Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 13
f
„Ég hef aldrei upplifað annað elns kvenhatur
og á Woodstock og mér bauð við því. Ég spii-
aði í danstjaldinu og það var frábært. Allir
gelgjugreddustrákarnir voru farnir að sofa.“
smiðjubít. „Animal Rights" frá 1996
innihélt rustarokk með teknóbíti.
Moby hefur rímixað fyrir ýmis stór-
menni, t.d. David Bowie, Dépéche
Mode, Michael Jackson og Prodigy,
og á timabili var hann orðaður við
hljóðvinnslu á plötunni sem átti að
koma Axl Rose og Guns ‘N Roses aft-
ur á kortið. „Play“ er langaðgengiieg-
asta plata Moby og hann er hálf-
feiminn við aila athyglina.
„Þegar einhver gefur mér góða
dóma fyrir plötu fmnst mér eins og ég
eigi að bjóða honum út að borða eða
að bjóðast til að koma heim til hans
og taka til í íbúðinni hans. Ég er hálf-
ruglaður yfir þessu öllu saman því ég
er ekki vanur því að fólk fili það sem
ég geri. En kannski gat ég átt von á
þessu. Ég vildi gera plötu sem ruglaði
ekki hlustendur í riminu, heldur
plötu sem fólk gæti farið með heim og
orðið skotið í.“
Með plötum Mobys hafa oft fylgt
ritgerðir þar sem hann tjáir sig um
sín hjartans mál. í umslagi „Play“ tjá-
ir hann sig t.d. um meðferðina á fóng-
um í Bandaríkjunum, ástæður þess
að hann borðar ekki kjöt og trúmál.
Hvar er kirkjan?
„Ég skrifa oft ritgerðir, en þær
hafa lítið með tónlistina að gera. Þó
ég blandi gospel-söng saman við dans-
tónlist er ég ekki að reyna að búa til
andlega tónlist. Ef einhverjum finnst
þetta andleg tónlist, þá er það bara
vegna þess að tónlistin endurspegl-
ar áhugamál mín. Ég flokka ekki
niður það sem ég stend fyrir og get
nefnt til samanburðar mannfræði-
stúdíu eftir mannfræðing sem
dvaldist með ættflokki á eyju ein-
hvers staðar í Kyrrahafinu. Hann
spurði þorpshöfðingjann: „Hvar er
kirkjan ykkar, hvar biðjist þið fyr-
ir? Höfðinginn skildi ekki spurn-
inguna og mannfræðingurinn
spurði aftur: „Hvar dýrkiði guð-
ina?“
Höfðinginn svaraði: „Við dýrkum
þá alls staðar, með öllu sem við ger-
um“, hann skildi ekki þessa hugsun
að hægt væri að flokka lífið. Mér er
svipað innanbrjósts þegar ég bý fil
plötu. Allt sem gerir mig að því sem
ég er blandast saman í því sem ég
geri. Ef hluti af mér er andlegur,
kynferðislegur, dapur eða glaður, þá
blandast hlutamir saman á plötunum
á sama hátt og þeir blandast saman í
mér sem manneskju."
Öll nýbreytni
gerist fyrir slysni
Það má segja að það að blanda raf-
rænni danstónlist saman við
blús/gospel sé alveg ný blanda, en
Moby lítur ekki þannig á málið.
„Nei, af því ég lít ekki á plötuna
sem rafræna dansplötu sem er með
blúsröddum á. Fyrir mér er þetta
bara plata með fallegum söng. Það
skiptir mig ekki máli hvaðan tónlist-
in kom. Þó ég hati að þurfa að nota
þessa lýsingu þá lifum við mjög póst-
módemíska tíma þar sem alls konar
menning ruglar reytum og er alltaf að
blandast hver annarri.“
Er mikilvœgt fyrir þig aö hafa gert
tónlistarbrœöing sem engum öörum
hefur dottiö í hug að gera áöur?
„Nei, mér er alveg sama. Ég hef
engan áhuga á að vera frumlegur."
Er ekki skrýtiö fyrir listamann aö
segja þetta?
„Nei, ég vil bara gera þá tónlist
sem ég hef unun af. Það skiptir
mig ekki máli hvort hún er frum-
leg eða sprottin af einhverju öðru.“
En er ekki hlutverk listamanns-
ins aö skapa eitthvað nýtt?
„Það held ég ekki. Ég held aö
hlutverk listamannsins sé að gera
eitthvað sem hann elskar og ein-
hverjir aðrir hafa vonandi gaman
af líka. Öll nýbreytni gerist fyrir
slysni. Það gerist sjaldan eitthvað
nýtt og skemmtilegt hjá þeim sem
rembast við að vera frumlegir. Oft-
ast enda slíkar tilraunir á því að
vera pirrandi og smásmugulegar.“
Dó Kurt
Cobain fyrir þetta?
Eins og flestir vita fór síðasta
Woodstock-festival í bál og brand
þegar hormónageggjaður múgur-
inn fór hamförum. Moby var að spila
og hefur skoðun á málinu.
„Auglýsingamennskan og kvenhat-
rið fór í taugamar á mér. Annað
hvert lag með Kid Rock og Limp
Bizkit er um „tíkur“ og „hórur". Ég
hef aldrei upplifað annað eins kven-
hatur og á Woodstock og mér bauð
við því. Ég spilaöi í danstjaldinu og
það var frábært. Allir gelgjugreddu-
strákamir voru famir að sofa.“
Hvaö meö sögur um að fólk hafi ver-
ió aö ríöa á meöan þú spilaöir?
