Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 2
20 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000 Sport Hvað finnst þér? Hvaða leikmaður íslenska landsliðsins stóð sig best á Evrópumótinu í handbolta í Króatíu? Friðleifur Gunnlaugsson: Þetta hefur veriö ósköp dapurt og ég vll ekki taka neinn ákveðinn út. Hörður Þorsteinsson: Það er ungi strákurinn, hann Guðjón Valur Sigurðsson. Hann stóð sig frábærlega þegar hann fékk tækifærið. Edwin Rögnvaldsson: Gústaf Bjarnason. Hann hefur sýnt jafnasta leikinn á mótinu og það er alltaf hægt að treysta á hann. Jakobina Cronin: Gústaf Bjamason og Róbert Sighvatsson hafa sýnt mestan stöðugleika í leikjum liðsins. Ragnar Ólafsson: Róbert Sighvatsson. Hann virðist vera i toppformi. Hinir virðast ekki vera í þvi formi sem þarf til að standa sig á svona stóru móti. DV Lyfta verður grettistaki - læra þarf af mistökunum í Króatíu. Ísland-Úkraína 26-25 og 11. sætið Islenska landsliðinu handknattleik tók loksins að innbyrða sigur á Evr- ópuótinu í Króatiu þegar liðið lagði Úkraínu i leik um 11. sætið í viðureign þjóðanna í Rijeka með 26 mörkum gegn 25. Það fór vel á því að Róbert Sig- hvatsson, besti maður íslenska liðsins, skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok af línunni og lék hann manna mest í keppninni. Þessi sigur var móralskur fyrir liðið en engu að síður varð hlutskipti þess að hafna í næstneðsta sæti mótsins af tólf þjóð- um. Þetta er árangur sem enginn unir við og ljóst er að mikil vinna blasir við innan handknattleikshreyfmgarinnar að rétta liðið við sem hefur verið flagg- skip sambandsins um árabil. Allir sem koma nálægt liðinu geta að mörgu leyti dregið vissan lærdóm af þessari keppni. Þaö fór ýmislegt úr- skeiðis og af þeim mistökum verða menn að læra. Ýmis utankomandi vandamál, svo svo meiðsl og annað, settu að vísu strik í reikninginn en það mátti gera miklu betur og 11. sætið er niðurstaða sem enginn, sem vill hand- boltanum vel, sættir sig við. Fram hjá þeirri staðreynd verður ekki litið að liðið féll á prófmu. Það fær fljótlega tækifæri aftur og þá kemur í ]jós hvort það er tilbúið að standast atlöguna. Það blasir við virkileg uppstokkun og rótfóst framtíðarsýn til að byggja upp gott landslið. Að þeirri uppbygg- ingu verða allir að koma sem valdir hafa verið til að vinna innan hand- knattleikshreyfingarinnar, enginn get- ur skorast undan í þeim efnum. Hand- boltinn stendur á vissum krossgötum eftir þetta Evrópumót, taka verður strax á vandamálinu og gera allt sem i valdi stendur til að koma landsliðinu til veg og virðingar á nýjan leik. Landsliðið hefur oftsinnis skemmt þjóðinni. í þetta skipti gerði liðið það ekki og nú verður að blása til sóknar að öllum mætti. Þótt innanhússvandamál hafi gert umhverfið erfitt, svo sem fjárhags- vandamál, verður að spyma við fótum, bretta upp ermar og nýta alla þá krafta sem fyrir hendi eru. Takmarkið er ein- falt; gera landslið okkar betra en það er í dag og ef tekið er á því máli með skynsömum hætti er allt hægt. Ef ekk- ert gerist drögumst við enn aftur úr og hver vill það? Staðan í dag liggur ijós fyrir. Þor- bjöm Jensson á ærinn starfa fyrir höndum. Honum er falið af æðstu valdastofnun handknattleiksins í land- inu að stjóma skipinu og búa verður honum gott starfsumhverfi. HSÍ verð- ur að búa honum eins skapandi um- hverfi og unnt er. Viðureignin við Úkraínu var bam- ingur frá upphafi eins og við mátti bú- ast. íslenska liðið átti lengstum fmm- kvæðið en lenti þó stundum í tölu- verðu basli. Aftur og aftur blöstu sömu vandamálin við. Sóknin var mistæk og vörnin var að sama skapi ekki sann- færandi. Neistinn var þó á köflum iif- andi og hann fleytti liðinu alla leið. Það að vinna sigur var á vissan hátt plástur á sárið sem hafði stækkað ört í riðlakeppninni. Liðið