Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 jL*"V fréttír Réttarhöld að hefjast í máli þar sem lögreglan lagði hald á kókaín frá Mexíkó: Kókaínmaður talinn stunginn af úr landi - dómari leggur fyrir ákæruvald að láta handtaka manninn þar sem til hans næst „Þessi maður sleppur ekkert við þetta mál. Ef hann mætir ekki hingað fyrir dóm verður að lýsa eftir honum á flugvöllum og annars staðar erlend- is,“ sagði Kolbrún Sævarsdótir, sett- ur saksóknari, við þingfestingu ann- ars tveggja fíkniefnamála þar sem samtals tæplega kíló af kókaíni kem- ur við sögu auk annarra fíkniefna. Hér er um að ræða mál sem fíkniefna- lögregla lagði mikla vinnu í á síðasta ári og árið 1998. „Hann er örugglega erlendis,“ upplýsti einn málsaðila við réttar- haldið í gær eftir að dómari hafði falið Kolbrúnu saksóknara að gefa út handtökuskipun á hendur aðal- sakbomingnum. Ákæravaldið hefur fengið upplýst hjá fjölskyldu manns- ins að enginn viti hvar hann er. DV hefur upplýsingar um að hann hafi dvalið í Þýskalandi. Lögreglan hér heima hefur gert ítrekaðar og ár- angurslausar tilraunir til að hafa uppi á manninum sem er 24 ára Kópavogsbúi. Því hefur ekki tekist að birta honum ákærurnar enn. Hvítt kókaín í tréplatta Þann 21. desember 1998 kom 24 ára Hafnfirðingur í Leifsstöð. Hann var að koma alla leið frá Mexíkó. í tösku hans fannst meðal annars tré- platti. Vel var leitað og að lokum fannst hvítt efni, kókaín, í plattan- um, rúm 630 grömm. Grunur lék á að aðrir hefðu skipulagt innflutninginn. Að lokum þótti ljóst liggja fyrir að tveir menn, framangreindur aöalsakborningur og annar maður úr Kópavogi, hefðu skipulagt innflutninginn en fengið Hafnfirðinginn til að vera burðar- dýr. Við yfirheyrslur kom fram að aðalsakborningurinn hefði fengið burðardýrið til að flytja efnin inn til íslands frá Mexíkó en hinn skipu- leggjandinn hefði lagt til fjármagn, keypt efnin úti 1 Mexíkó og afhent Hafnfirðingnum þau þar. Falsaðir víxlar fyrir um 700 þús- und krónur komu við sögu þegar verið var aö reyna að fjár- magna kaupin á efninu ytra. Maðurinn sem keypti efnin í Mexíkó og sá sem nefndur hefur verið burðardýr hafa báðir mætt fyrir dóm og gert grein fyrir ákær- um á hendur þeim. Meintur skipu- leggjandi neitar sök en burðardýrið viðurkennir að hafa flutt efnin inn. Meö 144 hassplöntur í ræktun Aðalsakborningurinn, sem dvelst nú ytra, var ekki að koma í fyrsta skipti við sögu fikniefnalög- reglu þegar Mexíkómálið kom upp í desember 1998. í júní sama ár var hann handtekinn og fundust þá í bifreið og á heimili hans í Kópa- vogi um 310 grömm af kókaíni og 170 grömm af hassi. Nokkru síðar fór lögreglan heim til hans og á stað í Barmahlíð í Reykjavík. Þar fundust samtals 144 hassplöntur. Seldi tugum 16-19 ára fíkniefni Fjórði maðurinn í framangreind- um sakamálum, þriðji Kópavogsbú- inn, 20 ára, mætti fyrir dóm í gær. Hann er ákærður fyrir að hafa selt 30-40 ungmennum á aldrinum 16-19 ára mikið magn af fíkniefnum til neyslu. Honum er gefið að sök að hafa móttekið frá aðalsakbomingn- um 250-300 grömm af hassi, 10-15 grömm af amfetamíni, 30-40 grömm af marijúana og fleiri fikniefni. Lög- reglan lagði hald á 82 grömm af hassi við húsleit á heimili mannsins í júní 1998. Verjandi unga mannsins sagði hann vilja fá umhugsunarfrest gagnvart afstöðu til sakarefnanna. Hann kvað ástæðuna sem lægi því að baki þá að skjólstæðingur hans hefði á sínum tíma, þ.e. þegar lög- regluyfirheyrslur fóru fram, veriö á kafi í fikniefnaneyslu. Minnið frá þeim tíma væri því gloppótt. Lög- maðurinn lagði síðan margs konar gögn sem sýna skýrt fram á að ungi maðurinn hefur snúið til betra lífs. Réttarhöldunum hefur verið frestað um ótiltekin tíma. Fram- haldið ræðst af árangri ríkissak- sóknaraembættisins og lögreglu af því að hafa uppi á aðalsakbomingn- um sem ljóst er talið að dvelur er- lendis. Tvö fíkniefnamál voru þingfest viö Héraðsdóm Reykjaness í gær þar sem samtals tæplega kfló af kókaíni koma við sögu auk annarra fíkniefna. Myndin sýnir neyslu kókaíns. Óttar Sveinsson Stuldur í bún- ingsklefúm Sundhallarinnar - pappír komiö þannig fyrir að hurðarnar hviklæsast „Ég fór í Sundhöll Reykjavíkur og í hugsunarleysi læsti ég veskið mitt ásamt fotunum í einum búnings- klefanum. Þegar ég kem upp úr og tek veskið mitt var búiö að hreinsa úr því allt mitt reiðufé eða um 20.000 krónur. Venjulega er ég ekki með það mikið reiðufé á mér en ég hafði tekið út í hraðbanka þar sem ég