Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Blaðsíða 3
16
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
41
Sport
Sport
Frjálsar íþróttir:
Gunnar varði
titilinn í kúlu-
varpi í Brussel
Það voru fleiri frjálsíþróttamenn en Vilhjálmur Einarsson sem náðu frábærum árangri
á 20. öldinni. Minnisstæð eru glæsileg afrek þeirra Gunnars Huseby, Torfa Bryngeirsson-
ar og Arnar Clausen á Evrópumeistaramótinu í Brussel árið 1950.
Gunnar Huseby gerði sér lítið fyrir og varði Evrópumeistaratitilinn í kúluvarpi sem
hann náði flórum árum áður. Torfi Bryngeirsson keppti á mótinu í langstökki og stang-
arstökki. Hann komst í úrslit í báðum greinum en varð að velja á milli þar sem úrslitin
fóru fram á sama tíma. Torfi gerði sér lítið fyrir og varð Evrópumeistari í stangarstökk-
inu. Á þessu sama Evrópumóti keppti örn Clausen í tugþraut og vann þar til silfurverð-
launa á eftirminnilegan hátt. Loks má geta Evrópumeistaratitils Hreins Halldórssonar í
kúluvarpi sem var frábær árangur. Fleira mætti nefna. Telja verður afrek Gunnars Huse-
by með betri íþróttaafrekum íslendings á 20. öldinni i frjálsum íþróttum þar sem honum
tókst að verja titil sinn fjórum árum eftir að hann vann hann í fyrra skiptið. Og sigur
hans árið 1950 var mikill yflrburðasigur.
Ef litið er nær í tímann koma nöfn Jóns Amars Magnússonar tugþrautarmanns, Völu
Flosadóttur stangarstökkvara, Guðrúnar Amardóttur grindahlaupara, Þórdísar Eddu El-
ísdóttur stangarstökkvara og spjótkastaranna Einars Vilhjálmssonar og Sigurðar Einars-
son fyrst upp í hugann.
Allt hefur þetta snjalla íþróttafólk unnið til glæsilegra afreka á þeirri öld sem senn er
liðin og erfltt að gera upp á milli þeirra. Fleiri íþróttamenn mætti nefna en hér er aðeins
stiklað á því stærsta. -SK
Gunnar Huseby varð
tvívegis Evrópumeist-
ari í kúluvarpi.
Hér í opnunni er stiklaö á stóru,
greint frá helstu afrekunum en upp-
talningin er vitaskuld ekki tæmandi.
íslenskir íþróttamenn létu lítið aö sér
kveöa á fyrri hluta aldarinnar enda
hófu íslendingar ekki iðkun margra
helstu íþróttagreinanna fyrr en eftir
miðja öldina.
íslenskir íþróttamenn unnu mörg
glæsileg afrek á öldinni sem senn er lið-
in.
Flestir geta verið sammála um að Vil-
hjálmur Einarsson hafi unnið
merkasta afrekið er hann tryggði sér
silfurverðaunin í þrístökki á Ólymp-
íuleikunum í Melbourne árið 1956.
Körfuknattleikur:
Pétur í NBA
Knattspyrna:
Frábær árangur
íslands undir
- ótrúleg sigurkarfa Pálmars 1986
íslandsmótið í körfuknattleik hófst árið 1952 og sjö árum síð-
ar lék ísland fyrsta landsleikinn. Fyrsti sigurinn vannst á Dön-
um, 60-41, 4. nóvember 1962 á Polar Cup í Svíþjóð. Árið 1981 er
stórt ár í sögu íslenska körfuknattleiksins því þá er Pétur Guð-
mundsson valinn af Portland Trailblazers í 3. umferð í NBA-ný-
liðavalinu í júní og 5 mánuðum síðar varð hann fyrsti erlendi
leikmaðurinn til að spila í NBA. Pétur átti eftir að leika í NBA í
8 ár með Portland, San Antonio og Los Angeles Lakers áður en
hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiösla.
Þetta sama ár, 1981, vinnur Njarövík islandsmeistaratitilinn í
fyrsta sinn og tekur íslandsbikarinn frá Reykjavík í fyrsta sinn
i 23 ár þangað sem hann hefur aðeins tvisvar komið aftur síðan.
