Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 3
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000
21
DV
Sport
Annað tap í jafnmörgum leikjum á EM, nú fyrir Portúgölum, 25-28
Omarkvisst
Hvað sögðu þeir...
Ólafur Stefánsson
„Varnarleikurinn
verður okkur að
falli. Við verðum
enn fremur að setj-
ast niður og ráða
ráðum okkar. Þetta
er að einhverju
leyti eitthvað sál-
rænt sem er að
trufla okkur. Við verðum að rifa
okkur upp úr þessu og ég ætla að
vona að við gerum það.“
Valdimar Grímsson
„Það var sárt að tapa
þessum leik. Mér fannst
við mæta sterkari til
leiks og það var ósann-
gjamt að vera undir í
leikhléi. Við missum
dampinn í síðari hálf-
leik og dómararnir voru ekki al-
veg á okkar nótum. Við erum líka
að láta reka okkur út af fyrir
klaufaleg brot og fyrir vikið verð-
ur þetta mjög erfitt sóknarlega
séð, missum þá í hraðaupphlaup
og þeir skora einfóld mörk. I síð-
ari hálfleik var varnarleikurinn
og markvarslan slök. Við höfum
ekki fundið taktinn í vörninni og
í sókninni erum við langt í frá að
vera sprækir að mínu mati. Það
vantaði líka töluvert upp á það í
þessum leik að menn væru agað-
ir. Það fyrsta sem kemur upp í
hugann eru vonbrigði. Við erum
drullusárir. Við komum vel
stemmdir til leiks og það var góð-
ur andi í liðinu og við vorum
ákveðnir í að selja okkur dýrt. Á
einstaklega klaufalegan hátt
missum við leikinn úr höndun-
um á okkur. Þetta eru mikil von-
brigði en vonandi rifum við okk-
ur upp.“ -JKS
DV, Króatía
Afspyrnu slakur siðari hálfleikur ís-
lendinga gegn Portúgal varð okkar mönn-
um að falli. Það lagðist allt á eitt í hálf-
leiknum, slakm- varnarleikur og mark-
varsla og sóknarleikurinn var á löngum
kafla agalaus, ómarkviss og hugmynda-
snauður. Þegar lagt var upp í keppnina
hugsuðu menn sér gott til glóðarinnar
þegar viðureignin gegn_
Portúgölum var nefnd
því undir venjulegum
kringumstæðum á ís-
lenska liðið að vinna þá
en þegar liðið lék með
þeim hætti sem það
gerði er ekki von á góðu.
Portúgalar sigruðu í
leiknum, 28-25, og það
voru hnípnir Islendingar
sem gengu af leikvelli í
leikslok.
Þriggja marka
forusta
í upphafi leiksins virt-
ist sem íslenska liðið
væri búið að taka sig
saman í andlitinu eftir
leikinn við Svía. Barátt-
an var til staðar og liðið
var með leikinn í sínum
höndum, náði þriggja
marka forystu. Portúgal-
Tölurnar tala
12
16
30%
16/30
ar náðu hins vegar að jafna leikinn um
miðjan hálfleikinn og eftir það var leik-
urinn í jafnvægi. Portúglar gengu til leik-
hlés með eins marks forystu, 13-14.
Markvarslan var ekki búin að vera góð
því Guðmundur Hrafnkelsson varði að-
eins fjögur skot en vörnin sá tO þess að
munurinn var ekki meiri.
Patrekur Jóhanneson var enn fremur
mistækur í sókninni og missti boltann
klaufalega í ein þrjú
skipti og svo var
hann einnig að fá
óþarfa brottvikning-
ar. Reyndur maður á
borð við Patrek á
ekki að detta i þessa
gryfju.
íslenska liðið hóf
síðari hálfleikinn
mjög illa og skoraði
ekki mark fyrstu sex
minútur hans. Portú-
galar léku mjög ákaf-
an varnarleik og við
honum áttu íslend-
ingar ekkert svar.
mörk sem Portúgalar geröu
fyrir utan 9 metrana i
leiknum mörg hver af 10-11
metrum. íslenska liðið geröi
samtals 3 mörk fyrir utan.
munur á brottreksti í mínút-
um í iyrstu tveimur leikjunum
hjá annars vegar íslensku leik-
mönnunum (30) og hins vegar
andstæðingunum (14).
skotnýting Dags Sigurds-
sonar í 2 fyrstu leikjunum
(3 af 10), þess sem ekki þyrfti
varamann í keppninni að
mati Þorbjöms. Dagur hefur
átt 4 stoðsendingar.
skotnýting annarra
leikmanna en Valdi-
mars Grimssonar (9
af 9) í leiknum, þetta
gerir 53% nýtingu.
Atta sóknir í röö
Portúglar skoruðu
úr átta sóknum í röð
og náðu sex marka
forystu og þarf með
voru allir möguleikar foknir út í veður
og vind. Það var sorglegt að sjá hvernig
þessi leikur þróaðist en íslenska liðið
mætti einfaldlega ofjörlum sínum. Liði
sem barðist með hjartanu og leikgleðin
skein úr hverju andliti.
Varnarleikurinn, sem hefur verið einn
sterkasti hlekkur liðsins á síðustu árum,
brást alveg og svo er að sjá að menn nái
bara ekki saman.
Leikmenn sem hafa oft borið þetta
uppi ná sér ekki á strik og þegar þannig
háttar þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Þessi úrslit og framganga liðsins voru
eitt orð, vonbrigði.
Liðið fékk tækifæri til að taka sig
saman í andlitinu en það gekk ekki og
var langur vegur þar frá. Leikmenn voru
staðráðnir í að gera betur en þetta en
þeir höfðu enga burði til þess enda talar
framganga liðsins í síðari hálfleik sínu
máli. Til að vinna andstæðinginn er ljóst
að gera þarf miklu betur.
