Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Blaðsíða 4
20
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur Bœndasamtak-
anna.
Hrossaeign landsmanna:
SLa.1.* /£■%Cl,
- að mati ráðunautar
Opinberar tölur um hrossabúsakap hér á
landi hafa m.a. verið notaðar af Hagþjónustu
landbúnaðarins við að áætla stærðir og hag
greinarinnar. Fyrirvari er þó gerður á opinber-
um tölum og Olafur Dýrmundsson ráðu-
nautur tekur undir þann vafa og telur hrossa-
eign landsmanna hugsanlega vantalda um
5-10 þúsund hesta.
Samkvæmt opinberum tölum var hrossaeign
hér á landi i hámarki 1996, eða 80.500 dýr.
Síðan hafi orðið fækkun og fjöldinn sé nú um
78.000. Olafur Dýrmundsson ráðunaut-
ur Bændasamtakanna, segir að opinber-
ar tölur í fyrra séu ekki að öllu leyti réttar, þar
vanti inn tölur og því sé eðlilegra að tala um
80 þúsund hross, eða svipað og 1996-1997.
„Opinberar tölur eru þó eins áreiðanlegar og
við getum haft þær. Þeim er safnað af forða-
gæslumönnum og er verkinu stýrt af okkur en
framkvæmdin er á vegum sveitarstjómanna.
Farið er á öll sveitabýli á landinu yfir vetrar-
mánuðina og einnig til allra hrossaeigenda í
þéttbýli og talið. i einhverjum tilvikum eru þó
fengnar uppgefnar tölur hjá bændum þar sem
hross eru í haga.
Við sérstaka búfjártalningu sem gerð var
1989 kom í Ijós að eina búfjártegundin sem
vantalin var, svo einhverju nam, voru hross og
það munaði 13%. Eg vil meina að talningin
hafi heldur batnað síðan, en ég reikna með
að þau séu þó eitthvað fleiri en opinberar töl-
ur segja okkur. Þar eru þau talin vera um 80
þúsund, en er hætt að fjölga. Þetta teljum við
nokkuð nákvæmar tölur, en þó með þeim fyr-
irvara að um 5-10% frávik geti verið að
ræða. Hrossin eru því að minnsta kosti 80
þúsund og gætu hæglega verið 5-10 þúsund-
um fleiri." -HKr
Árni L. Jónsson söðlasmiður:
Hestvænir hnakkar!
- fékk fagréttindi á sjötugsaldri og er á fullu að þróa nýjar hugmyndir
Hnakkurinn er eitt mikilvægasta „verkfærið" sern hesta-
menn þurfa að nota. Hann á að hafa gott sæti fyrir knapann
ásamt því að veita stuðning og vera það þjáll að knapinn
skynji hreyfingu hestsins sem best. Síðast en ekki síst þarf
hnakkurinn að vera þægilegur tyrir hestinn þ.e.a.s. léttur og
mjúkur fyrir bak.
I þessum málum eins og öórum er varða hestamennsku
hefur orðið mikil framþróun. Áður en hið svokalia „fiber-
virki" kom til sögunnar var grindin eða virkið í hnökkunum
úr jámi og tré sem var þungt. En ekki var allt alslæmt við
gömlu íslensku hnakkana þó síður væri og nota menn þá enn
til viðmiðunar við þróun og gerð nýrri hnakka.
Ámi L. Jónsson söðlasmiður hefur i átján ár stundað
söðlasmíði með góðum árangri og komið með ýmsar nýj-
ungar á markaðinn. „Hvatinn fyrir því að ég fór út í þetta var
sá að þýsku hnakkarnir voru allsráðandi fyrir svona rúmlega
áratug og þeir íslensku sáust varla. Áhuginn fyrir þessari
smíði og möguleikamir í þróun sá ég að vom miklir. Ákveð-
in þekking var að hverfa sem var þó ekkert siðri en þessi er-
lenda. Við eigum margra alda hefð fyrir síkri smíði enda
hefúr það komið upp á daginn að þeir íslensku hafa unnið
sér sess að nýju bæði hér heima og erlendis. Ég fékk Pétur
heitinn Þórarinsson söðlasmið í samstarf í bytjun þvi hann
hafði mikla þekkingu í faginu og ég kom með nýjar hug-
myndir sem við útfærðum í sameiningu. Síðar flyst ég til
Danmerkur og set á markað hnakk með fjaðrandi virki. í
honum var gúmmíefni í grindinni. En efnið var of erfitt í
vinnslu og ég þróaðist yfir i fiber-virki.
