Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Síða 6
22
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
Hlýlegri innréttingar í hesthús:
• -f
WUmM
Mjög skemmtileg þ
roun
- segir Höskuldur Hildibrandsson járnsmiður
Hesta-
midstöð
••
i Olfusi
Ein stærsta alhliða þ|ónustumiðstöð
fyrir hestamennsku í landinu er á Ing-
ólfshvoli í Ölfusi. Þar hefur að und-
anförnu verið mikil uppbygging á hús-
næði og þjónustu til að mæta þörfum
hestaáhugafólks og ferðamanna yfir-
leitt.
Þarna er rúmgóð reiðhöll og inn af
henni hesthús fyrir 110 hross. Allt er
upphitað með jarðvarma sem fæst úr
landi Ingólfshvols. I vetur verður boðið
upp á reiðnámskeið af ýmsu tagi aðra
hverja helgi og verða þar fremstu
tamningamenn landsins leiðbeinendur.
Um aðrar helgar verða sölusýningar á
hrossum þar sem eigendum gefst tæki-
færi til að láta atvinnumenn í tamning-
um sýna hrossin gegn skráningar-
gjaldi.
I reiðhöllinni er einnig að finna veit-
inga- og kaffihús ásamt bókasafni sem
hefur að geyma mikið úrval af upplýs-
ingum um hestamennsku. Verið er að
bæta við gistiaðstöðu með byggingu
„mótels" sem tilbúið verður í mars. Það
er ekki of sögum sagt að þar á bæ sé
mikill stórhugur og framsýni. Mesti
vaxtabroddurinn í íslenskum ferðaiðnaði
undanfarin ár er i þjónustu við erlent og
innlent hestafólk. Þvi er slík miðstöð á
Ingólfshvoli nauðsynleg fyrir hesta- oi
ferðaiðnaðinn í landinu. -H'
Það eru engin takmörk tyrir því hvem-
ig hesthús geta verið innréttuð og útfærð
nú til dags. Sérútfærð sturta eða baðkar
fyrir hross eru til í dæminu og að tartan-
efni séu lögð á fóðurgang svo eitthvað sé
nefnt en slik efni eru betur þekkt á
hlaupabrautum íþróttaleikvanga.
Framfarir og nýjungar í innréttingum
hafa verið stórstígar á undanfömum ámm
hér á landi. Hesthúskofar sem vom rakir,
dimmir og kaldir em á hröðu undanhaldi.
Eik í stað stálgrinda
Höskuldur Hildibrandsson jámsmiður
hefúr margra ára reynslu í þróun og smíði
innréttinga í hesthús. Segir hann að stál-
grindur og stallar hafi verið allsráðandi í
hesthúsum í mörg ár en sú þróun sem nú er
að ryðja sér til rúms er bæði hlýlegri og betri
á allan hátt. Nú em svokölluð box eða þil
sem afmarka stíurnar með galvinseruðum
stálrömmum sem í er sett eik, plast eða lerki
en oftast er notuð eik sökum sérstakra eigin-
leika. Sama form er á stöllunum ef menn
vilja hafa stalla en sumir eru farnir að gefa
heyið beint á gólfið. Síðan em allir útveggir
klæddir t.d. með eik og gefur það einstak-
lega hlýlegt heildarútlit.
Ýmsar útfærslur
Hægt er að útfæra stálrammann á ýmsan
hátt, t.d. í boga og það gerir þetta enn meira
spennandi. Slysahættu verður einnig að at-
huga við smíði inréttinga. Skarpar brúnir og
bil á milli samsetninga, svo eitthvað sé
nefnt, verður að skoða vel. Höskuldur segir
að í raun verði maður að þekkja hugsana-
gang hesta þegar maður útfærir innréttingar
Þróun í hnakkasmíði:
Höskuldur Hildibrandsson járnsmiður.
fyrir hesta.
Munur er á innréttingum fyrir geldinga og
hryssur þar sem þær eru lægri og opnari en
hjá stóðhestum sem þurfa að vera lokaðri og
hærri.