hafði farið á útsölu fyrr um dag- inn,“ segir svekktur sundlaugar- gestur í samtali við DV. „Við erum í vandræðum með þetta. Einhver hópur hefur stundað það að setja blautan klósettpappír í falsið á búningsklefunum og við það læsist hurðin ekki nægilega vel þannig að auðvelt er aö opna hana. Hún verður þannig hviklæst," sagði Gísli Jensson, forstöðumaður Sund- hallarinnar. Sjálfur. fer hann í sund daglega og sagðist aldrei myndu þora að skilja einhver verðmæti eft- ir i klefunum vegna þessa vand- ræðagangs. „Það er skilti frammi í anddyri þar sem sundlaugargestum er boðiö að geyma verðmæti sín i af- greiðslu þar sem engin ábyrgö er tekin á fjármunum í klefum,“ sagði Gísli. - Er mikið um þetta? „Já, það er töluvert mikið um þetta en þetta kemur í tímabilum. Við getum ekkert gert við þessu því það verður að standa krakkana að verki. Við megum aldrei sofna á verðinum en við erum alltaf að taka klósettpappír úr folsunum en við getum það ekki þegar hurðirnar eru lokaðar. Þegar grunur leikur á vökt- um viö skápana sérstaklega," sagði Gísli. Gísli skorar á alla að láta geyma öll verðmæti í læstum hirslum í af- greiðslu því það virðist sem aldrei sé of varlega fariö. -hól Gísli Jensson, forstööumaður Sundhallarinnar, sýnir hvernig blautum pappír er komiö fyrir í falsinu til huröin veröi kviklæst. DV-myndir ÞÖK Jiilliilfí Klefaruglíð Það þótti nokkrum undrum sæta meðal fastagesta sundalaugarinnar á Seltjarnarnesi þegar karlaklefinn var gerður að kvennaklefa og kvennaklef- inn að karlaklefa. Sú skýring var gefin að konur þyrftu almennt meira pláss i klefunum, ekki vegna þess að þær væru digrari en karl- arnir heldur hefðu þær meira af dóti meðferðis í laugina og þyrfti að geta lagt það frá sér. Breyting- in er enn að síast inn hjá nokkrum sundlaugargestum sem eru að álpast inn i vitlausan klefa við misjafnar vin- | sældir þeirra sem þar striplast. Þær | uppákomur hafa leitt til vangaveltna um raunverulega ástæðu breyting- | anna. Þannig er því haldið fram að karlgestir séu fleiri en kvengestir og því hæpið að nota plássleysi kvenna j sem röksemd. Þá heyrist hvíslað í heita pottinum að skýringuna sé að ftnna í þeirri staðreynd að eftirlitsvél sund- laugarinnar er á fæti við glugga gamla karlaklefans. Hún sé gædd þeim eigin- I leikum að geta snúist á fætinum og beint „sjónum“ inn í klefann... Liggja yfir skránum Björgvin Guðmundsson, varafor- maður Heimdallar og ritstjóri ; Frelsi.is, ætlar ekki að skila skatt- framtali í ár. Hann sér ofsjónum yfir kostnaði sem fylgir skattkerfinu og Ífinnst skattheimtu vera skerðingu á eign- arréttindum og at- hafhafrelsi manna. Hann og fleiri telja það auk þess vera skerðingu á per- sónufrelsi að skatt- greiðslur einstak- linga skuli vera gerðar opinberar með því að álagningarskrá skuli liggja frammi fyrir alþjóð ár hvert. Skoðanabræður Björgvins ætla að | styrkja hann í baráttunni við Skatt- mann ef einhverjar sektir leggjast á hann vegna aðgerða hans, eða öllu heldur aðgerðaleysis. Björgvin ætlar | síðan að beita sér fyrir því að myndir ? verði birtar á Frelsi.is af öllum sem sækja í skrána í Reykjavík og vill að ■: Heimdellingar liggi bókstaflega yfir skránum svo engir komist í þær... I Rottupartí Fjögur þúsund lítrum af vodka, sem reynt var að smygla inn til lands- ins í fyrra, var eytt í vikunni. Voru kassarnir kramdir með tilheyrandi gusugangi. Fannst sumum súrt að ekki væri hægt að selja vöru sem stöðug eftir- spum er eftir, t.d. á uppboði, og leyfa þá fjárþurfandi góðgerð- arsamtökum að njóta ágóðans. Nei, góssinu skyldi fargað og ekki var annað að sjá en hinir „dýru dropar“ fengju að renna óhindrað í næsta niðurfall. Því voru engir til að gera sér þá að góðu nema rottumar sem sofnað hafa svefni hinna réttlátu þann daginn... Sýnið iðrun í blaðinu Austurlandi, sem Karl Th. Birigsson ritstýrir, má sjá : klausu um sr. Karl V. Matthíasson j, sem tók sæti á Alþingi á dögunum í * forfóllum Sighvats Björgvinssonar. Karl var þekktur fyrir | að enda ræður sínar á orðunum „Guð blessi Alþýðubandalagið". Það leið ekki langur tími áður en þing- menn Samfylkingar- íí innar urðu þess | varir að prestur væri mættur 5 til starfa. Hann lét reyndar vera að biðja Alþýðubandalaginu blessunar en í tölvupósti til allra samflokks- manna skrifaði hann fjögur orð: „Fastan nálgast. Sýnið iðrun“...' Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is : ::

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.