Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2000, Page 4
22 MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2000 Sport DV ÍR 25 (11) - Víkingur 25 (10) 1-0, 1-1, 1-2, 2-2, 2-5, 3-6, 6-6, 7-7, 9-7, 10-8, 10-9, 11-9, (11-10), 12-10, 13-13, 15-13, 15-17, 18-18, 18-20, 20-22, 23-23, 24-25, 25-25. t i'ii Finnur Jóhannsson 6 (7 skot, 4 varin skot), Ragnar Óskarsson 6/1 (6 stoðsendingar), Ingimundur Ingimundarson 5 (öll í seinni), Ólafur Sigurjónsson 3, Ragnar Helgason 2, Erlendur Stefánsson 1, Andri Úlfarsson 1, Björgvin Þorgilsson 1. Varin skot: Hallgrímur Jónasson 10. Brottvisanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Róbert Rafnsson (3x2,50. mín) Vitanýting: Skorað úr 1 af 7. Áhorfendur: 50 Gœöi leiks (1-10): 7 Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (3) /'rÉB'f) Ingimundur Helgason 7/3, Þröstur Helgason 5, Hjalti Gylfason 2 (9 stoðsendingar), Sigurbjöm Narfason 2, Valgarð Thoroddsen 2, Hjörtur Amarson 2, Björn Guðmundsson 1, Benedikt Jónsson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 20/3. Brottvísanir: 8 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 3 af 4. Maður leiksins: Finnur Jóhannsson, ÍR. Savukynas Gintaras og félagar i Aftureldingu fengu heldur betur fyrir feröina í leik sinum gegn Eyjamönnum. Víkingar nýttu ekki vitavandræði ÍR-inga í Austurberginu á föstudagskvöld: 6 misnotuð víti - hjá ÍR en samt fyrsta heimastigið gegn Víkingi í 10 ár Það væri aðeins fyrir bjartsýnustu menn að búast viö stigi úr leik þar sem lið- ið misnotar 6 víti en þeim árangri náöu ÍR-ingar gegn Vikingum í Austurbergi á fostudag, Víkingar höfðu unnið alla 6 leiki liðanna í Breiðholti frá 1990 en náðu aðeins jafntefli nú, 25-25. Hlynur Morthens varði þrjú af þessum 6 vítum og lokaði það vel í hinum þrem- ur að tvö fóru fram hjá og eitt í stöng en þetta var sjö- undi leikurinn í röð sem Hlynur ver i viti og sá ellefti sem markmenn Víkinga verja af vítapunktinum. Ragnar Óskarsson, sem ann- ars lék mjög vel, klúðraði þremur vítum en í því sið- asta varði Hlynur frá Jóni Kristjánssyni, þjáifara ÍR. Hlynur átti stórleik fyrstu 50 mínútur leiksins þar sem hann varði 20 af 38 skotum ÍR-inga en heimamenn nýttu aftur á móti sjö síðustu skot- in sín í leiknum, þar á með- al Finnur Jóhannsson tólf sekúndum fyrir leikslok eft- ir ótrúlega línusendingu Ólafs Sigurjónssonar. Víkingar voru með tveggja marka forustu 5 mín- útum fyrir leikslok þegar þeir misstu tvo menn út af og ÍR-ingar komust inn í leikinn en dómgæsla þess leiks var afar ósamræmd og erfið viðureignar fyrir bæði liðin. -ÓÓJ Valur 21(11) - Fylkirl8(10) 0-3, 3-5, 7-5, 9-7, (11-10). 13-11, 16-12, 16-14, 20-16, 21-18. Júlíus Jónasson 8/4, Davíð Ólafsson 4, Geir Sveinsson 3, Theódór Valsson 3, Einar Öm Jónsson 2, Daníel Ragnarsson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 13. Brottvisanir: 4 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Áhorfendur: 30 Gœöi leiks (1-10): 5. Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurösson og Ólafur Haraldsson (6). Eymar Kruger 5/1, Þorvarður Tjörvi Ólafsson 4, Ágúst Guð- mundsson 4, Sigmundur P. Lárusson 2, Elias Þ. Sigurðsson 1, David Kekelija 1, Örvar Rúdolfsson 1. Varin skot: Örvar Rúdolfsson 17. Brottvisanir: 10 mínútur. Rauó spjöld: Ólafur (3 gul spjöld) Vitanýting: Skorað úr 1 af 1. Maður leiksins: Örvar Rúdolfsson, Fylki. Þröstur Helgason skoraði 5 mörk fyrir Víkinga gegn ÍR. DV-mynd Hilmar Þór Fátt um fína drætti aö Hlíðarenda - þegar Valur sigrði Fylki, 21-18 Valsmenn léku ekki vel gegn Fylki en höfðu samt sigur, 21-18. Leikurinn sem slíkur var ekki mikið fyrir augað og áhorfendur fáir enda stórhríð og erfitt að komast að íþróttahúsinu að Hlíðar- enda. Fylkismenn byrjuðu mun betur en Valsmenn vöknuðu brátt til lífsins og náðu smám saman frumkvæðinu í leiknum. Jafnræði var í byrjum síðari hálfleiks en heimamenn náðu fimm marka forystu sem gestimir náðu aldrei að brúa. Valsmenn þurftu ekki á neinum stórleik að halda til að vinna sigur í þessum leik. Enginn skar sig úr í Valsliðinu. Þar var Júl- íus Jónasson markahæstur en skotnýting hans var léleg. Besti maður Fylkismanna var markvörður liðsins Örvar Rúd- olfsson. -BB ÍBV 23 (11) - Afturelding 19 (7) 1-0, 4-1, 5-4, 8A, 10-5 (11-7). 