Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 T>T7~ foygarðshornið 'k k: Er verið að hlunnfara Ég á erfitt með að skilja hvers vegna ég ætti að hafa stórfelldar áhyggjur af þeim gróða sem sagð- ur er blasa við þeim sem eiga stór- an hlut i íslenskri erfðagreiningu. Mér líst vel á að að allar götur hér fyllist af vellauðugum líffræðing- um. Sá gróði kann að vísu að vera til marks um aö verðbréfafólk er hjarðsálir sem hættir til að ofmeta stórkostlega til fjár ýmsa framtíð- armúsík, og reynir að innheimta nú í dag arðinn af því sem ekki verður einu sinni orðið til á morg- un, einkum í greinum sem það hef- ur ekki hundsvit á, og vel má vera að einhverjir séu að spila með trú- gimi og græðgi fólks. En hví skyldi ég segja mig úr gagnagrunn- inum þess vegna? Ég fæ með engu móti séð að allir peningarnir sem maður heyrir að séu á sveimi kringum þessi áform séu fé sem mér ber eitthvað sérstaklega. Að verið sé að hlunnfara mig. Mér virðist að í nýjustu herferðinni gegn gagnagrunninum gæti nokk- urs misskilnings á því hvernig verömæti verða til, að gömul hug- mynd um arðrán í kapítalísku samfélagi lúri undir hjá þeim sem mest hafa sig í frammi - hugmynd sem naumast er nothæf þegar kemur að gagnagrunni og ís- lenskri erfðagreiningu. * * * Sjúkdómar eru ekki verömæti heldur böl. Hins vegar geta rann- sóknir á sjúkdómum skapað verð- mæti. Upplýsingar um mig og mín- ar erfðir eru ekki heldur verðmæti en það er hægt að búa til verðmæti úr þeim þegar búið er að tengja þær við upplýsingar um aðra ís- lendinga. Sérhver einstaklingur sem gengur um á jörðinni hefur að vísu í sér fólgin ómælanleg verð- mæti, en þau felast í höndum hans og handarverkum, sál hans og hugsunum og því að sérhvert líf er heilagt. Með öðrum orðum: Það eru ekki sjúkdómamir sem skapa verðmæti heldur er það þekkingin. Og í þessu tilviki sérhæfð og torfengin þekking sem ég hef ekki vald á. Hagur einstaklinganna af þvíf sem kann að koma út úr gagna- grunninum felst i þvi að almennt þekkingarstig þjóðfélagsins hækk- ar, peningar streyma inn í samfé- lagið úr einhverju öðru en frum- framleiðslu og stóriðju og öðrum tilraunum til að iðnvæða landið á 19. aldar vísu - og von kviknar um að líf afkomendanna kunni að verða minna markað af sjúkdóm- um en þeirra sem nú eru á dögum: þetta er allnokkuð - og er þá ónefnt það sérstaka tilhlökkunar- efni að geta farið að grúska í ætt- fræði á netinu þegar afraksturinn af starfi Friðriks Skúlasonar fer þangað. Þetta nægir augsýnilega ekki öllum, sérstaklega þegar fréttir taka að berast af ofsagróða spek- úlanta með bréf í decode. Þeir spyrja sig: hvers vegna ekki ég? Og gleyma því að þeir áttu ekki hug- myndina að gagnagrunninum og hafa ekki bolmagn til að koma honum á fót. Hluti af þessum ofsagróða gæti verið vegna ofmats á erfðavísind- um. Sigursteinn Másson, sá flni fréttamaður á Skjá einum, spurði Kára Stefánsson á dögunum um hommagenið. Kári svaraði eitt- hvað á þá leið að rannsóknir sem bentu til að slíkt væri yfirhöfuð til væru ótraustar og gerði almennt lítið úr möguleikum erfðafræðinn- ar til að negla niður hvers vegna einstaklingarnir eru eins og þeir eru: af hverju hafa sumir gaman af ljóðum? spurði hann og virtist ekki hafa áhuga á svarinu. Erfðafræðin mun hjálpa okkur til að átta okkur á vissum til- hneigingum i fari okkar og getur varað okkur við því sem hætt er við að yfirfalli okk- ur ef við forum ekki varlega, til dæmis í mataræði eða umgengni við áfengi. Þannig verður erfða- fræðin svolítið eins og vitur frænka sem þekkir sögu