Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Blaðsíða 4
22 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000 Sport i>v Tölfræði Islands áEM 2000 Guömundur Hrafnkels- son varði 42,3% þeirra skota sem á hann komu, 15,2 að meðaltali í leik. Guðmundur varði 46,8% skota maður gegn manni en þó aðeins 13% vítanna og 49,3% skota af 9 metrum. Bergsveinn Bergsveinsson varði 5 skot af 16 (31,3%) og Sebastian Alex- andersson 14 af 41 (34,1%). Róbert Sighvatsson nýtti 80% skota sinna (16 af 20), fiskaði auk þess 14 víti og stal 6 boltum og var hvort tveggja það mesta hjá liðinu. Róbert fiskaði líka flesta andstæðinga út af, eða samtals i 20 mínútur. Magnús Már Þóröarson fékk að spreyta sig gegn Portúgal og skoraði þá 2 mörk úr 4 skotum en lék ekki með nema í rúmar 18 mínútur. Valdimar Grímsson varð markahæstur í íslenska liðinu með 41 mark í 6 leikjum eða 6,8 að meðal- tali en Valdimar nýtti 81,5% vítanna (22 af 27) og 19 af 28 skotum utan af velli. Sjö marka hans komu eftir hraðaupp- hlaup. Valdimar átti 9 stoðsendingar og tapaði 5 boltum. Njöröur Árnason lék aðeins fyrsta leikinn og misnotaði þá bæði skot sín. Njörður lék styst allra leikmanna íslenska liðsins, eða aðeins tæpar 12 mínútur. Dagur Sigurösson nýtti aðeins 37,9% skota sinna (11 af 29) sem var þriðja slakasta skotnýting leikmanna. Hann átti 12 stoðsendingar og tapaði 9 bolt- um í hendur andstæðinganna. Patrekur Jóhannesson var grófasti leikmaður liðsins en alls var hann sendur átta sinnum út af i kælingu. Patrekur tapaði líka flestum bolt- um, eða 16. Patrekur nýtti 45,7% skota sinna, 21 af 46, en þó aðeins 11 af 27 af 9 metrum. Patrekur átti líka 13 stoðsendingar og varði flest skot strák- anna, eða 6. Gústaf Bjamason skoraði flest mörk allra úr hraðaupphlaupum, alls átta, og nýtti 62,1% skota sinna (18 af 29) en hann lék Utið í síðustu 2 leikjunum. Guöjón Valur Sigurðs- son skoraði 7 mörk úr 9 skotum í þeim 3 leikjum sem hann lék. Þetta er 77,8% nýting en hann gerði fjögur mörk eftir að hafa leyst inn á línu. Rúnar Sigtryggsson og Magnús Sig- urösson léku nánast hara í vörninni og fékk Magnús meðal annars 6 sinn- um að hvíla sig en Magnús gerði 2 mörk en Rúnari tókst ekki að skora. Ólafur Stefánsson kom að gerð 59 marka is- lenska liðsins. Hann skoraði 22 úr 46 skotum (47,8%) og átti síðan 37 stoðsendingar á félaga sína. Ólafur skaut 31 sinni á markið fyrir utan 9 metrana á þeim fjórum og hálf- um tíma sem hann lék en það eru 8,7 mínútur milli skota. Hann átti líka fleiri stoðsendingar en skot fyrir utan. Ólafur gaf flest víti strákanna, eða 7, en hann tapaði 15 boltum og stal 4 til baka. Róbert Julian Dura- nona nýtti aðeins 1 af 15 skotum sínum fyrir utan níu metrana. Sjö skota hans voru varin í vöminni og öll 6 niður í vinstra hornið voru var- in. Duranona skoraði 5 mörk úr 22 skotum (22,7%) en það var versta nýtingin í liðinu. Hann fiskaði fjögur víti og tapaði 2 boltum. Siguröur Bjarnason nýtti aðeins 25% skota sinna (2 af 8) og tapaði 7 boltum, auk þess sem hann gaf 3 víti á þeim tíma sem hann spilaði í vöminni. íslenska liöiö fékk á sig 33 mörk út 48 sóknum, manni færriá mótinu, sem er 68,8% nýting mótherjanna. Sama töl- fræði var 18 mörk úr 36 sóknum, með einum manni meira. Islenska liðið lék alls 41 sókn manni færri eða 16 fleiri en andstæðingarnir. íslensku markveröirnir voru slaka- astir í vítum á mótinu en aðeins tókst að loka fyrir 4 af 32 vítum, eða 12%. fs- lensku markverðimir vörðu einu víti meira en þau sem mótherjarnir hittu ekki markið. -ÓÓJ Makedónía - ísland mætir Makedóníu í útsláttarkeppninni fyrir HM eftir ár DV, Króatíu: ísland dróst gegn Makedóníu í út- sláttarkeppni fyrir heimsmeistara- mótið í Frakklandi 2001. Dregið