Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Page 4
22
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000
Sport
Úrslit leikjanna á EM í gær:
A-riðill
Spánn-Úkraina .............27-24
Þýskaland-Frakkland.........19-25
Króatía-Noregur.............27-23
B-riðill
Svíþjóö-Portúgal.............29-21
Ísland-Rússland .............23-25
Danmörk-Slóvenía.............24-28
Dagur Sigurðsson skorar
her eitt fimm marka sinna
gegn Russum i gær,
DV-myndir Silvans Sezina
»CELANDAiK
sm
mm
"y. n
’&j
f sum:
ði hraðaupphlaup 25 sekúndum fyrir leikslok
- Valdimar mis
23(14) -
25(15)
1-0, 1-2, 2-3, 3-5, 5-5, 7-8, 9-10, 10-12, 11-13, 13-13, 13-14 (14-15),
14-16, 16-16, 16-18, 17-18, 17-23, 20-23, 22-24, 23-24, 23-25.
Mörk (skot/tapadir): Valdimar Grímsson
6/5 (9/1), Dagur Sigurðsson 5 (8/1), Gústaf
Bjamason 4 (8/1), Patrekur Jóhannesson 4
(10/2), Ólafur Stefánsson 3 (7/1), Róbert Julian Duranona 1 (4/0).
Samtals: 23/5 (46/6). Stoösendingar: Ólafur 3, Dagur 2, Valdimar 2,
Patrekur 1, Gústaf 1, Duranona 1.
Varin skot: Sebastian Alexandersson 9 (29/3 á sig), Guðmundur
Hrafnkelsson 6 (11/1 á sig).
Brottvísanir: 8 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 5 af 6.
Áhorfendur: 1200. Gœöi leiks (1-10): 8. Dómarar (1-10): Majstorovic og Pendic frá Júgóslavíu (7).
Mörk: Dimitri Filppov 6/4, Lev Voronin 5,
Eduardo Moskalenko 4, Oleg Grebnev 3,
Serguei Pogorelelov 2, Alexandre
Toutchkine 2, Oleg Khodkov 2, Oleg Koulechov 1. .
Varin skot: Andrei Lavrov 21/1.
Brottvisanir: 6 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 4 af 4.
DV, Króatíu:
íslenskt landslið í handknattleik
hefur ekki í mörg ár verið eins
nálægt því að ná jöfnu gegn
rússneska birninum en í leik
þjóðanna á Evrópumótinu í Rijeka í
gærkvöld. Þegar 25 sekúndur voru
eftir brunaði Valdimar Grimsson
upp í harðaupphlaup í stöðunni, 23-
24, en Andrei Lavrov, markvörður
Rússa, sá við Valdimari, varði, og
Rússar náðu sókn og bættu við 25.
markinu í lokin. Það hefðu verið
frábær úrslit að ná jöfnu en liðið
sýndi þó umfram allt annan og betri
leik en það hafði sýnt fram að þessu.
Ljós í myrkrinu
Það er ljós í myrkinu að sjá
strákana rifa sig upp og leika með
þeirri getu sem það hefur styrk til.
Eftir slæm töp í leikjunum á undan
gegn Svíum og Portúgölum tók liðið
sig saman í andlitinu og gaf
rússneska liðinu ekkert eftir í
leiknum ef undan er skiiinn leikkafli
snemma í síðari hálfleik. Þessi
frammistaða sýnir að ekki er öll nótt
úti og ef liðið ieikur með sama hætti
í leikjunum tveimur, sem fram
undan eru gegn Dönum og Slóvenum,
er hægt að bjarga málunum. Ef það
gengi eftir eru möguleikar á sæti í
næstu heimsmeistarakeppni eftir allt
saman.
Það var öðru fremur frábær
varnarleikur islenska liðsins sem
hlés lífí 1 liðið og sóknarleikurinn
fylgdi í kjölfarið. Liðið lék af
yfirvegun í sókninni sem ekki hafði
sést áður. Þessi leikur var
tvímælalaust besti feikur liðsins í
keppninni og synd að hann gæfi ekki
eitt stig.