Síðan 1981 hafa Suðumesjaliðin unnið 16 af 19 titlum.
Körfu aldarinnar á örugglega Pálmar Sigurðsson er hann
tryggði íslandi sæti meöal B-þjóða í fyrsta skiptið 19. apríl 1986.
í stöðunni 72-72 í úrslitaleik gegn Noregi í C-keppninni í Höll-
inni stelur hann boltanum er 4 sekúndur eru eftir, skorar frá
miðju og tryggir sigurinn, 75-72, þegar flautan gellur, ótrúleg
karfa. Það var mikill sigur fyrir íslenskan körfubolta þegar ís-
lenska landsliðið komst í fyrsta sinn í milliriðla Evrópukeppn-
innar 1996, hvað þá að ná því á ný síðastliðið sumar eftir frækinn
sigur á Rúmenum þó að fyrsti sigurinn þar verði að bíða nýrr-
ar aldar. -ÓÓJ
Pétur Guðmundsson lék fyrstur
erlendra leikmanna í NBA með
Portland árið 1981.
stjórn Guðjóns
Sá árangur sem stendur upp úr hjá landsliðinu er
tvímælalaust frammistaða þess í riðlakeppni
Evrópumóts landsliöa sem lauk sl. haust. Undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar lenti liðið í fjórða sæti,
skammt á eftir heimsmeisturum Frakka, Úkraínu og
Rússum. Liðið tók miklum framforum og vakti
árngur þess mikla athygli.
Af einstökum úrslitum má nefna jafnteflið gegn
Rússum i Moskvu 1989. Það voru gríðarlega góð
úrslit á þeim tíma. Góður sigur á
Austur-Þýskalandi, 2-1, á Laugardalsvelli 1975
geymist lengi í minningunni. Á sama velli vannst
mikið afrek 1991 þegar Spánverjar voru lagðir í
forkeppni Evrópumótsins. Einnig má minnast
leiksins gegn Tyrkjum í Izmir 1980 en þar komu
íslendingar rækilega á óvart með 1-3.
Bjarni Friðriksson vann til bronsverðlauna í júdó á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984. Hér sést hann fagna árangrinum ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta íslands. Á innfelldu myndinni til
vinstri er verðlaunapeningur Bjarna. Á myndinni til hægri sést Vilhjálmur Einarsson tryggja sér silfurverðlaunin í þrístökki í Melbourne árið 1956.
Silfur í Melbourne - brons I Los Angeles
Ólympíuleikar eru stærstu
íþróttamót sem haldin eru i
veröldinni og þangað mæta
íþróttamenn í þúsundatali
víðs vegar að úr heiminum.
Tveir íslenskir íþróttamenn
hafa náð þeim árangri að kom-
ast á verðlaunapall á ólympíu-
leikum á þessari öld.
Vilhjálmur Einarsson er sá
íslendingur sem náð hefur
bestum árangri á ólympiuleik-
um.
Árið 1956 fóru ólympíuleik-
amir fram í Melbourne í Ástr-
alíu og þar stökk Vilhjálmur
16,26 metra í þrístökki.
Þessi árangur dugði honum
til aö hreppa annað sætið og
þar með silfurverðlaun á leik-
unum.
í tvær klukkustundir var ár-
angur Vilhjálms ólympíumet.
Brasilíumaðurinn Da Silva sló
hins vegar met Vilhjálms og
tryggði sér gullverðlaunin
með því að stökkva 16,35
metra.
Árangur Vilhjálms vakti gíf-
urlega athygli á leikunum í
Melbourne og án efa var hann
sá íþróttamaður leikanna sem
kom mest á óvart.
Hér heima vakti árangur
Vilhjálms gríðarlega athygli
eins og gefur að skilja og segja
má að hann hafi á svipstundu
orðið þjóðhetja á íslandi. Má
segja að árangur Vilhjálms
hafi virkað sem vítamín-
sprauta á íslenskt íþróttalíf.
Bronsverðlaun Bjarna í
Los Angeles
Bjarni Friðriksson á annan
besta árangur íslendings á
ólympiuleikum.
