Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Síða 58
66 iyndbönd LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 Myndbanda Idle Hands |j y! m ÍDL.eHMD5 Handalögmál ★★Á Splatterinn er kominn til að vera. Hann hefur löngum hírst i hirsl- um jaðarmynda og verið ófáanlegur hér á landi nema í formi ótextaðra myndbanda á betri leigum. Quentin Tarantino og Roberto Rodrigues gerðu sitt til að losa um fjötra formsins með vampírusplatterbullinu From Dusk till Dawn og fengu m.a. ekki ófrægari menn en Harvey Keitel og Ge- orge Clooney í myndina. Nú eru fleiri famir að þora og áhorfendur taka splatternum með jafnaðargeði. Idle Hands er unglingagrínsplatter sem náði nokkrum vinsældum hjá krökkunum í bíó. Einhver púki hleypur í höndina á aðalsöguhetjunni, Anton Tobias, og dregur hann um myrðandi alla sem nálægt honum koma. Anton bregður skiljanlega nokkuð við þessi handalögmál en það allra versta er að þetta skuli einmitt gerast þegar honum er loksins að verða eitthvað ágengt með draumastúlkuna sina og er að fara með henni á hrekkjavökuball. Bjánalegt handrit, vonlausir leikarar og gelgjuhúmor eru sjálfsagðir fylgifiskar myndar af þessari tegund en húmorinn er nægilega geggjaður til að halda myndinni uppi. Svo er splatterinn ekkert svo svakalegur þannig að aðeins helstu tepranum ætti að ofbjóða. Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Rodman Flender. Aðalhlutverk: Devon Sawa, Seth Green, Elden Henson og Vivica A. Fox. Bandarisk, 1999. Lengd: 95 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Black and White Heimskulegur raðmorðingjaþrilier ★ Chris (Rory Cochrane) er trúrækinn mömmudreng- ur sem gengur til liðs við lögregluna. Fyrsti „partner" hans er hörkukvendið Hugs (Gina Gers- hon) sem kennir honum ekki aðeins til verka á göt- um úti heldur einnig í bólinu. Hann metur hana mik- ils en verður tvístlgandi þegar Hugs er bendluð við óhugnanleg fjöldamorð. Úfff, það er fátt gott ef nokkuð um þessa mynd að segja. Ég skal þó reyna að vera nokkuð jákvæður. Það mætti t.d. hafa nokkurt gaman af því að rífast um hvort þeirra Gershon og Cochrane leiki verr sé horft á myndina í góðra vina hópi. Og vissulega væri áhuga- vert að telja klisjumar og jafnvel veilurnar í söguþræði myndarinnar - velta vöngum yfir því hvort kvikmyndatakan sé verri en í heimamyndum pabba gamla - íhuga hvort Gershon hafi neitað að sýna á sér brjóstin og að í staðinn hafi þurft að gera atriði á klámbúllu þar sem sést í brjóst dans- meyja til að uppfylla loforð um nektaratriði við framleiðendur. Ætli það sé nú ekki samt betra að leigja aðra spólu. Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Yuri Zeltser. Aðalhlutverk: Rory Cochrane og Gina Gershon. Bandarísk, 1998. Lengd: 94 mín. Bönnuð innan 16. -bæn Pll Make You Happy Melludólgur rændur ★Á Áströlsk kvikmyndagerð hefur átt góðu gengi að fagna undanfarinn áratug og Nýsjálendingar hafa eitthvað reynt að nýta sér kjölsogið með takmörkuð- um árangri. Sérkenni áströlsku bylgjunnar eru mannlegar og kómískar útfærslur á ævintýrum sér- kennilegs undirmálsfólks. Nýsjálendingar hafa ekki alveg náð valdi á þessu formi og fyrir utan hið átak- anlega alkóhólistadrama Once Were Warriors er splatterleikstjórinn Peter Jackson sá eini sem hefur verið að gera eitthvað af viti. Þessi nýsjálenska mynd