Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Qupperneq 1
19
Riðill Islands kominn a
storu töfluna i Tokyo
þegar dregið var i HM-
ríölana i gær.
Reuter
▼ f k/V
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu:
Er bara
nokkuð
sáttur"
„Það góða við þennan drátt er
að þessi löngu og ströngu ferðalög
eru út úr dæminu og það er í
fyrsta skipti í mörg ár. Það hefði
auðvitað verið gaman að fá Þýska-
land eða England en þegar allt er
skoðað er ég bara nokkuð sáttur,"
sagði Atli Eðvaldsson, landsliðs-
þjálfari í knattspymu, í samtali
við DVþegar hann var spurður
álits um riðilinn sem islenska
landsliðið í knattspymu drógst I
þegar dregið var í riðla í und-
ankeppni HM í gær.
Danir og Tékkar eiga að
trekkja
„Ég er mjög ánægður aö hafa
fengið Danina. Við höfum aldrei
áður lent á móti þeim í keppni og
leikurinn gegn þeim hér heima
ætti að trekkja vel svo og Tékka-
leikurinn. Danir og Tékkar hafa á
að skipa sterkum liðum sem bæði
komust í úrslitakeppni EM. Tékk-
ar voru fyrstir til þess og fengu
fullt hús svo við vitum alveg um
styrk þeirra.
Allar þessar þjóðir sem eru með
okkur í riðlinum þurfa að hafa
mikið fyrir því að spila á móti
okkur og þá sérstaklega á okkar
heimavelli. Við eigum að hafa
burði til að vinna N-írland og
Möltu á útivelli en ég lít á Búlgar-
ana sem stórt spumingarmerki.
Stefnan er fyrst og fremst sú að ná
því að hækka um styrkleikaílokk
og svo verðum við bara að sjá
hverju þaö skilar okkur í riðlin-
um,“ sagði Atli.
Fulltrúar þjóðanna fimm í 3.
riðlinum munu væntanlega hittast
á fundi í janúar og ákvaða leikja-
niðurröðunina. Ljóst er að íslend-
ingar leika í það minnsta þrjá
leiki í keppninni á næsta ári en
þrír alþjóðlegir leikdagar hafa ver-
ið ákveðnir, 7. og 8. september, 7.
október og 11. október. Samkvæmt
reglunum má hins vegar hefja
undankeppnina fyrr eða 1. mars
en það skýrist ekki fyrr en á fund-
inum hvort sú verður raunin.
Noröurlandamótið fyrsta
verkefnið
Fyrsta verkefni Atla með lands-
liðið verður Norðurlandamótið
sem fram fer á La Manga á Spáni
í lok janúar. Þar keppa íslending-
ar við Norðmenn, Finna og Færey-
inga. Þeir mæta Svium á Laugar-
dalsvelli 18. ágúst og svo Dönum
innanhúss í Danmörku í janúar
árið 2001.
„Undirbúningurinn undir þetta
mót fer brátt að hefjast en á með-
an ekki er búið að raða niður
leikjunum í undankeppni HM
erum við svolítið í lausu lofti. Það
er ekkert langt í að ég velji hóp í
þetta verkefni sem verður nokkuð
stór. Ég er ekki kominn inn í það
hversu margir atvinnumenn geta
verið með okkur á Spáni en um
helgina mun ég setjast niður yfir
þetta,“ sagði Atii. -GH
Islendingar með Dönum og Tékkum
Bjarki með þrjú
Bjarki Gunnlaugsson skoraði þrennu
fyrir Preston sem sigraði Wrexham, 4-1, í
bikarkeppni ensku neðrideildarliðanna í
knattspymu í gærkvöld. Mörkin gerði hann
á 2., 21. og 74. mínútu. Rétt fyrir þriðja
markið var einn leikmanna Wrexham rek-
inn af velli fyrir gróft brot á Bjarka. -VS
Frnm
stulkur
unnu
tvo-
falt
C20
Miövikudagur 8. desember 1999
dvsport@ff.is
íslendingar eru í riðli með
Tékkum, Dönum, Búlgörum,
Norður-írum, og Möltubúum í
undankeppni HM í knatt-
spymu en dregið var í riðla í
Japan í gær. íslendingar dróg-
ust í 3. riðil. Drátturinn var
þessi:
1. riðill: Júgóslavía, Rúss-
land, Sviss, Slóvenía, Luxem-
borg, Færeyjar.
2. riðill: Holland, Portúgal,
írland, Kýpur, Andorra, Eist-
land.
3. riðill: Tékkland, Dan-
mörk, Búlgaría, ÍSLAND,
Norður-lrland, Malta.
4. riðill: Svíþjóð, Tyrkland,
Slóvakía, Makedónía, Azer-
baijan, Moldavía.
5. riðill: Noregur, Úkraína,
Pólland, Wales, Armenía,
Hvíta-Rússland.
6. riðill: Belgía, Skotland,
Króatía, Lettland, San Mar-
inó.
7. riðill: Spánn, Austur-
ríki, ísrael, Bosnía, Liechten-
stein.
8. riðill: Rúmenía, Ítalía,
Litháen, Ungverjaland, Ge-
orgía.
9. riðill: Þýskaland, Eng-
land, Grikkland, Finnland,
Albania.
Efsta þjóðin í hverjum riðli
kemst beint í úrslitakeppnina
sem fram fer í Japan og
Kóeru árið 2002. Þjóðirnar
sem hafna í 2. sæti fara í pott
ásamt einni þjóð frá Asíu og
leika um fimm laus sæti sem
verða í boði. -GH
Stefán hjá Geel
Stefán Gíslason, hinn 19 ára gamli knatt-
spyrnumaður hjá Strömsgodset í Noregi,
er kominn til reynslu hjá Geel, liði
Guðmundar Benediktssonar í Belgíu.
Hann mun leika með varaliði félagsins
gegn Club Brugge á föstudaginn.
-KB/VS