Árið 1984 fóru leikarnir
fram í Los Angeles í Banda-
ríkjunum og þar náði Bjarni
að vinna til bronsverðlauna í
júdókeppninni.
Árangur Bjarna vakti mikla
athygli, bæði hér heima og er-
lendis enda ekki lítiö afrek að
vinna til bronsverðlauna á
ólympíuleikum. Gríðarleg
vinna og einstök ástundun
skilaði Bjarna þessum ár-
angri. Það vakti þvi mikla at-
hygli þegar Bjarni náði ekki
kjöri sem íþróttamaður ársins
og Ásgeir Sigurvinsson varð
fyrir valinu. Segja má að allt
hafi orðið vitlaust og sjaldan
eða aldrei hafa úrslit í kjöri
íþróttamanns ársins verið um-
deOdara. Voru margar greinar
skrifaðar í blöð og íþrótta-
fréttamenn lágu undir mikilli
gagnrýni. Og réttmætri að
margra mati.
Bjarni hélt hins vegar áfram
að ná frábærum árangri og
var síðar kjörinn íþróttamað-
ur ársins.
-SK
Ríkharður Daðason skorar mark ísl-
ands gegn heimsmeisturum Frakka
á Laugardalsvelli í fyrra.
Handknattleikur:
Barcelona
og svartnætti
í Danaveldi
Þorbergur Aðalsteins-
son var landsliðsþjálf-
ari í Barcelona.
íslenskt landslið lék i handknattleik í fyrsta skipti árið 1950, þrjá leiki. Tveir þeirra töp-
uðust stórt gegn Svíum og Dönum en i fyrsta landsleiknum í Reykjavík náði íslenska lið-
ið jafntefli gegn Finnum, 3-3. Leikið var á Melavellinum.
Besti árangur sem íslenskt landslið náði í keppni á ólympíuleikum á öldinni verður að
telja fjórða sætið á leikunum í Barcelona árið 1992. ísland lék þá gegn Frakklandi um
bronsverðlaun en tapaði.
Á heimsmeistaramóti hefur ísland best náð fimmta sæti á HM í Kumamoto í Japan árið
1997. Þá náði liðið frábærum árangri og sigraði í sjö af níu leikjum sínum í úrslitakeppn-
inni. Liðið tapaði aðeins einum leik og einum lauk með jafntefli.
í heimsmeistarakeppninni í Sviss árið 1986 náöi liöiö einnig frábærum árangri. Eftir
stórt tap gegn Suður-Kóreu í fyrsta leik náði íslenska liðið sér verulega vel á strik og
sjötta sæti varö hlutskipti liðsins og tryggt sæti á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988.
Þá má nefna góðan árangm- landsliðsins á HM í Tékkóslóvakíu árið 1964. íslendingar
unnu þá Svía í öðrum leik sínum en tap gegn Ungverjum gerði möguleika liðsins á mjög
góðu sæti að engu.
Mestu vonbrigði varðandi íslenskan handknattleik á öldinni sem senn er liðin litu án
efa dagsins ljós á HM í Danmörku árið 1978. Miklar vonir voru þá bundnar viö gengi ís-
lenska landsliðsins. Liðið tapaði hins vegar öllum leikjum sínum og var langt frá sínu
besta. Jafnan hefur verið talað um fjóra svarta daga í Danmörku þegar HM 1978 hefur
borið á góma. -SK
Bland í poka
íþróttafélag Keflavíkurflugvallar varð
fyrsti íslandsmeistari karla í körfubolta, 1952,
og vann alls fjórum sinnum á fyrstu sjö árun-
um. Oftast hefur ÍR orðið íslandsmeistari í
köfubolta eða 15 sinnum en það eru 22 ár síð-
an íslandsbikarinn fór í Breiöholtið. Njarðvik-
ingar hafa unnið íslandsbikarinn tíu sinnum
en KR-ingar, sem hafa átta sinnum unnið ís-
landsbikarinn, hafa hampað bik-
armeistaratitlinum 11 sinnum,
oftast allra.
KR-stúlkur urdu íslandsmeistarar í ellefta
sinn í vor og næstar þeim koma Keflavíkur-
stúlkur með átta íslandsmeistaratitla en Ár-
mann varð fyrsti íslandsmeistari kvenna 1953.
