Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 5
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000
23
Úrslit leikja fyrstu
tvo dagana á EM
A-riöilI
1. dagur
Spánn-Króatia ..............27-22
Þýskaland-Úkraína...........24-24
Frakkland-Noregur ..........24-21
2. dagur
Króatía-Þýskaland ..........21-20
Noregur-Spánn...............21-25
Úkraína-Frakkland...........22-24
B-riðiU
1. dagur
Rússland-Danmörk............27-26
Svíþjóö-Ísland..............31-23
Portúgal-Slóvenía...........28-27
2. dagur
Danmörk-Svíþjóð.............22-29
Slóvenía-Rússland ..........23-27
Ísland-Portúgal.............25-28
(Sjá úrsUt frá því í gær á siöu 22)
Næstu leikir
A-riöiU
4. dagur, þriðjudagur 25. janúar
Frakkaland-Spánn............16.00
Þýskaland-Noregur...........18.00
Úkraína-Króatía.............20.00
B-riöiU
4. dagur, þriöjudagur 25. janúar
Svíþjóð-Slóvenía............16.00
Portúgal-Rússland...........18.00
Island-Danmörk .............20.00
Nú skipta riólarnir um leikstaði,
þannig aö A-riðill kemur til Rijeka en
okkar riðill, B-riðillinn, fer til
höfuðborgarinnar Zagreb. -ÓÓJ
„ Mats Olsson:
Island kemur
mest á óvart
Mats Olsson, fyrrum mark-
vörður sænska landsliðsins í
handbolta, telur að það sem mest
hafi komið á óvart það sem af er
keppninni sé hversu íslenska
landsliðið hafi verið dauft í upp-
hafi móts. Olsson, sem er nú að
lýsa leikjum fyrir sænska sjón-
varpið, hætti eftir Ólympíuleik-
ana 1996 en hafði löngum gaman
af því að loka markinu fyrir ís-
lensku skyttunum þegar hann
var á fullri ferð. -JKS
Sport
Þjóöverjinn Volker Zerbe (dökkur) er tekinn hér að ofan föstum
tökum af Bozidar Jovic frá Króatíu en Kroatía lagöi Þjóöverja að
velli meö einu marki í hörkuleik á laugardag. Reuters
Magnus Wislander (til vinstri) og Ola Lindgren hafa fagnað sigri í 20 af 24
Evrópuleikjum sínum með Svíum og Svíar viröast vera í miklum sérflokki nú ef marka
má fyrstu þrjá daga Evrópumótsins í handbolta sem fram fer í Króatíu. Reuters
Sama gamla, góða sagan á Evrópumeistaramóti landsliða í Króatíu:
Svíar í sérflokki
- hverjir geta stöðvað sænsku vélina sem aldrei virðist eldast?
Evrópumeistaramótið í handbolta
er nú komið á fulla ferð og þó að illa
gangi hjá íslenska liðinu er sumt sem
aldrei breytist á stórmótum i hand-
bolta, Svíar eru alltaf bestir.
Sviar hafa unnið þrjá fyrstu leiki
sína mjög sannfærandi í Króatíu,
vörnin og markvarslan eru á sínum
stað og sóknin gengur snurðulaust
enda liðið með aðeins 10 tapaða bolta
í fyrstu tveimur leikjunum, sex færri
en næsta lið og liðið er einnig með
59% sóknarnýtingu, sem er auðvitað
tala í sérflokki á mótinu.
Hinar Norðurlandaþjóðirnar þrjár,
sem töpuðu sex fyrstu leikjum sínum,
hafa aftur á móti mátt muna fifil sinn
fegri á undanfómum mótum.
Svíar hafa urrnið þetta mót í tveim-
ur af þremur skiptum sem það hefur
verið haldið og Svíar hafa unnið 20 af
24 leikjum sínum í EM.