breytir engu þar um. Hún fer áströlsku leiðina í umfjöllun og segir frá vændiskonu sem ákveður að ræna melludólg sinn, sem er að færa út kvíamar með sterasmygli, til að hún geti forðað sér og HlV-smituðum sambýlingi sínum úr hrörlegri íbúð þeirra og tekið stefnuna á betra líf. Til að þessi tiltekna formúla virki þarf annars vegar fyndið og gott hand- rit til að skemmta áhorfendum og hins vegar að gæða persónumar lífi með skemmtilegri persónusköpun og góðum leik. Hvoragt gengur almennilega upp í þessari mynd sem er þó ekki alslæm. Hún á góða spretti hér og þar en heildarsvipurinn er litlaus. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Athina Tsoulis. Aðalhlutverk: Jodie Rimmer, Mich- ael Hurst, Carl Bland, lan Hughes og Rena Owen. Nýsjálensk, 1998. Lengd: 92 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Superman Háöldruð stórmynd ★★ Tuttugu og tveimur árum eftir gerð Supermans má metnaðurinn sem lá að baki myndinni vera öllum Ijós. Ekkert var til sparað við gerð myndarinnar sem var ein sú aldýrasta sem gerð hafði verið. Mikil áhersla var lögð á að vera fyrirmyndinni trúr og koma sem flestum persónum teiknimyndasagnanna til skila. Enda er það svo að Ofúrmennið er enn á barns- aldri þegar klukkutími er liðinn af myndinni en hún er alls um tveir og hálfur tími að lengd. Þá er Superman furðuleg blanda af hasar-, stórslysa-, trúar-, ástar- og gamanmynd. Nostrað var við tæknibrellurnar sem fengu óskar fyrir vikið. Og til að gulltryggja stórmyndastimpilinn vora fengnir til liðs við hinn óþekkta Christopher Reeve ekki ómerkilegri leikarar en Gene Hackman og Marlon Brando, en launakröfur hans margslógu út allt sem áður þekktist fyrir aukahlutverk. En hvemig skyldi myndin hafa elst? Svarið yrði ansi illa ef ekki væri fyrir vissa nostalgíu og rómantiska lotningu fyrir stórmennskubrjálæðinu að baki myndinni. Mig grunar að barnungum áhorfendum 21. aldarinnar þyki lítið til tæknibrellnanna koma en við hin eldri ættum a.m.k. að geta brosað að þeim út í annað. Verra er með brandarana sem era skelfilega lélegir og rífa myndina niður jafnóðum og hún lyftir sér til flugs. Ég er hræddur um að Superman virki aðeins sem nostalgíuflipp og löngu kominn tími til að endurgera hann með tækni nútímans. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Richard Donner. Aðalhlutverk: Christopher Reeve, Gene Hackman og Marlon Brando. Bandarísk, 1978. Lengd: 143 mín. Öll- Ofurmennið: A eilífu flugi Súperman eða Ofurmennið er án efa vinsælasta teiknimynda- hetjan og reyndar eitt helsta kennimark afþreyingarmenningar 20. aldarinnar. Þó að langt sé um liðið síðan síðasta Superman- myndin var frumsýnd skjóta iðu- lega upp koUinum fréttir af undirbúningi þeirrar næstu. Svo ólik- ar skoð- anir virðast ríkja um eðli hetj- unnar að kvikmynda tökum er jafnan aflýst en án efa munu vinsæld- ir hennar valda því að myndin verður gerð á end- anum. Það er því forvitnilegt að litlu skyldi muna að Súperman kæmist á prent. Langþráð útgáfa Teiknarinn Joe Shuster og textasmiðurinn Jerry Siegel út- færðu hugmynd sína um Súperm- an sumarið 1933. Likt og við vit- um í dag var um að ræða ofur- mannlegan gest frá annarri plánetu er bjó yfir mætti langt umfram Jaröarbúa - Herkúles 20. aldarinnar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þessara