Fjaðrandi spaði
Stuttu seinna kem ég fyrstur á markað með hnakk sem
er með fjaðrandi spaða sem er ráðandi í dag. Á seinni
árum hefur virkislaus hnakkur verið i þróun hjá mér
ásamt nýjung sem ég vil meina að eigi eftir að valda bylt-
ingu. Ég hef sótt um einkaleyfi á þessari hugmynd og svo
er bara að sjá hvort einhver hafi verið á undan.“
Svona að lokum má geta þess að Árni öðlaðist fagleg
réttindi í söðlasmíði fyrir tveimur árum langt kominn á
sjötugsaldur en fyrir hafði hann meistarabréf í bólstrun.
- Betra seint en aldrei. -HÓ
Árni L. Jónsson söðlasmiður á ýmislegt i pokahorninu.
Hrossum fækkar á ný:
Voru flest ríflega
80 búsund 1 99ó
- hafði þá fjölgað um hátt í 30 þúsund á tuttugu ára tímabili
Fjöldi hrossa é öllu landinu
Nokkuð virðist vera farið að draga úr hrossaeign
landsmanna eftir metárið 1996 þegar þau voru riflega 80
þúsund. Þó tölur liggi enn ekki fyrir varðandi heildar-
hrosseign fslendinga á síðasta ári benda fyrirliggjandi
tölur til að ástandið sé orðið svipað og það var
1993-1995 eða um 78 þúsund.
Ef skoðaðar eru tölur um hrossaeign landsmanna
kemur i ljós að flest hafa þau verið árið 1996 eða 80.516
og hafði þá verið stöðug og mikil fjölgun i stofninum í
heila tvo áratugi þar á undan. Toppi virðist hafa verið náð
1996 og var hrossaeignin 1998 t.d. komin aftur niður í
79.804. Þá eru vísbendingar um að á síðasta ári hafi
hrossum fækkað í 78 þúsund, eða svipaðan fjölda og var
á árunum 1993 til 1995.
Á tuttugu ára tímabili, frá 1978 til 1998, fjölgaði um
28.281 hross hér á landi eða úr 51.019 í 79.300. Eins og
áður sagði var hrossaeign hins vegar mest árið 1996. Ef
skoðaðar eru síðustu staðfestu tölur frá 1998 og síðan tíu
ára tímabil aflur til 1988 þá kemur þróunin í hestaeign I s-
lendinga vel í ljós. Reyndar ber að geta þess að á árunum
1980 til 1990 hafa tölur ekki verið teknar saman nema á
tveggja ára ffesti en ekki á hveiju ári eins og nú er. Því
liggur ekki fyrir nákvæm tala fyrir árið 1989. Annars má
líka merkja verulegt stökk á milli áranna 1986 og 1988
en þá fjölgaði hrossum úr 56.406 í 63.531.
-HKr.
Kær kveðja úr sveílínní,
Hermann og Birna
Hjalla, Kjós
270 Mosfellsbæ
Ogleymanleg skemmtun í sveitinni
Hestaferðii
Bá laleiga
Veiði
Cisting
Grillveisla fyrii hðpa
Kaffihlaðborð
Sveitaferð í Kjósína er engu lík
Þar eru margir möguleikar
til skemmtilegrar alpreyingar
Hrosseign í ýmsum kjördæmum
- árið 1998
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
19.427
8.772
10.800
5.000
4.621
27.625