Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 15
DV LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 „Það sem við leggjum til grund- vallar er að sýna hlutina eins og þeir eru og láta fólkið sem vinnur i þessum iðnaði tala og taka upp sam- töl þess hvað við annað. Við tökum ekki afstöðu til þess sem við erum að skoða heldur reynum að vera hlutlaus." Þannig lýsa Sigursteinn Másson, fréttastjóri á Skjá einum, og Ragn- heiður Eiríksdóttir, pistlahöfundur Dags um kynlif, nálgun sinni á við- fangsefnið í nýrri fjögurra þátta heimildamyndaröð um klám i Reykjavík sem þau eru að leggja síð- ustu hönd á. Það er kvikmyndagerðin Hug- sjón, með Bjöm Brynjúlf Bjömsson í broddi fylkingar, sem framleiðir þættina en Sigursteinn og Ragn- heiður unnu rannsóknir, kynna og skrifa handritið. Þættirnir íjórir verða sýndir á Stöð 2 í jafnmargar vikur, sá fyrsti 7. mars nk. undir nafninu Sex í Reykjavík. Þættirnir fjórir taka fyrir ólíka hluta af kynlífs- og klámiðnaðinum í Reykjavík. Sá fyrsti fjallar um verslun og viðskipti, s.s. leikfóng, hjálpartæki, blöð og bækur og fatn- að. Fólk sem stofnar fálög um kynlíf Annar fjallar um afþreyingu og það sem fólk er að dunda við í frí- stundum sínum og tengist kynlífi. Þar kemur Netið mjög mikið við sögu en einnig eru heimsótt félög fólks sem hefur það að áhugamáli að stunda óvenjulegt kynlíf. Þetta eru félög eins og BDSM sem hafa áhuga á bindi- og drottnunarleikj- um, sadó-masókistaleikjum og munalosta, MSC sem eru samtök „leðurhomma" og Svingers sem er hópur fólks sem stundar makaskipti eða kynlíf í hóp. Tvö fyrst nefndu fé- — Ragnheiöur Eiríksdóttir, annar umsjónarmanna þáttanna um Sex í Reykjavík .leggur síðustu hönd á samsetningu. ViS fundum vændi í Reykjavík - Sigursteinn Másson og Ragnheiður Eiríksdóttir eru að Ijúka gerð heimildamyndar í fjórum þáttum um klám í Reykjavík Röð heimildamynda um klám í Reykjavík, sem sýnd verður á Stöö 2 í mars, sýnir bæði jákvæöar og neikvæðar hliöar þessa iðnaðar sem fer dagvax- andi. lögin telja um 50 félaga hvort en Svingers er nýstofnað og enn smátt. Þriðji þátturinn fjallar um starf- semi nektardansstaða í Reykjavík, fólkið sem starfar þar, fólkið sem rekur staðina og fólkið sem sækir þá kemur nokkuð við sögu. Fjórði og síðasti þátturinn fjallar um vændi í ýmsum myndum. Nokk- uð hefur verið deOt um tilvist þess á íslandi og m.a. hefur dómsmála- ráðherra skipað starfshóp til að leita að því. Funduð þið vændi i Reykjavík? Við fundum vændi í Reykjavík „Já við fundum það auðvitað," segir Sigursteinn. „Það hefur alltaf verið til og verð- ur áfram. Ég vil á þessu stigi ekki segja mikið meira um það hvort það tengist t.d. dansstöðunum. Þetta kemur í ljós í þættinum. Vændi hlýtur að vera neyðprúrræði fyrir hvem sem er og þeir sem það stunda eru undantekningarlaust einstaklingar í mikilli neyð eins og kemur í ljós. Ég hef í mínu starfi, bæði við gerð þessara þátta og ann- ars staðar, kynnst einstaklingum sem hafa lagt líf sitt alg'erlega í rúst með þessum hætti.