táningspUta vUdi enginn kaupa hugmyndina þeirra en hún þótti heldur betur fárán- leg. Rétt er að geta þess að á fjórða áratug aldarinnar voru teiknimyndabækur og -blöð á al- geru frumstigi. Yfirleitt var um að ræða endurprentanir úr dagblöð- um og engar sjálfstæðar hetjur tU- heyrðu bókunum sjálfum. Útgef- andinn, Detective Comics (síðar DC Comics), var á meðal frum- herja geirans og ritstjórinn, Vincent Sullivan, var óvenju áhugasamur um frumsamið efni. Árið 1938 féll hann fyrir Ofur- menninu löngu eftir að höfund- amir höfðu gefið upp alla von um að sjá það á prenti. Sullivan gerði sér lítið fyrir ög setti Súperman á forsíðu nýrrar útgáfuraðar, Action Comics (mynd 1). Miklar vinsældir Ekki leið á löngu þar tU kaup- endur Action Comics tóku að spyrja eftir Súperman á sölustöð- um sem leiddi tU þess að frá og með 19. tölublaði var Ofurmennið ávaUt á forsíðu. Á árum heims- styrjaldarinnar siðari festi hetjan sig í sessi með því að leika nas- ista grátt hvað eftir annað (mynd 2). Eftir stríðið yfirgáfu þeir Shuster og Siegel DC Comics og varð þá ritstjórinn Mort Weisin- ger helsti áhrifavaldur í þróun hetjunnar. Á sjötta áratugnum höfðu komið fram á sjónarsviðið fjölmargar aðrar ofurhetjur er öttu kappi við Súperman um vin- sældir. í von um að skapa hetj- unni sinni sérstöðu lagði Weisin- ger áherslu á gervi hans sem Cl- ark Kent og ýmislegt sem tengdist plánetu uppruna hans - Krypton. Mest um vert var þó að árið 1951 birtist hún í sjónvarpinu í fyrsta skipti í þáttaröðinni Adventures of Superman. Brátt var Ofur- mennið alls staðar: á hvíta tjald- inu, i útvarpinu, hundruðum blaða, safnaraspjöldum, leikfbng- um o.s.frv. Breytinqar og kvik- myndamr Þrátt fyrir gríðarlega út- breiðslu var Action Comics-út- gáfuröðin ávaiit miðstöð hetjunn- ar því það var hún sem mótaði ímynd hennar umfram annað. ímynd- in breytingar sem hetjan hafði geng- ið í gegnum. Á fyrstu forsíðu hans er Ofurmennið orðið líflegra, lík- amlegra og hasarvænna (mynd 3). Með því var lagður ákveðinn grundvöllur fyrir myndirnar fjór- ar (1978, 1980, 1983 og 1987) en með þeim varð ímynd þess auðvit- að einnig fyrir miklum áhrifum frá leikaranum Christopher Reeve. Þar sem hann er fyrir kaldhæðni örlaganna kominn í hjólastól þyrfti auðvitað að gera nýja mynd sem allra fyrst. Leður- blökumaðurinn hefur útvatnast á hvita tjaldinu svo nú er tækifærið fyrir Súperman að sýna hvert hið raunverulega ofurmenni er. -Björn Æ. Norðfjörð Vikan 15. - 21. febriiar SÆTI FYRRI VIKA VIKUR A LISTA TITILl ÚTGEF. TEG. 1 NÍ 1 Runaway bride SAM Myndbönd Caman 2 NÝ 1 General's daughter Hiskólabió Spoona 3 3 2 Never been kissed Slufan Gaman 4 2 4 The Murnmy CIC Mjndbönd Spcrnu 5 5 2 Election CIC Myndbónd Gaman 6 2 5 Analyze this Wan»f Mynár Caman 7 NÝ 1 Detroit Rock city Myndform Caman 8 6 2 Run Lola nin Stýðnubíó Spcflna 9 4 6 Office space SUan c_ 10 8 6 Instinct Myndforai 11 11 8 Tbeout-of-tnmers OCMyndbtad c— 12 7 3 Yirtual semalitir SMan (H 13 10 3 Inf.mn inierno Myndforai Spcflna 14 12 9 Entrapment Slufan Spcma 15 13 9 Notting hill Háskólabw imm 16 9 4 The Blairwitch project SAN Myndbtad Spcflna 17 15 1 5 AJtt um móður mina Bcrpfik Dranu 18 18 2 Brtakup Myndfonn Spcma 19 NÝ 1 timbo Skdan Drama 20 16 12 EdTv CKMyitatad tmm WJL MtÆ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.