Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 27
J>V LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000
27
24. FEBRUAR TIL 5. MARS
Vel yfir
Ökeypis tölvupöstur
jsb - góður staður fyrir konur
IBBMBIIII
Hjá okkur finnur
þú m.a. ferðabækur
barnabækur • handbækur
Ijóð • hestabækur
spennusögur • ævisögur
myndabækur • ættfræðirit
fræðsluefni • spennuefni
afþreyingu • skáldskap • skemmtun
útivist • dulspeki • tækni
landkynningarefni • ferðalög • íþróttir
matreiðslubækur og margf fleira.
Bókamarkaðuiinn stendur
aðeins yfir i nokkra daga.
Ekki láta þetta
einstaka tækifæri
framhjá þér fara.
Mí
P E R L a n tflómalist
Hinn áilegi bókamarkaöur Félags islenskra bókaútgefenda
stendur nú yfir i Perlunni, Reykjavik, simi 562 9701 og
Blómalist Hafnarstræti 26, Akureyri, simi 897 6427.
•/Ar
Eistneskur hönnuður opnar verslun í Reykjavík
Síðastliðinn laugardag var opnuð
tískuvöruverslun á Skólavörðustíg 22
sem væri ekki í frásögur færandi
nema fyrir þær sakir að eigandinn og
fathönnuður verslunarinnar er eist-
neskur. Liivia Leskin er búsett í Tall-
inn þar sem hún á og rekur verslun
með eigin fatalínu en verslunin hér á
landi er sú fyrsta utan heimalandsins.
Undir áhrifum frá miðöldum
- Hvernig kom það til að þú opnað-
ir verslun á íslandi?
„Maðurinn minn er íslenskur og
það lá beinast við. Ég hef verið að
fikra mig áfram í langan tíma, allt frá
því að hanna föt heima hjá mér yfir í
að opna verslun í Tallinn, sem ég hef
nú rekið í fimm ár, og nú síðast með
því að opna verslun hér á landi.“
Liivia segist vera undir miklum
áhrifum frá miðöldum í Eistlandi og
það endurspeglist í fötum hennar. Föt-
in, einkum húfur, hattar, slæður,
treflar og slár, eru að hennar mati
tímalaus og eiga því alls staðar við og
alltaf. „Ég styðst við hefðbundna liti,
rautt, svart og grátt og einnig grænt.
Fötin eru að mestu úr ull en einnig úr
silki. Ég reyni líka að miða fótin að
þörfum einstaklinga og með tilliti til
veðurfars."
Um aðra eistneska fatahönnuði seg-
ir Liivia að þeir séu fáir en góðir og
margir hverjir gamlir nemendur
hennar úr Listaakademíunni í Tallinn
þar sem hún kenndi fram að þeim
tíma er hún ákvað að snúa sér ein-
Liivia leggur áherslu á að föt sín séu „tímalaus" og eigi jafnt við á nýrri þús-
öld sem á miðöldum.
vörðungu að fatahönnun og verslun-
arrekstri. „Tallinn er eins og Reykja-
vík í augum íslendinga, þar gerist allt
sem á annað borð þykir markvert á
meðan annars staðar gerist ekki neitt.
Eistneskir hönnuðir eru því allir með
aðstöðu í Tallinn og sumir hverjir
hafa meira að segja haslað sér völl á
Norðurlöndunum. Ég hef alltaf verið
bjartsýnismanneskja og ég tel framtíð-
ina bjarta fyrir eistneska fatahönnuði
á erlendri grundu."
Liivia segir áhuga sinn á fatahönn-
un alltaf hafa verið til staðar. „Hann
byrjaði um leið og ég fæddist. Ég kem
úr alþjóðlegri ijölskyldu, þó svo að ég
sé fyrst og fremst Eistlendingur. Ég á
ættir minar að rekja bæði til Finn-
lands og Svíþjóðar og einnig til Rúss-
lands. Móðir mín var fatahönnuður og
því kynntist ég starfi hennar vel strax
á unga aldri. Það var einnig auðvelt
fyrir okkur að fylgjast með fréttum úr
hinum vestræna heimi því við gátum
óhindrað náð öllu sjónvarpsefni frá
Finnlandi."
Aðspurð um hvort margt hafi
breyst eftir hrun Sovétríkjanna hvað
varðar starf fatahönnuðar, segir hún
svo ekki vera. Eftirspurnin sé sú
sama nú eftir að markaðsbúskapur er
kominn á eins og þegar áætlanabú-
skapur var við lýði áður. „Smekkur
manna er sá sami og því fyrst og
fremst markaðslögmálin sem hafa
breyst. -KGP
Innritun
er hafin!
Ný námskeið byrja 13. mars
ÝXT - NTTT:
íorgnntínn
TT 1. lsl- 7.30
ládegistími
. .i n m
T t. kl. t2.05
Frá
til
ATH!
Staðfesta þarf
pantanir
fyrir 3. mars.
FUNDIR
VIGTUN
MÆLING
MATARÆÐI
taar
FRÁ TOPPITIL TÁARI
Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum,
sem beijast við aukakílóin.
Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar
í viku, níu vikur í senn. Góður matarkúr
sem fylgt er eftir daglega með andlegum
stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um
mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir
þar sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig
á að bera líkamann og efla sjálfstraustið.
FRA TOPPITIL TAAR n
- framhald
Námskeið fyrir þær sem vilja
halda áfram í aðhaldi.
Frjálsir tímar, 9 vikur.
Fundir lx í viku í 9 vikur.