Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 34
V
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000
42 jffenningarverðlaun DV
Ragna Róbertsdóttir myndlistarmaður:
Landið er maður sjálfur
Ragna Róbertsdóttir, verðlauna-
hafi DV i myndlist, er meðal kunn-
ustu listamanna íslenskra á alþjóð-
legum vettvangi. Þó er hún sér-
kennilega íslensk í listsköpun sinni
- því hvaö getur verið íslenskara en
að „mála“ myndir beinlínis með
hrauni og vikri. Fyrir verðlauna-
verk sitt, Kötlu, sótti hún sér bik-
svartan brunasand austan úr Mýr-
dal og bjó til sitt eigið eldfjall úr
honum á Kjarvalsstöðum svo að að-
dáun vakti. „Fyrir fótum okkar ligg-
ur hinn mikli, svarti sandur og
handan hans rís eldfjallið, íklætt
hvítum jökulhjúpi,“ sagði Áslaug
Thorlacius gagnrýnandi hér í DV.
Nú hafa lærðir listfræöingar hér-
lendir og erlendir túlkað list Rögnu
í löngu máli, en við báðum hana að
segja frá því með sínum eigin orð-
um hvað það væri sem hún vildi ná
fram i listsköpun sinni.
„Verkin eru kannski mín sýn á
landið," byrjar Ragna svolítið hik-
andi. „Ég er ættuð frá Vestfjörðum
og var í sveit og seinna kaupavinnu
á uppvaxtarárunum. Og þegar ég
var pínulítil fóru pabbi og mamma
um hverja helgi með okkur systum-
ar í útilegur. Ekki held ég að þau
hafi verið mikið að fræða okkur sér-
staklega um umhverfið en það síað-
ist inn. Landið er bara einhvern
veginn maður sjálfur."
- Svo hafa ákveðin náttúrufyrir-
bæri farið að sækja á þig .. .
„Ég hef alltaf verið að vinna með
náttúruna á einhvern hátt,“ segir
Ragna. „Og fljótlega fór ég að nota
efnið sjálft beint úr náttúrunni til
að búa til myndir - vikurinn er
núna eins og minn pensill!"
- En hvers vegna - það er mjög
óvenjulegt að búa til „málverk" úr
náttúruefnum á þennan hátt.
„Fyrir mér er það fullkomlega
eðlilegt. Þetta er mín aðferð. Ég er
að horfa í þetta smáa og tek þá það
allra smæsta, vikurkornin, og set
þau á vegg. Þegar ég bjó til mynd-
verkið mitt af Heklu fyrir Gerðar-
safn þá tók ég bara vikurinn frá
Heklu og setti hann á vegg og þar
með var komin mín mynd af
Heklu,“ segir Ragna og hlær við.
- Eins og þú gerðir svo með Kötlu
í haust. . .
„Já, en það var meira ein stór
heild, sandurinn fyrir utan, myndin
af Kötlu á langveggnum og svo jök-
ulímyndin í mulda glerinu. Eigin-
lega er þetta skyndimynd - skyndi-
mynd af Kötlu eins og ég sá hana af
Mýrdalssandi í sumar. Abstrakt
skyndimynd! Mér fannst rosalega
skemmtilegt að glíma við rýmið á
Kjarvalsstöðum, það er svo erfítt að
það varð hrein ögrun að skapa inn i
það.“
Þeir sem upplifðu Kötlu á Kjar-
valsstöðum minnast þess hvernig
þeir þurftu að leggja á sig ferðalög
inn og út og austur og vestur til að
reyna að „sjá“ allt verkið - alveg
eins og maður þarf aö gera við fjall
sem aldrei verður „séð“ Eillt í einu.
„Já,“ segir Ragna við þessum
hugleiðingum, „fólk þurfti að skapa
heildarmyndina sjálft i huganum."
- Nú hefur þú verið með einka-
sýningar erlendis og tekið þátt í
samsýningum viða um lönd og ráð-
stefnum um myndlist. Finnst þér að
svona fámenn þjóð eins og við með
okkar stuttu myndlistarsögu hafi
eitthvað að gefa heiminum - hafi
einhverju að miðla?
„Já, það finnst mér,“ segir Ragna
og er nú snögg til svars. „Sannar-
lega. Það þarf að vísu einhvem til
að ota þessum listamönnum okkar
áfram eins og Edda Jónsdóttir í
Gallerí i8 er að reyna að gera, því
maður getur ekki bæði unnið að
listinni og komið sér á framfæri,
það tekur of langan tíma og er slít-
andi fyrir fólk sem ekki hefur gam-
an af að tala um sjálft sig. Þann
hlekk hefur vantað hér. En hér eru
margir listamenn sem eiga fullt er-
indi út í heim, fólk sem er að gera
persónulega hluti. Þá á ég ekki viö
að það sé að gera eitthvað þjóðlegt
heldur að það hafi sína sýn á landið
og fólkið, allt þetta sérstaka sem við
höfum hérna. Það þýðir ekkert að
vera að apa eftir öðrum, menn sjá í
gegnum það eins og skot. En ef þú
ert sannur sjálfum þér þá er hlustað
á þig.“ -SA
Vikurinn er minn pensill, segir Ragna Róbertsdóttir.
Ragna Róbertsdóttir við eitt myndverka sinna. DV-mynd Hilmar Pór
Guöfeöur Menningarverölauna DV: Aöalsteinn Ingólfsson og
Jónas Kristjánsson ritstjóri.
. Leiklist og byggingarlist: Auöur Eydal og Sigríöur Sigþórsdótt-
ir.
Tónlistarfólkiö á tali viö umsjónarmann menningarefnis á DV:
Hávaröur Tryggvason, Jónas Sen, Björn Steinar Sólbergsson,
Bergljót Anna Haraldsdóttir og Silja Aöalsteinsdóttir.
DV-myndir ÞÖK
Myndlist og leiklist: Georg Guöni Hauksson, Ragna Róberts-
dóttir, Áslaug Thorlacius og Ingvar E. Sigurösson.