var í Zagreb í hádeginu í gær. Leikið verður heima og heiman og verður fyrri leikurinn ytra helgina 3. og 4. júní og síðari viðureignin á íslandi helgina á eftir. Af því að íslenska liðið var í keppninni hér í Króatíu á liðið síð- ari leikinn heima en það er talinn góður kostur. Það ríkti almenn ánægja á meðal forsvarsmanna HSÍ sem voru viðstaddir dráttinn í gær. Þessar sömu þjóðir mættust í út- sláttarkeppni fyrir EM hér í Króa- tíu í fyrrasumar. ísland vann fyrri leikinn heima, 32-23, en tapaði í Skopje, 32-29, og tryggði sér sæti á EM á samanlagri markatölu. „Það var það skásta í stöðunni og mun betri kostur heldur en að fá kannski Júgóslavana. Við eigum jafna möguleika gegn þeim og við þekkjum liðið vel frá leikjunum í fyrrasumar. Við þekkjum aðstæður í Makedóníu og það er mjög gott,“ sagði Þorbjöm Jensson landsliðs- þjálfari. Guðmundur Ingvarsson tók undir orð Þorbjarnar og sagði að hann heíði ekkert haft á móti því að fá Pólverjana. Makedónía er samt ágætis mótherji en ferðlag þangað er dýrt. Eftirtaldar þjóðir aðrar drógust saman í útsláttarkeppninni. Sviss- Úkraína, Júgóslavía-Danmörk, Pól- land-Þýskaland, Ungverjaland-Nor- egur og Tékkland og Noregur.-JKS DV, Króatíu: „Sigurvilji íslendinga var meiri en hjá mínum mönnum og það skipti sköpum. Þessar þjóðir eru jafnar að getu en islenska liðið er sterkt að mörgu leyti og hefði ef til getað lent ofar með smáheppni. Það sama get ég einnig sagt um mitt lið. Ég er ekki óánægður með framgöngu liðs míns en ég er með ungt lið í höndunum sem á framtíðina fyr- ir sér. Þangað er hugsað og við ætlum að koma þessu liði enn framar á næstu árum,“ sagði Vladyslav Tsyganok þjálfari Úkrainu, eftir leikinn gegn ís- lendingum. Handknattleikssambönd í Evrópu er misjafnlega í sveit sett til að gera vel við landsliðsmenn sína. Fyrir Evrópumótið fékk hver leikmaður spænska lands- liðsins um 600 þúsund fyrir það eitt að keppa fyrir hönd þjóðar sinnar á mótinu. Spænskur handbolti er kominn að nýju inn á réttar brautir eftir erfið ár þar á undan. Félagsliðin eru aö rétta úr kútnum og meira peninga- streymi er inn í íþróttina. Úkraínumaðurinn Oleg Velyky, markahæsti leikmaður Evrópukeppninnar, er eftirsótt- ur af liðum í Þýskalandi og á Spáni. Liðin þaðan hafa komist að því að það þýðir ekkert að reyna fá hann fyrr en eftir þrjú ár. Velyky er ungur að árum og vilja Úkraínumenn halda honum aðeins lengur heima. -JKS Uppgjöf ekki í huga þjálfara né leikmanna DV, Króatíu: „Viö vorum að mestu þungir í leiknum við Úkraínu. Heppnin var með okkur í lokin og við lentum i 11. sætinu. Við erum alla vega ekki neðstir og það er viss sárabót miðað við allt sem á undan er gengið. í mínum huga er engin uppgjöf, núna þarf að snúa við blaðinu og huga að nýju framhaldi. Nýtt framhald er útsláttarkeppnin í júní fyrir HM í Frakklandi 2001 og fyrir hana verðum við að undirbúa liðið sem best. Ég er alveg klár á því að hverjum einasta strák í liðinu líður mjög illa yfir því að þetta fór svona og eru 100% tilbúnir að gera hvað sem er til þess að gera betur. Það er alveg sama með mig og þá að það er engin uppgjöf i hópnum," sagði Þorbjöm Jensson í samtali við DV. Ekkert svartnætti, segir Valdimar Grímsson „Maður er aldrei sáttur við það að lenda í 11. sæti af tólf þjóðum. Ég er samt ánægður að yfirgefa mótið með sigri í síðasta leik. Það er alltaf jákvætt að fá sjálftraustið af stað og við getum dregið mikin lærdóm af þátttöku okkar í mótinu. Við vorum mjög óheppnir í undirbúningnum sem var frekar stuttur. Hann var ekki eins og við höfðum allir vænst, auk þess sem margir leikmenn voru meiddir. Af þessum sökum var erfitt fyrir Þorbjöm að púsla þessu saman. Mér fannst þó leikur liðsins batna með hverjum