Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 55
DV LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 afmæli 63 *■ Sverrír Hermannsson Sverrir Hermannsson, alþingis- maður og fyrrv. ráðherra og banka- stjóri, til heimilis að Einimel 9, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Sverrir fæddist að Svalbarði í Ög- urvík í Ögurhreppi í Norður-ísa- íjarðarsýslu. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1951 og viðskiptafræði- prófi frá HÍ árið 1955. Sverrir var fulltrúi hjá VSÍ 1955- 1956, skrifstofustjóri VR 1956- 60, formaður .og framkvæmda- stjóri LÍV 1957-72, fulltrúi hjá dag- blaðinu Vísi 1960-62 og fasteignasali 1962- 71. Sverrir var varaþingmaður 1963- 71, alþingismaður Austur- landskjördæmis frá 1971-88 og for- seti neðri deildar Alþingis 1979-83. Hann var forstjóri Framkvæmda- stofnunar ríkisins 1975-83, iðnaðar- ráðherra 1983-85 og menntamála- ráðherra 1985-87, bankastjóri Landsbanka íslands 1988-1998. Sverrir var formaður Vöku, fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta 1954-55, sat í Stúdentaráði HÍ 1954-55 og formaður Stúdentafélags Reykja- víkur 1957-58. í stjórn Sambands ungra sjálf- 'stæðismanna 1953-57. Hann sat í stjórn útgerð- arfélaganna Eldborgar hf., Ögra hf. og Vigra hf., í stjórn Kirkjusands hf. og var stjórnarfor- maður útgerðarfélags- ins Ögurvíkur hf. 1970-88. Sverrir sat í Rannsóknarráði ríkis- ins 1971-74, var tvisvar fulltrúi í Norðurlanda- ráði og hefur setið í ýmsum milli- þinganefndum og öðrum stjómskip- uðum nefndum um ýmis málefni. Hann var í stjórn Sjóminjasafnsins 1979-83 og formaður Frjálslynda flokksins síðan 1998. Sverri var veitt gullugla MA 1986, gullstjarna Stúdentafélags Reykja- víkur og gullstjarna LÍV og VR. Fjölskylda Kona Sverris er Gréta Lind Krist- jánsdóttir húsmóðir, f. 25.7. 1931. Foreldrar hennar: Kristján Tryggvason, klæðskera- meistari á ísafirði, og kona hans, Margrét Finnbjörnsdóttir. Börn Sverris og Grétu eru Hulda Bryn- dís, f. 6.2.1953, fil. kand. í þjóðháttafræði, rekur ferðaskrifstofuna Is- landia í Stokkhólmi, maki Guðni Albert Jó- hannesson bygginga- verkfræðingur, prófess- or við Stokkhólmsháskóla; Kristján, f. 14.10. 1956, sölustjóri í Reykjavík, maki Ema Ragnarsdóttir; Margrét Kristjana, f. 8.9.1958, forstöðumaður i Reykjavík, maki Pétur Sævald Hilmarsson; Ragnhildur, f. 28.8. 1960, blaðamaður í Reykjavík; Ást- hildur Lind, f. 23.2. 1964, flugfreyja í Reykjavík, maki Matthías Sveins- son. Fósturdóttir: Gréta Lind, f. 18.10. 1973. Foreldrar Sverris voru Hermann Hermannsson, f. 17.5. 1893, d. 26.11. 1981, búfræðingur, útvegsbóndi á Svalbarði í Ögurvík, síðar sjómaður og verkamaður á Isaflrði, og k.h. Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, f. 24.4. 1895, d. 20.11. 1977, húsmóðir. Ætt Hermann var sonur Hermanns Þórðarsonar, f. 16.6. 1845, d. 17.10. 1915, bónda á Krossnesi í Árneshr., Strandasýslu, síðar á Lónseyri á Snæfjallaströnd og síðast í Hagakoti í Ögurhreppi, og k.h., Guðrúnar Bjarnadóttur húsfreyju, f. 4.5. 1853, d. 21.2. 1933. Salóme var dóttir Gunnars Sig- urðssonar, f. 8.6. 1862, d. 12.6. 1915, bónda á Eyri í Skötufirði í Ögurhr., síðar ráðsmanns hjá Skúla Thoroddsen, bónda og ritstjóra á Bessastöðum á Álftanesi, og k.h. Kristínar Önnu Haraldsdóttur hús- freyju, f. 15.1. 1869, d. 19.9. 