Leikgleði og barátta
Gangur leiksins fór í taugamar á
Rússum og olli sterkur vamarleikur
íslenska liðsins þeim miklum vanda.
Leikgleðin og barátta einkenndi leik
íslands og undir þeim
kringumstæðum þekkti maður
strákana rétt. Baráttan getur fleygt
mönnum langt eins og berlega kom í
ljós í leiknum.
Slæmur kafli
Sfæmur leikkafli í síðari hálfleik
setti leik íslands í mikinn vanda en
þá skoraði liðið aðeins þrjú mörk á
rúmlega 18 mínútna kafla. Rússar
náðu þá fimm marka forskoti og
leikurinn virtist úti fyrir okkar
menn. íslenska liðið small hins vegar
á ný í gang og saxaði jafnt og þétt á
forskot Rússa og þegar rúm mínúta
var til leiksloka minnkaði Róhert
Duranona muninn í eitt mark, 23-24,
og mikil spenna hljóp í leikinn.
Rússar misstu boltann í næstu sókn
og íslendingar fengu tækifæri til að
jafna sem ekki gekk eftir eins og að
framan var lýst.
íslenska liðið náði að sýna hvað í
því raunverulega býr og þennan
styrk verður að nýta í leikjunum
gegn Dönum og Slóvenum.
Enn þá von
Sjálfstraust manna hlýtur að hafa
aukist við þennan leik. Nú verður
bara að halda vöku sinni og einbeita
sér af alefli fyrir lokaleikina tvo í
riðlinum. Það er enn þá von og í
hana verður halda þangað til
lokaflautið gellur.
Dagur Sigurðsson og Patrekur
Jóhannesson léku vel í íslenska liðinu
og Gústaf Bjarnason var góður í fyrri
hálfleik. Sebastian Alexandersson
varði ágætlega í fyrri hálfleik en
Guðmundur Hrafnkelsson kom inn á
eftir miðjan síðari hálfleik og varði
vel. Samheldnin var sterk, menn voru
staðráðnir að gera sitt besta en aðeins
vantaði herslumuninn. Próflnu er
ekki lokið og enn er tími til að koma
málunum í höfn.
-JKS
Vladimir Maximov, þjálfari Rússa:
Lavrov bjargaði okkur í lokin
„Heppnin var okkar megin undir lok leiksins. Lavrov i markinu bjargaði
okkur og það er ekki í fyrsta sinn sem hann gerir það. íslenska liðið velgdi
okkur verulega undir uggum og gerði okkur mjög erfitt fyrir á mörgum
sviðum. íslenska liðið gafst aldrei upp eins og endranær og var komið
hættulega nálægt okkur undir lokin. Sem betur fer datt sigurinn okkar
megin og að fá stigin tvö var dýrmætt. Ég vissi það fyrir leikinn að hann
yrði okkur erfiður. íslendingar voru búnir að tapa leikjunum á undan og
þeir ætluðu að selja sig dýrt sem kom á daginn," sagði Vladimir Maximov,
þjálfari rússneska landsliðsins. -JKS
Heppnin ekki með okkur
„Heppnin var ekki með okkur undir lokin. Það sem er þó númer eitt að við
lékjum þennan leik vel. Menn komu til baka og sýndu hvað í þeim býr. Við
erum búnir að sýna. ákveðna getu sem við erum búnir að leita að á síðustu
dögum. Ákveðin vamaruppstilling virkaði vel og allt annað var að sjá til
liðsins. Spurningin er núna hvort við ætlum ekki að taka þá tvo leiki sem
fram undan eru. Hópurinn getur ekki hengt sig á stigin sem við töpuðum
fyrir Rússum. Núna verðum við að vinna saman að því að landa þessu og
með heppni gætum við náð í þokkalegt sæti í þessu móti,“ sagði Einar
Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, í samtali við DV eftir
leikinn við Rússa í gærkvöld. Það hafa komið fyrir leikkaflar í öllum
leikjunum þremur til þessa þar sem liðið dettur hreinlega úr sambandi. Þetta
er kannski spuming um hvort við séum að skipta mönnum rétt inn á. í
leiknum við Rússa sýndu menn mikinn karakter og það er það sem við
höfum verið að leita að,“ sagði Einar Þorvarðarson. -JKS
Tölurnar tala -,
island hefur aldrei
verið eins nálægt aö
55%
vinna Rússa á
stórmóti en allir 8
leikirnir hafa tapast.
