Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 31
á '3"%^ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000
iiBenningarverðlaun DV«
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt:
Skilgreindum ímynd staðarins
„Ég á varla til orð til að lýsa
ánægju minni. Það er okkur mikUl
heiður að hafa hlotið útnefningu
enda fylgjumst við spennt með á
hverju ári hverjir hljóti DV-verð-
launin," segir Sigríður Sigþórsdótt-
ir verkefnastjóri fyrir hönd Vinnu-
stofu arkitekta á nýrri ferðamanna-
þjónustu við Bláa lónið. Sigríður
veitti verðlaunum í flokki arkitekt-
úrs viðtöku, ásamt félögum sínum,
þeim Hróbjarti Hróbjartssyni, Ric-
hard Ólafl Briem og Sigurði Björg-
úlfssyni.
ið sem stofan hlýtur þessa viður-
kenningu en hin skiptin voru Dval-
arheimili aldraðra Seljahlíð og ísa-
fjarðarkirkja." Sigríður segir arki-
tektúr sem listgrein fara varhluta af
allri umræðu og því framtak af
þessu tagi meira metið en ella i
greininni.
Um áhugann á arkitektúr segir
Sigríður hann hafa vaknað þegar
hún las listasögu í Stokkhólmi. í
kjölfarið hafi hún ákveðið að nema
arkitektúr.
Það var árið 1994 sem Sigríður og
samstarfsmenn hennar á VA fengu
stæðu, ónumdu landi.“
Laga mannvirkin að
óbeislaðri náttúru
Að sögn Sigríðar hófst vinnan á
að velja byggingarlóð fyrir mann-
virkin og skrifa forsögn fyrir hvað
staðurinn ætti að bjóða upp á. „Við
kynntum okkur sambærilega ferða-
mannaþjónustu erlendis sem og hér
á landi til að skilgreina ítarlega
hvers konar ímynd nýr staður ætti
að endurspegla. Verkefnisstjórn,
þar sem rekstrar-, eignar- og fram-
kvæmdaaðilar áttu fulltrúa, var
mjög samstiga frá upphafi og stór-
huga gagnvart þessari framkvæmd.
Það sem kom á óvart í þessari
vinnu var að fá að kynnast því hvað
Reykjanesið býr yfir merkilegri
jarðsögu og hve margar nátt-
úruperlur er þar að finna. Hafinn er
undirbúningur að áframhaldandi
framkvæmdum að hóteli og ráð-
stefnuaðstöðu. Hugmyndin er að
vinna áfram á sömu nótum og þeg-
ar er lagt upp með, þ.e. að laga
mannvirkin að þeirri óbeisluðu
náttúru sem er það einstæða."
Vinnustofa arkitekta hefur áður hlotið menningarverðlaun DV, þ. á m. fyrir
ísafjarðarkirkju sem var vígð fyrir nokkrum árum.
Þetta er draumaverkefni
„Þetta er í raun eina faglega verð-
launaveiting á sviði nútímaarkitekt-
úrs á íslandi í dag og í þriðja skipt-
það verkefni í hendurnar að ráðast
í hönnun á nýjum ferðamannabað-
stað við Bláa lónið. „Þetta er
draumaverkefni. Að takast á við svo
spennandi viðfangsefni í svo sér-
Áhutjaverð umræða um
þéttingu byggðar
Um arkitektúr á íslandi í dag seg-
ir Sigríður: „í byggingarlist á ís-
landi er of lítið tillit tekið til fagur-
fræðilegra heildar- og samræmis-
sjónarmiða, af því leiðir ákveðna
óreiðu sem er áberandi hér miðað
við aðra staði. Á síðustu mánuðum
hefur verið í gangi mjög áhugaverð
umræða um þéttingu byggðar og
þar eru miklir og áhugaverðir
möguleikar fyrir hendi.“
Sigríður segir verkefnisstjórn hafa verið samstiga og stórhuga gagnvart
framkvæmdum við Bláa lónið.
„Áttu þér íleiri draumaverkefni?"
„Já, mörg. Annars hefur það
verkefni sem maður tekst á við
hverju sinni sinn ákveðna sjarma.
Það sem aftur á móti gerði Bláa lón-
ið svo sérstætt var staðsetningin
sem gaf ótakmarkað frjálsræði. Við
mótuðum mannvirkin fyrst og
deiliskipulagið og ákvæði þess tóku
síðan mið af því.“ -KGP
í&œk'
Björn Steinar náði varla niöur á fótspilið þegar hann var að byrja að spila á
orgeliö.
Björn Steinar Sólbergsson organisti:
Talið óspilandi af öllum organistum
„Ég get ekki annað en verið mjög
ánægður og það má segja að þetta sé
óvæntur og kærkominn glaðningur
fyrir mig sem listamann," segir Bjöm
Steinar Sólbergsson sem hlýtur Menn-
ingarverðlaun DV í flokki tónlistar.
Björn Steinar fær verðlaunin fyrir
magnaðan frumflutning á orgel-
konsert Jóns Leifs á fslandi.