Svíar eru að spila á sama kjarna
og á undanfomum áratug en Stefan
Lövgren hefur komið mjög sterkur
inn í þessa keppni og orðinn einn
allra besti handboltamaður heims.
Bengt Johansson nær alltaf því
besta út úr sínum leikmönnum og
það má sjá á leikmanni eins og
Magnus Wislander að Bengt hefur
fundið nýjan samastað fyrir hann
inni á línu þar sem þessi fyrrum
besti handknattsleiksmaður heims
hefur skorað fimm mörk úr 6 skotum
f fyrstu tveimur leikjunum og fiskað
6 víti að auki.
Skytturnar frá Spáni
Spánverjar hafa sýnt styrk í hin-
um riðlinum og sterkar skyttur liðs-
ins sem njóta góðs af góðum sending-
um Talant Dujshebaev auk þess sem
hann hefur gert 11 mörk sjálfur fyrir
utan. Alls gerði spænska liðið 27
mörk fyrir utan í góðum sigurleikj-
um gegn Króötum og Norðmönnum,
sem var sjö mörkum fleira en næstu
lið gerðu tvo fyrstu dagana.
Þjóðverjar töpuðu óvænt stigi gegn
Úkraínu í fyrsta leik og eftir tap gegn
heimamönnum í öðrum leik er ljóst
að þeir hafa oft verið sterkari.
Heimamenn eru skeinuhættir auk
Frakka sem hafa unnið fyrstu tvo
leikina, mest á reynslunni. Rússa-
seiglan kom þeim i gegnum fyrstu
tvo leikina en ef marka má byrjun
mótsins gæti keppnin um annað sæti
riðilsins orðið mjög hörð. -ÓÓJ
Undarlegt
Þorbjörn Jensson var ósáttur
við fjölda brottvísana sem ísland
hefur fengið á mótinu en eftir tvo
fyrstu leikina var íslenska liðið
búið að vera tíu mínútum lengur
út af en næstu lið sem eru
Portúgal og Spánn. Þetta er
samtals í 30 mfnútur, eða 25%
leikjanna. Þorbjöm gagnrýndi
það á blaðamannafundi eftir
leikinn við Portúgal og ekki sist
það að spænskir dómarar skildu
vera settir á leik íslands og
Portúgals þar sem Carcia Cuesta
Javier, þjálfari portúgalska
liðsins, er Spánverji. -JKS
VW Golf 1,6, f.skrd. 16.09.1997,
bsk., 5 dyra, ekinn 30 þ.km, blár.
Verð kr. 1.160.000.
Hyundai Accent, f.skrd. 27.08.1997,
ssk., 5 dyra, ekinn 13 þ.km, grár.
Verð kr. 920.000.
VW Golf CL, f.skrd. 27.08.1993, bsk.,
3 dyra, ekinn 93 þ.kin, rauður.
Verð kr. 710.000.
Toyota Avensis, f.skrd. 22.12.1997,
ssk., 4 dyra, ekinn 30 þ.km, Ijósgrænn.
Verð kr. 1.495.000.
Opel Corsa, f.skrd. 31.05.1995,
ssk., 5 dyra, ekinn 43 þ.km, rauður.
Verð kr. 800.000.
Toyota Hilux D/C, bensín, f.skrd.
20.09.1992, bsk., 4 dyra, ekinn, 102 þ.km,
dökkgrænn.
Verð kr. 1.160.000.
MMC Pajero 3000, bensín, f.skrd.
23.10.1991, ssk., 5 dyra, ekinn 138 þ.km,
grænn/brúnn.
Verð kr. 1.540.000.
Mazda 323, f.skrd. 04.08.1995,
bsk., 4 dyra, ekinn 88 þ.km, grænn.
Verð kr. 740.000.
BILASALANl
Volvo 440, f.skrd. 22.03.1995,
ssk., 4 dyra, ekinn 94 þ.km, grár.
Verð kr. 920.000.
Borgctrtúni 26. símar 561 7510 & 561 7511