hafnaði allténd ekki i neðsta sæti í fyrstu úrslita- keppni sinni á meðal tólf bestu þjóða í handknattleik í Evrópu en sárið er engu að síður til staðar. Róbert Sighvatsson stóð upp úr í ís- lenska landsliðinu i þessum leik, sem og í allri keppninni. Hann er leikmað- ur sem gefst aldrei upp og geta aðrir leikmenn í liðinu tekið sér hann til fyr- irmyndar. Valdimar Grimsson gerði enn fremur ágæta hluti. Hann sýndi fyrir keppnina mikla atorku í meiðsl- um sínum. Hann var ákveðinn að koma sér í gang og óx ásmegin með hverjum leik. Hann er leikmaður sem gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. -JKS 94% Skotnýting Valdimars Grimssonar (9 af 10) og Róberts Sighvatssonar (6/6) í leiknum, samtals 15 mörk úr 16 skotum. Hinir leikmenn liösins þurftu aftur á móti 25 skot til að skora hin 11 mörkin (44%). 16 og +10 14 20 Guðmundur Hrafnkelsson og Sebastian Alexandersson vöröu samtals 24 skot 1 leiknum. Guðmundur tók 19 af fyrstu 33 en eftir 7 mörk Ukraínu í röð kom Sebastian inn og varði 5 af síðustu 10. Það ótrúlegt að íslenska liðiö skyldi vinna leik sem þaö tapar alls 16 boltum í. Úkraínumenn töpuðu aðeins 6 eða 10 færri en íslenska liöiö. Róbert Sighvatsson fiskaði 4 viti og tvo Úkraínumenn út af i tvœr minútur í leiknum, auk þess sem hann nýtti öll sex skot sín. Róbert flskaði alls 14 viti á EM í sex leikjum og mótherjamir hvíldu i 20 mínútur eftir að hafa brotið á kappanum. Ólafur Stefánsson sendi átta ' . . stoðsendingar í leiknum gegn " Úkraínu og átti samtals 37 stoðsendingar í keppninni, þar af 13 inni á línu Ólafur sendi átta sinnum á Gústaf, 7 á Valdimar, 6 á Róbert, 5 sá Patrek, 5 á Guðjón, 2 á Magn- ús, og 1 sinni á þá Magnús Má, Dag, Duranona og Sigurð. -ÓÓJ íslenska landsliöiö eftir sigurinn gegn Úkraínu. Erfftt andlega „Það er léttir að þessari keppni skuli vera lokið. Hún er búin að vera mjög erfið líkamlega og ekki síður andlega. Það hefur tekið virkilega á taugamar að þurfa að sætta sig við tap dag eftir dag. Það var móralskt mjög gott fyrir okkur að vinna Úkraínu,“ sagði Dagur Sigurðsson við DV eftir síðasta leik liðsins á Evrópumótinu í Króatíu. „Ég sé ekki ástæðu til að örvænta neitt og við verðum að halda ró okkar. Ég hef oft bent á að eftir HM 1997 voru allir ánægðir. Síðan þá hefur liðið séð á eftir sterkum leikmönnum á borð við Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson. Að auki léku Bjarki og Konráð ekki með okkur hér. Allt eru þetta miklir reynslumenn og þetta gerir það að verkum að liðið er ekki eins massíft og áður. Einnig vantar nokkuð upp á snerpu, getu og sjálfsöryggi hjá þeim lykilmönnum sem nú eru i liðinu. Þetta finnst mér vera aðalatriðið," sagði Dagur Sigurðsson. -JKS R Island26(13) - Ukraína 25 (12) l-O, 1-1, 3-1, 5-2, 6-4, 6-5, 7-6, 9-8, 11-9, 11-11, 12-12 (13-12), 13-14, 15-14, 16-16, 18-18, 19-18, 19-21, 22-21, 23-23, 24-23, 25-25, 26-25. Island Mörk (skot/tapaóir): Valdimar Grímsson 9/4 (10/0), Róbert Sighvatsson 6 (6/1), Patrekur Jóhannesson 4 (5/2), Ólafur Stefánsson 3 (8/5), Guðjón Valur Sigurðsson 2 (3/1), Dagur Sigurðsson 1 (4/2), Sigurður Bjamason 1 (5/5). Stoðsendingar: Ólafur 8, Patrekur 3, Valdimar 1, Guðjón 1, Sigurður 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 19 (39/3 á sig), Sebastian Alexandersson 5 (10/1 á sig). Brottvisanir: 8 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Áhorfendur: 50. Gœði leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Pendic og Majstorovic frá Júgóslaviu (7). Ukraína Mörk: Oleg Velykyy 11/4, Ruslan Prudius 6, Yuriy Khaukha 2, Vitaliy Nat 2, Yuriy Petrenko 2, Vyacheslav Lochman 1, Dmytro Provorinikov 1. Varin skot: Oleg Nagomyy 14. Brottvisanir: 6 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 4 af 5.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.