ættarinn- ar. En sú nútíma nauðhyggja að genin geymi allt i okkar fari og lífi er ekkert skárri en stjömuspeki og aðrar slíkar íþróttir sem þykjast segja okkur hver við séum. Þetta er ömurleg lífssýn og til þess fallin að drepa niður frumkvæði einstak- Guðmundur Andri Thorsson linganna í eigin lifl. í genunum búa möguleikar okkar. Hvort þeir þróast til góðs eða ills - hver við svo verðum - er und- ir uppeldi komið og umhverfí og einhverju sem við neyðumst til að kalla upplag hvers og eins. Sérhver mannleg- ur eiginleiki á sér að minnsta kosti plús hlið og mín- us hlið: það kemur genum ekki við hvort við virkjum plúshliðina i okkur eða látum mínus hliðina eitra líf okkar. Hver við eiginlega erum er undurflókinn vefur og rammlega flækt samspil trilljón þátta sem menn á hvítum sloppum geta aldrei ráðið í - jafnvel þótt þeir kenni sig til örlaganomanna. Svo er Guði fyrir að þakka. Sjúkdómar eru ekki verðmœti held- ur höl. Hins vegar geta rannsóknir á sjúkdómum skapað verðmœti. dagur ílífi Týndu skórnir voru í rauðu erminni - Bragi Gíslason, gangbrautar- og gangavörður, lýsir degi í lífi sínu Klukkan er 6.30. Útvarpið er á og ég ligg örlítið lengur. Það er mánudagur og það er svolítið erf- iðra að vakna en aðra daga. Á mánudögum tefur Mogginn heldur ekki fyrir. Korter fyrir 7 hringir vekjaraklukkan og það eru komn- ar veðurfregnir. Þetta er róleg- heita veður og frost -l’. Veður skiptir máli fyrir gangaverði. Djúp lægð fyrir sunnan land getur gert líflð næstum óbærilegt. Börnin fmna á sér veðrabrigði eins og hrossin. Þau verða óróleg og hlaupa í allar áttir. Þegar sjö-frétt- imar eru lesnar tek ég lýsið mitt og borða morgunkomið. Konan var ekki á næturvakt í nótt svo ég þarf ekki að vekja börnin. Bílinn losaði ég úr skaflinum í gær svo nú þarf ég ekki að ganga í vinnuna eins og alla síðustu viku. Fer í sjálflýsandi vesti til að sjást betur Ég er kominn út í skóla fyrir kl. 7.30 og þar drekkur starfsfólkið kaffisopa með umsjónarmanni skólans og fyrir utan úrslit í bolta- leikjum helgarinnar er rætt um hvað liggur fyrir að géra þessa vikuna fyrir utan það venjulega. Og nú voru það óskilamunirnir sem voru til sýnis á foreldraviðtöl- unum í síðustu viku. Talandi um óskilamuni, það er ótrúlegt hve þetta safnast fyrir. Og eins hve litið er merkt. Þarna eru 20-30 stórir plastbalar fullir af alls- konar fótum. Minn vinnustaður er Melaskól- inn í Reykjavík, sem skiptist nú í gamla skólann og nýja skólann, þar sem ég er gangavörður og á mánudögum er ég gangbrautar- vörður. Melaskóli er einsetinn skóli með 570 nemendur, í Nýja- skólanum eru 270 nemendur 5., 6. og 7. bekkja. Af því að það er fremur kulda- legt út að líta fer ég í einn af kuldagöllum skólans og í sjálf- lýsandi vesti til að sjást betur og tek mér luktina í hönd, en luktin er gult vasaljós sem lýsir vel af í myrkrinu. Kl. 8.15 opna ég skólann við mikinn fögnuð þeirra bama sem eru farin að bíða fyrir utan. Það er ansi mikil umferð þennan tíma sem við erum á gangbraut- inni. Mest eru þetta foreldrar sem eru að aka börnum sínum í skól- ann. Börnin bíða undantekningar- lítið eftir að ég fylgi þeim yfir og segja mér jafnvel frá einhverju skemmtilegu er henti þau um helgina. Það eru alltaf sömu krakkarnir sem koma snemma, og krakkamir sem eiga heima næst skólanum sem koma þegar hringt hefur verið inn. Leiðinlegt þykir mér að sjá for- eldra og jafnvel kennara stytta sér leið og fara yfir götuna í 10-15 metra fjarlægð frá gangbrautinni. Eins langar mig stundum til að hafa rúðusköfuna með til að hreinsa