Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
23
I
260 þúsund ferða-
menn hér á landi:
45 þús-
tmd
Mikill fjöldi erlendra ferðamanna kynnisl
íslenska hestinum.
fara á
hestbak
Ferðamenn sem sóttu Island heim ó
síðasta ári voru rúmlega 260 þúsund
talsins. Af þeim var umtalsverður fjöldi
sem skrapp á hestbak.
Samkvæmt upplýsingum frá Ferða-
málaráði Islands komu 126 þúsund
gestir til landsins yfir sumarmánuðina
þrjá, júní, júlí og ágúst, í fyrra. Það
þýðir að yfir svokallaða vetrarmán-
uði, þ.e. frá áramótum fram í maí og
frá september til áramóta, hafa kom-
ið um 134 þúsund ferðamenn. Sum-
argestirnir dvelja að jafnaði helmingi
lengur en vetrargestirnir eða í tíu
gistinætur á móti 5-6 nóttum hjá vetr-
argestunum.
45 þúsund á hestbak
Af sumargestunum sem spurðir voru
um veru sina hér á landi við brottför
sögðust um 19% hafa farið á hestbak.
Þetta er ekki lítill fjöldi eða um 24 þús-
und manns. Yfir vetrartímann eru það
nærri 16% gestanna sem segjast hafa
farið á hestbak eða ríflega 21.400
manns.
I þessum tölum Ferðamálarábs er
ekki taldir með þeir fjölmörgu farþegar
sem hafa mjög skamma viðdvöl, koma
í dagsferðir eða stoppa aðeins í nokkr-
ar klukkustundir.
Ef heildarfjöldi þeirra gesta sem heim-
sækja Island og segjast fara á hestbak
er skoðaður þá er þar um að ræða ríf-
lega 45 þúsund manns sem segjast
eitthvað fara á hestbak. Því til viðbótar
má gera ráð fyrir að nokkur fjöldi
gesta fylgi þeim sem stiga einu sinni
eða oftar á bak og fái þannig ein-
hverja nasasjón af hestamennsku hér á
landi. Því er ekki fráleit sú fullyrðing
sem heyrst hefur í hópi hestamanna að
um 60 þúsund ferðamenn komist í ein-
hver kynni við íslenska hestinn og
hestasport hér á landi á hverju ári. Þá
má líka ætla að talsverður fjöldi af
þeim ferðamönnum sem koma hingað
í dagsferðir skreppi smástund á hest-
Barna- og unglingastarf mikilvægt
Á síðasta ári hlaut æskulýðsstarfið í Hestamannafélaginu
Herði sérstaka viðurkenningu fyrir gróskumikla og fram-
sækna starfsemi frá Landssambandi hestamannafélaga.
Flestöll félög eru farin að átta sig á hve mikilvæg slík starf-
semi er og má segja að þetta sé kjölfestan í allri uppbyggingu
félaganna. ■
Slíkt félagsstarf kemur ekki af sjálfu sér og þarf til þess
óeigingjamt framlag fétagsmanna því starfsemin er fjölþætt
og viðamikil. „Bæjarfélagið hér í Mosfellsbæ hefur verið
okkur mikil hjálparhella í að byggja þetta upp með því að
veita okkur hvers konar aðstöðu og fjárstuðning," sagði
Marteinn Magnússon, formaður félagsins. „Það er ltka mik-
ilvægt að það sé uppeldislegur og félagslegur skilningur bæði
hjá foreldrum og bæjaryfirvöldum. Slíkt hefur svo sannar-
lega ekki skort og veit ég að margir líta á starfsemi okkar sem
fyrirmynd."
Það er af mörgu að taka þegar litið er á barna- og ung-
lingastarfsemi hjá Hestamannafélaginu Herði; námskeiða-
hald, m.a dýraalæknir fenginn til að
kynna umhirðu hrossa, þátttaka í æsku-
lýðsdögum, tengsl við önnur félög og
styttri hestaferðir svo eitthvað sé nefnt.
Á síðasta ári fóru krakkarnir úr félag-
inu til Berlínar og fengu að kynnast
jafnöldrum sínum sem höfðu sama
áhugamál og var það einstaklega vel
heppnuð ferð sem endaði á heims-
meistaramótinu í Þýskalandi. Nú
stendur til að taka á móti þessum þýska
hópi næsta sumar og leyfa honum að
kynnast hestinum á Islandi. Hesta-
mannafélagið Hörður verður 50 ára á
þessu ári og því er metnaður fyrir því
að efla þessa starfsemi sem og aðra til
muna.
-HÓ
AR A
Itingarkennd nýjung - fyrsti íslenski hnakkuv»nn
A5TUNP » AUSTURVERI * HAALEITISBRAUT 68 * SIMI 568 4240