Keflavík hefur unnið bikarinn oftast eða níu
sinnum og alls 17 stóra titla frá 1988.
Valsmenn unnu fyrsta íslandsmeistaratitil-
inn í handbolta 1940 og hafa alls unnið hann 20
sinnum, oftast allra liða, fimm sinnum oftar en
FH. Valsmenn urðu einnig fyrstu bikarmeist-
aramir en Vikingar hafa oftast unnið bikarinn
eða sex sinnum.
Ármann vann fyrstu fimm árin hjá kven-
fólkinu en Fram hefur unnið oftast íslands-
meistaratitil kvenna í handbolta eða 19 sinn-
um, þar af sjö ár í röð 1984 til 1990. Fram hef-
ur unnið 12 af 23 bikarkeppnum, níu sinnum
oftar en næsta félag sem er Stjarnan.
Gudridur Guöjónsdóttir kom mikið við
sögu í velgengi Framkvenna en hún er örugg-
lega einn sigursælasti iþróttamaður Islands-
sögunnar því hún hefur alls unnið 31 íslands-
og bikarmeistaratitla í handbolta og fótbolta
þar af bæði fyrsta (1976) og síðasta bikarmeist-
aratitil aldarinnar í handboltanum.
KR-ingar uróu fyrstir íslandsmeistarar í
knattspymu 1912 og hafa unnið alls 21 íslands-
meistaratitil. siðan. Valsmenn koma næstir
með 19 titla, Framarar hafa unnið 18 sinnum
og Skagamenn 17, þar af fimm ár í röð
1992-1996, sem er met í unnum íslandsmeist-
aratitlum i röð. KR-ingar hafa einnig hampað
bikarnum oftast, gerðu það í tíunda sinn í
sumar.
Breiöablik hefur oftast unnið íslandsmeist-
aratitil kvenna eða 12 sinnum en FHvarð
fyrsti íslandsmeistari kvenna 1972. Blikar og
Valskonur hafa oftast hampað bikarnum eða
sjö sinnum hvort. Þess má geta að Blikakonur
hafa unnið alls 23 íslandsmeistaratitla í öllum
flokkum en KR-konur og stúlkur eru meö 13.
Kolbeinn Pálsson, fyrrverandi formaður
Körfuknattleikssambands íslands, á örugglega
vítaskot körfuboltaaldarinnar. Kolbeinn fór á
vítalínuna þegar 15 sekúndur voru eftir af
framlengingu í leik gegn Dönum á Norður-
landamótinu í Kaupmannahöfn 9. apríl 1966 og
ísland var 66-67 undir í leiknum. Kolbeinn
setti bæði vítin ofan í, ísland vann 68-67 en
þetta er aðeins annar tveggja sigra íslands á
Danmörku í Danmörku í tólf landsleikjum
þjóöanna þar. Kolbeinn hlaut útnefninguna
íþróttamaður ársins það ár.
Ásgeir Sigurvinsson var kjörinn leikmaður
ársins í Þýskalandi 1984. Þetta sama ár varð fé-
lag hans, Stuttgart, meistari og var Ásgeir fyr-
irliði liðsins á þeim tíma. Arnór Guðjohnsen
gerði garðinn frægan á sínum ferli. Hann var
1987 kjörinn besti leikmaður belgísku deildar-
innar, þá einnig markakóngur og meistari með
Anderlecht.
Ein óvœntustu úrslit á Evrópumótum fé-
lagsliða náðu Valsmenn 1968 gegn Benfíca sem
var á þeim tíma eitt sterkasta lið heims.
Markalaust jafntefli varð í leiknum á Laugar-
dalsvelli og aldrei hafa fleiri áhorfendur sótt
einn knattspyrnuleik. Um 18.243 greiddu að-
gangseyri.
Flesta landsleiki í knattspymu á öldinni
léku þau Rúnar Kristinsson, 79, og Vanda Sig-
urgeirsdóttir, 37. í körfubolta léku flesta lands-
leiki þau Valur Ingimundarson, 164, og Anna
Maria Sveinsdóttir, 48, en Geir Sveinsson á
flesta handboltalandsleiki á öldinni eða alls 338