framrúðuna fyrir lata bíl- stjóra sem ekki nenna að hreinsa nema rétt fyrir nefið á sér. En ég er nú bara gangbrautarvörður. Snúið á gamlan gangavörð Þegar hringt hefur verið inn minnkar umferðin og þegar kl. er Bragi er viö öllu búinn í kuldagalla, gulu sjálflýsandi vesti og meö Ijós- lukt í hönd. 8.40 fer ég inn í skóla fer úr vest- inu slekk á luktinni hengi upp kuldagallann og fer upp á skrif- stofuskólans til að ná í póstinn sem er að mestu leyti tilkynningar um forfoll nemenda. Þetta er met- dagur í dag yfir 60 nemendur koma ekki í skólann í dag. Þessu er dreift í 25 af 27 kennslustofum skólans, í tveimur stofum virðist enginn vera veikur. Eftir að póstburði er lokið koma ýmis verkefni svo sem að ljósrita fyrir nemendur, afgreiða mjólk og jógúrt og laga kafFi fyrir kennara og fylgjast með umferðinni á gang- inum. Hér er mun minna ráp en í gamla skólanum vegna þess að hér er klósett í hverri stofu. Kl. 10.30-10.50 eru frímínútur. Kennarar eiga að hjálpa til við að koma krökkunum út en þeir eru nú orðnir ansi kaffiþurfi eftir kennsluna svo það getur reynst ansi mikið puð að sjá við þeim sem reyna að vera inni. Það er gaman hjá einstaklingi sem getur snúið á gamlan gangavörð. Þegar allir eru komnir út læsi ég en stend við dyrnar og sé vel yfir minn hóp. Nýi skólinn er með sér frímínútur. Þetta voru rólegar frímínútur og hættulaust snjókast. Þegar allir eru komnir inn þarf að þurrka yfir gólfin, því hér fara allir inn á skónum á neðri hæðina en halda á skónum upp. Skáknámskeið í stofu þrjú Nú fæ ég mér kaffi og brauð, síð- an panta ég mjólkurvörur fyrir þriðjudaginn. Seinni frímínútur eru kl. 12.10-12.40. Þá verður al- vöruslagur og þegar svona alvöru- slagur verður þarf gángavörður að fá aðstoð og þá eru kennarar fljót- ir til og fóma kaffi og matartímum umyrðalaust. Nú hefur orðiö sú framför að ég hef GSM-síma til að kalla á aðstoð. Þessum frímínútum lýkur eins og öðrum frímínútum og aftur þarf að þurrka gólfin. Kl. 13.20 fara þau börn heim sem ekki eru í heimanámi. Þá fer ég aftur út á gangbraut, en nú er allt mun rólegra en í morgun en þó þarf nú að vera úti mun lengur vegna þess að yngstu börnin eru lengi að klæða sig. Nú er það heldur ekki skólabjallan sem kallar. Þegar ég kem inn aftur er hafið skáknámskeið í stofu 3. Hér er mikið lagt upp úr skák enda eigum við Reykjavíkurmeist- ara, íslandsmeistara og Norður- landameistara. Og þá er klukkan 3. Ég færi mig um set. Hér er aðeins skákin eftir. Það er kalt í gamla skólanum Hér verð ég dyravörður til kl. 18. Börn og fullorðnir koma og fara. Skóla- hljómsveit Vesturbæjar er hér með æfingar og börn úr Selinu eur á leið heim Hér er ys og þys, þaö vantar úlpu og það vantar skó, for- eldrar eru að flýta sér, börnum liggur ekkert á. Engir tveir dagar eins Gangavörðurinn reynir að hjálpa til en jafnframt að vera ekki fyrir, standa ekki meira með ein- um en öðrum. Ég hef oft verið spurður að því hvernig ég geti unnið svona starf sem alltaf er eins. En það eru engir tveir dagar eins, eins og það eru engin tvö böm eins. Týndu skórnir sem voru I rauðu erminni í gær eru í annarri ermi í dag. Sjöundi bekk- urinn var svona og svona, en þessi í ár er þrælskemmtilegur í dag, mánudag. Hvernig sem hann nú verður á þriðjudaginn. Það er bekkjarkvöld í stofu 9. Foreldrar, afar, ömmur og systkini koma með nemendum og kennara. Það er komið kvöld. Það hægist um. Ræstingafólkið er komið og býr skólann undir næsta dag. Ég set næturlæsinguna á og legg af stað heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.