„Hvenær byrjaðirðu að fást við tón-
list?“
Fæturnir náðu rétt niður
á fótspilið
Það hefur verið þegar ég var átta
ára gamall. Amma hafði nýverið
keypt píanó handa eldri bróður
mínum sem var þá að læra og í
framhaldi af því fór ég einnig að
læra á píanó. Áhuginn dvinaði hins
vegar hjá honum en ég hélt áfram,“
segir Björn en hann er borinn og
barnfæddur Akurnesingur. „Átta
ára gamall var ég strax farinn að
spila á tónleikum eða s.k. músik-
fundum í Tónlistarskólanum á
Akranesi ásamt fleirum á mínu
reki. Þar var spilað á allavega hljóð-
færi og þá fyrst og fremst fyrir for-
eldra og aðra nákomna ættingja.“
Um kynni sín af orgelleik segir
hann: „Ég var 12 ára gamall þegar
Haukur Guðlaugsson, söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar, fór að kenna
mér á orgel en hann kenndi á píanó
við tónlistarskólann. Hann hafði
þann háttinn á að fara með efnilega
nemendur sína út í kirkju og kynna
þeim orgelið. Þannig urðu til marg-
ir organistar. Haukur lagði þó
áherslu á að ég lærði jafnframt á pí-
anóið enda var ég svo ungur þegar
ég settist fyrst við orgelið að fæturn-
ir náðu rétt niður á fótspilið," segir
Bjöm Steinar hlæjandi.
Lærði hjá organista
páfans
Björn Steinar segir þáverandi
skólameistara Fjölbrautaskólans á
Akranesi, Ólaf Ásgeirsson, hafa stofn-
að tónlistarbraut við skólann þegar
Björn Steinar hafði lokið einu ári af
fjórum í skólanum en hann hafði
íhugað að fara suður og hefja nám við
Menntaskólann v/Hamrahlíð þar sem
boðið var upp á tónlistarbraut. Bjöm
Steinar útskrifaðist sem stúdent af
tónlistarbraut Fjölbrautaskólans á
Akranesi vorið 1981 og um haustið
lauk hann jafnframt 8. stigi i orgelleik
frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem
Haukur Guðlaugsson var aðalkennari
hans. Að því búnu hélt hann til Ítalíu
þar sem hann dvaldist í eitt ár og
lærði hjá James E. Goettche sem nú
er organisti Péturskirkjunnar í Róm.
Þaðan lá svo leiðin í Tónlistarháskól-
ann í Rueil Maimaison sem er rétt
utan við París og þar útskrifaðist
hann með einleikarapróf í orgelleik
árið 1986.
Talið óspilandi af öllum
organistum
Björn Steinar segist hafa vitað
lengi af verki Jóns Leifs en það hafi
verið talið óspilandi af öllum organist-
um. f Frakklandi kynntist hann
sænskum orgelleikara, Gunnari
Idenstam, sem flutti verkið á tvennum
tónleikum í Stokkhólmi 1986. „Ég fékk
að kynnast því sem hann var að gera
en hann sagði verkið jafnframt það
erfiðasta sem hann hefði komist í tæri
við. Ég fékk senda segulbandsupptöku
frá Gunnari með verkinu þar sem ég
heyrði þvilíkur seiður var hér á ferð
og má segja að þar með hafi ég fyrst
fengið áhuga fyrir alvöru. Konan mín
hvatti mig einnig til að takast á við
þetta og í framhaldi af því byrjaði ég
á verkinu en með hléum þó. Það var
svo á 100 ára afmæli Jóns Leifs sem
boltinn fór að rúlla fyrir alvöru en
Runólfi Birgi Leifssyni, framkvæmda-
stjóra Sinfóníunnar, leist vel á að taka
verkið upp á aldarafmæli tónskálds-
ins og svo hafði sænska útgáfufyrir-
tækið BIS sýnt áhuga á að gefa verkið
út á geislaplötu. Það skipti líka höfuð-
máli að ég fékk listamannalaun í
fyrra og gat því einbeitt mér að verk-
inu af fullum krafti.“
Áhugamál mín eru starf
mitt og lifibrauð
Björn Steinar er nýkominn að
utan þar sem hann flutti orgel-
konsert Jóns ásamt fleiri verkum.
„Ég hélt tónleika í Cleveland í
Bandaríkjunum þar sem ég flutti
m.a. orgelkonsert Jóns Leifs sem
fékk frábærar viðtökur.
Um núverandi verkefni og fram-
tíðina segist Björn Steinar starfa
sem organisti við Akureyrarkirkju
en einnig séu fyrirhugaðir tónleikar
bæði hér á landi og erlendis. „Ég
verð með tónleika í Hallgrímskirkju
sem ég má til með að minnast á en
þar mun ég flytja m.a. Rímnadansa
eftir Jón Leifs. Á þessu ári eru svo
fram undan tónleikar í Danmörku,
Finnlandi og Þýskalandi. Á heildina
litið held ég að ég geti unað sáttur
við mitt hlutskipti. Auk þess að
halda tónleika víðs vegar um heim-
inn er ég er organisti við Akureyra-
kirkju og kenni við Tónlistarskól-
ann á Akureyri Starf mitt er því
mjög fjölbreytt og þess eðlis að
áhugamál mín eru jafnframt starf
mitt og lifibrauð," segir Björn Stein-
ar. -KGP