„Kynlíf er ekki kvenhatur og mér
gæti því ekki verið meira sama þó
fólk njótist á meðan ég spila. Mistök-
in á hátiðinni vom að ráða of mikið
af karlremburokkböndum og það var
viðbúið að þetta endaði með ósköp-
um. Ég þekkti lítið til þessara banda
og horfði á Insane Clown Posse með
hryllingi. Dó Kurt Cobain fyrir
þetta? hugsaði ég. Að þessir heimsku
fábjánar geti rappað um „tíkur“ og
sagt konum að fara úr fötunum?"
Þó oft megi heyra rokktakta hjá
Moby er hann einn af þeim fjölmörgu
sem finnst rokkið vera deyjandi tón-
list.
„Ef maöur skoðar tónlist síðustu 10
ára er tónlistin sem kemur úr
raf/danstónlistargeiranum sú sem
gerir mest fyrir mig, a.m.k. meira en
það sem hefur komið úr rokkinu síð-
ustu fimm árin.“
Hvernig helduröu aó standi á
þessu?
„Hluti af mér á bakgrunn í
rokki (Moby byrjaði ferilinn sem
söngvari í harðkjama-pönkband-
inu Vatican Commandos) og á
endanum uppgötvar maður bara
að hljóðlega séð er rokkið tak-
markað. Litaspjald rokkarans er
takmarkað við gítara, bassa og
trommur. í rafgeiranum er lita-
spjaldið endalaust og það er aðalá-
stæðan fyrir því að ég hef unnið i
þessum geira frekar en að helga
mig hefðbundnu rokki.“
Sonic Youth
stofnar
súpergrúppu
Það eru ekki bara gamlir rokkjálkar sem stofna
súpergrúppur. Nú hafa nokkrir nýbylgjukálfar sett
saman „indí" súpergrúppu. Steve Malkmus,
sem nýlega leysti Pavement upp,
hefur tekið höndum saman við
hjónin úr Sonic Youth, þau
Thurston Moore og Kim
Gordon, avant-garde meist-
arann Jlm O’Rourke ogjap-
anska trommarann Ikue
Mori, Bandið er nefnt eftir
svefnherbergi Kim og heitir
Kim’s Bedroom. Lítið er vitað um áform bands-
ins eða hvort það verður langlíft, en það ætlar
allavega að frumsýna sig á tónleikum f Eind-
hoven f Holland 18. mars.
Tom Waits
heiðraður
Allir popparar sem eitthvað er spunniö í fá á end-
anum svokallaða „tribute" plötu í hausinn, plötu
þar sem aðrir popparar reyna sig
á lögum heiðurspopparans.
Nú er röðin komin að Tom
Waits og 30. maí kemur .• — |
út platan „A New Coat of ijgjS
Paint: The Songs of Tom
Waits'. Fjortán lóg eru á I
disknum og flytjendur flest- 'f'f-■
ir óþekktir. Þarna eru þó nokk-
ur nöfn sem maður kannast við:
Lydia Lunch, Kid Congo Powers og Screamin’
Jay Hawkins. Það nýjasta frá Tom sjálfum eru
hins vegar tvö lög sem nýlega komu út á
sándtrakkplötu fyrir kvikmyndina Liberty Heights.
Gamli rámur leikur ekki í myndinni en henni er
leikstýrt af Barry Levlnson.
Debbie
leikur
spákonu og
er á frímerki
Söngkonan 'úr Blondie, hin hálfsextuga en
spengilega Debble Harry, er komin á frimerki og
það f sjálfu Malí í NV-Afríku. „Nei, ég hef aldrei
komið þangað," sagði Debbie, „en sem krakki
safnaði ég frimerkjum.” Fyrsti tónleikadiskur
Blondie kemur út seinna í
þessum mánuöi og heitir
hann því stólpafrumlega
nafni „Blondie Live". Allt
, , , síðasta ár fylgdi Blondie
; eftir kombakk plötunni
• ■“* # „No Exit" meö miklu tón-
leikaferöalagi, en nú ér
rólegra og Debbie gat því
tekið að sér hlutverk í myndinni
„Red Lipstick", sem er fyrsta mynd Alexöndru
Klng. Myndin er um tvær dragdrottningar sem
missa vinnuna og fara f Bonnie & Clyde-lega
glæpaferð um New York-borg. Vandamálið er
bara að hvorug drottningin vill vera Clyde.
Debbie leikur spákonuna Ezmeröldu, sem spáir
fýrir drottningunum og svindlar út úr þeim pen-
inga. Það er ekkert nýtt aö Debbie leiki í bíð-
myndum og þekktust er hún líklega fyrir hlutverk
sín f „Videodrome" og „Hairspray”.
Sannleikurinn
getur verið
lífshættulegur
FRUMSÝND í DAG
£ <*> ..|§ /AL PACINO RUSSELL CROWE
pl / A Michael Mann Film
|ziu >coco / ££ / Ö=* / THE INSIDER
Tilnefnd til 5 Golden Globe.
Besta myndin, besti leikari (Russell Crowe), besta handrit,
besta kvikmyndatónlistin og besti leikstjórinn.
i
11. febrúar 2000
f ó k u s
13
<