12-7, 15-9, 17-12, 19-13, 20-15, 22-16, 23-19. Aurimas Frovolas 6, Erlingur Richardsson 5, Daði Pálsson 4, Guðfinnur Kristmannsson 3, Svavar Vignisson 3, Hannes Jónsson 2/1. Varin skot: Gisli Guðmundsson 14. Brottvisanir: 10 mínútur. Rauó spjöld: Sigurður B.(3 gul) Vitanýting: Skorað úr 1 af 2. Áhorfendur: 180 Gœöi leiks (1-10): 7. Dómarar (1-10): Einar Sveinsson og ______Rögnvald Erlingsson (7). Jón Andri Finnsson 6/5, Magnús Már Þórðarson 5, Savukynas Gintaras 3, Galkauskas Gintas 2, Valdimar Þórsson 2, Haukur Sigurvinsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 17/1. Brottvísanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Jón Andri fyrir brot. Vítanýting: Skorað úr 5 af 7. Maöur leiksins: Erlingur Richardsson, ÍBV „Við eigum við eitthvert vandamál að stríða“ - sagði Bergsveinn Bergsveinsson eftir annað tap Aftureldingar í röð Undanfarin ár hafa leikir ÍBV og Afturelding- ar ávallt verið spennandi og skemmtilegir, en þessi lið mættust einmitt í Eyj- um á laugardaginn var og er óhætt að segja að brugðið hafi aðeins út af vananum í ár. ÍBV var mun betri aðilinn í leikn- um og hafði hann í hendi sér frá fyrstu mínútu. Lokatölur urðu 23-19 og hefðu í raun getað orðið stærri. Eyjamenn voru hins vegar með nokkuð væng- brotið lið, örvhenta skytt- an Miro Barisic einn besti leikmaður liðsins í vetur tók út leikbann þannig að í liði ÍBV var enginn örv- hentur leikmaður. Lið Aftureldingar var reyndar líka vængbrotið. Bjarki Sigurðsson spilaði aðeins upphafsmínúturnar og er greinilega ekki búinn að ná sér eftir meiðsli og það sama má segja um Einar Gunnar sem var fjarri góðu gamni. En þrátt fyrir íjarvcru þessara leikmanna var leikurinn nokkuð fjörug- ur, en að sama skapi ansi haröur. ÍBV kom mjög ákveðið til leiks, Gísli Guðmundsson markmað- ur Eyjamanna varði strax á fyrstu mínútu og í kjöl- farið skoraði Aurimas Frovolas fyrsta mark Eyjamanna. í stöðunni 5-4 urðu kaflaskil í leikn- um en ÍBV skoraði þá fjögur mörk í röð og náðu þannig þægilegu forskoti. Staðan í hálfleik var 11-7 fyrir Eyjamenn og vekur athygli að efsta lið Nissandeildarinnar skor- ar aðeins 7 mörk á 30 mín- útum. Það var því ijóst að í seinni hálfleik myndu gestirnir úr Mosfellsbæ reyna allt til að jafna met- in. ÍBV beitti hins vegar hinni stórgóðu 3-2-1 vörn sinni áfram og átti Aftur- elding einfaldlega engin svör við því, sama hvaða sóknaruppstilling var reynd. ÍBV jók muninn hægt og sígandi og náði mest sjö marka forystu 22-15, en sigurinn var í höfn. Gestirnir reyndu síðan maður á mann vörn undir lok leiksins og náðu að minnka forystuna nið- ur í fjögur mörk og hefðu kannski átt að reyna það fyrr. En leiknum lauk með sigri ÍBV, 23-19. Bergsveinn Bergsveins- son, besti maður Aftureld- ingar, var ekki sáttur við leik liðsins. „Við virðumst eiga við eitthvert vandamál að stríða. Hópurinn er frek- ar þunnskipaður og mikið um meiðsli hjá okkur um þessar mundir. Varnar- leikurinn var alls ekkert slakur hjá okkur í þessum leik. Sóknarleikurinn er hins vegar aðalvandamál- ið í dag, það munar um að geta haft Bjarka og Einar Gunnar þarna inni og svo eru fleiri meiðsli. Svo höfum við ekki getað not- að þetta tveggja mánaða stopp til neins, Bjarki og Einar í meiðslum, útlend- ingamir fóru út og svo vorum við Magnús og ég í Króatíu, þannig að við erum kannski aðeins á eftir öðrum liðum eins og staðan er í dag. En það er svo sem engin afsökun, ÍBV var einfaldlega betra liöið í dag,“ sagði Berg- sveinn að lokum. -jgi 1. ÐEILD KARLA Einar Gunnarsson, skytta Hauka, lék ekki með sínum mönnum gegn FH vegna meiðsla á ökkla. Innáskiptingar þjálfara FH gegn Haukum vöktu oft mikla at- hygli. Kannski sérstaklega varð- andi markverðina en einnig það að Valur Arnarson skyldi ekki teljast nothæfur í fyrri hálfleik í eina einustu mínútu. Valur lék allan síðari hálfleikinn og skor- aði 6 mörk. Júlíus Jónasson meiddist illa á hné í leik Vals og Fylkis er hann rakst á áhorfendabekki. Sauma þurfti 12 spor en Júlíus mun ekki vera brotinn eða slit- inn. Hann verður hins vegar frá keppni í kringum tvær vikur. Það vakti mikla athygli að íþróttaviðburðir skyldu vera á dagskrá á föstudagskvöldið er óveðrið geisaði. Reyndar fór það þannig að einstaklingar sem lögðu leið sína að Hlíðarenda voru sumir hverjir langt fram á nótt að komast heim til sín. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.