Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 9
JL>V LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 %éttir Fullyröingar norskra náttúrverndarsamtaka í bréfi til þarlendra ráöherra: Risabankar lána ekki til Fljótsdalsvirkjunar - það er góður punktur aö benda á, segir Árni Finnsson „Það er alveg skýrt að World Bank (Alþjóðabankinn) myndi ekki lána til Fljótsdalsvirkjunar ef eftir því væri leitað en Landsvirkjun hefur reyndar ekki tekið lán þar síðan 1971 eða 1972. Hins vegar er Landsvirkjun tryggur kúnni hjá Norræna fjárfestingarbankanum og svör þaðan voru ekki jafnskýr þegar Jón Sigurðsson bankastjóri var spurður um málið síðastliðið haust. Jón nefndi þá að þar sem Is- land væri með þróaða löggjöf í um- hverfismálum myndi landið líklega fá lán þrátt fyrir að virkjunin hefði ekki sætt lögformlegu mati,“ segir Árni Finnsson. Ámi Finnson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Islands. Fimm náttúruvemdarsamtök í Noregi, sem hafa lýst andstöðu við Fljótsdalavirkjun, hafa sent ráð- herrum í norsku ríkisstjóminni ábendingu um það mat sitt að um- hverfisstefna áðurnefndra banka komi í veg fyrir að þeir geti veitt lán til virkjunarinnar þar sem framkvæmdin hafi ekki farið i lög- formlegt umhverfismat. Jón Sigurösson í bobba Árni Finnsson tekur skýrt fram að þessi ábending sé ekki sett fram til að gefa i skyn að Landsvirkjun takist ekki að afla nauðsynlegs lánsfjár vegna virkjunarinnar held- ur til að gera norskum ráðamönn- um ljóst að virtar og ábyrgar bankastofnanir vilji ekki taka þátt í framkvæmdum sem ekki hafi ver- ið metnar samkvæmt lögbundnum umhverfisforsendum á hverjum tíma. Árni telur að Norræni fjárfest- ingarbankinn geti ekki lánað til Fljótsdalsvirkjunar vegna um- hverfisstefnu sinnar þrátt fyrir skoðun Jóns Sigurðssonar um ann- að. Ámi bendir á að Jón sé eigin- lega dálítið á milli steins og sleggju í málinu þar sem það hafi einmitt verið Jón, sem þáverandi iðnaðar- ráðherra, sem gaf út virkjanaleyfí fyrir Fljótsdalsvirkjun skömmu fyrir alþingiskosningar 1991. „Aðalatriðið er að ábyrgar lána- stofnanir, sem hafa sett sér skýr viðmið í umhverfismálum, myndu annaðhvort ekki lána til Fljótsdals- virkjunar eða þær myndu eiga í vandræðum með það. Það er góður punktur að benda á, að minnsta kosti í Noregi," segir Árni Finns- son. -GAR •s -= A < Það er eitthvað meira við Mégane Break Yerð 1.588.000 kr. Grjótliáls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Mégane Break Grand Comfort Break hefur nú aukið forskotið. Hann státar ekki aðeins af meiri öryggis- og þægindabúnaði og stærra farangursrými en aðrir skutbílar í sama ílokki heldur fæst nú í sérstakri Grand Comfort útgáfu; emi betur búinn. Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl. RENAULT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.