæstur hjá Magde-
burg með 7 mörk.
Nordhom, liði Guðmundar Hrafnkels-
sonar, hefur fatast flugið í undaníomum
leikjum eftir góða byrjun. Nordhorn sótti
ekki gull í greipar Lemgo og tapaði,
26- 22. Daniel Stephan var markahæstur
hjá Lemgo með 8 mörk.
Meistarar Kiel möluðu Gummersbach,
27- 14. Júgóslavinn Nenand Peruninic
skoraði 9 mörk og sænsku landsliðs-
mennimir Magnus Wislander, Stefan
Lövgren og Staffan Olsson voru með 4
mörk hver.
Þá steinlá Nettelstedt á heimavelli fyr-
ir Grosswallstadt, 15-27.
Flensburg 12 11 0 1 349-287 22
Kiel 11 9 1 1 309-246 19
Magdeburg 12 8 2 2 282-236 18
Lemgo 12 8 1 3 304-264 17
Nordhom 12 7 2 3 310-269 16
Grosswallst. 12 8 0 4 297-273 16
Essen 12 8 0 4 303-287 16
Minden 12 7 1 4 315-296 15
Frankfurt 12 5 1 6 270-260 11
Wetzlar 12 5 . 1 6 280-298 11
Nettelstedt 12 5 1 6 305-324 11
Gummersb. 13 5 0 8 291-312 10
Eisenach 12 4 0 8 276-307 8
B.Schwartaul2 4 0 8 250-287 8
Dormagen 12 3 1 8 263-281 7
Wuppertal 12 2 2 8 275-313 6
Willstatt 12 2 0 10 256-331 4
Schutterw. 12 0 1 11 245-309 1
-GH
íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik tapaði meö 22 stiga mun, 66-44,
gegn Úkraínumönnum í fyrsta leik
sínum í undankeppni Evrópumóta
landsliða í körfuknattleik en leikur-
inn fór fram Kænugarði í gær-
kvöldi.
Heimamenn leiddu allan tímann.
Þeir höfðu 13 stiga forskot í leikhléi,
34-21, en um miðjan seinni hálfleik
náði íslenska liðið sinum besta
leikkafla. íslendingar minnkuðu
muninn niöur í 6 stig, 48-42, en á
lokaflanum reyndust Úkraínumenn
sterkari og skoruðu 18 stig gegn 2.
Friðrik Ingi Rúnarsson stjórnaði
íslenska landsliðinu í fyrsta sinn í
leiknum í gær og náði DV tali af
honum eftir leikinn.
„Við vorum á ágætu róli á köflum
í þessum leik. Við náðum að komast
úr að vera 15 stigum undir og
minnka muninn í 6 stig og fengum í
tvígang færi á minnka muninn enn
frekar. En því miður misstum við
niður dampinn á lokamínútunum
og fylgdum þá ekki því eftir sem
var á áætlun. Varnarleikurinn var
lengstum nokkuð góður miðað við
að einn af okkar helstu veikleikum
í leiknum var hversu mörg sóknar-
fráköst Úkraínumennimir tóku.
Þeir fengu alltaf 2-3 möguleika á
meðan við fengum bara einn,“ sagði
Friðrik Ingi.
„Við vissum í sjálfu sér ekki út í
hvað við vorum að fara. Þetta var
minn fyrsti leikur með liðið og fyr-
ir þennan leik hafði ég ekki liðið
undir minni stjóm i fyrsta sinn
nema í þrjá daga. Ég lít á þennan
leik sem fyrsta skrefiö sem við
tökum saman. Við emm að reyna
aö vinna á ákveðnum hlutum, við
þurfum að koma inn miklu meiri
þolinmæði og meiri aga í leik liðs-
ins. Ég er ekkert svartsýnn og tel
mig geta náð að koma þessu hægt og
sígandi í strákana," sagði Friðrik að
lokum.
Friðrik sagði liðsheildin hafi
verið jöfn og enginn hafi skarað
neitt sérstaklega fram úr í íslenska
liöinu.
Stig íslands: Falur Harðarson 13,
Herbert Amarson 12, Guðmundur
Bragason 9, Jónatan Bow 5, Friðrik
Stefánsson 3, Fannar Ólafsson 2.