Guómundur Hrafnkels-
son kom sterkur inn í
stöðunni 17-20 og varði 6
af 11 skotum (55%) Rússa
það sem eftir var leiksins
en það var ekki nóg.
5Dagur Sigurösson kom af
miklum krafti í leikinn og
skoraði 2 mörkum fleira en i
fyrstu tveimur ieikjunum.
Hann átti auk þess 2
stoösendingar og 4 inn á línu
sem gáfu vítaköst.
tslandsvinirnir Fil-
10 /10 tPP°v (6) og Moska-
“v/ lenko (4) nýttu öll tiu
skot sin i leiknum.
Rússar náðu upp 6
Q*00 mar*!a forskoti, 17-23,
W þegar jsienska liðið skor-
aði ekki i 9 mínútur og
misnotaði 6 sóknir í röð.
Andrei Lavrov varöi 21. og
B mikilvægasta skot sitt 25 sek-
úndum fyrir leikslok er
Valdimar Grimsson komst
einn i gegn i hraðaupp-
hlaupi. Lavrov varði alls 14
skot maður á móti manni í
leiknum.
21
Þetta sögðu þeir
Patrekur Jóhannesson
„Það vantaði hársbreiddina og Lavrov
sýndi það eina ferðina enn hve frábær
markvörður hann er þegar hann varði
ffá Valdimar undir lokin. Við sýndum
þó að það búa ýmiss öfl í liðinu og við
erum smám saman að ná betri tökum á
leik okkar. Við þurfum bara okkar tíma
og því miður þarf það að gerast i
þessari Evrópukeppni. Þetta eru bara
staðreyndir sem Þorbjörn þjálfari þarf
að takast á við. Mér fannst við sýna
mun betri vamarleik en áður en yflr
heildina var synd að ná ekki einu stigi.
Þessu er alls ekki lokið. Við eigum
Danina á þriðjudag og ef við leikum
svona þá tökmn við danska liðið.“
Valdimar Grxmsson
„Við vorum sorglega nálægt þessu og
ég var kannski næst því af öllum þegar
upp er staðið. Ég verð að bíta á það en
engu að síður fannst mér leikurinn
frábær og menn lögðu sig 100% fram.
Það var góður karakter í liðinu og
menn áttuðu sig á því að við þurftum
að gera þetta meira frá hjartanu og
það tókst. Hver og einn tók sig taki,
menn fóru að hugsa sjálfir hvemig
þeir gætu bætt sig. Nú er bara að
halda áfram og leikurinn við Dani
verður allt eða ekkert."
Guömundur Hrafnkelsson
„Það tókst sem við ætluðum okkur en
það var að bæta okkar leik. Þetta var
flnn leikur af okkar hálfu og sýnir að
við eram á réttri leið. Ég held að það
sé alls ekki útilokað að við tökum
næstu tvo leiki og bætum því úr því
sem liðið er. Það býr ýmislegt í liðinu
og við verðum að laða það fram með
öllum ráðum.“
Dagur Sigurðsson fyrirliði
„Við þurfum ekkert að sanna fyrir
þjóðinni því hún veit alveg hvað við
getum þegar við leikum eðlilega. Það
var allt annað að sjá til liðsins og
sérstaklega var vamarleikurinn
sterkur að mínu mati. Leiðin verður
vonandi upp á við úr þessu og við
verðum að vinna næstu tvo leiki.“
-JKS