leik í mótinu en það er engin launung á því að við hefðum þurft að fá fleiri leiki fyrir keppnina,“ sagði Valdimar Grímsson. „Við megum ekki líta á þetta sem svartnætti. Við gerðum í buxurnar og það hefur svo sem gerst áður. Þá hafa menn unnið sig upp úr því og gert betur næst. Það ætlum við einnig að gera eftir þetta mót í Króatíu. Við eigum hæfileikaríka menn heima og það er engin spurning í mínum huga að framtíðin er björt,“ sagði Valdimar. -JKS íslenskt sundfólk gerir lukku á alþjóðlegu sundmóti í Danmörku: Stuð í sundinu - níu íslandsmet eða jafnað, fimm aldursflokkamet og tvö mótsmet Öm Arnarson setti íslands- met í 50 metra skriðsundi og komst inn á OL í 200 metra baksundi. Jakob Jóhann Sveinsson setti glæislegt íslandsmet í 200 metra bringusundi og tryggði sig á OL f Sydney. íslenskt sundfólk var í stuði á opna Sjálandsmótinu sem fram fór í Danmörku um helgina en alls voru sett fjög- ur íslandsmet í einstaklings- sundi, eitt íslandsmet var líka jafnað og önnur fjögur féllu í boðsundi. Þá tryggðu tveir sundmenn sér sæti á Ólympíuleikunum í Sydney, þrjú lágmörk náðust á Evr- ópumótið og tvö mótsmet féllu. Frábær helgi. Jakob kom, sá og sigraöi Jakob Jóhann Sveinsson var maður helgarinnar því hann setti glæsilegt íslands- met i 200 metra bringusundi er hann synti á 2,18,14 mínút- um og náði þar með inn á Ólympíuleikannna í sumar en Jakob vann gull í pilta- flokki í bæði 100 og 200 metra bringusundi. Örn tryggði sætið Örn Arnarson náði Ólymp- íulágmarkinu í 200 metra baksundi þegar hann synti á 2,03,84 mínútum en auk þess setti Örn íslandsmet í fyrsta spretti í 4x50 metra skrið- sundi er hann synti á 23,80 sekúndum og vann síðan gull í 100 metra skriðsundi og silf- ur í 200 metra skriðsundi. Friðfinnur Kristinsson setti íslandsmet í 50 metra flugsundi þegar hann tryggöi sér brons á 25,38 sekúndum en hann vann að auki sigur í 50 metra skriðsundi og brons í 100 metra flugsundi. Lára Hrund Bjargardóttir synti á íslandsmeti í 200 metra skriðsundi þegar hún varð í 2. sæti á 2,04,96 mínút- um og Eydís Konráðsdóttir jafnaði íslandsmetið í 50 metra flugsundi er hún synti á 1,03,83 mínútum. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir náöi Iágmarkinu á Evrópu- meistaramótið í 50 metra baksundi, þegar hún synti á 30,89 sekúndum í fyrsta spretti í boðsundi en auk þess vann hún gull á mótinu í 100 metra baksundi. Hjalti Guðmundsson vann til þrennra verðlauna, gull í 200 metra bringusundi á 2,24,40 mínútum, silfur í 100 metra bringu og loks brons 1 50 metra bringu. Þá setti Hjörtur Már Reynisson pilta- met í 50 metra flugsundi er hann synti á 26,39 sekúndum. Fjögur met hjá írisi Keflvíkingurinn tris Edda Heimisdóttir var sterk á mót- inu og setti fjögur stúlkna- met, tvö í 200 metra bringusundi, það seinna á 2,37,85 mínútum og tvö i 100 metra bringusundi. Seinna sundið synti hún á 1,13,89 mínútum en í báðum grein- um sigraði Iris Edda mjög ör- ugglega og náði með þessum árangri inn í Ólympíuhóp SSÍ. Þeim árangri náði einnig Elín Sigurðardóttir sem synti 50 metra flugsund á 28,73 sek- úndum sem tryggði henni þátttökurétt á Evrópumótinu í Helsinki í júlí. Fjögur met í boðsundi Boðsundsmet í 4x50 metra greinum hafa ekki verið við- urkennd áður og settu boð- sundssveitir íslands met í 4x50 metra fjórsundi á 1,46,78 mínútum og 4x50 metra skriðsundi á 1,37,14 mínútum í karlaflokki og í 4x50 metra skriðsundi á 1,48,45 mínútum og í 4x50 metra fjórsundi á 1,59,59 mínútum í kvenna- flokki. -ÓÓJ Lára Hrund Bjargardóttir setti íslandsmet i 200 metra skriösundi þegar hún synti á 2,04,96 mínútum. íris Edda Heimisdóttir setti fjögur stúlknamet í 100 og 200 metra bringusundi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.