Njarðvíkingurinn Örlygur Sturlu-
son lék sinn fyrsta
landsleik en hann
kom inn á síðustu
tvær mínúturnar í
leiknum. Önnur úrslit
í riðlinum urðu þau
að Slóvenía burstaði
Portúgal, 89-58, og
Belgía lagöi Make-
dóníu, 69-61.
-GH
Georg til Blika
Georg Birgisson, knattspymumaður úr Keflavík, er
genginn til liðs við úrvalsdeildarlið Breiðabliks.
Georg er 28 ára miðjumaður og hefur alla tíð leikiö með
Keflavík en hann missti af nær öllu síðasta tímabili vegna
meiðsla og spilaði aöeins tvo deildaleiki. Sama gerðist hjá
honum sumarið 1997. Alls á Georg að baki 67 leiki með
Keflavík í úrvalsdeildinni.
Félagi hans Karl Finnbogason hefur einnig átt í viðræð-
um viö Breiðablik en ekki er ljóst hvort hann fer einnig í
Kópavogsliðið.
-VS
Unglingarnir fara til
Svíþjóðar og Finnlands
Dregið hefur verið í riðla fyrir undankeppni Evrópu-
móta unglingalandsliða í handknattleik.
íslensku liöin fara til Svíþjóðar og Finnlands, svo fram-
arlega sem þjóðimar nýta sér þann rétt til gestgjafahlut-
verksins sem þeim hefur verið boðinn.
Stúlknalandsliðið, skipað leikmönnum fæddum 1981 og
siðar, er í riðli með Svíþjóð, Noregi og Grikklandi og hef-
ur Svíum verið falið að sjá um keppnina í byrjun júní
næsta sumar. Úrslitakeppnin verður í Frakklandi í lok
ágúst en þangað komast tvö lið úr riðlinum.
Piltalandsliðið, skipað leikmönnum fæddum 1980 og síð-
ar, er í riðli meö Slóveníu, Finnlandi og Bosníu og Finnar
eiga að sjá um keppnina í lok maí.
Úrslitakeppnin verður í Grikklandi í ágúst en eitt lið
fer áfram úr riðli íslands.
-VS
Herbert Arnarson skoraði 12 stig gegn Úkraínu
í gær. DV-mynd E.ÓI.
*L
ENGLAND
Ipswich-Wolves ........................ 1-0
Manchester Citj'-Bamsley ................3-1
NotLForest-Portsmouth ...................2-0
Manchester City er efst meö 42 stig, Charlton 38
og Huddersfield 37.
í skosku A-deildinni tapaði Hibernian á heima-
velli fyrir St.Johnstone, 0-1. Ólafur Gottskálks-
son var ekki i liði Hibeminan
I. ÐEILD KVENNA
Valur
Haukar
FH
ÍBV
Stjarnan
Fram
SSBsí
i
21
Sport
Haukar 30 (15) - Valur 26 (12)
1-0, 3-1, 4-2, 5-3, 5-5, 6-7, 8-8,10-8,11-9,11-11,12-12, (15-12), 16-12,
17-13, 17-15, 19-16, 22-18, 23-18, 25-19, 29-24, 30-26.
firjfeSjHI Jón Karl Bjömsson 8/3, Sigurður Þórðarson 5, Aliaksandr
Shamkuts 4, Halldór Ingólfsson 4, Óskar Ármannsson 3, Kjetil
Ellertsen 2/1, Petr Baumruk 1, Siguijón Sigurðsson 1, Einar
Gunnarsson 1, Gylfi Gylfason 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 19/1,
Jónas Stefánsson 1/1. Brottvísanir: 12 mínútur.
Rauð spjöld: Sigurjón 59. mín (3 X 2. min) Vitanýting: Skorað úr 4 af 4.
Áhorfendur: 200
Gœði leiks (1-10): 8.
Dómarar (1-10): Anton Pálsson og
Hlynur Leifsson (7).
tJúlíus Jónasson 6/1, Freyr Brynjarsson 5, Sigfús Sigurðsson
4, Markús Michaelsson 4/2, Snorri Guðjónsson 3, Davíð
Ólafsson 1, Daníel Ragnarsson 1, Geir Sveinsson 1, Bjarki
Sigurðsson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 4 (af 23), Stefán Hannesson 5 (af 16).
Brottvisanir: 10 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 3 af 5.
