Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Blaðsíða 14
Það er orðið lífsirts ómögulegt fyrir hinn venjulega íslending að fikra sig í gegnum útvarpsfrumskóginn og Fókus ætlast ekki einu sinni til þess að þið reynið það. Þess vegna tókum við saman það helsta og besta og bjuggum til áheyrilega viku fyrir þig, lesandi góður. A hvað attu að hlusta í Útvar Hveijar eru hvað? Rás 2-90,1/99,9 Miðaldra á daginn, unglingur á kvöldin. Rás 2 var fyrir ári með SM leiðinlegri útvarpsstöðvum en |jfl hefur nú rifiö sig upp á rassgat- inu með hjálp Óla Palla og keypt flesta af bestu þáttum X-ins yfir til sín. Það verður samt að viðurkenna að það er hræði- lega hallærislegt að hlusta á gamla slagara og ábyrga samfélagsumfjöllun sem send er út undir hatti ríkisins. Bylgjan - 98,9 Sönn íslensk háskólaútvarps-* stöð. Þjóðmálaþættirnir eru i settir fram meö ábyrgum stúd- entapólitíkusarbrag. Tónlistin er tíu árum yngri en á Rás 2 og er svona dömubindapopp, þunnt og þægilegt. Enda er örugglega hægt að full- yrða að enginn hrósar tónlistinni á Bylgjunni. © Rás 1 - 92,4/93,5 Allir hafa gefist upp á Rás 1 af þeirri einföldu ástæðu að hún er leiðinleg. Voðalega fín, menningarleg og ábyrgí alla staði. En bara svo drepleiðinleg að það er varla hlustandi á hana. Einstaka sinnum koma að vísu kóngar og drottningar á borð við Elísabetu Brekkan, Eirík Jónsson og Hjálmar Sveinsson með ágæta þætti. Enda virðast þau vera þau einu á stöö- inni sem vilja gera hana að alvöru költ-útvarpi. X X-ið - 97,7 Einn daginn var X-ið margróm- að fyrir lyftutónlist, skringilegt teknó, fönk, rapp og kannski pínu rokk í bland. En fyrir einhverj- um misserum svissaði meistari Þossi alveg yfir í rokkið og hendi X-leifunum yfir á Skatzið sem enginn nennti að hlusta á. X-ið er því heimili rokkarans þetta misserið og stendur sig bara nokkuð vel í því hlutverki. A.4 Radíó -103,7 Tvíhöföaútvarpsstöðin uppi á Höfða fór í loftið fyrir tveim vik- um og því er ekki alveg komin 4I|^ reynsla á útvarpsstöö Jóns og Sigurjóns. Þeir byrja í miklu blaðri og meló- dramatísku rokki. Eru ekki eins harðir og X-ið en tala þeim mun meira. Einhvern tíma var tíska hjá listamönnum þjóöarinnar að segja X- iö og Rás eitt vera uppáhaldsútvarpsstöðvarn- ar sínar. Radíó ætlar sér að svara þessu og vera með költiö af Rás 1 og tónlistina af X-inu. FM 957 - 95,7 Dagskrárgerðarmennirnir á FM eru svo leiðinlegir - aö Svala undanskildum - að það eru til dagskrárliðir sem heita 30 mín- útur af FM-tónlist og 20 taumlaus lög. En þessir dagskrárliðir virka þannig að dag- skrárgerðarmaðurinn segir ekki neitt meðan á þessu stendur. Honum er sem sagt bannað að tala og didjeiar bara. Enda hlusta flestir á FM vegna þess að þar er spiluð stuötónlist'sem lyftir öllum upp í skammdeginu. Létt - 96,7 Uppgjafaútvarps- stjörnur unga fólksins kynna álíka leiöinlegt dömubindapopp ög Bylgjan talar yfir. Þetta er stöðin sem þú stillir á ef þú átt enga geisla- diska með dinnertónlist og tengdaforeldrarnir eru mættir í mat. Guilið - 90,9 Aöalstöðin var jörðuð og í stað- inn spratt Gullið upp úr malbik- inu í Aðalstræti - hugguleg lát- únsbarkatónlist I bland við já- kvæðar og uppbyggjandi kynning- ar. Bjarni Arason söngvari sér um stuðiö lung- ann úr deginum en annars er lítið talað á stöð- inni, bara verið að spila þessi gömlu góðu, en væmnu, lög frá miðri síðustu öld og fram til dagsins í dag. Saga - 94,3 Eina stöðin sem spilar bara íslenska tónlist - og heldur sæmilegri breidd hvaö þáð varöar - er að spila allt frá Hauki Morthens yfir í Maus og heldur sig frá öllu blaðri. Er í mesta lagi meö „Söguna á bak við lagið" sem er frábær dagskrárliður þar sem tónlistarmenn segja frá sögunni á bak við lag- ið. Um daginn sagði Rúnar Júl frá einhverju lagi sem hann samdi, í óþökk konunnar sinnar, um einhverja þýska gellu sem hann varð skotinn í á Kanari. Saga FM er komin til að