Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2000, Síða 11
MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2000 29 * DV Sport Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum innanhúss: Jón Arnar bætti eigið íslandsmet - annars ágætur árangur í nokkrum greinum Ágætur árangur náöist í nokkrum greinum á Meistaramóti Islands í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fór um helgina í Baldurshaga og að Varmá í Mosfellsbæ. Flest af okkar besta frjálsíþróttafólki tók ekki þátt í mótinu en það dvelur ytra við æfingar. Jón Amar Magn- ússon brá sér hins vegar frá Svíþjóð og sigraði í öllum greinum sem hann tók þátt i. Um tíma leit þó út fyrir að ekkert yrði af þátttöku hans því vegna samgöngu erfíðleika í flugi til landsins vegna veðurs og kom hann á elleftu stundu til móts- ins eftir nokkrum krókaleiðum. Jón Arnar missti þó af 60 metra hlaup- inu. Einar Karl Hjartarson, há- stökkvari úr ÍR, reyndi við ólympiu- lágmarkið þegar hann felldi 2,25 metra. Hann sigraði aftur á móti í greininni á mótinu með því að fara yfir 2.20 metra. Jón Arnar Magnússon sigraði í langstökki, stökk 7,58 metra og varp- aði kúlunni 16,21 metra á laugardeg- inum. Á síðar keppnisdegi mótsins setti Jón Amar íslandsmet í 60 metra gríndahlaupi, hljóp á 7,98 sek- úndum en gamla metið var 7,99 sek- úndur. Hann sýndi að hann er í ágætu formi um þessar mundir. Reynir og Silja nálægt EM- lágmörkum innanhúss Reynir Logi Ólafsson úr Ármanni sigraði í tveimur greinum. Hljóp 60 metra hlaup á 6,96 sekúndum og stökk 3,28 metra í langstökki án at- rennu. I undanrásum hljóp hann 60 metrana á 6,95 sem er aðeins 5/100 úr sekúndu frá lágmörkunum fyrir Evrópumeistaramóti innanhúss Silja Úifarsdóttir, FH, sigraði í 60 metra hlaupi á 7,71 sekúndu sem er unglingamet. Tími hennar var hárs- breidd frá lágmörkunum fyrir EM innanhúss. Guðný Eyþórsdóttir, ÍR, sigraði i langstökki með stökk upp á 5,60 metra. Björgvin Víkingsson, FH, sigraði í 800 metra hlaupi á 1.59,06 mínútum og bætti um leið drengjametið í greininni. Eva Rós Stefánsdóttir, FH, í 800 metra hlaupi kvenna á 2:25,05 mínútum. Vilborg Jóhannsdóttir, UMSS, sigraöi stangarstökki og stökk 3,00 metra. Tvíburasystir hennar, Ás- laug, sigraði í hástökki með stökk upp á 1,65 metra. Hafdís Ósk Pétursdóttir úr ÍR sigraði í langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu. í þrístökki kvenna sigraði Rakel Tryggvadóttir, FH, stökk 11,38 metra. -JKS Silja Úlfarsdóttir úr FH sigraði í 60 metra hlaupi kvenna.Henni á hægri hönd er Pórunn Erlingsdóttir, UMSS, sem varö önnur og Guðný Eyþórsdóttir, ÍR, sem varö í þriðja sæti. DV-mynd Hilmar Þór JF Sfeyfe mm i ^ j ^ig & s mmm i '±5*' '■ ■'% iL • \ I Verðlaunahafar í 60 metra hlaupi karla. Bjarni Traustason, FH, Reynir Logi ólafsson úr Ármanni, sem sigraði í hlaupinu, og Sveinn Þórarinsson, FH, sem varð þriðji. DV-mynd Hilmar Þór Jón Arnar Magnússon dregur ekki af í langstökkinu og mældist þetta stökk 7,58 metra sem nægði til sigurs á meistaramótinu. DV-mynd Hilmar Þór Heimsbikarmót í sundi í París: Thompson með heimsmet Bandaríska sundkonan setti um helgina heimsmet í 100 metra flugsundi í 25 metra laug á heims- bikarmóti í París. Thompson synti á 56,80 sekúndum og en gamla met- ið, sem hún átti sjálf, var 56,90. Það var sett í Texas í desember 1998. Þessi frábæra sundkona ætlar að taka þátt i þremur heimsbikar- mótum á næstunni en hún segist sjálf vera í mjög góðu formi en hún verður 27 ára eftir hálfan mánuð. Ágætur árangur náðist á mótinu og helstu úrslit voru þau að banda- ríska stúlkan Samantha Arsenault sigraði með yfírburðum í 200 metra skriðsundi, synti á 1:57,80 mínútum. Bretinn James Hickman sigraði í 200 metra flugsundi á 1:52,26 mín- útum og í 100 metra baksundi sigr- aði Króatinn Marko Strahija á 53,75 sekúndum eftir harða keppni við Eitan Urbach frá ísreal en í þriðja sæti lenti Joege Sanchez frá Spáni. -JKS Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis verður haldinn mánudaginn 14. febrúar kl. 20.00 í fundarsal félagsins að Dalhúsum 2. Stjórn knattspyrnudeildar Fjölnis Dagskrá: * Venjuleg aðalfundarstörf. * Stjórnarkjör * Önnur mál * Kaffiveitingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.