Maður leiksins: Sigurður Þórðarson, Haukum.
10. umferð 1. deildar
| karla hófst í gærkvöld:
Hugurí
Haukum
- hefndu ófaranna í bikarnum
og unnu Valsmenn, 30-26
Haukar hefndu í gær
ófaranna í bikarnum á dög-
unum þegar þeir unnu
Valsmenn, 30-26, í hörku-
leik í Strandgötunni í gær
en Valsmenn höfðu viku
áður tryggt sér farseðilinn í
átta liða úrslit bikarsins á
sama stað.
Það var greinilega mikill
hugur í Haukum strax frá
upphafí leiks. Liðið hafði
tapað fjórum af síðustu sex
heimaleikjum, öllum með
einu marki og augljóslega
var ekkert slíkt á dagskrá
heimamanna í þetta skipt-
ið. Þeir byrjuðu líka á
fullu, kannski of miklum
krafti, misstu Kjetil Ellert-
sen út af eftir aðeins hálfa
mínútu en náðu síðan að
stilla kraftinn í vörninni og
höföu frumkvæðið mestan
hluta fyrri hálfleiks. Ann-
ars hefur vöm og mark-
varsla liðanna oft verið
mun betri því markverðir
liðanna vörðu aðeins 7 af 34
skotum í fyrri hálfleik
(aðeins 21%).
Síðustu þrjár mínútur
fyrri hálfleiks skiptu miklu
fyrir heimamenn. Á þeim
gerðu Haukamir þrjú mörk
i röð og fóru því inn í hálf-
leik með þriggja marka for-
ustu. Hana náðu Valsmenn
síðan aldrei að brúa í
seinni hálfleik þar sem
munurinn var mestur 6
mörk og þrátt fyrir að Vals-
menn misstu aldrei móðinn
var sigur heimamanna
sannfærandi og öruggur
eftir hlé.
Eins og oft áður skilar
liðsheildin miklu hjá Hauk-
um, alls gerðu tíu leikmenn
mörk fyrir liðið en best
léku þeir Jón Karl Björns-
son, Sigurður Þóröarson,
Rússinn sterki Aliaksandr
Shamkuts á línunni og svo
Magnús Sigmundsson sem
varði 15 skot í seinni hálf-
leik og bætti þar upp slak-
an fyrri hálfleik þar sem
hann varði aðeins fjögur
skot.
Valsmenn voru eitthvað
værukærir í gær, ferðir
þeirra í Strandgötuna hafa
jafnan verið ánægjulegar.
Liöið hafði aöeins tapað
einum af fimmtán síðustu i
deild og bikar en þeir náðu
ekki að fylgja eftir góðum
bikarsigri og töpuðu sínum
sjötta leik í vetur.
„Það stóð ekki steinn yfir
steini, sérstaklega varðandi
vörnina og það er fyrir neð-
an allar hellur að fá á sig 30
mörk. Haukarnir komu
grimmir, eða nákvæmlega
eins og ég átti von á þeim
en það sem ég átti ekki von
á var hvernig við komum
stemmdir í leikinn,“ sagði
Geir Sveinsson, leikmaður
og þjálfari Valsmanna sem
mátti þola sitt fyrsta tap eft-
ir að hann tók fram skóna á
ný.
Sigurður Þórðarson átti
góðan leik bæði í vörn og
sókn hjá Haukum. „Okkur
hefur gengið illa á heima-
velli í síðustu leikjum og
ætlum okkur að byggja hér
upp gömlu Haukagryfjuna.
Það að búa til gryfju skiptir
miklu máli og viö vorum
ákveðnir að byrja á því í
þessum leik“.
Guðmundur Karlsson
fagnaði líka vel með sínum
mönnum í leikslok. „Það
var meiri útgeislun frá
mínum mönnum og við
höfðum meiri áhuga á að
vinna. Við spOuðum skyn-
samlega á stórum kafla í
leiknum og það var mjög
gott. Við ákváðum það fyrir
leik að við töpum ekki fleiri
leikjum hér í Strandgöt-
unni enda ekkert leiðin-
legra en tapa með einu
marki líkt og við höfum
tapað fjórum leikjum hér í
vetur. Það er gott að vinna
leiki og eiga meira inni og i
ég er viss um að við eigum !
eftir að sýna meira í fram-
haldinu."
-ÓÓJ '