vera. Klassík -100,7 Halldór Hauksson er snillingur- inn sem var með Klassíska (fj/'/ ’.L hornið hjá Tvíhöfða - þegar þeir félagar voru á X-inu. Hann heldur uppi poppaðri klassík all- an sólarhringinn. Auk þess lumar Halldór á þeirri nýjung að spila fréttir frá BBC kl. 9,12 og 15. Klassík FM er fýrir heimsborgarann. Matthildur - 88,5 Valdís Gunnarsdóttir og hennar heimspeki ræður ríkjum. En hún er partur af leifum íslensks frumherjaútvarps - ein af þeim sem hafa verið í bransanum frá því útvarp var gefið frjáls. Það eru allir sammála um að Matthildur er fýrir kon- ur á breytingaskeiðinu - konur sem þrá róman- tík, eru í saumaklúbbi, drekka rauðvín og vilja lifa einhvers staðar annars staðar en í hvers- dagsleikanum. Lindin - 102,9 Kristileg útvarpsstöð í anda Ómega. Reynir að höfða til ungs fólks með því að spila Jesúpönk, -rokk, -diskó og - popp. Fyrir þá trúuðu er þessi út- varpsstöð sú eina rétta en fýrir hin níutíu og eitthvað prósentin er gaman að stilla sig inn og hlusta á fríkin. Mono - 87,7 í fýrstu átti Mono að vera eins konar Rás 2 fýrir fólk undir þri- tugu, síöan átti það að verða að poppuðu X-i en hefur nú fundið sig i að vera nánast eins og FM 957. Það höfðar allavega til svipaðs hóps en strákarnir á stöðinni eru ekki alveg jafn væmnir og leiöinlegir. Þeir viðhalda götustráknum í sér, tengjast eða standa fýrir ýmsum atburðum og þora að bjóða upp á Dr. Love og fleiri krassandi þætti. Hljóðneminn - 107 Kristilegt blaður allan sólar- hringinn. Engin helvítis djöfuls- ins tónlist. Bara orð Guðs frá mönnunum sem voru skapaðir í hans mynd. Stjarnan -102,2 Andrea Jónsdóttir er fýrir löngu orðin hornsteinn hipparokks- ins á íslandi. Hún hitti meðlimi Led Zeppelins í flugvél á sínum tíma og það virðist hafa orðið til þess að hún helgaði sig þessari hugsjón. Þetta er að vísu oröið soldiö þreytt eft- ir öll þessi ár og þeir einu sem hlusta í dag eru miðaldra fólk sem neitar að fullorðnast. S'UARNAN Það berast sjaldan nein tíðindi af íslensku leikhúsi fyrir utan hefðbundnar frumsýningar. Enda er ekki mikil gróska í leikrita- skrifum hér á landi og yfirleitt eru verkin sem sýnd eru mjög hefðbundin. En Felix Bergsson, leikari og leikritaskáld, fer ekki hefðbundnar leiðir. Enda er kauði að uppskera þessa dagana. Felix á West End Þau tíðindi hafa borist úr leikhús- lífi landsins að Hinn fulikomni jafn- ingi eftir Felix Bergsson, í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur, sé á leið- inni á West End í lok april eftir að hafa heimsótt Noreg og Færeyjar. „Jú, þetta er rétt,“ staðfesti Felix Bergsson úr GSM-síma og bað svo um smá pásu til að geta valið gúmmulaði á rjómaísinn sinn. Og hvernig kom þetta til? „Ja, ég bauð þessu leikhúsi, London Drillhall, hingað tO að sjá sýninguna og þeim leist það vel á hana að við fór- um i samstarf. Útveguðum okkur styrk frá Evrópusambandinu og þess vegna er þetta nú að ganga upp.“ Felix er kominn með ísinn í hendumar og bragðar á rammíslenskri snilldinni. En þú ert búinn aö vera á meira flakkinu með þessa sýningu, Noregur og Fœreyjar. Hvernig voru frœndur okkar aö taka þessu? „Bara mjög vel. Frábær aðsókn í Færeyjum og það er lika akkúrat stað- urinn til að fara með svona sýningu. Lítil sem engin umræða um samkyn- hneigð þar og verkið hristi aðeins upp í henni. En í Tromsö er svoldil gay- sena og því var erfitt að fá aðra en homma og lesbíur til að sjá sýning- una,“ útskýrir Felix en Hinn fullkomni jafningi fjallar um hommasenuna hér í Reykjavík. Að lokum má geta þess að í fyrstu átti að sýna verkið 4 sinnum úti en eftir að leikhúsið úti sá ensku útgáf- una var þeim fjölgað í fimm og gefin fyrirheit um að fjölga þeim enn meira. Felix Bergsson er á leið með verkið sitt, Hinn fullkomna jafningja, til London eftir að hafa hrist upp í Norð- mönnum og Færeyingum. f Ó k U S 11. febrúar 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.