“ En var eitthvað í klámiðnaðinum í Reykjavík sem var mjög frábrugð- ið því sem þau höfðu gert sér í hug- arlund? „Ég þekkti í gegnum skrif mín í Degi talsvert til ýmissa þátta þessa heims,“ segir Ragnheiður en segir þó að vissir hlutir hafi komið sér á óvart. „Ég hafði aldrei komið inn á svona nektardansstað áður,“ segir Sigursteinn og bætir við að hann líti þetta ef til vill öðrum augum en ýmsir aðrir. Sigursteinn Másson, fréttastjóri Skjás eins, sem er kunnur fyrir heimildamyndir sínar um Geirfinns- málið, er annar umsjónarmanna þáttanna um klám í Reykjavík. Islendingar meiri pervertar en við héldum „Það sem kom ef til vill mest á óvart er að í það heila eru íslending- ar meiri „pervertar" en við viljum viðurkenna. Það kemur til dæmis í ljós þegar við fjöllum um símaþjón- ustumar og alla þá starfsemi og fáum að fylgjast með símadömum að störfum. Það eru ótrúlega margir viöskiptavinir úr öllum lögum þjóð- félagsins sem sýna bamaklámi mjög mikinn áhuga. Með því er ekki ver- ið að segja að símaþjónusturnar hvetji til þessa en þær leiða tilvist þessa áhuga í ljós,“ segir hann. Ragnheiður telur að þegar sumt af því sem telst til óeðlilegs kynlífs og brýtur berlega í bága við lögin berist í tal sé íslendingum mjög tamt að grípa til afneitunar og telja að slíkt og þvílikt þrífist ekki hér í fámenninu - þetta sé alrangt. „Staðreyndin er sú að allt sem menn geta fundið i skuggahverfum erlendra stórborga og tengist kynlífi geta menn fundið hér í Reykjavík einnig. Það hverfur ekki þó við lok- um augunum fyrir því.“ En er ekkert erfitt að fá fólk sem stofnar félög um sérstæðar kyn- hneigðir sínar til að koma i viðtöl í sjónvarpinu. Kynlíf til gleði og skemmtunar „Það lifa allir kynlífi og það sem fólk gerir með fullri ábyrgð og sam- þykki gagnaðila, báðum aðilum til nautnar og gleði, getur varla verið neitt athugavert við. Þeir sem leita sér félagsskapar í slíkum félögum i leit að þeim sem eru sama sinnis eru aðeins að reyna að vera ábyrg- ir. Það var þvi ekki erfitt að nálgast þessi félög,“ segir Ragnheiður. „Það getur hins vegar ekki verið rétt að fólk sé haldið þeim ranghug- myndum að það sé t.d. í lagi að fitla við böm kynferðislega af því að þau hafi átt frumkvæðið," segir Sigur- steinn. „Allt kynlif sem felur í sér kúgun á minni máttar eða greiðslu er í eðli sínu ekki rétt.“ Er yngra fólk meiri þátttakendur í þessum iðnaði sem neytendur en eldri kynslóðin? „Mér sýnist að viðskiptavinir séu fólk á öllum aldri. Ég hef á tilfinn- ingunni að fullorðnara fólk pukrist meira með þetta en unga fólkið. Svo er auðvitað mjög mikill meirihluti karlar sem eru viðskiptavinir dans- staða, verslana með blöð og bækur og svo framvegis," segir Ragnheið- ur. Þau eru sammála um að þættim- ir skiptist þannig í rauninni í tvo ólíka hluta. Annars vegar sýni þeir þá fjölbreytni og hinar margvíslegu leiðir sem fólk fer til að skemmta sjálfum sér og öðrum i sínu kynlífi og kynni fjölbreytta flóru möguleika sem því tengjast. Hins vegar varpa þeir ljósi á ýmsar dekkri hliðar sem oftar en ekki fylgja vaxandi kynlifs- og klámiðnaði. Hvað er klám eiginlega? „Yfirvöld hér eru í talsverðum vanda,“ segir Sigursteinn. „Klám er bannað en þaö er eng- inn sem getur skilgreint hvað það er. Það er bannað að selja eða leigja klámmyndir en það eru sennilega ekki nema 3-4 videóleigur í Reykja- vík sem ekki hafa slíkt á boðstólum. Vændi er ekki ólöglegt nema þriðji aðili hafi af því tekjur eða það sé stundað sem aðalatvinna. Þarna eru lögin ekki í miklu samræmi við veruleikann. Við höfum ekki enn gengið í gegnum þá endurskoðun á þessu sviði sem flest lönd í nágrenni okk- ar gerðu fyrir nokkuð mörgum árum. Fyrir vikið eru. t.d. grófari myndir í íslenskum blöðum um kynlif en væru leyfðar t.d. i Amer- íku og á dansstöðum hér ganga stúlkumar lengra en þeim væri leyft í nágrannalöndum okkar. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.