1898. Sverrir Hermannsson. Sonja Gunnarsdóttir verslunarmaður, Skarðs- hlíð 6b, Akureyri, verður sextug á morgun. Starfsferill Sonja fæddist á Akur- eyri og hefur búið þar alla tíð. Hún tók gagn- fræðapróf frá Gagnfræða- skóla Akureyrar árið 1957. Auk heimilisstarfa vann hún á netaverkstæði ÚA og á skrifstofu hjá smjörlíkisgerðinni Akra. vann hún hjá Landsbankanum á Akureyri við veitingar og þrif. Sonja Gunnarsdóttir. Einnig Sonja hefur starfað hjá Hagkaupi á Akureyri frá árinu 1980 með litlum hlé- um og starfar þar enn þann dag í dag. Auk þessa hefur Sonja selt fæði og tekið að sér þvotta og þrif. Sonja hefur starfað í stjóm SÁÁ á Akureyri og í stjórn hjá Sálarrann- sóknafélagi Akureyrar. Fjölskylda Sonja giftist 22.6. 1965 Ragnari Sigtryggssyni, f. 26.5. 1925, húsgagnabólstrara. Foreldrar hans voru Anna Lýðsdóttir kennari og Sigtryggur Sigurðsson skipasmiður. Þau eru bæði látin. Börn Sonju: Guðrún Friðjónsdótt- ir, maki Aðalsteinn Árnason, þau eiga tvær dætur; Gunnar Jónsson, maki Sigrún Gunnarsdóttir, þau eiga þrjár dætur; Ragnheiður Ragn- arsdóttir, hún á tvær dætur; Sig- tryggur Ragnarsson, hann á tvo syni; Kamilla Ragnarsdóttir, maki Ragnar Björnsson, þau eiga þrjú böm; Hermann Lýður Ragnarsson, maki Eva Björk Jónsdóttir, þau eiga eina dóttur; Borgar Ragnarsson. Systkini Sonju: Eiður Baldur Sig- þórsson, f. 12.2. 1936, stýrimaður og ketil- og plötusmiður, býr á Akur- eyri; Sigriður Gunnarsdóttir, f. 26.7. 1947, matráðsmaður í VMA; Gunn- ur Jakobína Gunnarsdóttir, f. 25.7. 1948, húsmóðir á Akureyri; Jón Sig- þór Gunnarsson, f. 12.4. 1953, múr- arameistari á Akureyri; Elín Guð- rún Gunnarsdóttir, f. 24.2. 1960, framreiðslumaður á Akureyri; Guð- mundur Gunnarsson, f. 30.5. 1961, lagermaður á Akureyri. Eiður er föðurbróðir og uppeldisbróðir systk- inanna. Foreldrar Sonju voru Gunnar Árni Sigþórsson múrarameistari, f. 1.9. 1913, d. 26.6. 1980, og Kamiila Karlsdóttir húsmóðir, f. 4.8. 1922, d. 14.6. 1968. Þau bjuggu á Akureyri. Sonja dvelur á Kanarieyjum á af- mælisdaginn. Til hamingju með afmælið 27. febrúar 80 ára Guðlaug Vigfúsdóttir, Skólastíg 16, Stykkishólmi. Gunnar Kristjánsson, Munkaþverárstræti 13, Akureyri. 75 ára_____________________ Ásta Hallgrímsdóttir, Hvassaleiti 157, Reykjavík. Guðrún Snorradóttir, Ægisstíg 3, Sauðárkróki. Kristbjörg Long, Grensásvegi 58, Reykjavík. Steinunn Eiríksdóttir, Hólabraut 9, Hafnarfirði. 70 ára Gyða Jónsdóttir, Hávallagötu 15, Reykjavík. Jón Sigurðsson, Fannborg 1, Kópavogi. Sigríður Bílddal, Melgerði 13, Kópavogi. ÚUa G. Árdal, Lönguhlíð 6, Akureyri. Valgeir T. Ingimundarson, Rauðarárstíg 24, Reykjavík. 60 ára Finnbogi Guðmundsson, Dvergabakka 2, Reykjavík. Ingibjörg Svanbergsdóttir, Leirubakka 7, Seyðisfirði. Kjartan Sigurjónsson, Lundarbrekku 14, Kópavogi. Laufey Guðrún Lárusdóttir, Efstasundi 42, Reykjavík. Sonja Gunnarsdóttir, Skarðshlíð 6b, Akureyri. 50 ára Valgeir Jónasson, rafeindavirki hjá Landssíma íslands, Borgar- gerði 4, Reykja- vik. Eiginkona hans er Kristín Böðvarsdóttir kennari. Þau taka á móti ættingjum, vinum og samstarfsmönnum í Versölum, Iðnaðarmannahús- inu, Hallveigarstig 1, á afmæl isdaginn kl. 17-20. Ásta Kristjánsdóttir, Vesturgötu 117, Akranesi. Hafsteinn Andrésson, Stakkholti 3, Reykjavík. Kristín Magnúsdóttir, Skólavörðustíg 4b, Reykjavík. Rosalind Johanna Reid, Lækjarási 4, Reykjavík. Sigríður G. Skúladóttir, Þórufelli 16, Reykjavík. Steinunn Ferdinandsdóttir, Furulundi 6i, Akureyri. -r 40 ára Anna Lísa Salómonsdóttir, Hringbraut 56, Reykjavík. Amar Arinbjarnar, Smárarima 68, Reykjavík. Daðey S. Einarsdóttir, Hólastíg 5, Bolungarvík. Guðjón Bachmann, Austurholti 6, Borgamesi. Gunnlaug O. Grubelic, Barónsstíg 43, Reykjavik. Inga Þóra Karlsdóttir, Engjavegi 22, Selfossi. Jenni Guðjón Clausen, Álftahólum 4, Reykjavík. María Svava Andrésdóttir, Hæðarenda, Selfossi. Ólafía I. Ingólfsdóttir, Miðhúsum 21, Reykjavík. Ólína Bragadóttir, Furugrund 34, Sandgerði. Sigríður A. Jónasdóttir, Tjarnarbraut 9, Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.