Valdimar bestur
Valdimar Grímsson, sem mjög tvisýnt
var um að gæti keppt með liðinu í keppn-
inni, var skástur í þessum leik og sýndi
að hann verður ekki lengi að koma sér í
sitt besta form. Um aðra menn er hægt að
hafa sem fæst orð um. Þeir voru ekki lík-
ir sjálfum sér og ollu vonbrigðum. -JKS
Gústaf Ðjarnason skorar
hér eitt af tveimur mörkum
sínum gegn Portúgal.
25(13) -
128(14)
0-1, 3-1, 5-3, 5-4, 6-5, 7-6, 7-7, 9-7, 9-9, 12-11, 12-13, (13-14), 13-16,
15-18, 18-21, 18-23, 19-25, 20-27, 24-27, 24-28, 25-28._______________
Mörk (skot/tapaðir): Valdimar Grímsson 9/4 (9/1),
Ólafur Stefánsson 5 (9/2), Patrekur Jóhannesson 4
____________________ (5/3), Róbert Sighvatsson 2 (3/2), Gústaf Bjamason 2
(3/1), Magnús Már Þórðarson 2 (4/0), Magnús Sigurðsson 1(1/0), Dagur
Sigurðsson 0 (4/0), Rúnar Sigtryggsson 0 (1/0). Samtals: 25/4 (39/9).
Island
Stoósendingar: Ólafur 6, Patrekur 3, Dagur 2, Sigurður B. 2, Valdimar
2, Róbert 1, Gústaf 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14/1 (34/6 á sig), Bergsveinn
Bergsveinsson 3 (11/2 á sig).
Brottvísanir: 14 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 4 af 4.
Áhorfendur: 300.
Gœði leiks (1-10): 6.
Dómarar (1-10): Gallego og Lamas
frá Spáni. (6).
;}oí' í Ci;o/o
Mörk: Carlos Resende 10/4, Filipe Cruz 6/2,
Eduardo Coelho 4, Carlos Galamas 2, Ricardo
Costa 2, Victor Tchikoulaev 2, Rui Rocha 1,
Mario Costa 1.
Varin skoú Paulo Morgado 12, Sergio Morgado 1.
Brottvísanir: 6 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 6 af 8.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari:
Vantaði alla samvinnu í vörnina
„Það er fátt að segja eftir
svona leik því við vorum ein-
faldlega lélegir. Við lékum síð-
ari hálfleikinn afspymu illa
og vorum að láta reka okkur
út af í tíma og ótíma.
Þetta virðist vera tölu-
vert vandamál hjá okk-
ur og við spiluðum
greinilega of fast að
mati dómaranna. Þó að
við séum að leika fast
erum við aftur á móti
ekki að leika góða vöm.
Stærsti höfúðuverkurinn er
vömin en alla festu vantar í
hana og í kjölfarið fáum við
enga markvörslu," sagði Þor-
bjöm Jensson eftir leikinn við
Portúgal.
- Hvað olii því að vömin var
ekki betri?
„Það er eins og alla sam-
vinnu vanti og við verðum að
halda vinnunni áfram og fylla
upp í götin.“
- Við höfum lengstum staðið
miklu framar en Portú-
galar. Úrslitin eru mikil
vonbrigði?
„Jú, markmiðið var að
vinna þá. Það eru þrjú
lið í riðlinum sem eru í
svipuðum gæðaflokki
og við og þar sá maður
mestu möguleikana. Hins veg-
er alveg ljóst að á meðan við
leikum ekki betur en þetta þá
vinnum við ekki leik.“
— Hvað olli þessum umskiptum
á liöinu í síðari hálileik?
„Liðið missti alla einbeitingu
í byrjun síðari hálfleiks og við
misstum þá fljótlega frá okk-
ur. Eftir það áttum við aldrei
viðreisnar von og þeir bættu
frekar í heldur en hitt. Við
náðum aðeins að krafsa í þá i
lokin en það var um seinan."
- Óánægjan leynir sér ekki i
svip þínum?
„Auðvitað er ég óánægður
því við áttum að gera betur.
Við áttum bara skilið að tapa
eins og við lékjum seinni hálf-
leikinn. Maður hefði ekki sætt
sig við að tapa jöfnum leik
með einu marki en ekki
svona. Mér fannst við vera
betri en þeir í fyrri háitleik en
vorum klaufar að auka ekki
forskotið. í síðari hálfleik vor-
um við að klikka i mörgum
opnum færum af línunni.
Þetta er vandamál sem verð-
ur að vinna bug á,“ sagði
Þorbjörn. -JKS
Carcia Cuesta Javier:
Afrek að vinna
íslendinga
„Fyrri hálfleikur var mjög erfiður og
þá lék íslenska liðið mjög fast. 1 síðari
hálíleik snerist dæmið við og við náð-
um yfirhöndinni. Sóknarleikurinn hjá
okkur var frábær en endaspretturinn
var að sama skapi ekki nógu einbeitt-
ur. Ég er mjög ánægður með frammi-
stöðu minna manna í þessum leik því
ég hafði nokkrar áhyggjur af honum.
Ég þekki íslenska liðið vel og veit að
það er alltaf erfitt viðureignar. Það er
gott afrek að leggia íslendinga að velli
en mér finnst gagnrýnin á þá ekki al-
veg sanngjörn," sagði Carcia Cuesta
Javier, þjálfari Portúgals. -JKS
ÞIN FRISTUND
-OKKAR FAG
ni I tlii
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is