„Þetta er mjög skemmtileg þróun sem á
sér stað og sér ekkert fyrir endann á. Ég get
fúllyrt að þessar innréttingar þurfa minna
viðhald en þær gömlu fyrir utan að þetta er
svo miklu fallegra. Hestum og mönnum líð-
ur líka mikið betur í slíku umhverfi og það
er mikilvægt," sagði jámsmiðurinn og hesta-
maðurinn Höskuldur að lokum!
-HÓ
Loftpúða undirdý
g - bresk uppfinning sem nú ryðst inn á íslenskan markað
Nú er tækifærið!
Hross til sölu
á öllum stigum tamningar,
undan góðum hestum.
Samkomulag um greiðslur
Uppl. í síma 893 9465
Valdi.
Ein af þeim nýjungum í þróun hnakka og
reiðtygja sem komið hafa fram á sjónar-
sviðið á síðustu misserum er notkun loft-
púða í undirdýnur. Þarna er um að ræða
uppfinningu frá breska hönnunarfyrirtæk-
inu Flair sem sumir vilja meina að sé mesta
bylting sem orðið hafi í þróun hnakka í
heila öld.
Fram til þessa hefur notkun á ullarstoppi
i undirdýnur verið talið það besta sem völ
væri á. Breska uppfinningin gerir hins veg-
ar ráð fyrir lofipúðum með fjórum hólfúm í
undirdýnunum. Telja margir að slíkur púði
gefi mun betri dempun og um leið fjöðrun
á milli knapa og hests og líkja megi því við
byltingu. Þegar er farið að ÍFamleiða ís-
lenska hnakka með slíkum loftpúðum og
hefúr Ástund fengið einkaleyfið á þeim hér
á landi. Heitir fyrsti loftpúðahnakkurinn
þeirra, Ástund Royal Air, og er hann byggð-
ur á nýtt og létt fjaðurvirki með miklum
sveigjanleika. Fyrirtækið hyggur raunar á
markaðssetningu erlendis á íslensku hnökk-
unum m.a. i Þýskalandi.
Þróunin á loftpúðunum hefúr staðið yfir
sl. fimm ár í Bretlandi og eru púðamir sjálf-
ir framleiddir þar. Gunnar Ragnarsson
söðlasmiður kynnti sér þessa framleiðslu í
Englandi í haust og er nú að laga islensku
hnakkana að þessari nýjung. Rannsóknir
virðast benda til að hnakkar með loftpúðum
fari bemr með bak hestsins en hefðbundnir
hnakkar. Talið er að bakvöðvar hestsins
verði ekki eins þvingaðir undan þunga
knapans með notkun loftpúðanna, t.d. þeg-
ar riðið er á brokki eða stökki. Auk bættrar
STJORNU m
M
Ertu að byggja
eða breyta
hesthúsinu?
Stjörnublikk EHF
Smiðjuvegi 2
200 Kópavogi
sími 577 1200
Smíðum hesthússtalla,
grindur og lofttúður.
Höfum einnig þakblásara.
Fljót og góð þjónusta.
Gerum tilboð.
Gunnar Ragnarsson söðlasmiður notar nú breska loftpúða i stað hefðbundins ullarstopps
í undirdýnur.
fax 577 1201 • gsm 893 4452
E-mail: stjornublikk@isholf.is • vefsiða www.superliigway.is/trade/stjornublikk
fjöðrunar og dempunar næst meiri nálægð
við hestinn en með hefðbundnu ullarstoppi
í undirdýnum.
Á síðustu áratugum hafa menn reynt
ýmis gerviefni í undirdýnur hnakka, m.a.
svampa, gel og gúmmíefni. Ekkert virðist
þó hafa slegið ullarstoppið út fram til þessa.
Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögð-
um markaðarins við þessum nýju loftpúða-
hnökkum sem íslenskir hönnuðir eru nú
byijaði á að framleiða.
-HKr.