Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Page 64
iíem
Opel Zafira
am
bíll
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Sjónvarpið
pakkar saman
- fyrir milljarö
„Sjónvarpshúsið við Laugaveg verð-
ur rýmt fyrir nýjum eiganda um mán-
aðamótinágúst-septembersamahver
kaupir húsið. Á meðan samningavið-
ræður um sölu hússins eru á þvi stigi
sem þær eru i dag get ég ekki tjáð mig
frekar um það,“ sagði Bjami Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Ríkis-
sjónvarpsins og staðgengiil Markúsar
Árnar Antonssonar útvarpsstjóra.
Vegna væntanlegrar sölu sjónvarps-
hússins eru flutningar Sjónvarpsins
upp í Útvarpshúsið við Efstaleiti
komnir á fullt. Bjami segir flutning-
ana kosta 1 miiljarð króna.
„Við gerum ráð fyrir að húsnæðið
sem bíður okkar í Efstaleiti dugi sjón-
varpinu um ókomna framtíð en því er
ætlaður staður í austurhluta hússins.
Þar verður stúdíóið okkar af svipaðri
_ stærð og hér á Laugaveginum auk þess
sem gert er ráð fyrir öðra stúdíói,"
sagði Bjami sem einnig verður að fjár-
festa í nýjum tækjabúnaði að stórum
hluta vegna flutninganna.
Fram kom í DV í gær að samninga-
viðræður hafi staðið yfir við fyrirtæki á
vegum Sigurjóns Sighvatssonar um
kaup á Sjónvarpshúsinu eftir að viðræð-
ur við Saga-Film, sem bauð staðgreiðslu
upp á 236 miiljónir, fóm út um þúfur.
Samkvæmt heimildum DV era væntan-
leg kaup Sigurjóns hugsuð sem arðbær
fjárfesting á stórhýsi á besta stað i
_ - Reykjavík. Gera má ráð fyrir að bygg-
ingarréttur fáist á þijár viðbótahæðir á
austurálmu hússins. -EIR
Undirbúningur vegna flutnings Ríkis-
sjónvarpsins í Útvarpshúsiö viö Efsta-
leiti er kominn á fulian skriö.
Girnilegur 115 g Áningarborgari, franskar,
súperdós, Piramidelle-súkkul.,
kr. 590.
Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi
sími 564 2100
Netfang: midjan@mmedia.is
Auglýsingastofan Hvíta húsiö fékk átta verölaun af tólf þegar ímark-dagurinn var haldinn hátíölegur í Háskólabíói í
gær. Hvíta húsiö var verðlaunað fyrir athyglisveröastu auglýsingaheröferöina, Mastercard heröferöina fyrir Europay
Island en þau verðlaun afhenti Auöur Guömundsdóttir, markaösstjóri Frjáslrar fjölmiölunar. Á myndinni meö henni
eru Sverrir Björnsson, Hvíta húsinu, og fulltrúi Europay. DV-mynd Hilmar Þór
Kjalarnes:
Alvarlegt
slys við
Grundar-
hverfi
Alvarlegt umferðarslys varð á
Kjalarnesi, rétt fyrir ofan Grundar-
hverfl, upp úr klukkan sjö gær-
kvöld þegar rúta og fólksbifreið
skilllu saman. Rútan hafnaði utan
vegarins og valt þar á hliðina.
Fjöldi lögreglu- og sjúkrabíla frá
Reykjavik og Akranesi voru sendir
á vettvang og einnig var kallað eft-
ir aðstoð þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar. Þyrlunni var þó snúið til
baka.
Ekki var vitað um meiðsl á fólki
eða nánar um tildrög slyssins þeg-
ar blaðið fór í prentun um hálfníu-
leytið í gærkvöld. Aðkoma á
slysstað gaf hins vegar ástæðu til
mikils viðbúnaðar.
Vesturlandsvegi var ekki lokað
vegna slyssins en umferð var beint
um Grundarhverfi. -hlh
Kennarar Iðnskólans í Reykjavík leita réttar síns:
Telja sig eiga milljónir
í vangoldnum launum
- vegna vangreiddrar prófavinnu-stefna yfirvofandi
Kennarar Iðnskólans í Reykjavík
telja sig eiga inni upphæðir sem
nema milljónum króna í vangoldn-
um launum hjá skólanum. Nú er í
gangi endurskoðun á launum þeirra
vegna ýmissra þátta prófavinnu.
Kennarar hafa lagt fram kvartanir
til fiármálaráðuneytisins vegna
ákveðinna atriða í þessum efhum.
Þá er yfirvofandi stefna fyrir félags-
dóm vegna þess að deildarstjórar
telja að kjarasamningur sé ekki
uppfylltur gagnvart þeim.
Samstarfsnefnd fiármálaráðu-
neytis og Kennarasambands íslands
hefur fiallað um kvartanir kennara.
í nýlegu bréfi fiármálaráðuneytisins
til Ingvars Ásmundssonar skóla-
meistara segir m.a. að óánægja
kennaranna snúist um talningu
nemenda til grundvallar greiðslu
fyrir prófavinnu. Samstarfsnefndin
hafi falið Sigurði Helgasyni,
menntamálaráðuneyti, og Elnu
Katrínu Jónsdóttur, Kennarasam-
bandi íslands, að fara yfir nokkrar
skýrslur frá Iðnskólanum ef komast
mætti til botns í því hvort um rang-
túlkun á viðkomandi samnings-
grein hafi verið að ræða. Þau hafi
hist og farið yfir umræddar skýrsl-
ur. Niðurstaðan hafi verið sú að
skólinn vanteldi a.m.k. einhverja
nemendur í öllum tilvikum er þau
skoðuðu. Þau hafi ekki komið auga
á neina eina ástæðu né vinnureglu
sem kynni að valda þessu fráviki
frá því sem þau hafi talið réttar töl-
ur. Nefndin geti þvi ekki bent á
ástæðu rangrar talningar, en það
virðist vera ljóst að skólinn hafi í
öllum tilvikum sem skoðuð voru
talið færri nemendur en Sigurður
og Elna hafi talið rétt að telja.
Álit samstarfsnefndarinnar er, að
ekki sé um vandamál vegna ágrein-
ings um kjarasamning að ræða
heldur sé framkvæmd viðkomandi
ákvæðis að einhverju leyti ábóta-
vant í Iðnskólanum í Reykjavík.
Innan Iðnskólans er nú einnig í
gangi vinna við endurskoðun launa
kennara aftur i tímann vegna ann-
arra atriða en nemendatalningar er
varða prófavinnu.
Varðandi nemendatalninguna
sagði Elna Katrín að ef Iðnskólinn
hefði tekið upp sama launaforrit og
flestir aðrir skólar hefði verið auð-
veldara að finna mistökin. -JSS
^ Veðrið á sunnudag:
Eljagangur norðanlands
Á sunnudag verður norðanátt, víða 10-15 m/s en 15-20 m/s og talsverð
ofankoma austanlands. Éljagangur norðanlands en léttir til suðvestan-
land. Frost 0 til 6 stig, kaldast norðanlands.
Veðrið á mánudag:
Harönadi frost
Á mánudag verður hvöss norðanátt um allt land. Snjókoma eða élja-
gangur um norðanvert landið en skýjað með köflum og að mestu úrkomu-
laust syðra. Harðnandi frost um land allt.
Veðrið á laugardag er á bls. 65.